Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 28
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
28 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavík | Alþjóðlegu sjálfboðaliða- og
fræðslusamtökin AFS standa nú fyrir menn-
ingarhelgi skiptinema sem dvelja hér á landi á
vegum samtakanna. Um er að ræða fjörutíu
ungmenni á aldrinum fimmtán til átján ára, frá
fimmtán löndum, en þau stunda nám í grunn-
og framhaldsskólum víða um land. Nemend-
urnir búa hjá íslenskum fjölskyldum og stunda
nám í grunn- og framhaldsskólum.
Menningarferð skiptinemanna hófst á heim-
sókn í Þjóðmenningarhúsið, þar sem unga
fólkið fræddist um íslenska menningarsögu og
hlutverk menningarinnar í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Síðan var haldið á Listasafn
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu þar sem skoðuð
var íslensk nútímalist. Í kjölfarið var svo hald-
ið á Snæfellsnes í skemmtiferð, þar sem unga
fólkið verður fram á sunnudag. Á mánudag fer
hópurinn síðan í heimsókn til forseta Íslands.
Vildu kynnast Norðurlöndum
Skiptinemarnir Simone Frei, frá Sviss, og
Ivan Alfredo Valarezo Calle, frá Ekvador,
komu hingað til lands í ágúst á síðasta ári. Þau
komu á ólíkum forsendum en þó með svipaðar
væntingar. Þau hafa bæði náð mjög góðum
tökum á íslenskunni.
Simone segist hafa viljað fara á norður-
slóðir. „Ég vissi ekki áður að það væri hægt að
fara til Íslands og ég var forvitin,“ segir Sim-
one. Ivan segist hafa viljað fara til Norður-
landanna og kynnast hinni ólíku menningu
norrænna þjóða. „Ég kom til Íslands af því
mig langaði að sjá snjó,“ segir Ivan og brosir
létt, hann hefur gert sér grein fyrir því að Ís-
land ber ekki alltaf nafn með rentu. Ivan
stundar nám í MA, og segir sér hafa létt við
það að uppgötva að höfuðstaður Norðurlands
hefur þó fleiri snjódaga en Reykjavík. Simone
gengur í FÁ og segir mjög gaman að læra hér.
„Þetta er allt öðruvísi en heima. Samband
nemenda og kennara er mun betra hér en í
Sviss, persónulegra. Skólinn er eins og fjöl-
skylda miðað við formlegheitin í Sviss. Hjá
fósturfjölskyldu minni ríkir líka mikil hlýja.“
Ivan segir mikinn mun á Íslandi og Equador.
„Allt sem ég þekki er öðruvísi hér, veðrið er
mildara, tilfinningin er allt önnur.“
Sigrast á feimninni
Sá orðstír hefur lengi loðað við Íslendinga
að þeir séu kuldalegir og feimnir gagnvart er-
lendum skiptinemum. Simone segir þennan
orðstír því miður eiga rétt á sér. „Mér þykir
leitt að það vantar dálítið upp á forvitnina, fólk
spurði sjaldan opinna spurninga og því gafst
mér ekki alltaf tækifæri til að æfa íslenskuna
mína. Eftir jól var ég þó komin með þokkalegt
vald á íslenskunni og var farin að geta spjallað
við samnemendur mína, þá varð þetta auðveld-
ara, ekki bara farið sjálfkrafa yfir í ensku. Við
vorum líka kannski sjálf svolítið feimin, en
maður má ekki búast við að fólk komi að fyrra
bragði, það er alltaf maður sjálfur sem þarf að
hafa frumkvæðið.“ Þetta tekur Ivan undir,
hann segir samnemendur sína ekki lengur eins
feimna við hann og þeir voru fyrst.“
Simone og Ivan segjast hafa lært margt með
dvöl sinni hér á landi. „Kannski ekki beinlínis í
skólanum,“ segir Simone, „en að vera með
fólki, að tala við fólk, gleyma að vera feimin og
hitta fólk alls staðar að úr heiminum. Það var
mjög skemmtilegt.“ Ivan segist hafa komið til
Íslands til að vita meira um heiminn. „Mig
langaði bæði til að kynnast framandi löndum
og stuðla að friði, vera með fólki af ólíku þjóð-
erni að gera skemmtilega hluti saman, ekki í
stríði,“ segir Ivan og Simone samsinnir.
Skemmtilegasta hluta skiptinemareynsl-
unnar segir Simone hafa verið að upplifa nýtt
hlutverk í nýju samfélagi. Ivan segist hið fram-
andi land og þjóðfélag hafa verið afar gefandi
reynslu. „Veðrið og fólkið er allt öðruvísi. Hér
skiptist á frost og milt veður, en á veturna er
rúmlega tuttugu stiga hiti í Ekvador. Í Suður-
Ameríku er fólk líka miklu opnara og talar
meira saman á afslappaðan máta. Íslendingar
og Norður-Evrópubúar eru allt öðruvísi í sam-
skiptum, þau eru miklu skornari og skarpari,“
segir Ivan að lokum.
Fjörutíu skiptinemar frá fimmtán löndum á vegum AFS leggja í menningarferð á Snæfellsnes
Ný og
framandi
upplifun
Morgunblaðið/Jim Smart
Frítt föruneyti: Fjörutíu skiptinemar AFS ásamt sjálfboðaliðum úr röðum samtakanna í Þjóðmenningarhúsinu.
Skemmtileg reynsla: Simone og Ivan eru afar
ánægð með reynslu sína af dvölinni.