Morgunblaðið - 03.04.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.04.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 93. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Kenjar kokksins Skólavörðustígurinn er alvöru búðagata Daglegt líf Lesbók og Börn í dag Lesbók | Peter Ustinov  Ibsen Ævisögur Kross- gáta Tíðarandinn Vísindi Börn | Páskar Þrautir MyndasögurKötturinn með hattinn KOSTNAÐUR vegna lyfjanotkunar á hvern Íslending er um 46% hærri en meðaltal fyrir hvern íbúa í Dan- mörku og Noregi. Skýrist þetta fyrst og fremst af verulega minni notkun ódýrra samheitalyfja hér á landi. En einnig af hærri kostnaði við dreif- ingu og sölu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Ríkisendurskoðun hefur tekið saman um lyfjakostnað, notkun, verð og framboð lyfja á Ís- landi, og birt var í gær. Hlutdeild samheitalyfja í heildar- kostnaði lyfja hér á landi minnkaði hlutfallslega frá árinu 2000, er hún var 22%, en fór í 20% árið 2003, að því er fram kemur í skýrslunni. Þar kemur einnig fram að hlutfall sam- heitalyfja hafi verið um 35% af heild- arlyfjanotkuninni, en hver skammt- ur frumlyfs sé að meðaltali meira en helmingi dýrari en skammtur sam- heitalyfs. Hlutfall samheitalyfja af heildarlyfjakostnaði í Danmörku var 28% árið 2002. Ónóg samkeppni Ingi Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Lyfju, segir að framboðið mætti vera meira af samheitalyfjum en er í dag. Ónóg samkeppni og minna framboð af samheitalyfjum en áður var, þýði að meira sé notað hér af dýrari lyfjum. Árni Þór Árnason, forstjóri Aust- urbakka, segir um samheitalyfin að erfitt væri að finna út milliveg í hvaða lyfjum ætti að skipta út. „Ef menn ætla að haga málum á þann veg að hinir efnuðu geti verið á betri lyfjum en hinir, þá er það alveg nýtt.“ Kemst Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu að ef lyfjakostnað- ur hérlendis væri hlutfallslega sá sami og í Danmörku og Noregi hefði hann lækkað um 4,4 milljarða króna árið 2003 og farið úr 14 milljörðum króna í 9,6 milljarða. Ef virðisauka- skatti er sleppt er munurinn um 3,5 milljarðar. Þá kemur fram í skýrsl- unni að fulltrúar hins opinbera og hagsmunahópar sjúklinga hafi kvartað undan háu lyfjaverði hér á landi. Á sama tíma hafi talsmenn lyfjafyrirtækja gagnrýnt stjórnvöld fyrir að birta of háar fjárhæðir þegar rætt sé um lyfjakostnað. Hærri lyfjakostnaður vegna minni notkunar samheitalyfja              !  "      #       $  %                     Minni notkun/14 VINSÆLASTA þungarokkssveit heims, Metallica, heldur tónleika í Egilshöll 4. júlí næstkomandi. Verða þetta síðustu tón- leikar sveitarinnar í væntanlegri Evrópu- reisu. Þetta staðfestir Ragnheiður Hans- son, aðstandandi tónleikanna hér á landi, og segir að þeir verði miklir að umfangi. Her starfsmanna komi með sveitinni og um 60 tonn af sviðsbúnaði. „Þeir ætla að taka sér frí hérna eftir Evr- óputúrinn,“ upplýsir Ragnheiður. „Ætla að taka konurnar sínar með og svona. Það kemur fullt af blaðamönnum með svo og róturum og sviðsmönnum. Það er ansi mik- ið umfang í kringum þetta.“ Metallica til Íslands  Stærsta/73 SAMBÍÓIN ætla að taka upp þá nýbreytni að vera með hádegisbíó í Kringlunni um helgar og mun kosta 400 kr. inn á allar myndir í hádeg- inu. Hádegisbíóið hefst í dag en þá verða mynd- irnar Scooby Doo 2: Skrímslunum sleppt, með íslensku og ensku tali, og myndin Björn bróðir með ís- lensku tali, sýndar kl. 12. Sömu myndir verða sýndar í hádeginu á morgun. Hádegisbíó ♦♦♦ Í janúar sl. var byrjað að taka mynd- ir og fingraför af öllum ferðamönn- um sem til Bandaríkjanna koma. Voru ráðstafanirnar hluti af hertum öryggisráðstöfunum í kjölfar hryðju- verkanna 11. september 2001. Íslendingar hafa verið undanskild- ir reglunum til