Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 35
FYRIR skömmu voru tveir veitinga-
staðir opnaðir sem sérhæfa sig í mis-
munandi beyglum og selja þær bæði
smurðar og ósmurðar. Á und-
anförnum mánuðum hafa einnig
bæst við í frystiborð stórmarkaða
frosnar beyglur frá nokkrum erlend-
um framleiðendum. Meðal nýjunga í
frystiborðum eru Lender’s beyglur
sem koma frá Bandaríkjunum.
Lender’s er rótgróið bandarískt fyr-
irtæki sem hóf framleiðslu og sölu á
beyglum fyrir um 70 árum. Á boð-
stólum eru nú beyglur með hvítlauk,
venjulegar og með hunangi og heil-
hveiti. Að sögn Arnkels B. Arnkels-
sonar hjá Dreifingu ehf. sem flytur
inn Lender’s beyglurnar er óvíst
hversu margar tegundir verða flutt-
ar inn síðar meir en ákveðið var að
fara hægt af stað. Beyglurnar fást í
Hagkaupum, Nóatúni, Fjarð-
arkaupum, Sparverslun, Melabúð-
inni og ýmsum öðrum verslunum.
Malað kaffi í espressóvélar
Nýja kaffibrennslan býður nú fín-
malað kaffi í espressóvélar. Að sögn
Helga Örlygssonar hjá Nýju kaffi-
brennslunni var farið að bjóða upp á
þessa nýjung í síðasta mánuði. „Við
seldum espressókaffibaunir áður en
ákváðum að koma til móts við okkar
viðskiptavini sem ekki eru með
kvarnir í vélum sínum og bjóða þeim
fínmalað kaffi í vélarnar sem hefur
mælst mjög vel fyrir.“
Kaffið er fáanlegt í Nettó, Fjarð-
arkaupum og Krónunni og vænt-
anlegt í fleiri verslanir.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Arnaldur
Beyglur og kaffi
Á RÖLTINU
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
DAGLEGT LÍF
Fjölkerfa
DVD spilari
6.999.-
Opnunartími:
Mán-föst 11-18.30
Laugard 10-18
Sunnud 13-17
Skútuvogur 2 :: 104 Reykjavik
Sími: 522-9000 :: Fax: 522-9001
Halló Norðurlönd - vinur í vanda
Ertu að hugsa um að flytja til
annars Norðurlands?
Hefur þú siglt í strand í
kerfinu eftir flutning?
Halló Norðurlönd
er upplýsingaþjónusta
Norrænu
ráðherranefndarinnar.
Skoðaðu heimasíðuna
www.hallonorden.org,
þar finnur þú mikilvæg
netföng og símanúmer.
Skólavörðustígur 8, 101 Reykjavík - Pöntunarsími 562 2772
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Nýtt, ómótstæðilega
ljúffengt súkkulaði
Heilsuhúsið hefur nýlega hafið sölu
á einstaklega ljúffengu súkkulaði
frá Booja Booja. Grunnurinn í þessu
súkkulaði er silkimjúkur kjarni, þakinn ríku
dökku súkkulaði sem kakódufti er síðan sáldrað yfir.
Þetta súkkulaði er sérstakt fyrir margra hluta sakir.
Í fyrsta lagi er hráefnið allt úr lífrænni ræktun.
Ekki nóg með það, heldur er þetta ómótstæðilega
súkkulaði laust við mjólk, hveiti og glúten, hentar
því líka þeim sem hafa ofnæmi fyrir þessum fæðu-
tegundum. Auk þess er það laust við erfðabreytt
hráefni. Það hefur hlotið 16 mismundndi verðlaun
og viðurkenningar, ekki síst fyrir bragðgæði.
Velja má úr bragðtegundum
eins og Midnight Expresso
Truffles sem var valin
“Besta lífræna vöru-
tegundin” í Bretlandi
árið 2000, Ginger
Wine Truffles með
mildri engiferfyllingu,
Cogniac Flambee
Truffles og Hazel Crunch
súkkulaði. Einnig eru til
tvær gerðir af páskaeggjum.
Náttúrulega
ljúffengt
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
Besta
lífræna
vörutegundin
í Bretlandi
árið 2000