Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 34
LISTIR
34 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ELSKULEGU leikhúsgestir, litlir,
stórir, langir, stuttir, hnöttóttir og
ílangir, ungir, gamlir, stelpur,
strákar, kerlingar, karlar, dömur
og herrar!
Til hamingju með alþjóðlegan
leikhúsdag barna. Einmitt á þessari
stundu eru ef til vill börn á öllum
aldri að hreiðra um sig í leikhúsum
í Túrkmenistan og Timbúktú, Kúa-
lalúmpúr og Kattegat til þess að
fagna því að börn eigi leikhús.
En til hvers er leikhús? Er leik-
hús ekki bara gamaldags útgáfa af
sjónvarpi, bíói, vídeói og DVD?
Hentar það kannski aðeins fyrir
ömmur og afa, langömmur og lang-
afa? Er leikhús ekki bara til þess
að þeir sem alltaf vilja vera að leika
sér og geta ekki hætt því og fengið
sér alvöru vinnu geti leikið sér í
vinnunni? Er leikhús ekki bara fyr-
ir fólk sem vill klæða sig í skrýtin
föt í vinnunni og haga sér eins og
asnar?
Nennir einhver að koma í leik-
hús?
Er ekki bara nóg að kaupa DVD
diskinn þegar hann kemur út?
Hvaða rugl er annars þetta leik-
hús? Og af hverju í ósköpunum þarf
sérstakt barnaleikhús? Hafa börn
nokkurn áhuga á leikhúsi? Vilja
þau ekki miklu heldur liggja uppi í
sófa heima hjá sér, borða snakk og
góna á Simpson og Vini? Eða þarf
kannski leikhús? Er leikhús ef til
vill lífsnauðsynlegt
fyrir sálina?
Kannski er þetta
svona og takið nú
vel eftir: Ef við ætt-
um frænku sem byði
okkur að koma með
sér til Kaup-
mannahafnar að
spássera um í Tívol-
ínu, hjóla eftir Strik-
inu, finna lykt af
apaskít í dýragarð-
inum og ferðast með
hestvagni á Bakk-
anum, myndum við
segja: Nei takk, ég
nenni ekki? Mynd-
um við segja: Nei
ómögulega. Ég ætla bara að vera
heima og skoða bæklingana? Ég á
fullt af blöðum um Köben og svo á
ég líka spóluna? Myndum við segja:
Það er alveg jafn skemmtilegt að
horfa bara á spóluna um Kaup-
mannahöfn? Nei, við myndum nátt-
úrlega segja: Jú, þakka þér kær-
lega fyrir, frábæra frænka!
Hvenær á ég að mæta út á flugvöll?
Þannig er það einmitt með leik-
húsið líka. Við viljum koma á stað-
inn - sjá og upplifa leikhúsgald-
urinn.
Já, ef það væri ekki til barnaleik-
hús þá hefðum við aldrei verið í
sama herbergi og Lína Lang-
sokkur. Þá hefðum við aldrei séð
ókurteisu systurnar
Snuðru og Tuðru með
berum augum. Þá hefð-
um við aldrei komið í
Hálsaskóg og þaðan af
síður í Kardimommubæ.
Við myndum aldrei fá að
vita hvað væri í ógn-
arstórum og undarlegum
kassa og hefðum ekki
fundið fýluna frá
Prumpuhólnum. Við
hefðum aldrei komið í
Ævintýraskóginn með
Dreitli njósnadvergi og
aldrei hitt fyrir geimver-
urnar Hatt og Fatt- við
myndum ekki einu sinni
vita hvernig þeir lítu út!
Og við myndum ekki þekkja Siggu
sjoppuræningja þótt við mættum
henni á götu.
Jú, víst þarf leikhús og sérstakt
barnaleikhús er lífsnauðsynlegt.
Leikhús er galdrahús. Í gömlu leik-
húsi er skrýtin lykt, í nýju leikhúsi
er líka skrýtin lykt, lykt af spennu,
ekki hárspennu, heldur liggur eft-
irvæntingin í loftinu. Maður fær sér
kannski nammi - helst í bréfi sem
skrjáfar í svo maður geti verið að
passa alla sýninguna að það skrjáfi
ekki í bréfinu um leið og maður
nælir sér í mola. Maður finnur sæt-
ið sitt, rétta sætið, þetta sæti sem
maður er búinn að panta í gegnum
síma og sjá fyrir sér í huganum.
Mun ég heyra nógu vel í þessu
sæti? Mun ég sjá allt og nákvæm-
lega allt sem gerist á sviðinu? Mun
ég þurfa að sitja langt til hliðar? Æ,
ég vil ekki horfa á ská, ekki heldur
niður og alls ekki upp því þá fæ ég
hálsríg. Nei, það verður að vera
rétta sætið, þetta eina rétta.
Fyrst eru læti þegar allir eru að
finna sér sæti, svo er kliður. Allir
eru sestir. Tjaldið er fyrir sviðinu
og hvað er á bak við þetta tjald? Er
þetta galdratjald? Svo er myrkur
og svo er þögn og allt í einu fer
þetta tjald af stað og ævintýra-
heimurinn opnast. Á þessu sviði
getur allt gerst. Fólk getur flogið,
sungið, sagt sorglegar og gleðilegar
sögur og ferðast í gegnum tímann.
Við förum með, af því að við erum
leikhúsgestir, boðnir í ótrúlegt
ferðalag, en samt sitjum við á sama
stað í þessu frábæra sæti. Allt í
einu snýr leikarinn sér út í sal og
spyr: Hvað finnst ykkur? Skyndi-
lega erum við með í sýningunni og
það kunna krakkar svo sannarlega
að meta. Komdu hingað! Farðu
þangað! Passaðu þig á úlfinum!
Skammastu þín! Harka Parka!
Lilli! Vertu kyrr uppi í trénu!
Jú, leikhúsið er lífsnauðsynlegt
og börn eru besta leikhúsfólk í víðri
veröld.
Til hamingju með alþjóðlegan
leikhúsdag barna og lengi lifi leik-
húsið!
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Alþjóðlegi barnaleikhúsdagurinn
Kristín Helga
Gunnarsdóttir
INN Í völundarhúsið - Ferð um
höllina á Knossos er yfirskrift
fyrirlestrar sem breski forn-
leikafræðingurinn dr. Gareth
Owens heldur í Odda, stofu 101,
kl. 14 í dag.
Dr. Gareth Owens hefur lagt
stund á mínóísk fræði, frá
bronsöld Krítar, frá málvís-
indalegu sjónarhorni. Gareth
verður einnig með fyrirlestur-
inn Conversazione, Lista-
mannaspjall, ásamt listamann-
inum Alistair Macintyre kl. 14 á
sunnudag í nýjum fyrirlestrar-
sal í Listasafni Reykjavíkur -
Kjarvalsstöðum.
Mínóísk
fræði
Sýningin Manyfacture eðaMargleiðsla verður opnuðí Nýlistasafninu í dag kl.17, en sýningin er afrakst-
ur samvinnu átta listamanna sem
kynntust í námi sínu við Listaka-
demíuna í Malmö. Hópurinn sem
stendur að sýningunni er skipaður
Dorothee Albrecht, Can Altay,
Kristinu Ask, Hyunjin Kim, Jacq-
ueline Hoang Nguyen, Hönnu
Styrmisdóttur, Christinu Werner
og Christine Wolfe, en þau buðu
síðan listafólkinu Marius Watz,
V3TO, Byungjun Kwon, Koray
Kantar, Emmanuel Nyberg, Kajsu
Dahlberg, Haessen Chung og
Wolfgang Breuer til samstarfs við
sig.
