Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 18

Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 1 1 5 5 0 • sia .is Flug og m ynd á næ stu le igu Skafmiði fylgir hverri mynd 100 stórborgarferðir! 100.000 vinningar! SAMÞYKKT var að breyta nafni Hf. Eimskipafélags Íslands í Burðarás hf. á aðalfundi félagsins í gær. Fé- lagið mun fyrst og fremst beina sjón- um að fjárfestingum. Nafni flutn- ingafélagsins Eimskips ehf., sem er nú dótturfélag Burðaráss, hefur jafnframt verið breytt í Eimskipa- félag Íslands og mun það áfram sinna alhliða flutningastarfsemi eins og undanfarin 90 ár. Einnig var samþykkt á aðalfund- inum í gær að fækka stjórnarmönn- um Burðaráss úr sjö í fimm. Í stjórn- ina voru kjörnir fjórir nýir stjórnarmenn en einn stjórnarmað- ur var jafnframt í fráfarandi stjórn Eimskipafélagsins. Þá var í kjölfar aðalfundarins í gær gengið frá skipun stjórnar flutn- ingafélagsins Eimskips, en hana skipa aðrir en eru í stjórn Burðaráss, að einum stjórnarmanni undanskild- um, sem er í báðum stjórnunum. Sterkara félag Magnús Gunnarsson, fráfarandi stjórnarformaður Eimskipafélags- ins, sagði í ræðu sinni á aðalfund- inum, að fá fyrirtæki hefðu farið í gegnum jafnmiklar breytingar á undanförnum tveimur árum og Eim- skipafélagið. Markmið nýrrar stjórnar móðurfélagsins, Hf. Eim- skipafélags Íslands, sem kosin hefði verið á hluthafafundi í október á síð- asta ári, hefði verið skýrt frá upp- hafi. Í fyrsta lagi að bæta afkomu af rekstri og jafnframt vinna að því að auka verðmæti félagsins. Fráfarandi stjórn félagsins var kosin í kjölfar þeirra miklu breytinga sem urðu á eignarhaldi félagsins í september. „Þegar sú stefna hafði verið mörk- uð að skilja fjárfestingarstarfsemina og flutningastarfsemina að, var ákveðið í desembermánuði að kanna hvort hægt væri að selja Brim í hlut- um eða heilu lagi,“ sagði Magnús. „Það var ákveðið eftir vandlega um- hugsun.“ Hann sagði að ákveðið hefði verið að sameina Burðarás og þá fjármuni sem voru í Brimi, inn í Hf. Eimskipa- félag Íslands. Sú vinna hefði verið í undirbúningi að undanförnu og verið formlega gengið frá samruna félag- anna í fyrradag. Sagði Magnús að eftir þær breyt- ingar sem stjórnin hefði unnið að stæði félagið mjög sterkt. Búið væri að selja Brim með góðum söluhagn- aði og á árinu 2004 hefði verðmæti hlutabréfa í eigu Burðaráss haldið áfram að hækka. Rekstur Eimskips væri að styrkjast og framundan væri það verkefni að auka verðmæti þess félags til frekari hagsbóta fyrir hlut- hafa félagsins. „Gagnstætt þeirri umræðu sem fram hefur farið í fjölmiðlum síðustu daga hafa þær breytingar sem gerð- ar hafa verið á Eimskipafélaginu ekki brotið það niður eða aukið skuldsetningu þess, þvert á móti hef- ur fyrirtækið eflst fjárhagslega og er það nú betur í stakk búið til að hefja nýja sókn en það var fyrir sex mán- uðum.“ Eigið fé um 25 milljarðar Magnús gerði grein fyrir þeim helstu breytingum í rekstri Eim- skipafélagsins sem stjórn þess hefur staðið fyrir á umliðnum tæpu sex mánuðum. Hann sagði að stjórnkerfi fyrirtækisins hefði verið einfaldað. Samhliða því að sjávarútvegsarmur féalgsins, Brim, hefði verið seldur hefði verið stuðlað að myndun þriggja öflugra sjávarútvegsfyrir- tækja í þremur landshlutum. Sam- anlögð eignasala félagsins á fyrir- tækjum og hlutabréfum hefði numið um 38 milljörðum króna og skuldir félagsins hefðu lækkað um rúma tíu milljarða króna. Þá hefðu tvö skip verið keypt til að efla skiparekstur Eimskips ehf. auk þess sem fyrir- tækið Coldstore and Transport Group í Noregi hefði verið keypt, en það rekur tíu skip og fjórar frysti- geymslur. Þau kaup hefðu eflt stöðu skipafélagsins á Norður-Atlants- hafsmarkaði. „Niðurstaða þessara fram- kvæmda hefur verið jákvæð fyrir