Morgunblaðið - 03.04.2004, Qupperneq 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 21
Laugavegi 32 sími 561 0075
Opnunartími virka daga frá kl. 14.00-18.00, um helgar frá kl. 10.30-18.00
Stendur til 4. APRÍL. Upplýsingasími 511 2226
í Perlunni
GRÍÐARLEGT ÚRVAL
AF SPORT- OG GÖTUSKÓM
BANJO
Cintamani RUCANOR
BACKSTAGE
FIREFLY
DARE 2 BE
catmandoo
OKKAR TAKMARK:
Verð 50-80%
undir fullu verði
:
i ll i
Verðdæmi: Okkar verð: Fullt verð:
BARNAKULDAGALLAR ............................ 2.990 kr. ............... 7.990 kr.
FLÍSPEYSUR BARNA CATANDOO .......... 1.500 KR. .............. 4.990 KR.
REGATTA BARNAÚLPUR ..........................2.500 KR. .... 5.990/7.990 KR.
ADIDAS HLAUPASKÓR ............................3.000 KR. .............. 7.990 KR.
REGATTA FLÍS BARNA .............................1.000 KR. .... 4.990/6.990 KR.
FLÍSTEPPI..................................................1.500 KR. ............. 4.500 KR.
IS IT ZO ÚLPUR ..............................4.990/5.990 KR. 10.990/12.990 KR.
VINDJAKKAR FULLORÐINS .....................1.500 KR. ............. 3.990 KR.
ÚLPUR FIREFLY ........................................1.500 KR. ............. 6.990 KR.
ALLIR BRJÓSTAHALDARAR (LÍTIL NR.)...NÚ 300 KR.
ALLIR FÓTBOLTASKÓR ................2.500 KR. 4.990/18.990 KR.
MIKIÐ ÚRVAL AF ÚLPUM VERÐ FRÁ................1.500 KR.
ENN MEIRI LÆKKUN Á MÖRGUM VÖRUFLOKKUM M.A. SKÓM.
Norræni listaskólinn
í Karleby, Finnlandi
er sjálfstæður, tveggja ára listaskóli. Aðalfög eru teikning, málun og
listfræði. Kennsla fer einnig fram í myndbandalist, skúlptúr, grafík,
ljósmyndun og innsetningum. Skipulag kennslu við skólann er ein-
stakt, en tveir fastráðnir kennarar eru í hlutastarfi við skólann og
síðan eru fengnir gestakennarar frá Norðurlöndunum og ýmsum
Evrópulöndum.
Kennt er á sænsku og ensku. Árlega eru teknir inn 25 nemendur í
skólann.
Umsóknir, á sérstökum eyðublöðum, þurfa að berast okkur í
síðasta lagi 15. maí. Verk til mats verða að berast skólanum í
síðasta lagi 22. maí.
UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ er haldið í skólanum í 21. og 22.
viku. Námskeiðið er ekki skylda, en er mjög gagnleg kynning fyrir
þá, sem sækja um skólavist. Umsóknarfrestur fyrir námskeiðið er í
síðasta lagi byrjun maí. Sjá nánari uppl. á heimasíðu skólans.
Umsóknareyðublöð, kynningarbæklingar og upplýsingar fást hjá:
NORDISKA KONSTSKOLAN,
Borgmästaregatan 32, FIN 67 100 Karleby, Finnlandi.
Sími 00 358 6 822 0906, fax 00 358 6 831 7421,
netfang: info@nordiskakonstskolan.org
www.nordiskakonstskolan.org
JAAP de Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóri NATO, hét því í gær
að leitinni að Radovan Karadzic,
fyrrverandi leiðtoga Bosníu-Serba
sem er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi,
myndi halda áfram þrátt fyrir vax-
andi reiði Bosníu-Serba vegna mis-
heppnaðrar handtökuaðgerðar sem
varð til þess að prestur og sonur
hans særðust og eru nú í dái.
