Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 27

Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 27
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 27 STJÓRN Suðurnesjadeildar hjúkr- unarfræðinga hefur sent frá sér yfirlýsingu, vegna fjölmiðlaum- fjöllunar síðustu vikna, og lýsir þar fullum stuðningi og trausti til stjórnenda Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Fundur millistjórn- enda á stofnuninni hefur einnig samþykkt traustsyfirlýsingu á framkvæmdastjórn og fram- kvæmdastjóra. „Sú uppbygging sem átt hefur sér stað undanfarin misseri, með tilkomu nýs framkvæmdastjóra, er unnin af heilum hug, mikilli fag- mennsku og þekkingu á heilbrigð- ismálum. Þar er tekið mið af heild- arhagsmunum íbúa svæðisins. Í þeirri umræðu sem átt hefur sér stað er aldrei talað um hvert hlutverk sjúkrahússins sé í heild sinni, heldur einungis einblínt á langlegudeild fyrir aldraða. Við sem fagaðilar vitum að til að reka sjúkrahús þarf að sinna breiðum hópi fólks en ekki einungis horfa bara á einn þátt. Við biðjum því Suðurnesjabúa að staldra við og kynna sér málin til hlítar áður en þeir mynda sér skoðun á þessu máli,“ segir í yfirlýsingunni. Í samþykkt millistjórnendanna segir: „Á einu ári hefur tekist að manna sex læknisstöður á heilsu- gæslunni og sjúkrahúsþjónusta hefur verið stórefld. Þjónusta við aldraða hefur aldrei verið meiri og fjölbreyttari en nú er og stefna stofnunarinnar er að sú þjónusta verði enn öflugri og í takt við kröfur nútímans. Fundurinn vonar að umræðan verði málefnalegri en verið hefur og friður skapist til þess að finna framtíðarlausn á ágreiningsefnum.“ Stuðningur við stjórnendur Heibrigðisstofnunar Keflavík | „Ég hef lengi verið með hund og það hef- ur líka lengi verið draumur minn að opna hunda- skóla. Ég gat látið verða af því núna,“ segir Atli Þor- steinsson sem í dag opnar K9-hundaskólann í Keflavík. Atli er nýkominn af sex vikna námskeiði í hunda- þjálfun í Bandaríkjunum. Námskeiðið var hjá Nat- ional K9-hundaþjálfaraskólanum og þegar heim kom ákvað Atli að opna strax skóla undir þessu merki. „Það er um að gera að hamra járnið meðan það er heitt,“ sagði hann. Hann hefur tekið á leigu húspláss í Grófinni 9 fyr- ir starfsemina. Þar og á útisvæði verður hann með hunda í grunnþjálfun og framhaldsþjálfun í al- mennri hlýðni. Hann tekur hundana í allt frá þriggja daga þjálfun og upp í þrjár vikur í senn, allt eftir óskum eigendanna. Þá verður hann með hvolpaskóla einu sinni í viku. Þá koma eigendurnir með og kennslan beinist ekki síst að því að hjálpa þeim að stíga fyrstu skrefin við uppeldi hunds. Atli hefur hug á að bjóða upp á ýmsa sérþjónustu. Hann stefnir til dæmis að því að þjálfa hunda fyrir fatlað fólk. Telur brýnt að það geti notið samvista við þessa ferfætlinga eins og annað fólk. Hann ætlar að halda veiðihundanámskeið. Þá telur hann að gagnlegt gæti verið að þjálfa fíkniefnaleitarhunda og þess vegna flutt þá út. Atli býður upp á þrif á hundum og naglahreinsun og er með til sölu ýmsar vörur tengdar hundahaldi. Þá hyggst hann bjóða fólki þá þjónustu að geyma hundana meðan það er í útlöndum og jafnvel þjálfa þá á meðan. Þessi hugmynd byggist á nálægðinni við flugvöllinn, hann býðst til að taka við hundunum við flugstöðina og skila þeim á sama stað þegar fólkið kemur heim. Hann er með ýmsar fleiri hugmyndir en segir að þetta ætti að vera nóg til að byrja með enda verður hundaþjálfunin aukastarf hjá Atla, að minnsta kosti til að byrja með. Hann telur að þörf sé fyrir þessa þjónustu og lítur í því efni ekki aðeins til Suð- urnesja, þar sem enginn hundaskóli er, heldur einn- ig til höfuðborgarsvæðisins, enda sé hundaeign að aukast mjög þessi árin. „Ég er ekki í neinum vafa um að það er full þörf fyrir þessa starfsemi enda mikilvægt að fólk geti notið hundanna eins vel og kostur er,“ segir Atli og vekur athygli á slagorði skólans: „Gerum besta vin mannsins betri.“ Í dag verður opið hús í húsnæði K9-hundaskóla í Grófinni 9, frá klukkan 11 til 16. Atli hyggst miðla af þekkingu sinni og kynna starfsemi skólans. „Gerum besta vin mannsins betri“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hlýðni: Atli Þorsteinsson siðar hund sinn, Sesar, í húsnæði nýja hundaskólans í Grófinni í Keflavík. Atli Þorsteinsson opnar K9-hundaskóla í Grófinni KARLAKÓR Keflavíkur heldur tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, laugardag, klukkan 17. Síðustu vortónleikar kórsins í ár verða á sama stað nk. miðvikudag, klukkan 20. Einsöngvarar eru Steinn Erl- ingsson baritón og Davíð Ólafsson bassi. Stjórnandi er Vilberg Viggósson og undir- leikari Ester Ólafsdóttir. Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur NÝIR menn hafa tekið við umboði fyrir öku- tæki frá Bifreiðum og landbúnaðarvélum á Suðurnesjum. Grétar Ólason og Þorsteinn Magnússon, sem rekið hafa SG-bílaleiguna, keyptu reksturinn af Smára Helgasyni. Þeir Grétar og Þorsteinn munu selja bæði nýja og notaða bíla í samstarfi við B&L og hyggjast kynna nýju bílasöluna, sem hlotið hefur nafnið SG-bílar, með bílasýningu að Bolafæti 1 í Njarðvík um helgina. Á sýning- unni verða allir nýjustu bílarnir frá Hyundai, Renault, BMW og Land Rover. Grétar Ólason og Þorsteinn Magnússon handsala samning við Heiðar Sveinsson, sölustjóra hjá B&L. Bílasýning hjá nýjum umboðsmönnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.