Morgunblaðið - 28.02.2004, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 28.02.2004, Qupperneq 73
KVIKMYNDIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 73 Hilmir snýr heim (The Return of the King) Kvikmyndun Hringadróttinssögu lýkur með glæsibrag. Fjöldi verðlauna þegar í höfn, þ. á m. Golden Globe, og á séns á að fá ell- efu Óskara, sem yrði metjöfnun. (H.J.) Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó. Hús byggt á sandi (The House of Sand and Fog) Fátt kemur upp í hugann sem jafnast á við frammistöðu Bens Kingsleys í þessari mögn- uðu frumraun hins rússneskættaða Vadims Perelmans. (H.J.) Háskólabíó. Hestasaga Birtir upp skammdegið, kemur með líf og lit, birtu, fegurð og blessaða náttúruna beint í æðakerfið. Þorfinni tekst að samsama áhorf- andann litla stóðinu og umhverfinu, einangra hann um sinn frá borgaralegu amstri og hversdagsgráma. (S.V.) Háskólabíó. Glötuð þýðing (Lost in Translation) Tveir svefnvana Bandaríkjamenn á ferðalagi í Tókýó ná saman og ná áttum í áhugaverðri örveröld sem þeir skapa sér í framandi borg. Í alla staði ein besta mynd ársins. (S.V.) Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Ak. Sá stóri (Big Fish) Finney fer fyrir mögnuðum leikarahópi í eft- irminnilega hugmyndaríkri og léttgeggjaðri paródíu frá Tim Burton. Sem hefur aldrei ver- ið skemmtilegri. (S.V.) ½ Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Ak. Heimur farfuglanna (Le peuple migrateur) Óður til lita, forma, hreyfinga og hljóða nátt- úrunnar og sposk athugun á háttum fugla sem eru jafnólíkir og þeir eru margir. (H.J.) ½ Háskólabíó. Kaldaljós Gullfalleg kvikmynd sem hefur gríðarlega sterkan tilfinningalegan slagkraft og notast á markvissan hátt við sjónrænar og táknrænar lausnir við að miðla sögunni. (H.J.) Háskólabíó, Sambíóin. Kaldbakur (Cold Mountain) Mikilfengleg og vönduð epík úr Þrælastríðinu um vonir og drauma sem halda í okkur lífi á erfiðum tímum. (S.V)  ½ Sambíóin, Háskólabíó Leitin að Nemó (Finding Nemo) Bullandi sköpunargleði blandast fag- mennsku á öllum sviðum enda tilnefnd til fjögurra Óskara. (H.J.) ½ Sambíóin, Háskólabíó. 21 gramm (21 Grams) Frammistaða leikaranna er frábær, enda leikkonan Naomi Watts tilnefnd til Óskars- verðlauna. (H.J.) ½ Regnboginn, Laugarásbíó. Dulá (Mystic River) Stórvirki frá Eastwood og Sean Penn og Tim Robbins þegar búnir að landa Golden Globe og eru tilnefndir til Óskarsins ásamt Mörciu Gay Harden (S.V.) ½ Háskólabíó. Ófreskja (Monster) Trúverðug mynd um sorglegt og lánlaust lífs- hlaup vændiskonunnar og fjöldamorðingjans Aileen Wuornos í örvæntingarfullri túlkun Charlize Theron. (H.J.)  Laugarásbíó. Gefið eftir (Something’s Gotta Give) Keaton og Nicholson eiga frábæran samleik í þessari lipru og hnyttnu gamanmynd, sem tekst fljótt og örugglega á loft og brakar af gamansemi í fyrri hlutanum. (H.J.)  Sambíóin, Háskólabíó. Björn bróðir (Brother Bear) Náttúruvæn og holl yngstu áhorfendunum en fullvæmin fyrir þá eldri. Góð íslensk talsetn- ing. (S.V.)  ½ Háskólabíó, Sambíóin Síðan kom Polly (Along Came Polly) Stórgóður leikarahópur og glettilega vel skrif- uð gamanatriði er aðalsmerki myndarinnar. (H.J.)  ½ Sambíóin, Laugarásbíó, Borgarbíó Ak. BÆJARINS BESTU Sæbjörn Valdimarsson/Skarphéðinn Guðmundsson/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Bob Marshak Diane Keaton er tilnefnd til Ósk- arinn fyrir leik sinni í Gefið eftir. Hún vann Golden Globe verðlaunin og Jack Nicholson var líka tilnefndur. KVIKMYNDABLAÐIÐ Variety segir að búið sé að nefna nýju Bat- man-kvikmyndina, sem að hluta verður tekin upp á Íslandi. Myndin á að heita Batman Begins, eða Upphaf Batmans, og rekur söguna um það hvernig Bruce Wayne breytist í ofurhetjuna Batman sem berst við glæpamenn í Gotham- borg. Mikið er fjallað um kvikmyndina væntanlegu á spjallsíðum Netsins og Batman-aðdáendur hafa velt fyrir sér söguþræðinum. Myndin hefur gengið undir nafninu Inti- midation Game en Variety segir að Warner Bros. kvikmyndaverið hafi lekið nafni myndarinnar í gær. Christopher Nolan leikstýrir myndinni, sem verður sú fimmta í röðinni í Batmanmyndaflokknum. Christian Bale leikur Bruce Wayne/Batman og Michael Caine leikur þjón hans. Meðal annarra leikara eru Morgan Freeman, Li- am Neeson og Katie Holmes. Gert er ráð fyrir að tökur hefjist í Öræfasveit í mars. Nýja Batman-myndin komin með nafn Auglýsingamynd af fimmtu Bat- man-myndinni - gerð af aðdáanda. Upphaf Batmans „HVERSDAGSLEIKINN getur verið ansi margflókinn,“ segir mynda- söguhöfundurinn Harvey Pekar við kollega sinn Robert Crumb er hann kynnir fyrir honum hugmynd að nýrri myndasöguröð, er fjallaði um hans eigin gráguggnu tilvist. Mennirnir sem um ræðir eru báðir virtir höfund- ar innan myndasögugeirans, list- greinar sem dæmd er til að dúsa á botni menningarvirðingarstigans og veita aðeins fáum útvöldum lista- mönnum sæmilegt lífsviðurværi. Vel- gengni Harveys Pekars með þá myndsögu sem hann lét verða að veruleika, og ber þann íróníska titil „Amerískur ljómi“, eða American Splendor, hefur því litlu skilað í aðra hönd, en þó veitt listamanninum tæki- færi til að gæða tilveru sína merkingu og tjá sig um daglegt líf þeirra sem vinna láglaunastörf, búa í óaðlaðandi hverfum og lifa lífi sem teljast myndi tiltölulega ómarkvert á heimsmæli- kvarða. Pekar hefur nefnilega sjálfur búið alla sína hundstíð í einu af slakari hverfum iðnaðarborgarinnar Cleve- land í Ohio-ríki í Bandaríkjunum og (eftir að hafa flosnað upp úr bók- menntanámi í háskóla) unnið við sama láglaunastarfið á skjaladeild sjúkrahúss uppgjafahermanna um áratuga skeið. Það er í raun ómögulegt að flokka kvikmyndina sem þau Shari Springer Berman og Robert Pulcini hafa ráðist í að gera um líf og list Harveys Pek- ars, því hún er allt í senn, heimild- armynd, leikin kvikmynd, myndasaga og kvikmynd byggð á myndasögu, þ.e.a.s. (til að flækja málin enn frekar) sannsögulegri myndsögu. Í aðferð sinni við að draga fram kjarnann í verkum Pekars og gæða hversdags- legan efniviðinn lífi flakka höfundar myndarinnar átakalaust milli list- forma, ræða við hinn raunverulega Pekar um viðburði í lífi hans eða atriði í myndinni, setja kafla úr lífi hans á svið með framlagi frábærra leikara og vísa stöðugt til myndasöguformsins, hvort sem það birtist í vandlega römmuðum sviðssetningum í múr- steinsbrúnu borgarumhverfinu, hugsanabólum eða innskeytingum á römmum úr myndasögum Pekars, sem atburðir og listrænt útlit leikna hlutans er sótt til. Þannig verður til í kvikmyndinni margföld samræða, milli ólíkra aðferða til að framsetja list og veruleika, og um það flókna verkefni að gera ævi skil í heimild- armynd eða dramatískri sögu. Og á endanum virkar hin marglaga fram- setning eiginlega eins og stækkunar- gler sem magnar fram listrænan og hversdagslegan heim Harveys Pek- ars. Hinn frábæri leikari Paul Gia- matti fer með hlutverk Pekars í leikna hluta myndarinnar, og leysir verkefnið örugglega af hendi, jafnvel á meðan vökult og gráglettið augna- ráð Pekars sjálfs hvílir á honum. Það er unun að fylgjast með Giamatti taka á sig yfirbragð