Serbneska rétttrúnaðarkirkjan í
Bosníu fordæmdi innrás 40 brezkra
og bandarískra hermanna friðar-
gæzluliðs NATO á heimili prestsins
fyrir dögun á fimmtudag og hótaði
því að slíta öllu alþjóðlegu samstarfi
nema þeir sem ábyrgð báru á að-
gerðinni yrðu dregnir fyrir dóm.
En sjö árum eftir að Karadzic var
birt ákæra stríðsglæpadómstóls
Sameinuðu þjóðanna í Haag er Kar-
adzic enn á flótta og NATO-fram-
kvæmdastjórinn sýndi engin merki
iðrunar fyrir hönd síns liðs.
„Að sjálfsögðu hefði ég frekar kos-
ið að þessi aðgerð heppnaðist,“ sagði
de Hoop Scheffer á blaðamannafundi
í höfuðstöðvum NATO í Brussel.
En hann bætti við að Karadzic og
aðrir sem væru á flótta undan rétt-
vísinni eins og Ratko Mladic, sem var
æðsti hershöfðingi Bosníu-Serba á
meðan á Bosníustríðinu stóð 1992–
1995, „gætu ekki dulizt eða verið á
flótta endalaust“.
NATO-hermennirnir notuðu
sprengiefni til að ráðast með hraði
inn á heimili prestsins nærri serbn-
eskri rétttrúnaðarkirkju í bænum
Pale, sem var eitt höfuðvígi Karadzic
og hans manna í Bosníustríðinu. Að-
gerðin var ákveðin eftir að trúverðug
ábending barst um að Karadzic væri
í felum í húsinu.
Presturinn, sem sagður er stuðn-
ingsmaður Karadzic, hafði tjáð
svartfellska blaðinu Publika í síðasta
mánuði: „Ég tel það skyldu hvers
serbnesks prests að hjálpa honum
[Karadzic].“
Í dái
Presturinn og sonur hans voru í
gær á sjúkrahúsi í Tuzla þar sem
hlúð var að sárum sem þeir hlutu er
handtökutilraunin var gerð. Læknir
þar sagði feðgana enn vera í dái og
haldið í öndunarvél.
Talsmenn Bosníu-Serba, þar á
meðal Dragan Cavic, forseti þeirra,
og prestur í sama umdæmi og hinn
særði, létu að því liggja í gær að
feðgarnir hefðu sætt barsmíðum.
Þessu vísuðu talsmenn friðar-
gæzluliðsins algerlega á bug. „Þetta
er fjarstæða. Þeir meiddust vegna
höggsins af sprengingunni,“ sagði
Dave Sullivan, talsmaður SFOR í
Sarajevo.
Margir Bosníu-Serbar tóku í gær
og fyrradag þátt í mótmælum gegn
aðgerðum SFOR og til stuðnings
Karadzic.
Aðstoð við Serba fryst
Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið
að frysta alla efnahagsaðstoð við
Serbíu eftir að bandaríski utanrík-
isráðherrann Colin Powell skar úr
um að stjórnvöld í landinu hefðu ekki
haft eðlilegt samstarf við stríðs-
glæpadómstólinn í Haag. Aðstoð
Bandaríkjamanna hefur verið háð
slíku samstarfi.
Niðurstaða Bandaríkjastjórnar
þýðir að Serbíustjórn verður af tæp-
um tveim milljörðum ísl. kr. í fjár-
hagsaðstoð. Mjög hefur verið þrýst á
hana um að framselja þá Mladic og
Karadzic, en ráðamenn í Belgrad
segjast hins vegar ekkert vita hvar
þeir eru.
Serbneska þingið samþykkti á
dögunum lög um bætur til Slobodans
Milosevic, fyrrverandi forseta, og
annarra Serba, sem sakaðir eru um
stríðsglæpi, svo lengi sem mál þeirra
eru fyrir dómstólnum í Haag.
Leitinni að Radovan
Karadzic haldið áfram
Vaxandi reiði meðal Bosníu-Serba vegna aðgerða NATO
Sarajevo, Belgrad, Washington. AFP.
Bosníu-Serbar deila við lögreglumann í Pale á mótmælagöngu í gær.
Reuters