Morgunblaðið - 03.04.2004, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 67
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sjálfstæð/ur, hæf/ur
og ástríðufull/ur og ert því
oft í sviðsljósinu, hvort sem
þér líkar það betur eða verr.
Leggðu hart að þér á þessu
ári. Þú átt ekki eftir að sjá
eftir því.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er einhver spenna í loft-
inu. Þú ert óvenju forvitin/n
og finnst þú verða að lifa líf-
inu til hins ýtrasta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Íhugaðu málið vandlega áður
en þú kaupir nokkuð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Bæði Venus og Mars eru í
merkinu þínu og því verður
margt að gerast í kringum
þig næstu tvo mánuðina. Þú
ert viðræðugóð/ur og kraft-
mikil/l og laðar því fólk að
þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft á óvenju mikilli ein-
veru að halda þar sem þú ert
að velta því fyrir þér hvað þú
viljir gera við líf þitt. Áhrifa-
mikið fólk spyr þig stórra
spurninga þessa dagana. Þú
þarft að finna réttu svörin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samskipti þín við aðra munu
batna mikið á næstu tveimur
mánuðum. Gefðu þér góðan
tíma til að sinna félagslífinu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert, einhverra hluta
vegna, litin/n öfundaraugum
þessa dagana. Þetta má
hugsanlega rekja til þess að
þú sitjir ekki við sama borð
og aðrir. Láttu þetta ekki á
þig fá.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur vaxandi áhuga á
ferðalögum og framhalds-
menntun. Þú þarft að ákveða
hvort þú ætlir að láta drauma
þína rætast.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú leggur hart að þér þessa
dagana og munt að öllum lík-
indum uppskera árangur erf-
iðis þíns. Ekki láta hófsemi
þína verða til þess að þú hafn-
ir góðu tilboði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur það í hendi þér að
ná markmiðum þínum næstu
sex vikurnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Settu markið hátt í vinnunni.
Samvinna og hjálpsemi
vinnufélaga þinna koma þér
til góða þessa dagana.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það gæti færst meira líf í
ástamálin hjá þér á næstunni.
Þú átt þér hugsanlega leynd-
an aðdáanda sem bíður þess
að segja þér hug sinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er rétti tíminn til að
leggja vinnu í að gera heimili
þitt meira aðlaðandi. Þú ættir
einnig að leggja rækt við
samskiptin innan fjölskyld-
unnar. Þú getur fengið heim-
ilislífið til að blómstra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MEYJARMISSIR
Björt mey og hrein
mér unni ein
á Ísa-köldu-landi.
Sárt ber ég mein
fyrir silkirein
sviptur því tryggðabandi.
Það eðla fljóð
gekk aðra slóð
en ætlað hafði ég lengi,
daprast því hljóð,
en dvínar móð,
dottið er fyrra gengi.
Stórt hryggðar kíf
sem stála dríf
stingur mig hverju sinni.
Það eðla víf,
meðan endist líf,
aldrei fer mér úr minni.
- - -
Stefán Ólafsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 3. apr-
íl, er fimmtugur Sverrir
Sverrisson, hagfræðingur.
Hann og fjölskyldan taka á
móti gestum í Fróðasalnum,
Seljavegi 2, í dag milli kl. 17
og 20.
ÞAÐ eru fallegar þrautir í
skák þar sem hver leikur
kallar á eitt og aðeins eitt
andsvar, en að lokum verður
mát ekki umflúið. Spil dags-
ins minnir svolítið á skák-
þraut: Suður leikur og mát-
ar í þrettán leikjum:
Norður
♠G83
♥432
♦Á1065
♣Á96
Vestur Austur
♠65 ♠K97
♥K9 ♥DG76
♦KDG2 ♦943
♣108754 ♣DG2
Suður
♠ÁD1042
♥Á1085
♦87
♣K3
Við erum stödd í þriðju
umferð Íslandsmótsins.
Suður verður sagnhafi í
fjórum spöðum og fær út
tígulkóng. Hvernig er best
að spila og hver er besta
vörnin?
Frá sjónarhóli sagnhafa
þarf spaðakóngurinn alla
vega að liggja fyrir svín-
ingu, en síðan gæti hann
lent í vandræðum með
fjórða hjartað. Til að byrja
með er taktískt að dúkka
tígulkónginn. Vestur spilar
tígulgosa næst, sem sagn-
hafi drepur og spilar litlu
trompi á drottninguna.
Þegar drottningin heldur
er næsta verk að vinna í
hjartalitnum. Best er að
spila litlu hjarta að heiman.
