Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 45

Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 45 ✝ Ólafur Pálssonbóndi fæddist á Akureyri 3. maí 1924. Hann lést á heimili sínu á Blönduósi föstudag- inn 26. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Páll Júlíus Sigurðsson bóndi, frá Kálfborgará í Bárð- ardal í Suður-Þing- eyjarsýslu, f. 25. júlí 1877, d. 9. nóvember 1953 og Ingibjörg Ólafsdóttir hús- freyja, f. á Sæunnar- stöðum í Hallárdal í Austur-Húna- vatnssýslu 11. desember 1902 , d. 6. mars 1991. Ólafur var elstur þriggja systkina en systkini hans búa bæði á Blönduósi, þau eru Sigurður giftur Öldu Friðgeirs- dóttur frá Sviðningi og eiga þau fjórar dætur og Sigríður Guðný, hún átti þrjá syni með Kristni Andréssyni, sem er látinn en býr nú með Óla J. Björnssyni frá Siglufirði. Á fæðingarári Ólafs voru for- eldrar hans búsett á Akureyri en fluttu árið eftir að Björgum í Skagabyggð. Þar stunduðu þau bú- skap í eitt ár, þar til þau fluttu að Óseyri á Skagaströnd. Tveimur árum seinna flytja þau aft- ur að Björgum og eru þar til vors 1939 að þau flytja að Króksseli í Skaga- byggð. Þar bjó Ólafur með móður sinni til ársins 1977 að hann kaupir Ytri-Björg og býr þar til 1995 en þá eignast hann húsið á Mýrar- braut 7. Á sama tíma fækkar hann mjög í bústofni sínum en var þó með nokkurt sauðfé til dánardæg- urs. Ólafur var virkur í félagsmál- um. Hann sat í sveitarstjórn Skagahrepps í nokkur kjörtíma- bil, var stjórnarmaður í Búnaðar- félagi Skagahrepps og gjaldkeri í sjúkrasamlagi hreppsins. Ólafur kvæntist ekki og var barnlaus. Útför Ólafs verður gerð frá Hofskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Leiðir okkar Óla frænda lágu nokkuð oft saman síðustu árin og var það gjarnan við eldhúsborðið hjá móður minni og Óla Björns. Óli frændi fékk sér gjarnan að reykja meðan hann stoppaði, þáði kaffi og með því eða hádegismat. Gaman hafði hann af að sýna okkur myndir af ferðalögum sínum um Ísland síð- ustu árin. Gjarnan var ferðin inn til dala og upp á hálendið. Í ferðirnar fór hann ýmist einn á sínum bíl, með far- þega eða í stærri ferðir. Hann hafði mikinn áhuga á sögu landsins og hafði haft það mjög lengi en ekki allt- af haft möguleika til ferðalaga vegna anna við búskapinn. Við lestur bóka og korta hafði hann numið mikinn fróðleik og þegar stundir gáfust, lagði hann land undir fót og notaði tímann til hins ýtrasta. Ef ég rifja upp nokkra fleiri þætti sem tengjast Óla vil ég nefna hvernig við á Urðarbraut 2 fengum rauðmag- ann á vorin. Það var vegna þess að Óli sótti sjóinn um áratugaskeið ásamt bróður sínum Sigga og seinna bættist Pétur Sveinsson á Tjörn í hópinn. Oft veiddu þeir bræður vel á vorin af grá- sleppunni og síðan söltuðu þeir hrognin í tunnur. Vorið 1965 var afl- inn það mikill að kaupa hefði mátt þrjá jeppa fyrir andvirði hrognanna. Þeir bræður létu þó duga að kaupa einn jeppa, sem þeir notuðu saman. Rauðmagi kom oft í netin og rataði hluti af aflanum alla leið inn á Blönduós til móður minnar. Þá var gott í matinn. Vel má segja að með rauðmaga á borði, væri vorið alveg að koma. Eins var það hvað mér þóttu hæn- urnar í Krókseli fallegar. Þær voru í öllum regnbogans litum en ekki bara hvítar eins og á mörgum bæjum. Kötturinn var ekkert að trufla þær við iðju sína í hlaðvarpanum. Best þótti honum að vera uppi í rúminu hennar ömmu og mala þar. Langskólanám stundaði Óli ekki en var í farskóla