þessa, eins og íbúar 26 annarra helstu vinaþjóða Banda- ríkjanna, s.s. Bretlands, Japans og Ástralíu, en í gildi hefur verið samn- ingur við Bandaríkin um að ríkis- borgarar landanna tuttugu og sjö gætu ferðast vestur um haf án vega- bréfsáritunar. Bandaríkjamenn hafa aftur á móti viljað gera kröfu um það að íbúar þessara landa framvísuðu vegabréfi með tölvulesanlegri rönd, auk fleiri öryggisatriða sem miða að því að koma í veg fyrir fölsun. Undanþága framlengd Bandaríkjastjórn vildi að ríkin tuttugu og sjö, sem undanskilin eru kröfum um vegabréfsáritun, væru búin að skipta yfir í hin nýju vega- bréf fyrir október á þessu ári en nú þykir ljóst að þetta markmið mun ekki nást. Því hafa bandarísk stjórn- völd ákveðið að framlengja þessa undanþágu ríkjanna um tvö ár. Það felur hins vegar í sér, sem fyrr segir, að almennar reglur um mynda- og fingrafaratöku við komuna til Bandaríkin munu gilda fyrir íbúa ríkjanna tuttugu og sjö. Asa Hutchinson, aðstoðarlanda- mæra- og samgönguráðherra Bandaríkjanna, segir að aðeins taki að meðaltali 23 sekúndur að taka mynd og fingraför af hverjum ferða- manni og bera saman við skrár stjórnvalda yfir grunsamlega eða hættulega einstaklinga. Fingraför af Íslendingum Frá 30. september gilda reglur um mynda- og fingrafaratöku um alla ferðamenn til Bandaríkjanna Washington. AFP, AP. REGLUR um að taka verði fingraför og myndir af öllum ferðamönnum sem koma til Bandaríkjanna munu frá og með 30. september nk. taka til íslenskra ríkisborgara, sem og íbúa ýmissa annarra helstu bandalagsríkja Bandaríkj- anna. Frá þessu var greint í gærkvöldi af embættismönnum í Washington. KARLAKÓRAR landsins fögnuðu því í gær að þá voru liðin 150 ár frá fyrstu karlakórstónleikum á Íslandi, en það voru jafnframt fyrstu opinberu tónleikar á nútímavísu sem haldnir voru á land- inu. Þá sungu skólapiltar í Lærða skólanum í margradda söng fyrir almenning á Langaloftinu í skólahúsinu, undir stjórn Péturs Guðjohnsens dómorganista. Þeir Aðalsteinn Guðlaugsson úr Karlakórnum Fóstbræðrum og Jón Hallsson úr Karlakór Reykja- víkur, sem samanlagt hafa sungið með kórum sínum í rúma öld, lögðu blómsveig að leiði Péturs Guðjohnsens í kirkjugarðinum við Suðurgötu en að því búnu gengu kórarnir fylktu liði undir leik Lúðrasveitar Reykjavíkur að húsi Menntaskólans í Reykjavík sem hýsti Lærða skólann á sínum tíma. Þar var lagið tekið að nýju, en í gærkvöld héldu kórarnir svo tónleika í Langholtskirkju. Morgunblaðið/Golli Allir í einum kór Í SKÝRSLU Ríkisendurskoð- unar eru nefnd dæmi um ólíkt framboð og verð samheita- lyfja á Íslandi og í samanburð- arlöndunum. Þar kemur til að mynda fram að sami skammt- ur af blóðfitulækkandi lyfi, simvastatin, sé seldur ódýrast hér á landi sem samheitalyf á um 13 þúsund krónur án virð- isaukaskatts, en bjóðist ódýr- ast í Danmörku og Svíþjóð sem samheitalyf á 1.500–1.600 krónur. Segir í skýrslunni að hægt væri að ná fram veruleg- um sparnaði ef samheitalyf væru boðin hér á svipuðu verði og í Danmörku. 13.000 kr. á Íslandi en 1.500 kr. í Danmörku MEGRUNARPILLA, sem líkir eftir áhrifum góðrar hreyf- ingar á líkamann, er nú í þróun í Ástralíu. Byggist hún á prót- eini, sem stýrir því hvernig lík- aminn breytir fæðu í orku. Vísindamenn í Melbourne byggja á gömlum fundi, AMPK-hvatanum, og segja að hann stjórni bruna fæðunnar í frumunum. „Ein árangursrík- asta aðferðin við að grennast er að hreyfa sig nóg enda kall- ar hreyfing á aukna virkni þessa hvata,“ segir Tom Kay. Unnið sé að þróun lyfs, sem virki hvatann á sama hátt, en það gæti sérstaklega komið að gagni hjá fólki, sem er of feitt en á bágt með hreyfingu, t.d. vegna meiðsla eða gigtar. Pilla í stað hreyfingar Melbourne. AFP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.