Morgunblaðið - 03.04.2004, Qupperneq 71
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 71
FÓLK
EINAR Örn Jónsson skoraði þrjú
mörk fyrir Wallau-Massenheim sem
lagði Eisenach að velli í þýsku 1.
deildinni í gær, 27:21, en Eisenach lék
á heimavelli. Staðan í hálfleik var
11:8, Wallau í vil en rúmlega 2000
áhorfendur voru á leiknum. Wallau er
í áttunda sæti deildarinnar með 27
stig.
MAGDEBURG vann Kr. Östring-
en, lið Guðmundar Hrafnkelssonar
landsliðsmarkvarðar, 35:29, í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gær en Sig-
fús Sigurðsson lék ekki með Magde-
burg í gær vegna meiðsla en liðið er í
þriðja sæti með 41 stig á eftir Lemgo
og Flensborg sem eru með 44 og 46
stig.
TVEIR stigahæstu leikmenn NBA-
deildarinnar í körfuknattleik hafa
ákveðið að leika ekki fleiri leiki með
liðum sínum vegna meiðsla. Tracy
McGrady hjá Orlando sem er stiga-
hæstur með 28 stig að meðaltali er frá
vegna hnémeiðsla en lið hans á ekki
möguleika á að ná sæti í úrslitakeppn-
inni og það sama er að segja um Allen
Iverson bakvörð Philadelphia 76’ers
sem er meiddur á hné og ætlar ekki
að leika fleiri leiki á þessum vetri.
ERIC Musselman, þjálfari NBA-
liðsins Golden State Warriors, telur
að miðherji liðsins, Erick Dampier
leiki ekki fleiri leiki með liðinu vegna
meiðsla sem hann hlaut í leik gegn
Toronto. Dampier meiddist á ökkla
en hann er fjórði frákastahæsti leik-
maður deildarinnar, með 12 að með-
altali en þar fyrir ofan eru Tim Dunc-
an, Ben Wallace og Kevin Garnett
sem er með 13,9 fráköst í leik.
EIGENDUR NBA-liðsins Toronto
Raptors sögðu framkvæmdastjóra
liðsins, Glen Grunwald, upp störfum í
gær en liðið hefur tapað sl. fimm leikj-
um og hafa stuðningsmenn liðsins lát-
ið óánægju sína í ljós að undanförnu.
Grunwald hefur ekki þótt takast vel
upp á leikmannamarkaðinum á und-
anförnum árum og þau leikmanna-
skipti sem hann hefur staðið fyrir
hafa ekki skilað árangri.
KYLFINGURINN Ian Woosnam
frá Wales lék gríðarlega vel á öðrum
keppnisdegi Opna portúgalska móts-
ins sem haldið er á Algarve. Woos-
nam fékk átta fugla í gær og endaði
hringinn á 66 höggum eða sex undir
pari. Hann er nú tveimur höggum á
eftir Spánverjanum Miguel Angel
Jimenez sem er alls 9 höggum undir
pari. Woosnam sem er 46 ára gamall
sagði að hann væri fullur sjálfstrausts
þessa dagana og hyggur hann á að
láta mikið að sér kveða á Masters-
mótinu á Augusta vellinum sem hefst
á skírdag.
JIMENEZ styrkti stöðu sína í bar-
áttunni um sæti í Ryderliði Evrópu í
síðasta mánuði er hann sigraði á
Johnnie Walker Classic en hann er
sem stendur í fjórða sæti á peninga-
listanum á Evrópumótaröðinni og í
þriðja sæti á Ryderlista Evrópu.
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu var í eldlínunni í Tirana í
Albaníu á miðvikudagskvöldið. Úr-
slitin eru öllum ljós, 2:1 ósigur, en
með leiknum var stigið fyrsta
skrefið í átt að besta undirbúningi
landsliðsins fyrir stórmót frá upp-
hafi. Landsliðið leikur fjóra vin-
áttuleiki til viðbótar áður en lagt
verður upp í riðlakeppni HM í
haust og með þeim gefst landsliðs-
þjálfurunum Ásgeiri Sigurvinssyni
og Loga Ólafssyni kærkomið tæki-
færi til að þreifa sig áfram með lið-
ið, leikmenn og leikskipulag og
finna réttu blönduna fyrir átökin á
HM.