eins og þá var siður. Ein réttindi fékk hann ungur að ár- um. Þau voru á þungavinnuvélar og á þeim átti hann margar vinnustundir um langt árabil. Fyrst á V-4 drátt- arvél sem Búnaðarfélag Skaga- hrepps eignaðist. Sú vél var notuð til að herfa og plægja flög. Undir henni voru einungis járnhjól. Síðan réði hann sig í vinnu hjá Búnaðarsam- bandi Austur-Húnavatnssýslu og vann á jarðýtum og gröfu til margra ára. Óli var laginn við smíðar og átti mikið safn verkfæra. Þau notaði hann gjarnan til að smíða úr rekaviðnum sem rak á fjörur Ytri-Bjarga, kominn alla leið frá Rússlandi í austri. Ekki var sumt af efninu neitt slor. Rúss- neskur rauðviður, eða lerki eins og við þekkjum það. Úr því smíðaði hann t.d. glugga í íbúðarhúsið hjá sér og fleiri hagnýta hluti. Hjá mörgum landeigendum liggja jarðirnar að ám og vötnum. Óli átti til dæmis veiðirétt í Langavatni. Þangað bauð hann okkur Bjarna bróður og fjölskyldum okkar. Við fengum hið besta veður í villtri náttúrunni á Skagaheiði. Ekki vorum við mjög fiskinn en samveran bætti veiðitregð- una margfalt upp. Gaman var að heyra frásagnir Óla af mannlífinu í Skagaheiði og hvernig náttúran hag- aði sér. Yngstu krakkarnir, sem ekki voru eins hörð við veiðina, drógust að honum í létt spjall um náttúruna. Hann var barngóður maður og hefði vel getað orðið kennari. Það segi ég vegna þess hversu gott var að hlusta á hann segja frá hlutum, sem ekki voru öllum eins ljósir. Til þess hafði hann mikla þolinmæði. Óli var fræð- ari. Gott var að koma í kaffi til Óla á Mýrarbrautina eða út að Ytri-Björg- um. Veitingar voru góðar og mikill hlýhugur með þeim. Þá tók hann gjarnan fram fornar bækur úr kistli eða koforti. Síðan var gluggað í þær um stund og málin rædd. Óli bar öðru fólki vel söguna en hafði skemmtilega kímni til að bera. Fjölskyldan á Heiðarbraut vill þakka Óla frænda fyrir samfylgdina. Páll Ingþór Kristinsson. Ég var ekki nema 6 ára þegar ég fór fyrst í sveit til Óla og ömmu minn- ar í Króksseli og var síðan á hverju sumri fram til 15 ára aldurs. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast sveitalífinu eins og það var, en fyrstu sumrin sem ég var hjá Óla var ekkert rafmagn né heitt vatn úr krana og þar af leiðandi ekki til staðar þau nú- tímaþægindi sem nú eru. Í minningunni var Óli alveg óþrjót- andi hafsjór af fróðleik, því ég var mjög forvitinn og hafði hann enda- lausa þolinmæði til að svara mér. Lærði ég ýmislegt gott af honum, m.a. að fara vel með alla hluti og bera virðingu jafnt fyrir mönnum sem dýr- um. Bý ég vel að því í dag. Aldrei heyrði ég Óla æsa sig yfir nokkrum hlut og var hann alveg ein- stakt ljúfmenni. Hafði hann gaman af því að kenna mér gamanvísur og mik- inn brag, kann ég eithvað af því enn í dag. Fyrir kom að ég fór með að vitja um grásleppunet. Ekki var búið að vera lengi út á sjó þegar ég var orðinn sjóveikur og hafði hann ekki brjóst í sér að láta mig pínast lengi, svo siglt var með aumingjann í land. Hjá Óla lærði ég að keyra mjög ungur og var ég þá búinn að hanga á dráttarvélinni hjá honum daginn út og inn og fylgj- ast grannt með öllum handtökum hans. Eftir að hann hætti búskap og flutti til Blönduóss lét hann gamlan draum rætast, en það var að stunda ferðalög og voru það þá helst fjalla- ferðir. Þar sem við áttum sameigin- lega þetta áhugamál þá var hann duglegur að sýna mér myndir og leið- ir sem hann fór og að sama skapi var hann mjög áhugasamur um þær ferð- ir