Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 32

Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 32
LANDIÐ 32 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Fljót | Leikfélag Siglufjarðar hefur undanfarna tvo mánuði æft leik- ritið Silfur hafsins. Höfundur þess er Ragnar Arnalds, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður. Leik- ritið fjallar um upphaf síldveiða og síldarvinnslu en í ár eru einmitt liðin eitt hundrað ár síðan síldveið- ar hófust fyrir alvöru hér við land, þó svo að fyrstu síldinni væri land- að árið áður. Þessara merku tíma- móta verður einmitt minnst með ýmsum hætti í Siglufirði í sumar. Leikstjóri Silfurs hafsins er Linda María Ásgeirsdóttir, en hlut- verk eru sautján. Meirihluti leik- aranna er að stiga á svið í fyrsta skipti en vel gekk að manna leik- ritið. Við sögu í verkinu koma þjóðþekktir menn í bæjarlífinu á Siglufirði. Má þar nefna séra Bjarna Þorsteinsson og Hafliða hreppstjóra. Leikfélagið fékk Ragnar til að semja þetta verk sér- staklega fyrir sig og var handritið tilbúið síðastliðið haust. Áætlað er að frumsýning verði 27. mars nk. og munu þá fylgja nokkrar sýn- ingar í kjölfarið en svo verður verkið einnig sýnt í sumar í tengsl- un við fyrirhuguð hátíðahöld. Þegar fréttamaður leit inn á æf- ingu á dögunum vildi svo heppi- lega til að höfundurinn var á staðn- um að fylgjast með leikurunum. Síldveiðarnar mörkuðu tímamót Það var létt yfir hópnum og á nýliðunum mátti heyra að þetta væri mun skemmtilegra en þeir bjuggust við fyrirfram. Aðspurður um verkið sagði Ragnar að það gerðist sunnudaginn 8. júlí 1903 en þann dag komu Norðmenn í fyrsta skipti með síld til Siglufjarðar og þá byrjaði í rauninni nýr tími á Ís- landi. „Þessi dagur markar tímamót ekki bara í atvinnusögu Siglu- fjarðar heldur allrar þjóðarinnar. Þegar við byrjum að salta síld fylgir alveg gríðarleg peningavelta inn í þjóðfélagið sem hefur áhrif um allt land og er viss þáttur í þessari bjartsýni aldamótakynslóð- arinnar sem finnur að loksins er kominn vindur í seglin. Þetta er sýning sem er að verulegum hluta byggð á sannsögulegum heimildum en er svona frekar í léttum stíl,“ sagði Ragnar. Þess má geta að Elías Þorvalds- son, skólastjóri tónlistarskólans, hefur samið tónlist við söngtexta Ragnars og stjórnar hann tónlistarflutningnum. Brynja Svavarsdóttir, formaður leikfélagsins, var afar ánægð með að félagið skyldi ráðast í að láta skrifa þetta verk fyrir sig. Það hefði oft verið búið að ræða um að gaman væri að láta semja eitthvað sem gerðist í bæjarfélaginu. Og svo í tilefni af þessum tímamótum hefði þessu verið hrint í fram- kvæmd. Hún sagði einnig ánægjulegt hvað margir hefðu verið tilbúnir að aðstoða leikfélagið við þessa uppfærslu en um þrjátíu manns koma að þessu með einum eða öðr- um hætti. Þetta ætti í raun við um bæjarbúa almennt því nú væri ver- ið að safna styrktarlínum í leik- skrána og hefðu undirtektir verið sérlega góðar. Aldarafmælis síldveiða minnst á leiksviði Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Síldarstemning: Hópurinn sem leikur í Silfri hafsins, að tveimur undanskildum, í lok æfingar á dögunum. Laxamýri | Bullukollur er blað sem gefið er út í Aðaldal og er að koma út í fjórða sinn. Það væri ekki í frásögur færandi nema hvað útgefendurnir eru af yngri kyn- slóðinni, þ.e. í 6. og 7. bekk Hafra- lækjarskóla. Þetta eru þær Hall- dóra Kristín Bjarnadóttir á Aðalbóli og Sólrún Harpa Svein- björnsdóttir á Búvöllum og segjast þær stöllur hafa mikinn áhuga á íslensku og þá sérstaklega rit- gerðasmíð, ljóðagerð og einnig á því að taka viðtöl við fólk. Þær hjóla sjálfar með blaðið, þegar það kemur út, í póstkassana í hluta Aðaldals og upplagið er um 30 eintök og fer vaxandi. Viðtökur hafa verið mjög góðar að þeirra sögn og margir eru að spyrja um þetta blað sem gaman er að fletta enda víða komið við í efnisvali. Þar má nefna brandara, föndur, ljóð, sögur, viðtöl við fólk úr sveitinni, auk þess ýmsar ráðleggingar, heil- ræði og fróðleik. Útgjöld eru nokkur en þær fá 300 kr. fyrir hvert blað í áskrift til þess að standa undir pappírskostn- aði. Ekki er þó meiningin að reyna að græða á þessu og hafa þær Halldóra Kristín og Sólrún Harpa safnað í bauk fyrir Rauða krossinn og aðra góðgerðastarfsemi, nokkr- um krónum sem orðið hafa af- gangs. Verðlaun á Bessastöðum Segja má að hér séu ekki við- vaningar á ferð þó ungar séu þar sem Sólrún Harpa vann til verð- launa fyrir einu ári í smásagna- keppni Æskunnar og Ríkisút- varpsins fyrir smásöguna Sögulegt sumarfrí og hefur hún birst í blaðinu þeirra. Þá vann Halldóra Kristín nýlega til verðlauna í sömu keppni fyrir Litlu hetjuna sem er saga af stúlku sem á fatlaða syst- ur. Þannig hafa þær báðar farið á Bessastaði og tekið við verðlaun- um úr hendi forseta Íslands auk þess sem Halldóra Kristín vann nýlega upplestrarkeppni grunn- skólanna í Suður-Þingeyjarsýslu. Hvort þær hyggja á framabraut á ritvellinum vilja þær ekki segja mikið um, en heima eiga þær báð- ar sögur og ljóð sem eftir eiga að birtast þótt síðar verði. Blaða- mennskan finnst þeim líka spenn- andi og svo taka þær fúslega við efni ef nemendur skólans vilja láta í sér heyra. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Spennandi: Halldóra Kristín og Sólrún Harpa með eintak af blaðinu. Kraftmiklar blaða- konur í Aðaldal Hvammstangi | Mörg félagasamtök beina kröftum sínum að bættum búnaði á heilbrigðisstofnunum á sínu félagssvæði. Er oft um að ræða mjög mikilvægan búnað, sem ella væri erfitt að eignast. Fyrir skömmu afhenti Félag hjartasjúklinga á Norðurlandi vestra Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga að gjöf sjálfvirkt hjartastuðtæki af fullkomnustu gerð. Tækið er lítið og handhægt og hentar m.a. vel fyrir lækni á vakt að grípa til, ef snögglega þarf að bregð- ast við hjartastoppi. Við afhendingu tækisins var boðið upp á ókeypis blóðfitu- og blóðþrýst- ingsmælinu á heilsugæslunni á veg- um hennar og Félags hjartasjúkl- inga. Á tveimur klukkustundum mættu rúmlega 60 manns til mæl- ingar eða um 5 % íbúa í læknishér- aðinu. Nokkrum þeirra var vísað til frekari skoðunar hjá heilsugæslu- lækni. Fyrirtækið Lyra gaf heilsu- gæslunni blóðfitu- og blóðsykurmæli sem notaður var af þessu tilefni. Morgunblaðið/KÁS Ágúst Oddsson yfirlæknir, Helga Hreiðarsdóttir hjúkrunarforstjóri, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigurlaug Hermannsdóttir ásamt Hlyn Tryggvasyni og Bjarna Pálssyni úr stjórn Félags hjartasjúklinga, Norðurlandi vestra. Gjöf til Heilbrigðisstofnunarinnar Hvammstangi | Í vetur hefur verið unnið að stefnumótun um atvinnu- mál í Húnaþingi vestra, að frum- kvæði sveitarfélagsins. Samið var við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og var Ásgeir Jónsson ráðinn verk- efnisstjóri. Á haustdögum var boðað til kynningarfundar og skipuðu þátt- takendur sér niður í vinnuhópa; Bú- setuhóp, Landnýtingarhóp, Tæki- færishóp og Þekkingarhóp. Unnið var að margvíslegri hugmyndavinnu í hópunum og skilaði hver hópur skýrslu um álit sitt á stöðu og fram- tíðarsýn í málefnum héraðsins. Laugardaginn 13. mars var svo málþing um verkefnið í Félagsheim- ili Hvammstanga. Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, sat þingið og ávarpaði það. Þar kynntu hóp- stjórar sínar skoðanir sinna hópa og verkefnisstjóri fór síðan yfir sameig- inlegar niðurstöður hópanna og sagði frá sínum skoðunum eftir þessa hópvinnu. Margir gestir komu til þingsins, forstöðumaður Hag- fræðistofnunar, Tryggvi Þór Her- bertsson, alþingismenn, gestir úr ná- lægum héruðum ásamt heimamönnum. Talsverðar umræð- ur urðu um málefnið, enda brýnt að takast á við atvinnuuppbyggingu í héraðinu. Sveitarstjórn hefur ákveðið að fylgja verkefninu eftir með tíma- bundinni ráðningu ráðgjafa, til að vinna úr ákveðnum hugmyndum sem að fram komu í verkefnisvinnunni. Morgunblaðið/KÁS Atvinnumálin rædd: Heimir Ágústsson oddviti, Tryggvi Þór Herbertsson, Valgerður Sverrisdóttir og Elín R. Líndal, formaður byggðaráðs. Stefnumótun í atvinnumálum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.