Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 51
heima um flesta hluti. Hann var bóndi
fram í fingurgóma og hafði unun af
ræktun jarðarinnar og skepnanna.
Um leið og ég vil þakka Bjarna
samfylgdina á undangengnum árum,
vil ég þakka allar góðu stundirnar og
minningarnar sem nú eru svo dýr-
mætar.
Ég og fjölskylda mín vottum að-
standendum okkar innilegustu samúð
og biðjum góðan Guð um að styrkja
þau í sorginni.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Ingibjörg Ýr.
Við viljum þakka Bjarna Ársæls-
syni, bónda í Bakkakoti, samfylgdina
nú þegar við kveðjum hann.
Við erum þakklát fyrir þá stund
sem við áttum með honum nú í mars
síðastliðnum, tæpum mánuði áður en
hann lést.
Það var reyndar alltaf gaman að
koma niður í hús og heimsækja Siggu
og Bjarna. Við gátum talað saman,
bæði í gríni og alvöru, um menn og
málefni, búskap og búskaparhætti.
Eða bara allt milli himins og jarðar.
Þegar við hittum Bjarna síðast
sóttum við vel að honum, hann var
hress og kátur. Við ræddum um mál-
efni sem efst var á baugi í fréttum þá
dagana meðal annars – þá kom hans
dálítið sérstaka skopskyn vel fram.
En margt er líkt með skyldum.
Bjarni sýndi okkur mikla tryggð
gegnum árin. Erum við nokkuð viss
um að hann fór ekki oft um Borg-
arnes án þess koma á Mýrarnar. Eins
kom það einu sinni fyrir að hann
hringdi úr Borgarnesi því hann
komst ekki til okkar.
Það var fyrir tíma gsm-símanna –
þurfti þá að fara á símstöð og hringja
löng stutt (----- - ) í Þverholt. Okkur
þótti ótrúlega vænt um það.
Bakkakotaheimilin hafa misst mik-
ið á stuttum tíma Jón bróðir Bjarna,
bóndi í Bakkakoti, lést í desember
síðastliðnum.
Við viljum votta elsku Sigríði,
Höllu og hennar fjölskyldu, einnig
öllu heimilisfólkinu í og frá Bakkakoti
okkar dýpstu samúð við fráfall
Bjarna.
Hinsta kveðja.
Halldór og Ragnheiður,
Þverholtum.
Blessaður föðurbróðir minn Bjarni
Ársælsson er fallinn frá. Þeir eru allir
horfnir af sjónarsviðinu bræðurnir
frá Eystri-Tungu í Landeyjum,
Guðni, Jón, Bjarni og Ingi. Þá eru að-
eins systurnar tvær, Guðríður og Sig-
ríður, eftirlifandi af systkinahópnum.
Þau voru afskaplega náin Tungu-
systkinin. Það liðu aðeins þrír og hálf-
ur mánuður á milli fráfalla þeirra
bræðra Jóns og Bjarna. Bjarni bjó
alla tíð félagsbúi með foreldrum sín-
um og bróður í Bakkakoti á Rang-
árvöllum. Síðustu 30 árin ráku þeir
búið saman bræðurnir Jón og Bjarni,
ásamt fjölskyldum sínum. Það var
ómetanlegt veganesti fyrir mig að fá
að dvelja á sumrin með þessu góða og
vandaða fólki á æsku- og unglings-
árum mínum.
Bjarni frændi minn gat verið nokk-
uð hrjúfur á yfirborðinu, en inni fyrir
sló hlýtt hjarta og hann mátti ekkert
aumt sjá. Eru þetta einkenni margra
karla af Álfhólaættinni. Ég fékk oft
að kynnast því hjá Bjarna frænda
mínum hvað hann var raungóður og
stóð með manni þegar eitthvað bját-
aði á. Mér er minnisstætt einu sinni
þegar manneskja nokkur hreytti í
mig ónotum fyrir mörgum árum. Þá
sagði Bjarni frændi: „Láttu hana Rós
í friði, hún er mikið góð stúlka og hún
er alin upp hjá mér.“ Þetta eru ein
bestu meðmæli sem ég hef fengið um
dagana. Það var alltaf gott að heim-
sækja Bjarna og Siggu á heimili
þeirra í Bakkakoti. Þar hefur alltaf
verið ríkjandi gestrisni og hlýlegt við-
mót.
Þann 21. mars heimsóttum við
Unnur Björt, eldri dóttir mín, Bjarna
frænda á spítalann. Það var dýrmætt
að sitja hjá honum og halda í höndina
á honum þennan rúma klukkutíma.
Við glöddumst mjög yfir því við dóttir
mín að heyra hvað hann var algerlega
líkur sjálfum sér.