sem ég var að fara um hálendið. Kveð ég þig Óli minn með söknuði, en minningin um þig er ljúf og lifir að eilífu. Megi guð geyma þig. Bjarni Kristinsson. Ólafur varð bráðkvaddur á heimili sínu og þegar mér barst fréttin um andlát hans þótti mér sem það hefði verið í samræmi við lífsgöngu hans, hljóðlátt og markvisst, líkt og hann vann sín störf. Segja má að við Ólafur værum ná- grannar alla tíð. Kynni okkar voru því orðin löng og góð voru þau og bar þar aldrei skugga á. Það er margs að minnast þegar leiðir skilja og ekki auðvelt að greina í sundur milli þess sem geta skal og þess sem ósagt verður. Það kom snemma í hlut Ólafs að vera í forsvari fyrir sitt heimili. Faðir hans missti heilsuna meðan börnin voru enn ung og mun öll ákvarðanataka eftir það hafa hvílt mikið á Ólafi þótt öll væri fjölskyldan einkar samhent. Það kom eins og af sjálfu sér að Ólafur valdist fljótt til forystu í okkar litla samfélagi hér á Skaga. Hann hafði traust og tiltrú samborgara sinna sökum prúðmennsku sinnar og hógværðar auk einstakrar trú- mennsku í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, en það var fjarri því að hann sæktist eftir mannaforráðum eða vegtyllum. Ólafur sat í hreppsnefnd um langt árabil, var gjaldkeri Sjúkra- samlags Skagahrepps, sat í stjórn Búnaðarfélagsins, Lestrarfélagsins og Málfundafélags Nesjamanna. Samgöngumál voru honum sérlega hugleikin og að þeim vann hann öt- ullega, enda þeirrar skoðunar að góð- ar samgöngur væru undirstaða þess að hægt væri að halda við búsetu í dreifðum byggðum. Framan af árum vann Ólafur mikið utan heimilis. Hann sótti ungur nám- skeið norður í Eyjafirði í meðferð jarðvinnuvéla og vann eftir það mikið á slíkum tækjum. Fyrst á þúfnabana sem Búnaðarfélag Skagahrepps átti og útrýmdi með þeirri vél túnþýfi í hreppnum auk þess að brjóta órækt- að land. Síðar vann Ólafur mörg sum- ur á þungavinnuvélum Búnaðarsam- bands Austur-Húnvetninga sem gengu um allt héraðið. Ólafur var snjall í meðferð ýmssa véla og farartækja sem oft kom sér vel og ekki síst í vetrarófærð. Hann kunni öðrum betur að aka ofan á snjó og löngu áður en jeppamenn tömdu sér þennan hátt á sérbúnum bílum. Á snjóavetrum fyrri ára var hann því oft á ferð á jeppa eða dráttarvél að troða slóð í snjóinn til að freista þess að greiða för annarra um frerann. Ólafur kvæntist aldrei og átti ekki börn, en ungan dreng tóku þau mæðgin til sín meðan þau bjuggu í Króksseli og ólu upp þar til hann var ungfullorðinn. Hann hefur reynst hinn mætasti maður og sýndi Ólafi ræktarsemi og hlýhug sem hefur ylj- að honum á efri árum. Margar á ég minningar um sam- starf okkar Ólafs, ekki síst um mis- jafnar vetrarferðir okkar að flytja mjólk í brúsum aftan á dráttarvélum á leið til Skagastrandar. Aldrei heyrðist æðrurorð frá Ólafi þótt á ýmsu gengi og snilld hans við að aka snjóinn var alveg ótrúleg. Þegar til Skagastrandar kom var jafnan farið í útibú Kaupfélags Húnvetninga sem Jón Jónsson veitti forstöðu og ævin- lega tók okkur af stakri ljúfmennsku. Þá stóð ekki á Ólafi að veita appelsín, prinspóló og sígarettur. Síðan var haldið heim á leið aftur, yfir skaflana. Við Ólafur störfuðum lengi saman í hreppsnefnd. Hann var góður sam- starfsmaður þótt stundum væri hann lengi að kveða upp úr með afstöðu sína til ýmissa mála því hann leitaðist við að skoða þau frá sem flestum sjónarhornum. En hann vék sér aldr- ei undan því að taka afstöðu og þegar hún var fengin var hægt að treysta því að Ólafur kvikaði ekki frá henni. Utan hreppsnefndarfunda leitaði ég ráða hjá Ólafi oftar en hjá öðrum samstarfsmönnum. Við þessi vegamót flyt ég mínar bestu þakkir fyrir vináttu, góðvild og samskipti okkar öll á langri vegferð. Far þú í friði. Sveinn Sveinsson á Tjörn. Okkur langar í fáum orðum að minnast frænda okkar og föðurbróð- ur Ólafs Pálssonar frá Björgum á Skaga eða Óla eins og hann var í dag- legu tali kallaður. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann frá uppvaxtarárum okkar systra í sveitinni þegar við bjuggum í ná- grenni við Óla, mikill samgangur og samvinna var á milli heimila foreldra okkar og hans, hjálpast að við eitt og annað við búskapinn. Hann var mikl- um mannkostum gæddur, heiðarleg- ur drengskaparmaður með létta lund og ákaflega prúður í allri framkomu, búmaður góður og gekk snyrtilega um húsakynni sín og bújörð. Okkur systrum er í fersku minni tilhlökkun okkar þegar leið að jólum að fara í ár- legt jólaboð til Óla og ömmu því þá var spilað Púkk uppá kaffibaunir, þótti okkur þetta hin besta skemmt- un og erfitt að slíta sig frá spilunum og fara heim þegar kvölda tók. Hann var ákaflega barngóður og átti iðu- lega eitthvað gott í munninn handa litlu fólki sem kom í heimsókn. Hann unni landinu og hafði yndi af því að ferðast og sjá fallega staði, tók þá gjarnan mikið af ljósmyndum til að upplifa aftur og aftur fegurðina sem landið býr yfir. Hann var hafsjór af fróðleik, las mikið og í mestu uppá- haldi voru bækur um Ísland og fólk til sjávar og sveita allt í kringum landið. Það er margt fleira sem vert er að minnast en við látum hér staðar num- ið, þakklátar fyrir kynni okkar af Óla, minning hans mun lifa í hugum okkar um ókomin ár, við erum þess fullviss- ar að vel hefur verið tekið á móti hon- um í húsi herrans. Blessuð sé minning hans. Guðbjörg, Gerður Eyrún, Heiðdís Björk og Guðný. Laugardaginn 3. apríl er borinn til moldar Ólafur Pálsson, fyrrv. bóndi á Björgum í Skagahreppi í Austur- Húnavatnssýslu. Full ástæða er til þess að festa nokkrar línur á blað við andlát hans. Kemur þar til frænd- skapur og vinátta alla tíð. Óli frændi og móðir mín voru systkinabörn. For- eldrar hans, Ingibjörg Ólafsdóttir og Páll Sigurðsson, bjuggu í Króksseli í mínum uppvexti í heimahúsum á Björgum en Krókssel var næsti bær, nær Skagaströnd. Óli var elstur 3ja systkina og hefði náð áttræðis aldri nú í maí. Óli og bróðir hans Sigurður gerð- ust síðar bændur í Króksseli og þegar Sigurður varð bóndi á öðrum bæ, bjó Óli í Króksseli með móður sinni. Mér er mjög í minni ákaflega vinsamleg samskipti á milli þessarra bæja. Króksselsbræður voru duglegir og greiðviknir svo af bar. Þeir voru sér- lega laghentir og smíðastofan í Króksseli vettvangur mikilla athafna. Ekki vafðist fyrir þeim að smíða tví- breiðan vefstól fyrir kvenfélagið í sveitinni sem var lengi notaður. Þeg- ar tæknin fór að skapa nýja mögu- leika í jarðrækt og samgöngum voru Króksselsbræður í fararbroddi í hreppnum. Jarðvinnsluvél, sem var öflugur traktor á gaddahjólum með herfi og tilheyrandi, var í umsjá þeirra bræðra og fór á milli bæja á vorin. Það var jafnvel meira ævintýri að fá að húka á hjólhlífinni á Rauð en sitja í Króksselsbílum með númerinu H 55 ef ég man rétt. Óli frændi kemur víða inn í mínar minningar úr sveitinni í gamla daga. Miklar jarðabætur á þessum árum áttu rætur í vélgröfnum skurðum og þeirri umbyltingu sem