Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 17

Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 17
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 17 www.hekla.is Fyrir ástina á bílnum. Meiri heiður fyrir Touran HEKLA, Laugavegi 170-174, sími 590 5000 www.hekla.is, hekla@hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 fia› flekkir enginn hugtaki› „skynsamlegt val“ betur en fijó›verjar. fia› var flví sérstakur hei›ur fyrir VW Touran a› hljóta útnefninguna „skynsamlegasta vali›“ hjá fl‡ska neytendatímaritinu „Guten Rat“. Sérfræ›ingar tímaritsins hafa örugglega haft í huga a› Touran er m.a. me› ESP stö›ugleikast‡ringu og fékk fullt hús e›a fimm stjörnur hjá NCAP, Gullna st‡ri› og Auto ver›launin 2003. Er hægt a› bi›ja um meira? Komdu og finndu af hverju Touran er meira en 7 sæta fjölskyldubíll. Touran 1.6 Basicline 6 gíra beinskiptur 37.418 kr. á mánu›i*. Touran 1.6 Basicline 6 flrepa Tiptronic sjálfskipting 40.188 kr. á mánu›i*. Touran 1.9 TDI** Basicline 6 flrepa sjálfskipting 42.497 kr. á mánu›i*. Touran er líka „skynsamlegasta valið“ *M.v. einkaleigu í 36 mán. flar sem innifali› er: 20.000 km akstur á ári, olíuskipti og ábyrg›ar- og fljónustusko›anir. Einkaleiga er há› gengi gjaldmi›la og getur flví breyst án fyrirvara. **TDI er skrásett vörumerki Volkswagen. G O T T F Ó LK M cC A N N · 2 6 0 5 3 „SKIPIÐ leitaði á hefðbundnum kol- munnamiðum innan íslensku lögsög- unnar en fékk lítinn afla. Engu að síð- ur varð vart við töluvert af kolmunna í Rósagarðinum svokallaða en hann var mjög dreifður og ekki í veiðan- legu ástandi,“ segir Haukur Björns- son, framkvæmdastjóri Eskju á Eskifirði. Skip félagins, Hólmaborg SU, hélt á kolmunnamiðin að lokinni loðnuvertíð en orðið lítið ágengt að sögn Hauks. „Það litla sem fékkst var mjög góður kolmunni, mun betri en borist hefur af erlendu skipunum sem hér hafa landað. Við munum því væntanlega gera hlé á veiðum fram yfir páska og erum vongóðir um að þá hafi ástandið lagast.“ Auk Hólmaborgar SU var Börkur NK við kolmunnaleitina suðaustur af landinu og lönduðu skipin um 250 tonnum hvort í lok vikunnar. Tvö færeysk kolmunnaskip lönd- uðu kolmunna hjá Eskju í vikunni, Christian í Grjótinu nærri 2.000 tonn- um og Nordborg rúmlega 2.300 tonn- um. Færeysku skipin hafa stundað kolmunnaveiðarnar á Rockall-svæð- inu og því talsverður spölur að sigla með aflann til Íslands. Haukur segir að væntanlega hafi færeysku skipin ekki fengið löndun í Færeyjum og því hafi Ísland verið næsti kostur. Hann segir íslensku fyrirtækin auk þess greiða samkeppnishæft verð fyrir kolmunnann en vill ekki nefna tölur í því sambandi. Skoti og Íri á Fáskrúðsfirði Í vikunni lönduðu einnig tvö erlend kolmunnaskip hjá Loðnuvinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði, skoska skipið Conquest landaði þar um 1.100 tonn- um og írska kolmunnaskipið Western Endeavour um 2.000 tonnum. Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, segir að mikil og góð veiði hafi verið á þessum slóðum og einfaldlega verið fullt í öllum ná- lægum löndunarhöfnum í Skotlandi og Færeyjum. Því hafi skipin landað á Íslandi, enda mun styttri sigling þangað en til Noregs eða Danmerk- ur. Auk þess hafi útgerð skoska skipsins landað oft á Fáskrúðsfirði á undanförnum árum og því góð tengsl þar á milli. Fyrsti kolmunninn sem barst til Íslands á þessu ári kom til Fáskrúðs- fjarðar 16. febrúar, en þá landaði fær- eyska skipið Finnur Fríði um 2.300 tonnum. Finnur Fríði landaði aftur á Fáskrúðsfirði 27. febrúar, þá um 2.500 tonnum. Það hafa því borist til Fáskrúðsfjarðar um 8.000 tonn af kolmunna það sem af er árinu. Íslensk kolmunnaskip hafa einnig verið við veiðar á þessu svæði og landaði Vilhelm Þorsteinsson EA um 2.400 tonnum af kolmunna í Grinda- vík í upphafi vikunnar. Eins hefur Huginn VE veitt um 1.500 tonn af kolmunna á árinu. Alls hafa íslensk skip því veitt um 4.325 tonn af kol- munna á árinu en heildarkvóti Ís- lands er tæp 492 þúsund tonn. Aftur á móti hafa erlend skip landað hér nærri 14.500 tonnum á árinu, sam- kvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva. Sáu talsvert af kolmunna en fengu lítið Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Kristján í Grjótinu Færeyska skipið Christian í Grjótinum landaði nærri 2.000 tonnum af kolmunna á Eskifirði í vikunni, þróarrými skortir ytra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.