Nú þarf vörnin að vera á
tánum. Vestur verður að
taka slaginn og trompa út,
því annars nær sagnhafi að
stinga fjórða hjartað í blind-
um.
Vestur trompar sem sagt
út. Sagnhafi lætur áttuna úr
blindum og tekur níu aust-
urs með tíu. Spilar svo
hjartaás og hjarta. Svar
austurs við því er þvingað:
Hann spilar spaðakóng og
kemur þannig í veg fyrir
hjartatrompun í borði.
En sagnhafi hefur síðasta
orðið. Hann tekur öll tromp-
in…
Norður
♠--
♥
♦10
♣Á96
Vestur Austur
♠-- ♠--
♥-- ♥D
♦G ♦--
♣1087 ♣DG2
Suður
♠4
♥10
♦--
♣K3
…og nær sér í úrslitaslag-
inn með tvöfaldri kastþröng.
Spaðafjarkinn neyðir vestur
til að henda laufi. Þá fer tíg-
ultían úr borði og röðin er
komin að austri að kveljast.
Hann þarf að halda í hæsta
hjarta og hendir því líka
laufi. Sem þýðir bara eitt –
þriðja laufið í blindum verð-
ur slagur.
Þetta spil er gullmoli.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. d3 d6 6. c3 g6
7. 0–0 Bg7 8. Rbd2 0–0 9.
He1 Rh5 10. Rf1 f5 11. exf5
Bxf5 12. Rg5 Kh8 13. Bb3
d5 14. g4 Rf4 15. Bxf4 exf4
16. Rxh7 Kxh7 17.
gxf5 Hxf5 18. d4 Dh4
19. Kh1 Dxf2 20.
Dg4 Dxb2 21. Hac1
Haf8 22. Bc2 f3 23.
Re3 f2 24. Bxf5
fxe1=D+ 25. Hxe1
Hf6 26. Hg1 Re7
Staðan kom upp á
Amber-skákmótinu
sem lauk fyrir
skömmu. Alexander
Morozevich (2.732)
hafði í þessari blind-
skák hvítt gegn
Alexei Shirov
(2736). 27. Rxd5!
Rxd5 27. … Rxf5 hefði ekki
gengið upp vegna 28. Rxf6+
Bxf6 29. Dxg6+ og hvítur
vinnur. 28. Bxg6+ Kg8 29.
Bh5! og svartur gafst upp.
Áskorendaflokkur Íslands-
mótsins í skák hefst í dag kl.
17.00 í höfuðstöðvum Orku-
veitu Reykjavíkur. Öllum er
velkomið að taka þátt.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Mynd, Hafnarfirði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 13. mars sl. í Áskirkju af sr.
Karli V. Matthíassyni þau Stefanía Jónsdóttir og Magnús
Sveinsson. Heimili þeirra er í Reykjavík.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK spilaði tvímenn-
ing á 13 borðum fimmtudaginn 1.
apríl. Miðlungur 264. Efst voru:
NS
Guðjón Ottóss. – Guðmundur Guðv. 363
Jón Jóhannsson – Jón Bergþórsson 321
Leifur Jóhanness. – Aðalbjörn Bened. 306
Kristinn Guðm. – Guðmundur Magn. 300
AV
Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónsson 327
Oddur Jónsson – Stefán Ólafsson 318
Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 315
Sigurður Guðm – Sigurpáll Árnas. 306
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 29. mars var spilaður
Mitchell-tvímenningur með þátttöku
17 para.
Efstu pörin tóku „gríðarskor“
þannig að lítill afgangur var af já-
kvæðri skor fyrir önnur pör. Niður-
staðan var eftirfarandi:
N-S
Örn Einarsson – Kristján Axelsson 66.9
Elín Þórisdóttir – Guðmundur Jónss. 54.5
Haraldur Jóhannss. – Sveinn Hallgr. 50.8
A-V
Lárus Pétursson – Svanhildur Hall 66.4
Guðmundur og Þorsteinn Péturssynir 56.5
Eyjólfur Sigurjónss. – Jóhann Oddss. 49.4
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • OPIÐ 11:00-18:00 og Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • OPIÐ 13:00-18:00
LAUGARDAGSTILBOÐ
á Laugarvegi og Auðbrekku
Sófaborð verð áður kr 19.500
TILBOÐ kr 6.900
Kommóða verð áður kr 19.000
TILBOÐ kr 7.900
Frá nemendasýningu í Borgarleikhúsinu
Innritun og
upplýsingar í
síma 561 5620
4ra vikna vornámskeið
hefst 17. apríl
Upplagt til kynningar fyrir byrjendur