jarðýturnar höfðu í för með sér. Óli var sérstak- lega laginn á þessum vélum. Fór þar saman mikil afköst og góð meðferð á tækjum. Við endurnýjun á íbúðarhúsi okkar á Björgum kom Óli mjög við sögu ásamt mörgum öðrum. Ég var handlangari hjá Óla og Sigmundi afa í múrverkinu og þá var oft glatt á hjalla. Sigmundur afi hafði miklar mætur á Króksselssystkinum sem ég hygg að hafi verið gagnkvæmt. Afi hafði sína smíðastofu á Björgum og þar mun Óli hafa dvalið ungur og horft á afa vinna sem ég og gerði síð- ar. Afi bjó til vísur um Óla og systkini hans á barnsaldri sem voru fullar af glettni og stríðni. Einn bragurinn var um Óla og margföldunartöfluna þar sem niðurstaðan var sú að eina ráðið til þess að Óli lærði töfluna væri það að leggja sér hana til munns og koma henni niður í maga. Afi sagði í byrjun vísu „oft hef ég kveðið við Óla minn – til ánægju fyrir báða“. Það kom fljótt í ljós að Óli naut trausts í sveitinni til trúnaðarstarfa. Hann var kosinn í hreppsnefnd og sá um sjúkrasamlagið. Öll sín störf vandaði hann af mikilli kostgæfni. Hann tók ríkulegan þátt í starfi ým- issa félaga sem voru í blóma í Nesjum á mínum barnsárum en á Kálfsham- arsnesi var þá samkomuhús þar sem barnaskólinn var til húsa og haldnir voru fundir og dansleikir. Mér þótti Kálfshamarsnesið með sinn fallega vita vera ákveðinn ævintýraheimur. Þar var lítil bryggja og stundaðar grásleppuveiðar á vorin út af víkinni og farið á handfæri lengra út á flóann. Ekki vissi ég betri skemmtun sem barn og síðar sem gestur í sveitinni en komast á handfæri með Óla og Sigga og fást við sprettharða fiska í blíðu sjóveðri. Minningin um þá daga er mér lifandi og kær. Þegar foreldrar mínir brugðu búi og fluttust til Skagafjarðar varð að ráði að Óli keypti jarðarhluta þeirra á Björgum sem þá var nefndur Ytri Björg. Hann hóf þar búskap með móður sinni, bætti húsakost og stundaði jarðabætur. Það var ánægjulegt að koma í heimsókn á æskuheimilið og þess nutu einnig for- eldrar mínir og systir í ríkum mæli. Árin liðu og Óli varð einn á Björgum og að lokum keypti hann sér lítið hús á Blönduósi í nágrenni við sín ágætu systkini. Þar var einnig gott að koma og fyrir tilviljun átti ég leið um Blönduós fyrir stuttu síðan og heils- aði upp á frænda sem var spaugsam- ur og þægilegur að vanda. Ekki mun hafa hvarlað að mér að þetta yrði okkar síðasti fundur og þannig er líka hlutunum best fyrir komið. Óli var einn þeirra sem alltaf voru að gera öðrum greiða. Ég og mín fjöl- skylda fórum ekki varhluta af því. Það var mér þess vegna mikið gleði- efni þegar ég fyrir nokkrum árum, þá búsettur tímabundið á Vestfjörðum, fékk Óla í heimsókn og gat farið með hann nokkar dagsferðir um fjöll og dali Vestfjarða. Eflaust hefur bæði honum og mér orðið minnisstæðast að sitja í bíl með Elísi Kjaran með ströndinni frá Hrafnseyri til Þingeyr- ar, koma við hjá Sigurjóni fjárbónda í Lokinhömrum og þræða hinn mjóa jarðýtuveg Elísar í þverhníptum sjávarhömrum sem Elís varð raunar landsfrægur fyrir að ryðja. Ég held að Óli frændi hafi notið þess að kynn- ast landinu í sínum margbreytileik, taka myndir og tala við fólk. Hann var vinmargur og hans mun verða saknað langt út fyrir hóp nánustu ættingja. Ég kveð frænda með sökn- uði og jafnframt með þakklæti fyrir okkar góðu samskipti í marga ára- tugi. Blessuð sé minning Ólafs Páls- sonar. Sigurður Kristjánsson. ÓLAFUR PÁLSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.