Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 29
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 29
VALGERÐUR H. Bjarnadóttir
fyrrverandi framkvæmdastýra Jafn-
réttisstofu er að vinna í því að fá
greiddan út sinn ráðningarsamning
sem framkvæmdastýra en hún telur
sig eiga inni 18 mánaða laun. Val-
gerður sagði af sér sem jafnréttis-
stýra og formaður Leikfélags Akur-
eyrar í kjölfar þess að LA tapaði
dómsmáli í Héraðsdómi Norður-
lands eystra en dómurinn taldi að
Valgerður hefði brotið jafnréttislög
við ráðningu í starf leikshússtjóra
Leikfélags Akureyrar. Hæstiréttur
sneri dómi héraðsdóms við í janúar
sl.
„Ég vil eðlilega fá greiddan út
þann samningstíma sem ég var með.
Ég var ráðin til fimm ára, var búin
með þrjú ár og er búin að fá sex mán-
aða laun til viðbótar. Þá stendur eftir
eitt og hálft ár sem mér finnst liggja
beint við að ég eigi rétt á, þegar í ljós
kemur að málið var allt á misskiln-
ingi byggt. Þetta eru þær kröfur sem
ég hafði sett fram strax. Ég var líka
svo hógvær að setja aðeins fram þær
kröfur að ef Hæstiréttur sneri
dómnum, þá fengi ég samninginn
greiddan út. Ég var tilbúin að taka
það á mig ef Hæstiréttur hefði stað-
fest niðurstöðu héraðsdóms, jafnvel
þótt þetta mál hefði ekki komið starfi
mínu við. Þetta eru þær kröfur sem
ég setti fram í ágúst á síðasta ári,
þegar farið var í að ræða starfsloka-
samninginn af einhverju viti. Félags-
málaráðherra hafnaði þessum kröf-
um þá en eftir að Hæstiéttur sneri
dómnum vonaðist ég til að ráðherra
skipti um skoðun og hefði samband
við mig af fyrra bragði. Það hefur
hann ekki gert og ég sé því ekki ann-
að í stöðunni en að ítreka fyrri kröfu
með formlegum hætti.“
Aðspurð um hvort hún gerði kröfu
um að fá starf framkvæmdastýru
Jafnréttisstofu aftur sagði Valgerð-
ur að þannig gengju hlutirnir ekki
fyrir sig. „Það er búið að ráða aðra
manneskju í stöðuna.“
Fyrrverandi framkvæmdastýra Jafnréttisstofu
Telur sig eiga inni
18 mánaða laun
Morgunblaðið/Kristján
Valgerður H. Bjarnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastýra Jafnréttistofu, í
ræðustóli á fundi bæjarstjórnar Akureyrar.
HAMINGJUÓSKUM hefur rignt
inn á skrifstofu Samherja síðustu
daga, blómakörfur berast, skeyti,
tölvupóstur og þá hafa margir
hringt til fyrirtækisins og lýsa
menn ánægju sinni með gifturíka
björgun Baldvins Þorsteinssonar
EA, sem strandaði á Skálarfjöru
fyrr í þessum mánuði, en hann náð-
ist á flot nú í vikunni.
„Þið hafið sannað að björgun
stórra skipa við suðurströnd lands-
ins er möguleiki. Þekking ykkar og
hugrekki getur ekki annað en vald-
ið aðdáun,“ segir í tölvubréfi sem
og að árangurinn sé stórsigur.
„Þetta ríkir greinilega mikil
gleði, það er mjög skemmtilegt að
fá allar þessar heillaóskir,“ sagði
Margrét Ólafsdóttir ritari forstjór-
ans, Þorsteins Más Baldvinssonar.
Kolbrún Júlíusdóttir á símanum
sagði að fólk hvaðanæva af landinu
hefði hringt síðustu daga og lýst yf-
ir gleði sinni með björgun skipsins.
„Það hringja margir sem tengjast
sjó eða sjómennsku á einhvern hátt,
margir hafa upplifað svipaða
reynslu, lent í lífsháska vegna
strands,“ sagði Kolbrún. Þær stöll-
ur, Margrét og Kolbrún voru sam-
mála um að þessir síðustu dagar
hefðu verið starfsfólki Samherja
ánægjulegir. „Það er ómetanlegt að
finna þennan mikla hlýhug og með-
byr,“ sögðu þær.
Skeyti hafa borist frá fólki víðs
vegar um land og einnig Íslend-
ingum í útlöndum sem greinilega
hafa fylgst grannt með gangi mála.
Þær sögðu að Samherjamenn hefðu
ekki fyllilega áttað sig strax á
hversu vel fólk hefði fylgst með
strandinu og björgun skipsins. „En
okkur þykir öllum afar vænt um
þessar kveðjur sem borist hafa síð-
ustu daga,“ sögðu þær Margrét og
Kolbrún.
Morgunblaðið/Kristján
Í blómahafi: Margrét Ólafsdóttir og Kolbrún Júlíusdóttir með skeyti og
kveðjur innan um blómakörfur sem bárust Samherja eftir björgun Bald-
vins Þorsteinssonar EA af strandstað í Skálarfjöru.
Hamingjuóskum rign-
ir yfir Samherjamenn
Yngismannadagur | Stjórn Lauf-
áshópsins hefur ákveðið að gera
Yngismannadaginn, fyrsta dag ein-
mánaðar að hátíðisdegi sínum, en
hann er nú 23. mars. Af þessu til-
efni verður samkoma í Laxdalshúsi
og hefst hún kl. 20.30.
Saga hússins verður sögð, leikið
á lágfiðlu og sungið. Til siðs var að
baka vöfflur í Mývatnssveit á Yng-
ismannadaginn og verður það gert
nú í tilefni dagsins. Þá munu fé-
lagar í Laufáshópnum koma með
heimagert skyr, mysing og smjör
og bakað verður brauðmótabrauð
og gerð kæfa. Kvæði verða kveðin
og húslestur lesinn. Loks má geta
þess að félagar mæta í landnáms-,
miðalda- og þjóðbúningum til sam-
komunnar.