Þeir Ásgeir og Logi hafa stýrt
landsliðinu í tæpt ár með góðum
árangri. Leikirnir eru orðnir sjö
undir þeirra stjórn og uppskeran,
tveir sigrar gegn Færeyingum,
sigur gegn Litháum, jafntefli og
tap við Þjóðverja, jafntefli við
Mexíkó og nú tapleikur gegn Alb-
önum. Landsliðsþjálfararnir fengu
svör við nokkrum spurningum sem
þeir lögðu upp með fyrir leikinn
gegn Albönum. Eðlilega var á
þessum tímapunkti ákveðin til-
raunastarfsemi í gangi. Ýmist voru
menn færðir til í stöðum, aðrir
fengu tækifæri til að spila saman í
stöðum og síðast en ekki síst fengu
leikmenn tækifæri til að sýna sig
og sanna með liðinu. Leikur ís-
lenska landsliðsins gegn Albönum
var ekki hátt skrifaður en þó ber
þess að geta að albanska landsliðið
hefur tekið stórstígum framförum
og ég þori að fullyrða að hver ein-
asta þjóð kemur til með að lenda í
vandræðum gegn þessu vel skipu-
lagða liði. Fyrri hálfleikurinn var
slakur af hálfu Íslands en bata-
merkin voru augljós í síðari hálf-
leik þó svo að ýmsir vankantar hafi
verið á leik liðsins.
Það sem eftir situr, og fær þá
Ásgeir og Loga til að brjóta heil-
ann um og finna lausnir á, er að
manna miðjustöðurnar með réttum
mönnum. Liðið vantar tilfinnan-
lega leikstjórnanda og miðjuspilið
verður að bæta ef betri árangur á
að nást í framtíðinni. Drjúgan
hluta leiksins í Tirana var miðju-
spilið slakt og taktlaust á allan
hátt. Brynjar Björn Gunnarsson
sinnti að vísu hlutverki sínu vel
sem brimbrjótur á miðsvæðinu og
sýndi að hann getur verið sá leik-
maður sem þarf að vera til staðar í
liðinu hverju sinni. – Besti leikur
hans með liðinu í langan tíma. Í
aðrar stöður á miðjunni, sem í
þurfa að vera leikmenn sem geta
tekið af skarið, haldið bolta og ver-
ið útsjónarsamir, verður erfiðara
að finna. Jóhannes Karl átti erfitt
uppdráttar gegn Albönum og
greinilegt er að hann skortir leik-
æfingu.
Vandséð er því að sjá að Jóhann-
es, sem er hæfileikaríkur leikmað-
ur, verði tilbúinn til að axla þá
ábyrgð að bera uppi leik íslenska
liðsins á miðjunni í haust meðan
hann fær ekki tækifæri með liði
sínu í Englandi. Þórður bróðir
hans fékk að spreyta sig í stöðu
framliggjandi miðjumanns og
gerði það þokkalega og skoraði
gott mark en ég tel þó að Þórður
henti betur íslenska liðinu sem
vængmaður. Ýmsir kostir eru í
stöðunni og í vináttuleikjunum sem
fram undan eru, gegn Lettum,
Japönum, Englendingum og Ítöl-
um, koma þeir Ásgeir og Logi
örugglega til með að prófa sig
áfram með leikmenn í miðjustöð-
unum.
Gaman væri að sjá fyrirliðann
Eið Smára Guðjohnsen í hlutverki
framliggjandi miðjumanns fyrir
aftan tvo framherja, Heiðar Helgu-
son og svo annaðhvort Helga Sig-
urðsson eða Veigar Pál Gunnars-
son, sem átti afar sterka innkomu í
Tirana og sýndi og sannaði að hann
á verðskuldað heima í hópnum.
Marel Baldvinsson fékk að spreyta
sig við hlið Heiðars í Albaníuleikn-
um en miðað við frammistöðu hans
þar er hann ekki byrjunarliðsmað-
ur í landsliðinu og þarf einfaldlega
að bæta sig mikið ef hann ætlar að
halda sér í hópnum. Arnar Þór
Viðarsson er kostur á miðsvæðinu
sem væri vert að líta til en hann
kom eins og Veigar sterkt inn í
leikinn á miðvikudagskvöld í síðari
hálfleik. Spil myndaðist í kringum
þá Veigar og Arnar og ef íslenska
landsliðið ætlar sér að taka fram-
förum þá verður það að hafa leik-
menn innan sinna raða sem bæði
þora og geta tekið við boltanum.