Við hlógum dátt að mörgum at-
hugasemdum hans. Þegar við kvödd-
umst sagði ég honum að ég færi í
burtu í eina viku og myndi líta til hans
þegar ég kæmi heim aftur.
Hann dó, blessaður vinurinn, dag-
inn sem ég kom heim.
Heimsóknin á spítalann var því
kveðjustundin okkar.
Fyrir þessa stund erum við Unnur
Björt óskaplega þakklátar. Við Kjart-
an sendum Sigríði eiginkonu Bjarna,
Höllu dóttur hans, elsku barnabörn-
unum og Niklasi manni Höllu, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Bjarna Ár-
sælssonar.
Rós Ingadóttir.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 51
Helgihald í Lang-
holtskirkju í dymbil-
viku og um páska
HIN heilaga kyrravika hefur alla
tíð haft algjöra sérstöðu í trú-
ariðkun kristninnar. Í sameig-
inlegu helgihaldi og í persónu-
legu trúarlífi hafa söfnuðir og
einstaklingar fetað með Kristi
veg þjáningarinnar að skelfingu
krossfestingarinnar, staðið ráð-
villtir með lærisveinunum eftir að
hann var lagður í gröf og hlaupið
fagnandi á eftir konunum að
hinni opnu gröf páskaundursins.
Í Langholtskirkju fer fram
helgihald alla daga frá laug-
ardegi fyrir pálmasunnudag og til
annars páskadags undir heitinu:
Frá Betaníu til Emmaus. Umsjón
með helgihaldinu hafa séra Jón
Helgi Þórarinsson, séra Kristján
Valur Ingólfsson, séra Petrína
Mjöll Jóhannesdóttir og Jón Stef-
ánsson organisti. Allir eru vel-
komnir.
Í dag, 3.apríl, laugardag fyrir
pálmasunnudag. Kl. 18 messa í
Langholtskirkju. Megintema
messunnar er smurningin í Bet-
aníu. Að lokinni messu ganga þau
sem vilja til Áskirkju þar sem les-
ið verður úr píslarsögunni. Bæna-
gjörð.
4. apríl. Pálmasunnudagur. Kl.
11 hátíðamessa og barnastarf.
Kl.18 aftansöngur. Íhugun um
pálmagreinarnar. Fyrirbænir.
5. apríl. Mánudagur. Kl. 18 aft-
ansöngur. Bænir og lestrar
kyrruviku. Ef veður leyfir verður
gengin íhugunarganga að loknum
aftansöng í átt að Elliðaánum.
Þar er endað með næturbænum.
6. apríl. Þriðjudagur. Kl. 18
messa. Íhugunarefni: Æðsta-
prestsbæn Jesú.
7. apríl. Miðvikudagur. Kl. 18
guðsþjónusta með almennum
skriftum.
8. apríl. Skírdagur. Kl. 20
messa.
9. apríl. Föstudagurinn langi.
Kl. 11 guðsþjónusta. Lesið úr písl-
arsögunni og Passíusálmunum.
Kl. 17 tónleikar í Langholts-
kirkju. Requiem eftir Mozart.
10. apríl. Laugardagurinn fyrir
páska. Kl. 18 kvöldbænir. Íhugun
um gröfina og þögnina. Kl. 23.30
páskanæturmessa í Langholts-
kirkju.
11. apríl. Páskadagur. Kl. 8 Há-
tíðamessa. Kl. 11 Barnaguðsþjón-
usta í Fjölskyldugarðinum í Laug-
ardal.
12. apríl. Annar páskadagur.
Kl. 18 messa í loftsal safn-
aðarheimilis. Minnst er Emmaus-
göngu lærisveinanna. Einfaldur
kvöldverður.
Íslenska
Kristskirkjan flytur
ÍSLENSKA Kristskirkjan er rúm-
lega 6 ára gamall lútherskur frí-
kirkjusöfnuður. Hún hefur þann
tíma verið í leiguhúsnæði að
Bíldshöfða 10. Nú hefur söfnuður-
inn fest kaup á húsi í Fossaleyni
14 í Grafarvogi, stutt frá Húsa-
smiðjunni.
Frá og með þessari helgi verð-
ur öll starfsemi safnaðarins þar,
þó enn sé margt ógert til að húsið
sé fullbúið. Fyrsta athöfnin í nýj-
um kirkjusal verður
fermingarguðsþjónusta kl.11.00.
Þar munu 8 ungmenni játa trú
sína á Jesú Krists og segja hvers
vegna þau velja hann sem leið-
toga lífs síns. Friðrik Schram
annast athöfnina og predikar.