rekstur félagsins. Þannig hefur hagnaðurinn af sölu eigna verið rúm- lega fimm milljarðar fyrir skatta frá áramótum. Eigið fé fyrirtækisins í dag er um 25 milljarðar. Eiginfjár- hlutfall er rúmlega 50% og veltufjár- hlutfall um það bil 3. Félagið er með 14,5 milljarða króna í handbæru fé og hefur aldrei í sögunni verið jafn sterkt. Hlutabréfamarkaðurinn hef- ur gert sér grein fyrir breytingunum því hlutabréfaverð hefur hækkað um 38% frá áramótum miðað við loka- verð í gær [fimmtudag; innskot Morgunblaðið] en þá var gengi bréf- anna 9,8. Ekki er langt síðan grein- ingardeildir bankanna voru að meta félagið á gengi í kringum 5 og fyrir um ári voru sumir að hafa áhyggjur af því að félagið ætti ekki fyrir skuld- um. Það hefur nú komið í ljós að slík- ur málflutningur var marklaus og átti aldrei við rök að styðjast,“ sagði Magnús. Mun meira fjárfest erlendis Eftir að aðalfundur Eimskipa- félagsins hafði samþykkt að breyta nafni félagsins í Burðarás voru eft- irtaldir aðilar kjörnir í stjórn félags- ins: Björgólfur Thor Björgólfsson, Eggert Magnússon, Sigurjón Þ. Árnason, Þór Kristjánsson, sem var stjórnarmaður í Eimskipafélaginu, og Þórunn Guðmundsdóttir. Eftir stjórnarkjörið tók Björgólf- ur Thor til máls á aðalfundinum og sagði að sjónum Burðaráss yrði fyrst og fremst beint að fjárfestingum. Á sama tíma yrði undirstrikað mikil- vægi hinnar upprunalegu kjarna- stafsemi félagsins með því að gefa flutningafélaginu hið upprunalega og söguríka nafn, Eimskipafélag Ís- lands. Björgólfur Thor sagði að flestum Íslendingum væri nú orðið ljóst að íslensk stórfyrirtæki næðu ekki að halda stöðu sinni eða vaxa nema með aukinni starfsemi erlendis. „Til að geta verið burðarás og bak- hjarl íslensks atvinnulífs verður Burðarás að fjárfesta mun meira er- lendis en verið hefur. Því er það mik- ilvæg stefnubreyting sem nú verður á starfsemi fjárfestingarfélagsins, að gert sé ráð fyrir að vægi erlendra fjárfestinga verður að minnsta kosti til jafns við fjárfestingar innan- lands.“ Hann sagði það vera nauðsynlegt fyrir Ísland nú að eiga sterkan og öflugan fulltrúa á sviði fjárfestinga í heiminum, líkt og það var nauðsyn- legt fyrir land og þjóð að eiga öflugt flutningafélag fyrr á árum. „Burðar- ás verður þessi fulltrúi Íslands og mun félagið nýta sér það fé og þekk- ingu, sem myndast hefur innan fé- lagsins, við uppbyggingu nútíma- legra og arðvænlegra fyrirtækja. Eftir sem áður mun Burðarás taka virkan þátt í atvinnuuppbygg- ingu hér á landi,“ sagði Björgólfur Thor. Friðrik Jóhannsson forstjóri Burðaráss Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar Burðaráss, sem haldinn var í kjölfar aðalfundar Hf. Eimskipa- félags Íslands í gær, skipti stjórnin með sér verkum. Björgólfur Thor Björgólfsson var kjörinn formaður stjórnar og Þórunn Guðmundsdóttir var kjörin varaformaður. Stjórnin gekk einnig frá ráðningu Friðriks Jóhannssonar sem for- stjóra félagsins, en hann hefur verið framkvæmdastjóri Burðaráss, dótt- urfélags Eimskipafélagsins. Í kjölfarið var haldinn framhalds- aðalfundur í Eimskip ehf., og var þar samþykkt að breyta nafni félagsins í Eimskipafélag Íslands ehf. Í stjórn félagsins voru kjörnir Magnús Þor- steinsson, formaður, Þór Kristjáns- son, varaformaður, sem einnig er í stjórn Burðaráss, og Sindri Sindra- son, Tómas Ottó Hansson og Baldur Örn Guðnason meðstjórnendur. Eimskipa- félag Íslands heitir nú Burðarás Nafni dótturfélagsins Eimskips hefur verið breytt í Eimskipafélag Íslands Morgunblaðið/Ásdís Í stakk búið fyrir nýja sókn Sindri Sindrason, fráfarandi varaformaður stjórnar Eimskipafélagsins, og Magnús Gunnarsson, fráfarandi formaður, ásamt Jóhanni Þór Jónssyni, sem var fundarritari.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.