Pétur Marteinsson hefur sýnt að
hann getur leyst vel af hendi
miðjustöðuna, leikmaður með góða
tækni, er útsjónarsamur og hefur
góðan skilning á leiknum. Þá er
ógetið um leikmenn eins og Jóhann
B. Guðmundsson og Tryggva Guð-
mundsson, en báðir hafa sýnt hvað
þeir kunna fyrir sér og gætu hæg-
lega komið inn í myndina. Bjarni
Guðjónsson og Indriði Sigurðsson
ollu nokkrum vonbrigðum gegn
Albaníu, sérstaklega Bjarni, en eft-
ir góða frammistöðu með Coventry
í vetur reiknaði maður með meira
frá honum.
Aftasta varnarlínan er vel sett
að mínu mati. Ólafur Örn Bjarna-
son, Pétur Marteinsson og Ívar
Ingimarsson léku í fyrsta skipti
saman í öftustu vörn gegn Albön-
um og leystu það nokkuð vel af
hendi og þar fyrir utan er Her-
mann Hreiðarsson sem fyrsti kost-
ur. Hér heima eru fleiri öflugir
varnarmenn eins og Kristján Örn
Sigurðsson, Gunnlaugur Jónsson
og fleiri þannig að landsliðsþjálf-
urunum ætti ekki að verða vandi á
höndum að manna varnarstöðurn-
ar. Vandinn liggur fyrst og fremst
á miðsvæðinu og ég treysti þeim
Ásgeiri og Loga fyllilega til að ráða
fram úr honum.
Ákveðin kynslóðaskipti hafa átt
sér stað í landsliðinu á undanförn-
um misserum. Jaxlar eins og Eyj-
ólfur Sverrisson, Guðni Bergsson
og Rúnar Kristinsson hafa kvatt
og yngri leikmenn tekið við hlut-
verkum þeirra. Fyrir utan þá leik-
menn sem hér hafa verið nefndir
að ofan banka margir á dyr lands-
liðsins og er það vel. Árangur í síð-
ustu stórkeppni gefur mönnum
vonir um að hægt verði að byggja
ofan á þann árangur sem náðist
þar og miðað við metnað forystu-
manna Knattspyrnusambands Ís-
lands og fyrirtaks undirbúning,
sem gerist vart betri hjá öðrum
þjóðum, verður vonandi hægt að
taka skefið fram á við eins og að er
stefnt.
Guðmundur Hilmarsson
Vandinn liggur
á miðsvæðinu
ÓLAFUR Th. Árnason frá Ísafirði
varð Íslandsmeistari í 10 km
skíðagöngu með frjálsri aðferð í
gær á skíðalandsmótinu sem hald-
ið er á Ísafirði. Ólafur hafði
nokkra yfirburði og kom í mark á
28 mínútum og 40 sekúndum. Ís-
firðingurinn Jakob Einar Jak-
obsson varð annar á 30.07 mín-
útum og Ólafur H. Björnsson frá
Akureyri varð þriðji á 31.26 mín-
útum. Norðmaðurinn Thomas
Alsgaard keppti sem gestur á
mótinu og varð hann annar á eftir
Ólafi á 28.58 mínútum, en Alsga-
ard er einn þekktasti skíða-
göngumaður síðari ára en hann
varð m.a. ólympíumeistari í Lille-
hammer árið 1992.
Ólafsfirðingar fengu öll verð-
launin í 5 km göngu kvenna, þar
sem Elsa Guðrún Jónsdóttir kom
fyrst í mark á 16,48 mínútum,
Guðbjörg Helga Andrésdóttir kom
þar á eftir á 21.46 mínútum, Hulda
María Harðardóttir varð þriðja á
23,11 mínútum.
Markús Þór Björnsson frá Ísa-
firði sigraði í flokki 17–19 ára
karla í 10 km göngu.
Að mati skipuleggjanda mótsins
á Ísafirði setti Thomas Alsgaard
skemmtilegan svip á mótið en
hann tók m.a. þátt í að leiðbeina
yngri kynslóðinni um leyndardóma
skíðagöngunnar en með honum í
för var sjúkraþjálfari norska
skíðagöngulandsliðsins.
Ólafur hafði betur gegn
Alsgaard á Ísafirði
Ólafur Th. Árnason frá Ísafirði varð Íslandsmeistari í 10 km skíðagöngu með frjálsri aðferð í gær á
skíðalandsmótinu sem haldið var á Ísafirði, en hann hafði nokkra yfirburði í keppnisgreininni.
Ólafsfirðingar fengu öll
verðlaunin í fimm km göngu
kvenna, þar sem Elsa Guð-
rún Jónsdóttir sigraði.