Aðspurt segist listafólkið hafa
kynnst síðasta sumar í tengslum
við nám sitt í gagnrýnum fræðum
við Listakademíuna í Malmö, en að
vinnan við sýninguna í Nýlistasafn-
inu hafi verið unnin á síðustu fjór-
um mánuðum og er þetta fyrsta
sýningin sem þessi tiltekni hópur
vinnur saman. Að sögn hópsins er
útgangspukturinn í sýningunni
hugmyndin um þekkingarmyndun
eða þekkingarsköpun í listum. Þau
benda á að í hefðbundinni þekk-
ingarmiðlun sé oftast aðeins ein-
blínt á vitsmunalega þekkingu og
algjörlega litið framhjá bæði lík-
amlegri og tilfinningalegri þekk-
ingu.
Á sýningunni má bæði sjá ein-
staklingsverk og verk unnin í sam-
vinnu tveggja til fjögurra ein-
staklinga. „Við erum náttúrlega
ólíkir einstaklingar með mismun-
andi bakgrunn, þannig að við
reyndum að hafa strúktúr sýning-
arinnar afar opinn þannig að við
gætum sameinað hin ólíku áhuga-
svið okkar og túlkanir á þekking-
arsköpun. Við erum samt að vinna
innan ákveðins afmarkaðs
ramma,“ segir Hanna Styrm-
isdóttir. Jacqueline Hoang Nguyen
bendir á að flestöll ef ekki öll
verkin á sýningunni séu afrakstur
þeirrar hugmynda- og hugar-
flugsvinnu sem unnin var í
tengslum við sýninguna og Krist-
ina Ask tekur undir þetta og bend-
ir á að í öllum verkunum megi
skynja skýr hugmyndafræðileg og
sjónræn tengsl.
Auglýsingafrasar í nýju ljósi
Verkin þrettán sem sjá má á
sýningunni eru á báðum hæðum
Nýlistasafnsins, en sýningin teygir
anga sína víðar því eitt verkanna
hangir fyrir framan Háskóla Ís-
lands. Meðal verka sem sjá má á
efri hæðinni er verk þeirra
Christine Wolfe og Marius Watz
sem nefnist Squeaky Happy Slog-
an Machine. Aðspurð um verkið
segjast þau nota tölvutæknina til
að leika sér með auglýsingafrasa
og afbyggja þá. „Lýsa mætti verk-
inu sem orðaleik þar sem við for-
ritum tölvu með slagorðum og
auglýsingafrösum þekkra fyr-
irtækja á borð við Coke, Burger
King, Nike og MacDonalds og lát-
um tölvuna síðan skipta út einu og
einu orði úr frösunum með orðum
úr fræðitexta sem gagnrýnir kap-
ítalisma,“ segir Watz. Að sögn
Wolfe forrituðu þau tölvuna með
600 auglýsingafrösum þannig að
mögulegar samsetningar skipta
hundruðum þúsunda. „Með því að
greina frasana svona verður þú,
sem áhorfandi, mun meðvitaðri um
retórík auglýsinga. Í þessu nýja
samhengi geta slagorðin t.d. allt í
einu virkað fyndin eða óþægileg,
stuðandi eða jafnvel birt kynþátta-
fordóma,“ segir Waltz.
Í hinum enda efra rýmisins er
m.a. að finna verkið Christiania vs.
Christiansborg eftir V3TO, en í því
gefst sýningargestum færi á að
hlusta samtímis á upptökur úr
kynningarferðum um annars veg-
ar Kristjánsborgarhöll og hins
vegar fríríkið Kristjaníu í Kaup-
mannahöfn. Einnig má sjá verkið
Economy of Desire eftir Ask. Að-
spurð um verk sitt segist Ask m.a.
vinna með klisjur úr vísindaskáld-
sögum. „Í vísindaskáldsögum birt-
ist okkur einmitt dæmi um þær
hugmyndir sem mannfólkið gerir
sér um framtíðina. Þessar hug-
myndir fólks um hvað sé mögulegt
í framtíðinni eru hins vegar ávallt
mótaðar af aðstæðum þess í núinu
og endurspegla því alltaf veruleika
þess hverju sinni.“
Að láta mynda sig í líki orms
Opnunarhelgina verða ýmsar
uppákomur í tengslum við sýn-
inguna. Eitt verkanna á neðri hæð
safnsins nefnist Knowledge Worm
og í kvöld gefst sýningargestum
einstakt tækifæri til að bregða sér
í hlutverk þekkingarormsins. „Með
þekkingarorminum vildum við
finna léttari leið til að fjalla um
þekkingarmyndun þar sem sýning-
argestum gæfist auk þess kostur á
að taka beinan þátt í verkinu.
Þetta verk er nokkurs konar
gjörningur þar sem gestir geta lát-
ið mynda sig í líki ormsins og
þannig bókstaflega tekið á sig
hlutverk hans,“ segir Wolfe að-
spurð um þennan sérstaka orm.
Wolfe bendir á að myndirnar verði
síðan bæði hengdar upp í Ný-
listasafninu og setttar á Netið þar
sem fólk geti nálgast þær á vef-
slóðinni: www.unlekker.net/
knowledgeworm. „Auk myndatök-
unnar munum við bjóða gestum
epli að borða, en ormurinn er ein-
mitt að éta sig gegnum epli á
myndinni,“ segir Wolfe og bendir
á hvernig eplið hafi löngum verið
tákn þekkingar og upplýsinga,
samanber hlutverk þess í kristinni
hugmyndafræði.
Annað kvöld kl. 19 verður sýn-
ingargestum boðið upp á krítískt
bingó sem er hluti af innsetning-
unni Critical Bingo sem Can Altay,
Kristina Ask, Hyunjin Kim, Jacq-
ueline Hoang Nguyen og Emm-
anuel Nyberg unnu í sameiningu.
Að sögn Altays hjálpar bingóið
fólki m.a. til að greina orðræðu
bæði fjölmiðla- og fjarskiptafyr-
irtækja. Í tengslum við sýninguna
verður á morgun kl. 13 að auki
haldin málstofa sem nefnist Jarð-
tenging. Um er að ræða óformlega
tilraun sem stendur í u.þ.b. fimm
klukkustundir og felur hún í sér
samvinnu safnsins og listamann-
anna sem að sýningunni standa.
Málstofan er skipulögð af aladin/
alkhemi, Bretlandi, í samvinnu við
Rebekku Ragnarsdóttur hjá Ný-
listasafninu, Maritu Muukkonen
hjá NIFCA (Nordic Institute for
Contemporary Art) og Manyfact-
ure-listakademíuna í Malmö með
stuðningi norrænu ráðherranefnd-
arinnar. Uppákoman er opin öll-
um, bæði áhuga- og fagfólki, en
áhugasömum er bent á að skrá
þátttöku sína með því að senda
póst á netfangið: nylo@nylo.is.
Að lokum má geta þess að síðar
á árinu er ætlunin að gefa út bæði
margmiðlunardisk og bók í
tengslum við sýninguna Manyfact-
ure eða Margleiðslu. Sýningin
stendur til 4. apríl nk. og er opin
miðvikudaga til sunnudaga milli
kl. 14 og 18.
Þekkingarsköpun í ýmsum myndum
Listamennirnir sem standa að Margleiðni í Nýlistasafninu. Morgunblaðið/Sverrir
Alliance française, Tryggvagötu
8 kl. 11 Árleg samkeppni í flutn-
ingi ljóða fyrir framhaldsskóla-
nemendur í frönsku. Átján nem-
endur víðs vegar að úr
framhaldsskólum landsins munu
flytja utanbókar mörg af þekkt-
ustu ljóðum franskra bókmennta.
Norræna húsið kl. 14 Fjórðu og
síðustu tónleikar í tónleikaröð
Tónlistarskólans í Reykjavík á
þessum vetri. Á efnisskránni eru
eingöngu verk eftir Joseph
Haydn.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is