Morgunblaðið - 03.04.2004, Qupperneq 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðbær | Nýr einkarekinn leikskóli
verður opnaður í dag, og hefur hann
fengið nafnið Leikskólinn 101
Reykjavík, en hann stendur við
hornið á Bræðraborgarstíg og Vest-
urgötu. Opið hús verður í dag milli
kl. 14 og 16 og eru foreldrar, systk-
ini, afar og ömmur boðin í heimsókn
til að skoða leikskólann, kynna sér
starfsemina og heilsa upp á starfs-
fólk.
Leikskólinn er einkarekinn og
ætlaður börnum frá sex mánaða til
tveggja ára. Stefna leikskólans er að
búa börnunum vistvænan og kær-
leiksríkan skóla, þar sem hver og
einn einstaklingur fær notið sín í leik
og starfi, að því er fram kemur í til-
kynningu. Eigandi leikskólans er
Hulda Linda Stefánsdóttir og leik-
skólastjóri er Guðrún Norberg.
101 leikskóli
opnaður í dag
Reykjavíkurflugvöllur | Í nýlegri
lokaskýrslu um framkvæmdir við
endurbætur á Reykjavíkurflugvelli
kemur fram að heildarkostnaður við
verkið var 1.692 milljónir króna, frá
opnun útboða árið 1999 til verkloka
árið 2002.
Mikil vinna var við framkvæmd-
irnar, þannig þurfti að grafa upp og
flytja burtu 416.800 rúmmetra af
mold, sem samsvarar um 33 þúsund
vörubílaförmum. Í staðinn voru svo
fluttir 34 þúsund vörubílsfarmar af
möl í fyllingu og burðarlög.
Malbikaður var tæplega 412.000
fermetra flötur, sem samsvarar um
58 knattspyrnuvöllum eins og vell-
inum í Laugardal. Málaðir fletir
voru um 14.800 fermetrar, sem er á
við tvo Laugardalsvelli.
Endurbætur kost-
uðu 1,7 milljarða
Múlahverfi | Góði hirðirinn, verslun Sorpu með
notaða muni, flutti í vikunni í Fellsmúla 24, þar
sem líkamsræktarstöðin World Class var áður til
húsa. Verslunin er vinsæl sem aldrei fyrr og við-
skiptavinir bíða iðulega fyrir utan eftir að dyrnar
opnist á hádegi dag hvern.
„Menn eru mikið að koma til að leita að ein-
hverjum kostakaupum, við fáum stundum algert
gull hingað inn,“ segir Katrín Hauksdóttir, að-
stoðarverslunarstjóri í Góða hirðinum.
Steinunn Jónsdóttir verslunarstjóri tekur undir
það, og segir að nýja húsnæðið breyti öllu fyrir
starfsemina. „Ég held að fólk sjái vörurnar í betra
og skýrara ljósi, við vorum í húsnæði sem var
þröngt og lágt til lofts og gjörólíkt nýja húsinu,“
segir Steinunn, og Katrín bætir við að lofthæðin
geri mikið fyrir verslunina. Þær segja það einnig
kost að lagerinn þurfi ekki að vera stór, vörurnar
séu settar fram í verslunina næstum samdægurs, í
stað þess að bíða eftir plássi á lagernum eins og
áður var.
„Ég á von á því að það verði meira að gera á
nýja staðnum. Það var alltaf mikið að gera nið-
urfrá, við erum með fastakúnna en nú fáum við
kannski meira af nýjum kúnnum. Sumir vissu
ekki af staðnum, starfsfólk í fyrirtækjunum hér í
kring sem kíkir kannski hingað í hádeginu til að
skoða staðinn,“ segir Katrín.
Rafmagnstæki yfirfarin í Fjölsmiðjunni
Góði hirðirinn er nytjamarkaður sem er rekinn
á vegum Sorpu og líknarfélaga, og rennur allur
ágóði af starfseminni til góðs málefnis. Í fyrra
fengu t.d. Foreldrahús, Fjölsmiðjan og Ásgarður
1 milljón króna hvert frá Góða hirðinum. Vör-
unum er safnað saman í sérstaka gáma á gáma-
stöðvum Sorpu, húsgögnum, smáhlutum og jafn-
vel rafmagnshlutum.
