Morgunblaðið - 20.03.2004, Qupperneq 82
82 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Jack Black fer á kostum í
geggjaðri grínmynd sem rokkar!
Sýnd kl. 3 og 10.20. Sýnd kl. 5.30 og 8.
SV Mbl
Skonrokk
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.
Frumsýning
Frá leikstjóranum Mel Gibson
Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta
mynd allra tíma
HP. Kvikmyndir.com
(Píslarsaga Krists)
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 10.10 . B.i. 12.
Allra síðustu
sýningar
Kl. 1.40, 3.45, 5.50 og 8. Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Frábær gamanmynd frá
leikstjóra
There´s Something About Mary
og Shallow Hal
r r fr
l i stj r
r ´s t i t r
ll l
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Með íslenskum texta
FRUMSÝNING
Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma
kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 16 ára.
11 Óskarsverðlaun
Yfir 95.000 gestir
Fleiri börn...meiri vandræði!
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 16 ára.
HP. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
(Píslarsaga Krists)
MÚSÍKTILRAUNIR byrjuðu
með bravúr sl. fimmtudagskvöld
en tíu hljómsveitir kepptu um sæti
í úrslitum sem fram fara í Aust-
urbæ næstkomandi föstudag. Þetta
er í fyrsta sinn sem tilraunirnar
fara fram í Tjarnarbíói, sem
reyndist mjög vel, en fram að
þessu hafa þær farið fram í Tóna-
bæ og svo Hinu húsínu undanfarið.
Fyrstu tvö tilraunakvöldin,
fimmtudagskvöldið og gærkvöldið,
voru helst ætluð yngstu hljóm-
sveitunum, þ.e. þeim hljómsveitum
sem yngsta höfðu meðlimina því
glöggt mátti heyra að sumar voru
búnar að æfa bæði vel og lengi þó
aðrar hafi verið skemmra á veg
komnar sem vonlegt er.
Ekki var að heyra á sveitinni
sem byrjaði tilraunirnar, Bertel,
að þar færu einhverjir viðvaningar,
því þeir Bertelsmenn keyrðu í
brokkandi rokkkeyrslu af miklu
öryggi. Sérstaklega var annað lag
sveitarinnar gott, söngvari og
bassaleikari sveitarinnar hæfilega
svalur á sviði og aðrir liðsmenn
stóðu sig líka vel.
Jemen var aftur á móti ekki eins
örugg og hefur hugsanlega haft
sitt að segja að annar gítarleik-
arinn lenti í tækjavandræðum í
upphafi fyrsta lags. Heldur var
dauft yfir sveitinni, vantar smá
snerpu þó ekki þurfi hún endilega
að spila hraðar. Trompetleikur
gerði ekki mikið fyrir fyrsta lagið
en í öðru lagi kom hann ágætlega
inn og einnig gítarsóló forvitnilegt
í því lagi.
Costal Ice voru líka full rólegir,
mættu spila hraðar og aðeins
hærra líka. Það var þó meira stuð í
öðru lagi þeirra félaga og þá
heyrðist í efnilegum gítarleikurum.
Vipera var að leika forvitnilega
tónlist, talsvert í hana lagt og
hljómborð notuð smekklega, sér-
staklega í fyrra laginu. Söngvarinn
stóð sig líka vel, mjög efnilegur.
Annað lag Vipera var býsna gott,
miklar pælingar í gangi og bendir
til þess að það sé talsvert í sveitina
spunnið.
Touch the Tiger var skemmti-
lega geggjuð, flutti gamaldags
blúsþungarokk eins og það lítur út
fyrir ungmennum anno 2004, þ.e.
mikið rokk en enginn blús. Þeir
voru í miklu stuði, með fínar pósur
og passlega hallærislegar hreyf-
ingar, fín skemmtun. Aðalgítar-
leikari sveitarinnar var afskaplega
góður.
Royal Fanclub kom skemmtilega
á óvart, spilaði einskonar rokk-
bræðing með fönkuðum bassa og
fínu slagverki. Eini mínusinn var
textarnir; sérkennilegt að svo
frumleg hljómsveit skuli ekki
leggja meira í svo mikilvægan þátt.
Bassaleikarinn var áberandi góður
en gítarleikurinn var ekkert slor
heldur.
Hopeless Regret var að steypa
saman mjög ólíkum stefnum, eða
svo var að minnsta kosti í tónlist-
arstefnuyfirlýsingum þeirra félaga,
melódískur harðkjarni. Það gekk
ekki vel upp í fyrra laginu, mel-
ódían var til staðar en vantaði
harðkjarnann, en seinna lagið var
öllu betra, vel rokkað með
skemmtilegri gítarklifun.
Enn ein sólin tók þátt í síðustu
Músíktilraunum og hefur greini-
legt æft vel eftir það því sveitin
var gríðarlega þétt og örugg, besta
hljómsveit kvöldsins tæknilega
séð. Það var aftur á móti ekki nóg,
lögin ekki grípandi og því fór sem
fór; mikill kraftur en lítill þokki.
Kviðsvið voru einnig að taka
þátt öðru sinni en nú undir nýju
nafni. Lög sveitarinnar eru einföld
og láta ekki mikið yfir sér á yf-
irborðinu en standast vel nánari
hlustun. Sérstaklega gerði vel út-
færð röddun, aðallega í seinna lag-
inu, mikið fyrir þau.
Síðasta orðið á þessu fyrsta til-
raunakvöldi átti Underground sem
lenti í þeim hremmingum að söng-
kona sveitarinnar átti ekki tíma af-
lögu til að syngja með sveitinni tvö
lög. Þeir létu sig samt hafa það að
spila, vel af sér vikið, og gítarleik-
arinn söng. Fyrra lag sveitarinnar
var þokkalegt en það seinna prýði-
legt, með meiri vinnu og betri söng
hefði það verið býsna gott.
Bertel sigraði nokkuð örugglega
úr sal og dómnefnd valdi lyfti-
duftsdrengina í The Royal Fanc-
lub.
Músík-
tilraunir
af stað
Vipera
Underground
Touch the Tiger
Kviðsvið Jemen
Hopeless Regret Enn ein sólin
Costal Ice
Árni Matthíasson
Músíktilraunir 2004
1. kvöld.
Þátt tóku hljómsveitirnar Bertel, Jemen,
Costal Ice, Vipera, Touch the Tiger, The
Royal Fanclub, Hopeless Regret, Enn ein
sólin, Kviðsvið og Underground. Haldið í
Tjarnarbíói.