Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 41
Fylltar kjúklingabringur
4 kjúklingabringur
Bringurnar eru flattar út með
kjöthamri eða kökukefli.
Fylling
6–8 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
8 ólívur, saxaðar
4 msk pestó
3 hvítlauksgeirar, kramdir
4 msk brauðraspur
1 msk hveiti
½ tsk nýmalaður pipar
2 msk olía ef blandan er
mjög þurr
Ofan á álpappírinn
salvía
eðalkrydd frá Pottagöldrum
Blandið fyllingunni saman og
jafnið á kjúklinga bringurnar. Rúllið
kjúklingabringunum þétt saman og
pakkið þeim svo í álpappír sem búið
er að strá á salvíu og eðalkryddi.
Bakið bringurnar í ofni við 180°C í
30–40 mínútur. Fjarlægið álpappír-
inn og sneiðið hverja rúllu í 2–3
sneiðar.
Þessi réttur er borinn fram með
hrísgrjónum eða gratíneruðum kart-
öflum, sveppasósu og salati.
Sveppasósa
150–250 g sveppir
¼ laukur, saxaður
50 g smjör
3 msk hveiti
4 dl soð eða vatn og kjötkraftur
2 dl kaffirjómi
gráðostur (má sleppa)
salt og pipar
sósulitur (ef maður vill)
Hreinsið og sneiðið sveppina,
mýkið sveppina og laukinn í smjör-
inu og stráið hveitinu yfir. Hrærið
vel í. Hellið soðinu smátt og smátt
saman við og hitið, passið að ekki
myndist kekkir. Látið suðuna koma
upp. Hellið rjóma út í og kryddið eft-
ir smekk. Látið sjóða og bætið rjóma
eða vatni í ef sósan er of þykk. Bætið
í sósulit ef þið óskið eftir.
Í þessa sósu má láta gráðost og
hvítvín til tilbreytingar, þá er komin
góð ostasósa sem hentar vel með
mat eða pasta. Einnig er gott að
nota heil piparkorn og malaðan pip-
ar til að búa til piparsósu. Þannig er
hægt að leika með þessa grunnupp-
skrift og búa til sósur með ýmsu
ívafi.
Paul Newton hjá versluninni Pip-
ar og Salt segir að auk þess sé
verslunin með fleira
á boðstólum sem
tengist páskaeggja-
gerðinni eins og
matarliti, pensla og
sérstakan pott til að
bræða í súkkulaði.
Þetta er sextánda
árið sem verslunin
býður vörur til páska-
eggjagerðar og á ári
hverju bætist við nýir
viðskiptavinir. Paul segist eiga í fór-
um sínum góða uppskrift að súkku-
laðieggjablöndu sem hann deili
gjarnan með viðskiptavinum. Hann
telur að margir hafi gaman af því að
búa til sín eigin egg og velja inni-
haldið í þau og ekki síður að fá að
velja málshættina handa sínu fólki.
Það er ekki óalgengt að fólk búi
sjálft til konfektmola til að fylla
eggin með eða setji smáhluti eða
uppáhaldssætindi í þau. Dæmi eru
um að fólk noti heimatilbúnu eggin
sem umbúðir utanum stærri gjafir
eins og skartgripi.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 41
Morgunblaðið/Jim Smart
MATUR | Á röltinu
Margir þekkja ferska Ranapastað sem er búið að veraá markaðnum í mörg ár. Á
röltinu komumst við að því að nýj-
ungar hafa verið að bætast við Rana
pasta.
Eldamennskan á ekki að taka
langan tíma eða frá mínútu og upp í
tíu mínútur.
Meðal nýjunga er ravioli með
Porchini sveppum, ravioli með tóm-
ötum og mozzarella og gnocchi með
tómötum og mozzarella, gnocchi
með gorgonzola og gnocchi með
skinku og osti. Að lokum eru svo
nýjungar, sfogliavelo með 4 ostum
og sfogliavelo með Ricotta osti og
ferskum kryddjurtum.
Þessar vörur fást m.a. í
Nóatúnsverslunum, Hagkaupum,
Fjarðarkaupum, Melabúðinni og
Sparverslun Bæjarlind. Neytendur
sem hafa áhuga á að prófa þessar
nýju vörur geta fylgst með tilboðum
sem verða á pastanu á næstu vikum.
Páskaeggjamót
Senn koma páskar og þeir sem
eru myndarlegir og ætla að búa
sjálfir til páskaegg geta lagt leið
sína í Pipar og Salt á Klapp-
arstígnum. Þar fást nú tíu mismun-
andi gerðir af páskaeggja- og kan-
ínumótum sem kosta frá 495
krónum.
Pasta og páskaegg
Afrískur kjúklingur
4-5 kjúklingabringur
2 msk matarolía til steikingar
3 pressaðir hvítlauksgeirar
2 saxaðir laukar
½ tsk salt
5 tsk Karry Madrass, hot
2 tsk cuminduft
1 tsk paprikuduft
¾ tsk kanill
4 msk matarolía
2 msk púðursykur
Mýkið hvítlauk og lauk í olíu.
Blandið þurra kryddinu saman við
og hitið vel með lauknum, svona 1
mín. á góðum hita, blandið síðan 4
msk olíu og 2 msk. púðursykri vel
saman við. Látið í skál eða djúpt fat
og kælið aðeins. Skerið kjúklinga-
bringurnar í strimla. Eldið á pönnu
þar til kjötið er orðið hvítt að utan,
(ekki gegneldað). Blandið kjúklingn-
um saman við kryddblönduna og lát-
ið bíða á meðan sósan er er búin til.
Sósa
1 dós niðursoðnir tómatar
(notið vökvann)
6 msk soyasósa
2 tsk edik
½ tsk salt
1 tsk pipar
2 dósir jógúrt án ávaxta
(blandað saman við í lokin).
Blandið öllu saman sem á að fara í
sósuna ( nema jógúrtinni), bætið
kjúklingnum út í og sjóðið í 15 mín.
Látið jógúrtina sjóða með seinustu 5
mín. Athugið að rétturinn þarf litla
suðu í lokin með jógúrtinni.
Ofan á
4 msk kókósmjöl
1 banani
rauðar og grænar paprikuræmur
Þurrsteikið kókosmjölið, sneiðið
bananann og bætið út í kókosmjölið
ásamt paprikuræmunum.
Borið fram í fallegu djúpu fati og
látið kókósblönduna yfir réttinn fyr-
ir framreiðslu. Meðlæti er soðin hrís-
grjón, salat og brauð.
SMS
tónar og tákn
Fréttir á SMS
DAGLEGT LÍF
Kringlukast
20% afsláttur af
völdum vörum
Kringlunni, s. 588 1680
iðunn
tískuverslun
Ókeypis Redusan í kaupbæti með Phasomin kolvetnagleypi
Ókeypis
Ultra RX-Joint
krem með
Lið-Aktín
Redusan
fitugleypir
frítt með!
Þegar þú kaupir glas af
Kvennablóma færðu
annað í kaupbæti
Þegar þú kaupir
glas af Sabal Forte
færðu annað í kaupbæti
Ultra RX-Joint krem í kaupbæti
með hverju glasi af Lið-Aktín
á meðan birgðir endast
1 8 . - 2 1 . M A R S