Nú hefur tekist samstarf á milli Góða hirðisins
og Fjölsmiðjunnar, og fer starfsfólk Fjölsmiðj-
unnar yfir öll rafmagnstæki áður en þau eru seld
til að athuga hvort þau séu ekki í lagi.
Viðskiptavinir Góða hirðisins eru hreinlega
þverskurður úr samfélaginu, listamenn, bókasafn-
arar, plötusafnarar, safnarar, ungt fólk sem er að
byrja að búa og fleiri og fleiri. Vinsælustu vörurn-
ar eru ýmsar smávörur, en næst á eftir koma
bækurnar og þar á eftir sennilega húsgögnin, seg-
ir Steinunn.
Áhugi fólks á Góða hirðinum er sífellt að aukast
og engin merki um að notaðir munir séu tískufyr-
irbrigði sem eigi eftir að hverfa, segir Steinunn.
„Fyrst héldu menn að þetta væri svona einskonar
bóla, nú vildi fólk hafa allt gamalt, en nú hefur
þessi bóla stækkað og stækkað, bólan er orðin að
blöðru, svo það má segja að það hljóti að vera stór
hópur sem vill kaupa húsgögn með sál.“
Góði hirðirinn í ræktina
„Bólan er orðin
að blöðru“
Morgunblaðið/Ásdís
Grafa eftir gulli: Gömlu vínilplöturnar lifa enn og seljast vel í Góða hirðinum og margir grúskarar
koma reglulega til að finna fágæta gullmola sem þá hefur ef til vill lengi vantað í safn sitt.
Fasteignasalan Hóll kynnir nýjar íbúðir
við Skipholt 15 í dag milli kl. 14 og 16 á
skrifstofu Hóls, Skúlagötu 17.
Um er að ræða 18 íbúðir í vönduðu
lyftuhúsi. Stærð íbúðanna er frá 80-160
fm. Á 3. og 4. hæð eru sérstakar „pent-
house“-íbúðir á 2 hæðum með ein-
stöku útsýni. Verð frá 13,3 millj.
Kíkið við og sölumenn Hóls taka vel á móti þér!
www.holl.is
Hóll - tákn um traust í fasteignaviðskiptum.
Skipholt 15 - nýjar íbúðir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
24
05
2
03
/2
00
4
Samsung X600
Myndavélasími
Zoom, snúningur og ljós
Stærð myndar 640 x 480 punktar
Litaskjár 65.000 litir
Minni 9 MB
Verð 19.900 kr.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28, Skífunni Laugavegi 26,
Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn. Þjónustuver sími 1414, www.ogvodafone.is
Frítt að senda Myndskilaboð til 1. sept. 2004.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti frá Og Vodafone.
Risapáskaegg fylgir!
M
yndskilab
oð
Frí
tt að senda
Vinninga má nálgast í afgreiðslu Morgunblaðsins, Kringlunni 1, Reykjavík,
alla virka daga milli kl. 8 og 17. Vinningshafar utan Reykjavíkursvæðisins
geta óskað eftir því að fá vinninga senda. Uppl. í síma 569 1324 eða 569 1384.
Vinningar óskast sóttir innan mánaðar frá birtingu úrslita.
Stórmynd Grísla
- Vinningshafar
Alexander Arinbjörnsson, 2½ árs,
Greniteig 20, 230 Keflavík.
Björk Jónsdóttir, 11 ára,
Birtingakvísl 46, 110 Reykjavík.
Gabríel Bergmann, 3 ára,
Heiðarholti 20, 230 Keflavík.
Ívar Karl, 7 ára,
Suðurgarði 1, 230 Keflavík.
Jóhanna og Þorkell, 3 og 8 ára,
Skeiðarvogi 83, 104 Reykjavík.
Jón Ragnar Magnússon, 3 ára,
Borgarvegi 33, 230 Reykjanesbæ.
Stefanía V. Sigurjónsdóttir, 5 ára,
Laugarásvegi 53, 104 Reykjavík.
Tómas Þórisson, 1 árs,
Jaðarsbraut 31, 300 Akranesi.
Vinný Dögg Jónsdóttir, 3 ára,
Hraunbæ 24, 110 Reykjavík.
Þóra Lind Halldórsdóttir, 7 ára,
Urðarbraut 2, 250 Garði.
Til hamingju krakkar! Þið hafið unnið Stórmynd
Grísla á myndbandi með íslensku tali: