Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 26

Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 26
AKUREYRI 26 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vaxtarsamningur Eyjafjarðarsvæðis um skýrslu Verkefnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar á Hótel KEA, Akureyri, miðvikudaginn 7. apríl kl. 15:00-17:00 Kynningarfundur Dagskrá: 14:45 Skráning. 15:00 Ávarp. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. 15:10 Niðurstöður og tillögur. Sigmundur Ernir Rúnarsson, formaður Verkefnisstjónar um byggðaáætlun Eyjafjarðar. 15:25 Vaxtarsamningur, áherslur og starfsskilyrði. Baldur Pétursson, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti. Guðmundur Guðmundsson, Byggðastofnun. 15:50 Kaffi. 16:00 Viðhorf og áherslur Akureyrarbæjar. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, Akureyri. 16:10 Sjónarmið og áherslur aðila á svæðinu. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. Ásgeir Magnússon, forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins á Norðurlandi, Akureyri. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, Akureyri. Valtýr Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri, Héraðsnefnd Eyjafjarðar. 16:40 Fyrirspurnir – almennar umræður. 17:00 Fundarlok. Fundarstjóri: Ragnar Hólm Ragnarsson, kynningarfulltrúi Akureyrarbæjar. Þátttaka tilkynnist til iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins, í síma 545-8500. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið Verkefnisstjórn um byggðaáætlun Eyjafjarðar SÝNING á verkum 240 nemenda í þriðja bekk í grunnskólum Ak- ureyrar var opnuð á Glerártorgi í gær og stendur hún fram á þriðjudag. Þetta er fjórða árið í röð sem nemendur í 3. bekk sýna verk sín með þessum hætti á Glerártorgi. Myndverkin unnu börnin í tengslum við umferðarfræðslu lögreglunnar á Akureyri, þar sem höfuðáherslan var lögð á notkun reiðhjólahjálma. Þorsteinn Pétursson lög- reglumaður, sem haft hefur um- sjón með umferðarfræðslunni, sagði að börnunum hefði verið bent á hversu reiðhjólahjálmar séu mikilvæg öryggistæki en hins vegar sé það foreldranna að passa upp á að börnin noti hjálma. Hann sagði að myndirnar á sýningunni væru mjög fjöl- breyttar, „og margar myndir al- veg frábærar“. Auk myndanna gerðu börnin boðsmiða handa fjölda gesta á sýninguna. Morgunblaðið/Kristján Stoltir af verkum sínum: Þorsteinn Pétursson lögreglumaður með ungum listamönnum á sýningunni á Glerártorgi. Sýningin stendur til þriðjudags. Margar myndirnar alveg frábærar Myndlistarsýning 240 barna EFNT verður til opinnar samkeppni um hönnun menningarhúss á Akur- eyri og verða keppnisgögn afhent á þriðjudag, 6. apríl. Tillögum á að skila inn 5. júlí næstkomandi og mun 5 manna dómnefnd sem sér um sam- keppnina væntanlega tilkynna um niðurstöður á Akureyrarvöku, 28. ágúst næstkomandi. Menningarhúsið verður á uppfyll- ingu á mótum Glerárgötu og Strand- götu, þar sem til staðar er 10 þúsund fermetra lóð. Áætlanir gera ráð fyrir að húsið verði 3.500 fermetrar að stærð og þá er einnig gert ráð fyrir að í framtíðinni rísi tónlistarskóli á þessu sama svæði. „Við vitum að áhugi fyrir sam- keppninni er mjög mikill og eigum von á því að fá fjölda tillagna,“ sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir, formað- ur menningarmálanefndar Akureyr- ar sem sæti á í dómnefnd. Hún nefndi að húsið yrði eitt af kennileit- um bæjarins og menn væntu þess að samkeppnin myndi skila inn snjöll- um og raunhæfum tillögum að fal- legri byggingu sem félli vel að um- hverfinu, en bæri jafnframt með sér nýja strauma. Þá þyrfti húsið vitan- lega að falla vel að þeirri starfsemi sem þar á að vera. Þar má m.a. nefna 500 manna tónleikasal sem einnig verður hægt að hafa í leiksýningar og þá verður í húsinu minni salur undir margskonar starfsemi og í anddyri upplýsingamiðstöð ferða- manna með aðstöðu fyrir sýningar af ýmsu tagi. Dómnefnd mun í vali sínu leggja höfuðáherslu á byggingalist, innra fyrirkomulag, hagkvæmni í rekstri, kostnað, umferðar-, aðgengis- og ör- yggismál auk fyrirkomulags á lóð. Heildarverðlaunafé er 8 milljónir króna sem skiptist þannig að helm- ingur þess er í fyrstu verðlaun, 2,5 milljónir í önnur verðlaun og 1,5 milljónir í þriðju verðlaun. Þá hefur dómnefnd heimild til að kaupa keppnistillögur fyrir allt að 1,5 millj- ónum króna. „Þetta háa verðlaunfé vonumst við til að skili sér í því að menn leggi töluvert í tillögur sínar og útfærslur og að við fáum þar af leiðandi betri tillögur,“ sagði Sigrún. „Þetta er spennandi verkefni og ég á von á að við fáum fallegt hús á þessum áberandi stað í bænum,“ sagði Oddur Helgi Halldórsson bæj- arfulltrúi sem á sæti í dómnefnd. Jakob Björnsson, sem þar situr einn- ig, sagði að húsið myndi eflaust efla menningarlíf á Norðurlandi og hann væri ánægður með að Akureyrar- bær hefði burði til að taka þátt í þessu stóra verkefni. Stefnt er að því sem áður segir að kynna verðlaunatillögur í lok ágúst og að unnið verði að hönnun í vetur. Þá er gert ráð fyrir að bygginga- nefndartillögur verði til í mars og verkið síðan boðið út í ágúst árið 2005. Gangi allt upp er svo ráðgert að húsið verði tilbúið vorið 2007. Húsið verður eitt kennileita í bænum Menningarhúsið rís á uppfyllingunni á mótum Strandgötu og Glerárgötu. Opin samkeppni um hönnun menningarhúss BIRGIR Karl Knútsson, fram- kvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar hf., lætur af störfum hjá félaginu í lok apríl. Fiskeldi Eyjafjarðar hf. er eignarhalds- og fjárfestingarfélag og hefur það séð um skrifstofuhald og ýmis önnur verkefni fyrir dótturfélag sitt, Fiskey ehf. Framkvæmdastjórn er óbreytt hjá Fiskey ehf. Birgir Karl var ráðinn fram- kvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar í febrúar árið 2002. Hann lagði sjálfur fram þá tillögu, sem lið í hagræðing- araðgerðum félagsins, að skrifstofu þess yrði lokað og þar með að hann léti af störfum hjá félaginu. Birgir Karl mun þó eftir atvikum vinna ýmis verkefni fyrir Fiskeldi Eyjafjarðar eftir að hann lætur af störfum sem framkvæmdastjóri. Framkvæmda- stjórinn hættir Bílastæði | Framkvæmdaráð Ak- ureyrarbæjar hefur samþykkt að leggja til við bæjarráð að farið verði í framkvæmdir við bílastæði neðan Samkomuhúss og að kostnaður greiðist úr Bifreiðastæðasjóði. Jafn- framt er framkvæmdadeild falið að ljúka undirbúningi verksins. Lækkun hjá strætó | Á fundi framkvæmdaráðs var lagt fram minnisblað Stefáns Baldurssonar forstöðumanns SVA dags. 1. apríl 2004 um lækkun mánaðakorta úr kr. 4.500 í kr. 3.500 og þriggja mánaða korta úr kr. 10.500 í kr. 9.000. Fram- kvæmdaráð samþykkti framlagða tillögu. Tónleikar | Hymnodia – kammerkór Akureyrarkirkju heldur tónleika í Akureyrarkirkju, mánudaginn 5. apr- íl kl 20.30. Á efnisskránni eru annars vegar verk tengd Maríu og boðun hennar, og hins vegar lög við Passíusálma Hall- gríms Péturs- sonar. Einnig mun kórinn spinna yfir kórlag. Verkin sem flutt verða eru eftir: Victoria, Purcell, Charpentier, Rakhmanínov, Britten, Róbert A. Ottósson, Smára Ólason, Atla Heimi Sveinsson og Hildigunni Rúnarsdóttur. Í sönghópnum eru: Kolbrún Inga Jónsdóttir, Þórhildur Örvarsdóttir, Kristín Kjartansdóttir, Sigrún Arna Arngrímsdóttir, Hjörleifur Hjálm- arsson, Pétur Halldórsson, Michael Jón Clarke og Skúli Gautason. Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson. Eyþór Ingi Jónsson Mósaík og tinlagt gler | Hand- verks- og tómstundamiðstöðin Punkturinn er 10 ára á þessu ári og af því tilefni verður efnt til 10 afmæl- issýninga í ár. Um er að ræða sýn- ingar á handverki sem unnið hefur verið á Punktinum frá opnun og hef- ur sú þriðja í röðinni verið opnuð, en hún ber yfirskriftina „Mósaík og tin- lagt gler“. Hadda mun í tilefni af opnuninni halda fyrirlestur og segja frá Gaudi kl. 16 á mánudag, 5. apríl. Sýningin stendur til 29. apríl. Skylduleikur | Skákfélag Akur- eyrar heldur nokkuð sérstakt skyldu- leikjamót á sunnudag, 4. apríl, kl. 14. Á mótinu verða keppendur skyldaðir til að leika hinum sjaldgæfa byrj- unarleik 1. b4. Teflt er í Íþróttahöll- inni að venju og eru allir velkomnir.             Grafíksýning | Sveinbjörg Hall- grímsdóttir hefur opnað grafíksýn- ingu á kaffihúsinu Bláu könnunni, Akureyri. Að þessu sinni sýnir hún 24 koparristuverk en hún er einnig þekkt fyrir tréristur sínar. Meðal verka á sýningunni eru nokkrar af þeim myndum sem prýða almannak Þroskahjálpar 2004. Sýningin er opin á afgreiðslutíma kaffihússins og stendur til 25 apríl.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.