Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 40
Grænmeti og fiskur
á pönnu
400 g ýsuflök
3 msk hveiti
½ tsk karrý eða fiskikrydd
½ tsk salt
2 msk olía
½ kúrbítur
8-10 sveppir eða lítil dós
af niðursoðnum sveppum
1 rauð paprika eða ½ græn og ½
rauð
2-3 meðalstórar gulrætur
nokkrir kvistir af brokkólí
ca 5 cm blaðlaukur
4-5 hvítlauksrif
2 msk olía
Skerið fiskinn í bita. Blandið sam-
an hveiti og kryddi og veltið fisknum
upp úr blöndunni. Snöggsteikið hann
upp úr 2 msk af olíunni. Setjið hann á
disk til hliðar og haldið honum heit-
um. Flysjið grænmetið, skerið það í
ræmur og linið það á pönnu í 2 msk af
olíu, kryddið með sósunni og e.t.v. örl.
salti. Leggið fiskinn yfir grænmetið
og skreytið með grein af steinselju
Sósa
mangóchutney (green label)
sojasósa
Blandið saman mangóchutney og
sojasósu og hrærið saman við græn-
metið þegar það er full eldað. Magnið
fer eftir smekk. Passið að hafa græn-
metið örl. hart undir tönn.
Berið fram með soðnum kartöflum
og nýbökuðu brauði.
Í þessa uppskrift má einnig nota
það grænmeti sem til er í ísskápnum
hverju sinni og eins má nota kjúk-
lingabringur sem skornar hafa verið í
strimla og snöggsteiktar á pönnu í
staðinn fyrir fiskinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Heimilisfræðikennararnir: Stefanía Valdís Stefánsdóttir og Halla Guð-
mundsdóttir skiptast á uppskriftum og læra hvor af annarri.
H
ver kannast ekki við
að koma heim eftir að
hafa komið við í búð-
inni á leiðinni úr
vinnu og henda ólyst-
ugum skyndirétti inn í ofn þar sem
enginn tími gefst til almennilegrar
matseldar? Eða koma inn úr dyr-
unum, dauðþreyttur eftir erfiðan
vinnudag, gersneyddur hugmyndum
um hvað bera skuli á borð fyrir fjöl-
skylduna eftir hálftíma eða svo?
Stefanía Valdís Stefánsdóttir og
Halla Guðmundsdóttir þekkja þessi
vandamál vel, ekki endilega af eigin
raun heldur frá fólki sem á það sam-
eiginlegt að hafa undan því að
kvarta að ekki sé ráðrúm til elda-
mennsku í dagsins önn. Þær eru
heimilisfræðikennarar og starfa
báðar á sama kennslusvæðinu en
hvor við sinn skólann, Stefanía sem
aðjúnkt í heimilisfræðum við Kenn-
araháskóla Íslands og Halla sem
matreiðslukennari við Mennta-
skólann við Hamrahlíð. Báðar hafa
þær áralanga kennslureynslu að
baki. Þær hafa kennt á öllum skóla-
stigum og enn fremur á námskeiðum
hjá ýmsum stofnunum og hópum og
á eigin vegum.
„Það má segja að við Halla séum
að nokkru leyti sín á hvoru sviðinu
hvað matargerð varðar,“ segir Stef-
anía í spjalli við Morgunblaðið. „Hún
hefur lagt sig meira eftir hátíð-
armatreiðslu og er menntuð erlendis
en ég leiðbeini einkum um þessa
daglegu neyslu og hollustumiðaða
matargerð. En við deilum reynslu,
skiptumst á uppskriftum og lærum
hvor af annarri.“
Hún segir að báðar hafi þær lagt
sig eftir einföldum, fljótlegum og
ekki of dýrum réttum sem líklegir
séu til að falla vel að lifnaðarháttum
nútímafólks. „Það virðist sem fólk sé
undir miklu vinnuálagi og þessar
fljótlegu, hollu og ódýru uppskriftir
eru gripnar feginshendi, bæði af
þeim ungu sem kunna kannski lítið
fyrir sér í eldhúsinu og eins af þeim
sem staðið hafa þar í 30- 40 ár.“ Hún
segir að konur, sem hafi staðið ára-
tugum saman í eldhúsinu séu oft
orðnar óskaplega þreyttar og leiðar
á eldamennskunni, auk þess sem
þær séu engu síður tímabundnar en
þær sem yngri eru. „Þær eru bæði
þakklátar og ánægðar að fá þessar
einföldu uppskriftir,“ segir hún og
bætir því við að fólk verði oft á tíðum
mjög undrandi og hissa yfir því
hversu einföld og fljótleg elda-
mennskan geti verið.
Þær Stefanía og Halla féllust á að
deila nokkrum uppskriftum með les-
endum Morgunblaðsins. Þótt sumir
þessara rétta séu tilvaldir sem
hversdagsfæði sóma þeir sér allir
svo sannarlega sem sparimatur,
enda bæði ljúffengir og spennandi.
MATARKISTAN | Veisluréttir sem tekur enga stund að elda
Einfalt, fljótlegt,
ódýrt og hollt
DAGLEGT LÍF
40 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Lax með kryddjurtum
500 g laxaflak
½ tsk salt
¼ tsk pipar
1 tsk franskt sinnep
1 tsk ferskur sítrónusafi
½ dl ferskt dill eða blandaðar
ferskar kryddjurtir
½ dl rifinn ostur
1 eggjahvíta
Setjið laxinn í smurt eldfast fat,
saltið og piprið. Blandið saman sinn-
epi, sítrónusafa, dilli og rifnum osti.
Þeytið eggjahvítuna til hálfs og
blandið varlega saman við allt hitt.
Þekið laxinn með blöndunni og bakið
hann í ca. 20 mín. Blandan myndar
einskonar marengs yfir laxinn og
þess vegna þarf að bera hann strax á
borð þegar hann hefur bakast.
Sósa
1 fiskteningur
1 dl vatn
1 tsk sítrónusafi
1 dl hvítvín eða mysa
1 msk sýrður rjómi
salt og pipar
sósujafnari
Sjóðið saman vatn og fisktening.
Smakkið til með hvítvíni, sítrónu,
salti og pipar. Þykkið með sósujafn-
ara og hrærið sýrðum rjóma út í sós-
una. Berið sósuna fram með laxinum
ásamt soðnum kartöflum og græn-
metissalati.
Flottasta fermingarstæðan frá
Spilar MP3 og skrifanlega
diska og er með 5 diska
magasíni.
Stafrænt útvarp með 30
stöðva minni, svefnrofi og
fjarstýring
Verð aðeins 32.900
Opnunartími:
Mán-föst 11-18.30
Laugard 10-18
Sunnud 13-17
Skútuvogur 2 :: 104 Reykjavik
Sími: 522-9000 :: Fax: 522-9001
1 4 4 4
Ertu að leita
þér að nýjum
skóm?
Harmonikkunámskeið - Byrjendur
Kennari: Tatu Kantomaa, harmonikkuleikari
30. mars – 25. maí. 8 skipti. Þriðjud. kl. 18.00 – 19.00.
Grænn kostur - matreiðslunámskeið
Kennari: Sólveig Eiríksdóttir, Grænum kosti
23. og 24. mars. 2 skipti. Þriðjud. og miðvikud. kl. 18.00 – 21.00.
Innritun og upplýsingar í síma 585-5860
www.namsfl okkar.hafnarfjordur.is
Halló Norðurlönd - vinur í vanda
Ertu að hugsa um að flytja til
annars Norðurlands?
Hefur þú siglt í strand í
kerfinu eftir flutning?
Halló Norðurlönd
er upplýsingaþjónusta
Norrænu
ráðherranefndarinnar.
Skoðaðu heimasíðuna
www.hallonorden.org,
þar finnur þú mikilvæg
netföng og símanúmer.
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s