fyrirmyndarinnar, og skipa sér þar í hóp hinna mörgu teiknuðu útgáfna af umræddum manni, lítt glæsilegum og úrillum meðaljóni sem sér ragnarök í hverju horni. Lífsviðhorf Pekars er kannski af- leiðing þess að hafa horfst fullstíft í augu við ömurleika eigin tilveru, en hin leitandi augu hans sjá þó fleira en bölmóð, þau sjá líka allt það sérstæða sem leynist í hversdagsleikanum, litlu perlurnar sem bæta upp fyrir stóru bömmerana í lífinu. Giamatti og aðrir leikarar, ekki síst Hope Davis sem leikur Joyce, eiginkonu Pekars, feta örugglega hið vandrataða einstigi milli þess að draga fram skopulegar hliðar persónanna, og að nálgast þær af mannskilningi og virðingu. Þetta gullna jafnvægi er jafnframt aðal kvikmyndarinnar í heild, sem er bæði bráðfyndin og hugvekjandi, snjöll og tilgerðaraus saga um listina í lífinu og lífið í listinni. Hundalíf í víðsjá Paul Giamatti og Hope Davis fara bæði á kostum í mynd um listina í lífinu og lífið í listinni. AMERICAN SPLENDOR / AMERÍSKUR LJÓMI Háskólabíó Leikstjórn og handrit: Shari Springer Berman og Robert Pulcini. Kvikmynda- taka: Terry Stacey. Klipping: Robert Pulc- ini. Tónlist: Mark Suozzo. Aðalhlutverk: Paul Giamatti, Hope Davis, James Ur- baniak, Judah Friedlander, Madylin Sweeten og; Harvey Pekar, Joyce Brab- ner og Danielle Batone. Lengd: 101 mín. Bandaríkin. Fine Line Features, 2003. Heiða Jóhannsdóttir IGBY (Kieran Culkin), miðpunkturinn í gamanmyndinni Igby á niðurleið – Igby Goes Down – er uppreisnargjarn 17 ára strákur. Lætur sig hverfa úr snobbskólum miðvest- urríkjanna og heldur austur í kvikuna í New York. IGBY minnir greinilega á aðalpersónuna í bók Salingers Bjarg- vættinum í grasinu; báðir ungir auðmannssynir í herskárri og ruglaðri veröld fullorðinna sem er ekki eftirsóknarverð í augum þeirra. Báðir kaldhæðnir og vilja lifa lífinu. Eftir síendurteknar brottvísanir úr hinum ýmsu menntastofn- unum sjá þeir enga glóru í að halda áfram geggjuninni að reyna að þóknast þeim eldri. Igby er ekki með seðlamoð í vasanum eins og Holden Caulfield, heldur vopnaður kreditkorti (móður sinnar) að hætti samtímans. Þannig búinn heldur strákurinn í leit að lífsfyllingu í New York. Igby er engum háður Líkt og margar forvitnilegar og óhefðbundnar myndir, sem koma úr vesturátt, er Igby Goes Down gerð af óháð- um kvikmyndagerðarmönnum. Sem þýðir að hún hefur kostað smáaura og hugmyndin og þróunin er unnin af sjálfstæðum aðilum. Ef kvikmyndaiðnaðurinn kemur inn í gerð slíkra mynda, er það mun seinna í ferlinu, oft eftir að þær eru komnar í sýningarhæft form. United Artists bauðst til að dreifa Igby Goes Down eftir að njósnarar frá þessum fyrrum risa í kvikmyndaiðnaðin- um sáu myndina á Sundance-hátíðinni. Þeir gerðu lítið annað en að sjá um dreifingu og kynningu, leikstjórinn og handritshöfundurinn Burr Steers náði að klára frumraun sína með góðra manna hjálp. Steers er enginn meðaljón, heldur með blátt Nýja-Englandsblóð í æðum. Í frændgarði hans má finna heimskunn nöfn eins og Gore Vidal og Jac- queline Kennedy Onassis. Það gerði gæfumuninn að Steers nam leiklist hjá Jeff Goldblum á sínum tíma, þau kynni dugðu til að þessi góðkunni leikari tók að sér eitt aðalhlutverkið og boltinn tók að rúlla. Igby heldur austur Kieran Culkin, yngri bróðir Macaulay, þykir sýna ald- eilis fínan leik í Igby á niðurleið. saebjorn@mbl.is HARMONIKUBALL Fjörið verður í Ásgarði, Glæsibæ við Álfheima, í kvöld frá kl. 22:00. Aðgangseyrir kr. 1.200. Harmonikufélag Reykjavíkur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.