Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 85
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 85
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Frábær gamanmynd
frá höfundi Meet the Parents
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 3.50. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 2 og 4.
Besta
teiknimyndin
Frábær teiknimynd frá Disney fyrir alla
fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
Stórskemmtileg og sprenghlægileg
gamanmynd með Eddie Murphy
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
5ta HERDEILDIN spilar þjóðlaga-
skotið pönk og á að baki eina plötu,
samnefnda sveitinni, sem út kom
haustið 2002. Kjarni sveitarinnar
er í dag skipaður þeim Gísla „gím-
aldin“ Magnússyni, Lofti S. Lofts-
syni, Hermanni Stefánssyni og
Gesti Guðnasyni og munu þeir,
ásamt fleirum, kynna spánýja plötu
sem heitir Áður óútgefið efni.
Hermann segir blaðamanni frá
því að hann hafi smátt og smátt
gengið í 5tu herdeildina, byrjað á
því að sækja tónleika þeirra stíft
og einhverju sinni hafi hann svo
leikið með sveitinni á banjó og fyrr
en varði var hann orðinn með-
limur.
„Ég spila ýmist á banjó eða
trommur,“ segir Hermann. „Tón-
listin okkar er hrátt þjóðlagapönk
og -rokk. En ástæðan fyrir því að
ég gekk til liðs við þá félaga á sín-
um tíma er sú að þarna sá ég sveit
sem mér fannst ólík öllu öðru sem
ég hafði heyrt. Það var eins og
hljómsveitin kæmi frá annarri
plánetu.“
Hermann segist vera alhliða fikt-
ari í hljóðfæraleik.
„Það er t.d. mjög skemmtilegt að
spila á trommur. Þá þarf maður
ekki að fara í líkamsrækt.“
Hermann segir að nýja platan sé
órafmagnaðri en sú fyrri og var
hún tekin upp í Veðurstofunni und-
ir styrkri stjórn Boga Reynissonar.
5ta herdeildin hefur verið að
kynna plötuna í þessari viku og
verða formlegir útgáfutónleikar í
kvöld á Grand Rokk. Hermann seg-
ir að næst á dagskrá sé svo að taka
upp nýja plötu enda mýgrútur af
efni til.
Sérstakir gestir Herdeildarinnar
í kvöld verða Þórdís Claessen og
Sonja Lind Eyglóardóttir. Um upp-
hitun sjá Heiða og Heiðingjarnir og
Jón Hallur Stefánsson. Aðgangs-
eyrir er enginn.
5ta herdeildin kynnir nýja plötu á Grand Rokk
Morgunblaðið/Kristinn
Hér má sjá ¾ 5tu herdeildarinnar. F.v.: Hermann Stefánsson, Loftur S.
Loftsson og Gísli „gímaldin“ Magnússon. Á myndina vantar Gest Guðnason.
„Mýgrútur af efni“
Fyrsta atriði tónleikanna í kvöld
hefst stundvíslega klukkan 21.
5taherdeildin.hlunkur.com
STÓRSVEIT Mikes Pattons, Fan-
tômas, mun hita upp fyrir Korn á síð-
ari tónleikum sveitarinnar sem fram
fara 31. maí, daginn eftir þá fyrri.
Hér er á ferðinni sannkölluð of-
ursveit en leiðtoginn, Mike Patton,
gerði garðinn frægan með Faith No
More á tíunda áratugnum. Þegar sú
sveit lagði upp laupana hóf Patton að
sinna hinum ýmsu hugðarefnum og
var Fantômas hið fyrsta. Hann
stofnaði t.a.m. Ipecac-útgáfuna sem
gaf út fyrstu plötuna með sveitinni
árið 1999. Meðfram Fantômas hefur
hann svo starfað með Mr. Bungle,
Tomahawk og gefið út sólóefni á
merki Johns Zorns, þess mikla til-
raunameistara. Með honum í Fant-
ômas eru þeir Trevor Dunn, bassa-
leikari Mr. Bungle, Dave Lombardo,
fyrrverandi trymbill Slayer (var á
Show No Mercy til og með Seasons
in the Abyss) og síðan Buzz Osbo-
urne, leiðtogi Melvins, hvorki meira
né minna. Fantômas hafa lagt fyrir
sig ævintýralega tilraunatónlist og
er ekkert heilagt. Plata númer tvö,
The Director’s Cut, innihélt t.d. út-
úrsnúninga úr kvikmyndatónlist og í
janúar kom svo út þriðja platan, Del-
ìrium Cordìa, og var mikið búið að
bíða eftir þeirri plötu.
Hér er á ferðinni eitt 74 mínútna
verk, myrkt mjög, þar sem komið er
við í létthlustunartónlist, þunga-
rokki, tæknói og heimstónlist. Þeir
sem heyrt hafa eiga ekki til orð yfir
snilldinni og nú eiga Íslendingar
kost á að sjá hana og heyra í maí
komandi.
Fantômas spila á seinni Korn-tónleikunum
Stjörnum prýtt
hliðarverkefni
Fantômas: Patton, Buzz, Dunn,
Lombardo.
Aukatónleikarnir verða 31. maí í
Laugardalshöll. Forsala miða er
í gegnum siminn.is en almenn
miðasala hefst í verslunum Skíf-
unnar í Kringlunni og Smáralind-
inni sunnudaginn 4. apríl kl. 21.
arnart@mbl.is
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6.10, 8 og 10.10. Ísl texti.
Rafmagnaður erótískur tryllir frá
framleiðendum „The Fugitive“ og
„Seven“
f r r tís r tryllir fr
fr l i „ itiv “
„ v “
AKUREYRI
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
Frá framleiðendum
Fast and theFurious og XXX
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára.
FRUMSÝNING FRUMSÝNINGFRUMSÝNING
Kötturinn
með hattinn
Ekki eiga við
hattinn hans.
Ekki eiga við
hattinn hans.
Frábær mynd fyrir alla
fjölskylduna. Byggð á hinni
sígildu bók sem komið hefur
út í íslenskri þýðingu.
Hinn frábæri Mike Myers
(Austin Powersmyndirnar)
fer á kostum í myndinni.
Kötturinn
með hattinn
Frábær mynd fyrir alla
fjölskylduna. Byggð á hinni
sígildu bók sem komið hefur
út í íslenskri þýðingu.
Hinn frábæri Mike Myers
(Austin Powersmyndirnar)
fer á kostum í myndinni.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sprenghlægileg gamanmynd þar
sem Ben Stiller og Owen Wilson
fara á kostum sem súperlöggur
á disco-tímabilinu!
Gamanmynd eins og
þær gerast bestar !Diane Keaton tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir leik sinn
í myndinni
AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Ísl texti.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Ísl texti.