Kl. 20 verður fjölbreytt sam-
koma í umsjá eins heimahóps
kirkjunnar og einnig heilög
kvöldmáltíð. Allir eru velkomnir
að kynna sér og taka þátt í starfi
Íslensku Kristskirkjunnar.
Klassísk messa og
gregorssöngur
ÁHUGAHÓPUR um klassíska
messu og iðkun gregorssöngs
heldur áfram starfsemi sinni á
nýju ári. Áfram verður messað
með gregorslagi í Friðrikskapellu
og nú 1. sunnudag hvers mánaðar
kl. 20. Hópurinn kallar til helgi-
þjónustu ýmsa presta.
Þriðja messa þessa árs verður
nk. sunnudag, 4. apríl kl. 20.
Prestur er sr. Kristín Þórunn
Tómasdóttir, héraðsprestur í
Kjalarnessprófastsdæmi. Sungin
verður Orbis factor messan og
áhersla lögð á passíusálma Hall-
gríms Péturssonar við íslensk
þjóðlög sem Smári Ólason hefur
tekið saman.
Kynning og æfing á messunni
verður sem endranær deginum
áður, laugardag, kl. 12–13 í Frið-
rikskapellu.
Klassísk messa og greg-
orssöngur er dýrmætur arfur
kirkjunnar og kjarnmikið andlegt
fóður. Það er von þeirra sem að
þessari messuröð standa að með
henni skapist vettvangur fyrir
þau sem gleði hafa af því að iðka
klassíska tilbeiðsluhætti, hins
elsta söngs kirkjunnar, sem tján-
ingarform trúarinnar. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Laugarneskirkja
og Saurbæjarkirkja
sameinast
Í TILEFNI af hinni árlegu sam-
tals- og bænahelgi Laug-
arnessafnaðar, sem nú er haldin í
Vatnaskógi, mun messa og sunnu-
dagaskóli morgundagsins flytjast
að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
og hefjast kl. 13. Þar mun sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir þjóna
ásamt Þorvaldi Þorvaldssyni
söngvara og sr. Kristni Jens Sig-
þórssyni, sóknarpresti að Saurbæ,
og er sú stund lokasamvera á fjöl-
breyttri dagskrá helgarinnar þar
sem á annað hundrað manns á
öllum aldri eiga samleið undir
merki krossins. Er kjörið að taka
sér bíltúr í blíðunni, líta við í
Vatnaskógi til að njóta náttúrunn-
ar og koma svo til fjölskyldu-
messu að Saurbæ eftir holla úti-
veru.
Sunnudagaskóli
Háteigskirkju
í Friðrikskapellu
Á MORGUN, pálmasunnudag,
flyst sunnudagaskólinn úr Há-
teigskirkju í Friðrikskapellu sem
er á Hlíðarenda á heimasvæði
íþróttafélagsins Vals. Brúðurnar
Rebbi refur og Sólveig munu að
sjálfsögðu mæta og eru mjög
spennt fyrir að koma, enda hafa
þau aldrei komið í Friðrikska-
pellu áður. Við munum heyra
hvað gerðist í aðdraganda
páskanna og auðvitað á pásk-
unum sjálfum auk þess sem við
munum syngja öll skemmtilegu
sunnudagaskólalögin. Við hlökk-
um mikið til að hitta ykkur í
Friðrikskapellu kl. 13 á morgun.
Starfsmenn sunnudagaskólans í
Háteigskirkju.
Unglingakór ásamt
Krakkakór í
Grafarvogskirkju
UNGLINGAKÓR ásamt Krakka-
kór Grafarvogskirkju syngur í
Barna- og fjölskylduguðsþjónustu
í Borgarholtsskóla á pálmasunnu-
dag kl. 11. Stjórnandi kóranna er
Oddný J. Þorsteinsdóttir. Prestur
er séra Bjarni Þór Bjarnason.
Umsjón hafa Kolla og Signý. Org-
anisti er Bjarni Þór Jónatansson.
Barnaguðsþjónusta er einnig í
Grafarvogskirkju kl. 11. Prestur
er séra Anna Sigríður Pálsdóttir.
Umsjón hefur Bryndís. Organisti
er Gróa Hreinsdóttir.
Grafarvogskirkja
Passíusálma+
í Hallgrímskirkju
Í FRAMHALDI af einstaklega vel
heppnaðri dagskrá, Pass-
íusálma+, á Kirkjulistahátíð 2003
hafa íslensk ljóðskáld enn verið
hvött til að yrkja í framhaldi eða
til hliðar við Passíusálma Hall-
gríms Péturssonar. Að þessu sinni
eru það ljóðskáldin Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, Einar Már
Guðmundsson, Ingimar Erlendur
Sigurðsson, Jóhann Hjálmarsson,
Linda Vilhjálmsdóttir, Pétur
Gunnarsson, Ragnhildur Pála
Ófeigsdóttir og Sigurbjörn Ein-
arsson sem kallast á við séra
Hallgrím.
Ljóðalesturinn verður brotinn
upp með hljóðfæraleik þeirra
Guðrúnar S. Birgisdóttur og
Martial Nardeau, sem munu flytja
tónlist frá barokktímanum. Um-
sjónarmaður dagskrár er Margrét
Eggertsdóttir, formaður Listvina-
félags Hallgrímskirkju, en und-
irbúningur hefur einnig verið í
höndum sr. Sigurðar Árna Þórð-
arsonar. Dagskráin hefst kl. 20 að
kvöldi pálmasunnudags.
Morgunblaðið/Jim Smart
MINNINGAR
lifa fjölskylduboð, afmæli, útskriftir
barna, ferðalög og gagnkvæmar
heimsóknir og skyndiinnlit. Gestur
og Elsa voru samhent í einu og öllu
og vonir stóðu til að senn myndi Gest-
ur hætta á sjónum og vera meira
heima. Þær væntingar hafa brostið.
Kletturinn Elsa hefur mikið þurft
að reyna. Að hætti sjómannskvenna
hefur fallið í hennar hlut að annast
daglegar útréttingar og tíminn með
Gesti í landi of dýrmætur til að sóa
honum í hversdagslegt amstur - sem
þó hefði ekki alltaf talist kvenmanns-
verk. Enn reynir á hana að lengja
sína vakt.
Á kveðjustund viljum við hjónin
þakka ógleymanlegar og dýrmætar
samverustundir með Gesti og Elsu.
Okkur finnst tilveran stundum mis-
kunnarlaus og svo er nú. Við fráfall
Gests hefur myndast tómarúm hjá
hans fjölskyldu sem enginn getur
fyllt. Elsku Elsa, Sigurður, Eyrún,
Gestur og Draupnir og fjölskyldur
ykkar. Orð mega sín lítils en af alhug
biðjum við þess að Guð almáttugur sé
ykkur nálægur og gefi ykkur styrk
um alla framtíð.
Guð varðveiti og blessi fallega
minningu okkar vinar og velgjörðar-
manns Gests Breiðfjörðs Sigurðsson-
ar.
Níels Árni og Kristjana.
Í örfáum orðum vil ég minnast
Gests skipstjóra eins og hann var
jafnan kallaður af þeim sem þekktu
hann og þakka fyrir áralanga vináttu.
Á unga aldri fluttist ég í Hafnar-
fjörð og áður en langt um leið kynnt-
ist ég jafnaldra mínum í næsta húsi.
Það var Gestur yngri, sonur skip-
stjórans. Heimili Gests og Elsu stóð
okkur strákunum í hverfinu alltaf op-
ið og þangað var og hefur alltaf verið
gott að koma. Á þessum tíma sigldu
íslensk skip með aflann sinn á mark-
að í Evrópu. Í eina slíka ferð bauð
Gestur mér að fara með syni sínum.
Fyrir 11 ára strák var það ekki lítil
ævintýraferð og er mér ógleymanleg.
Bara þetta sýnir betur en nokkur orð
hve mér var vel tekið af Gesti og hans
fjölskyldu. Alltaf tók Gestur mér sem
einum af sínum strákum og var heim-
ili þeirra hjóna sem mitt annað heim-
ili og var samgangur á milli fjöl-
skyldnanna mikill. Litli bróðir minn
Helgi Þór fylgdi mér oft sem strákur
og fyrr en varði var hann líka orðinn
sem einn af strákunum hans Gests.
Helgi Þór þakkar Gesti alla tryggð og
vináttu.
Þegar ég hóf nám við sjávarút-
vegsfræði fannst mér nauðsynlegt að
kynnast sjómennskunni af eigin
raun. Eins og við mátti búast leitaði
ég til Gests sem auðvitað sagðist
skyldu kom mér um borð hjá sér og
var ég eitt sumar hjá honum sem há-
seti. Þar fékk ég innsýn í líf sjó-
mannsins, sem einkennist af miklum
fjarverum frá fjölskyldu við erfið
störf, og kynntist Gesti sem stjórn-
anda. Sú reynsla færði mér sönnur á
hve duglegur og góður skipstjóri
Gestur var.
Á þessum erfiðu stundum bið ég
Guð að blessa og vaka yfir Elsu og
fjölskyldu hennar sem hefur verið
mér og systkinum mínum svo mikils
virði að eiga að.
Með söknuði og virðingu kveð ég
föður vina minna og einstakan mann.
Guð blessi minningu hans.
Elvar Árni Lund.