Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 49
Fréttir á SMS
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 49
sími 568 8181, www.jolahusid.com
Jólahúsið
af páska- og
sumarvörum
Ný sending
Opið 12-18 virka daga,
laugardaga frá 11-15.
Skólavörðustíg 21a
frá Williray Studio
NÆSTU dagana og vikurnar
munu um fjögur þúsund íslensk
ungmenni ganga upp að altari
Jesú Krists og lýsa því yfir
frammi fyrir Guði og mönnum að
þau vilji leitast við að
gera Jesú Krist að
leiðtoga lífs síns. Játa
þannig vonandi af
einlægni og heilum
hug í viðurvist
margra votta að þau
vilji þiggja eilífa sam-
fylgd Jesú Krists.
Staðfesta það að þau
vilji leyfa hugarfari
hans að hafa mótandi
áhrif á líf sitt og af-
stöðu til þess, skoð-
anir sínar, umgengni
við samferðamenn og
á þær ákvarðanir sem taka þarf.
Á slíkum tímamótum er sann-
arlega ástæða til að gleðjast og
fagna með fjölskyldu og vinum á
viðeigandi hátt.
Sameinumst í bæn
fyrir fermingarbörnunum
Þessi gleðilegu tímamót eru ekki
einhver fjöldaafgreiðsla eða stimp-
ilþjónusta, vottorð um útskrift úr
kirkjunni. Og ekki heldur mann-
dómsvígsla eða staðfesting þess að
viðkomandi einstaklingur sé tek-
inn í fullorðinna manna tölu. Held-
ur játning þess að vilja þiggja það
að vera barn, meðvitað barn Guðs.
Með öllum þeim erfðarétti sem
fylgir. Persónuleg yfirlýsing þess
efnis að viðkomandi einstaklingur
vilji tilheyra kirkju Krists jafnt
gefandi sem þiggjandi.
Ég vil því leyfa mér að hvetja
ástvini ungmennanna og raunar
alla kristna Íslendinga til þess að
sameinast í bæn fyrir ferming-
arbörnunum, þessum efnilegu,
óendanlega dýrmætu ein-
staklingum.
Sameinumst um að biðja fyrir
framtíð þeirra að Guð leiði þau í
gegnum freistingar ævinnar og
forði þeim frá öllu því sem kann
að skaða þau. Biðjum hann að þau
mættu finna tilgang sinn og eign-
ast þá vonarríku framtíð sem
sjálfur Guð ætlar þeim. Framtíð
til heilla en ekki óhamingju. Að
þau lifi lífi sínu meðvituð um það
að þau séu óendanlega dýrmætir
einstaklingar sem skapaðir eru til
lífs, full tilgangs. Að þau mættu
hvíla í þeirri trú að þau standi
ekki ein heldur eigi staf til að
styðja sig við, öxl til að gráta á,
styrka hönd sem vill leiða, faðm
sem getur borið, lifandi vin sem er
með þeim í gegnum súrt og sætt,
þykkt og þunnt. Huggara og
græðara sem skilur
þau og yfirgefur þau
aldrei.
Biðjum að við sem
fullorðin erum mætt-
um reynast bönunum
og unglingunum okk-
ar þær fyrirmyndir
og vinir sem þau
þurfa á að halda.
Hvorki skeytingarlaus
né ofurhetjur. Heldur
raunverulegir, mann-
legir vinir sem geta
hlustað og verið til
staðar, miðlað og gef-
ið.
Með því að biðja fyrir ferming-
arbörnum þessa vors og börn-
unum okkar yfirleitt þá erum við
jafnframt að biðja fyrir framtíð
þjóðarinnar. Að við mættum lifa
saman í sátt og samlyndi sem
mótast af hugarfari Krists, kær-
leika, umhyggju og fyrirgefningu.
Spurning dagsins, alla ævi
Ættum við fermdir Íslendingar
ekki einnig að nota tækifærið og
endurnýja fermingarheitin okkar?
Er það það sem við raunverulega
viljum, að leyfa hugarfari Jesú
Krists að hafa áhrif á líf okkar,
skoðanir og ákvarðanir? Viljum
við í raun þiggja samfylgd hans út
ævigönguna og reyndar gott betur
en það? Viljum við vera hans í lífi
og dauða?
Þetta er í raun og veru spurn-
ing sem við stöndum frammi fyrir
á hverjum einasta degi, alla ævi.
Spurning sem við þurfum að gera
upp við okkur dag hvern um leið
og við stígum fram úr rúminu að
morgni jafnt sem að kveldi er við
leggjumst á koddann.
Vilt þú halda áfram að leyfa
Jesú Kristi að vera leiðtogi lífs
þíns? Þiggja samfylgd hans? Hann
er þarna ennþá. Samningur hans
við þig verður aldrei felldur úr
gildi. Jafnvel þótt þú hafir ekki
beðið um hann. En þú getur sagt
upp þínum hluta og hefur kannski
gert það. En þú mátt vita að þú
ert alltaf velkominn aftur. Þú átt
frátekinn stað í faðmi frelsarans
þíns Jesú Krists. Hann bíður þín
með opinn kærleiksríkan og lífg-
efandi faðminn sinn.
Hann vill gefa okkur kjarngott
nesti út í lífið. Fæðu sem varir
ævilangt og reyndar gott betur.
Hann er það bjarg sem við meg-
um byggja líf okkar á, og treysta
á, í lífi sem dauða. Hann hefur
heitið okkur eilífri samfylgd.
„Vertu trúr allt til dauða og ég
mun gefa þér kórónu lífsins.“
Endurnýjum
fermingarheitið
Sigurbjörn Þorkelsson
skrifar um trúmál ’Ættum við fermdir Íslendingar ekki einnig
að nota tækifærið og
endurnýja ferming-
arheitin okkar?‘
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er rithöfundur, fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju og
forseti Gídeonfélagsins á Íslandi.