Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. KANNAÐ verður í nefnd, sem landbún- aðarráðherra hefur skipað, með hvaða hætti bændur geti selt afurðir sínar beint frá búunum. Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra segir stranga matvælalög- gjöf nauðsynlega en kveðst vilja kanna hvort hægt sé að auka sveigjanleika svo bændur geti selt heimagerðar landbún- aðarafurðir beint til neytenda, en slíkt þekkist víða í Evrópu. Hann segir að skapa þurfi meiri fjöl- breytni og leyfa þeirri sérþekkingu sem til sé í sveitum landsins að njóta sín. „Sveita- fólkið er mjög vel að sér í matvælagerð og margir bændur hafa komið til mín og sýnt mér ýmislegt sem þeir eru að búa til heima fyrir sitt fólk,“ segir landbúnaðarráðherra. Hann segist sjá fyrir sér að verði sala beint frá búunum gerð möguleg styrki það hlut sveitanna í þjóðfélaginu og geti skapað nýja menningu. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Afurðir seld- ar beint frá búunum?  Kannað/4 EF tillögur nefndar um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs ná fram að ganga verður ákveðnum svæðum Vatnajökuls lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja í fyrsta áfanga þjóðgarðsins. Hvannadals- hnjúkur verður þannig lokaður allt árið fyrir vélaumferð, Öræfajökull sunnan Snæbreiðar og Eyjabakka- jökull og Skeiðarárjökull tímabilið 1. apríl til 15. september. Á þennan hátt á að marka svæðið fyrir þá grein ferðaþjónustunnar sem er í hvað örustum vexti; gönguferðir, og skilgreina á leiðir sem eingöngu verða fyrir göngufólk. Þá er lagt til að opnaðar verði fimm nýjar upp- lýsingamiðstöðvar umhverfis jök- ulinn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem nefndin hefur skilað af sér. Árni Bragason, forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfis- stofnunar, hélt erindi um Vatna- jökulsþjóðgarð á fundi Ferðamála- samtaka Austurlands á Seyðisfirði í vikunni þar sem hann skýrði frá tillögum nefndarinnar. Sagði hann að skýrslunni hefði verið skilað til umhverfisráðherra sem mun hugs- anlega kynna hana í ríkisstjórn strax í næstu viku. Í skýrslunni var nefndinni ætlað að setja fram tillögur að mörkum fyrsta áfanga þjóðgarðsins, starfs- stöðvum, brýnustu verkefnum og reglugerð fyrir þjóðgarðinn. Heilsársvegur að Brúarjökli Nefndin gerir ýmsar tillögur að vegbótum við jökulinn og tekur m.a. undir tillögur heimamanna um að vegur inn Hábungu að Brú- arjökli verði byggður upp sem heilsársvegur. Samkvæmt tillögunum yrði dag- leg stjórn svæðanna áfram í hönd- um sveitarstjórna og/eða Um- hverfisstofnunar og lagt til að opnaðar verði nýjar upplýsinga- miðstöðvar eða gestastofur um- hverfis jökulinn; á Kirkjubæjar- klaustri, Höfn, Fljótsdalshéraði, í Mývatnssveit og Ásahreppi eða Rangárþingi. Þá er gert ráð fyrir að sumarstarfsemi verði á þrettán stöðum en á nokkrum þeirra er þegar starfsemi. Vélknúin ökutæki verði bönnuð á Hvannadalshnjúk  Fimm/11 KAUPMANNAHÖFN, Brussel, Amsterdam, var svarið við úr- slitaspurningunni í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskól- anna, í gær og tryggði svarið Verslunarskóla Íslands sigur í keppninni með 23 stigum gegn 21 stigi Borgarholtsskóla. Sjaldan, ef nokkru sinni, hefur spennan í lokaviðureigninni verið meiri og þurfti bráðabana til að skera úr um sigurliðið. Sigurliðið hlaut að launum farandverðlaunagripinn Hljóðnemann. Vinningslið Versló er skipað þeim Hafsteini Viðari Hafsteins- syni, Birni Braga Arnarssyni og Steinari Erni Jónssyni. Morgunblaðið/Golli Versló: 23 Borgó: 21 HLUTAFÉ Eddu útgáfu verður aukið um allt að 400 milljónir fáist samþykki hluthafafundar fyrir því í lok mánaðarins. Einnig stendur til að hluta- féð verði niðurfært um allt að 212 milljónir króna. 200 milljóna króna hlutafé sem komið hef- ur inn í félagið síðan Ólafsfell ehf., sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar, keypti meirihluta í því fyrir tveimur árum er uppurið. Félagið hefur róið lífróður undanfarin misseri en Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu útgáfu, segir rekst- ur félagsins nú kominn í rétt horf enda hafi verið unnið hörðum höndum að endurskipulagningu í rekstrinum. Páll Bragi segir að upplýsingum, sem lágu til grundvallar kaupum Ólafsfells á félaginu fyrir tveimur árum, hafi verið verulega ábótavant. Hann segir fyrri eigendur hafa ofmetið eignir fé- lagsins um 300 milljónir króna og hefur stjórn þess nú ákveðið að fá óháðan endurskoðanda til að fara yfir fjárhagsupplýsingar sem fyrrverandi eigendur lögðu fram þegar hluturinn var seldur. Athugun endurskoðanda félagsins hefur leitt í ljós að bráðabirgðauppgjör fyrir árið 2001, sem lá til grundvallar kaupunum, hafi verið í litlu samræmi við sanna fjárhagsstöðu félagsins, að sögn Páls Braga. Ofmat eigna hafi valdið því að efnahagsreikningur félagsins sýndi 150–200 milljóna króna betri eignarstöðu en raunin var. Auk þess hafi matsreglur birgða félagsins leitt til 100–150 milljóna króna niðurfærslu. Þetta þýði að fjárhagsstaðan hafi verið 250–300 milljónum króna verri en gert var ráð fyrir. Páll Bragi segir ljóst að fyrrverandi stjórnendum og stjórn félagsins hafi verið kunnugt um óreiðu í bók- haldinu. „Menn geta ekki fríað sig ábyrgð“ „Við viljum að óháður endurskoðandi fari í þetta mál, þetta eru bara orðnir það miklir fjár- munir sem er um að tefla,“ segir Páll Bragi. „Það er grafalvarlegt mál. En það liggur fyrir að við fengum ekki réttar upplýsingar.“ Hann segir að leiði athugun endurskoðanda í ljós eitthvað sem ekki var vitað fyrir, verði tekin ákvörðun um framhaldið. „Auðvitað er það ekki vilji neins að fara í málaferli. En menn geta ekki fríað sig ábyrgð.“ Edda útgáfa fær óháð mat á fjárhagsupplýsingum frá fyrri eigendum Hlutafé aukið um 400 millj. Rekstur félagsins kominn í rétt horf  Eiga við/6 ERLEND kolmunnaskip hafa landað umtalsverðum kol- munnaafla hérlendis síðustu daga. Mjög góð kolmunna- veiði hefur verið á Rockall- svæðinu að undanförnu og hefur myndast mikil löndun- arbið í höfnum á Hjaltlands- eyjum og í Færeyjum. Því hafa færeysk, skosk og írsk kolmunnaskip siglt til Íslands með afla sinn. Forsvarsmenn íslenskra fiskimjölsverk- smiðja segjast auk þess vera vel samkeppnisfærir í verði. Hafa landað 14.500 tonnum Íslensk kolmunnaskip hafa að undanförnu leitað að kol- munna innan íslensku land- helginnar en hafa lítinn afla fengið. Þó varð vart við tölu- vert af kolmunna suðaustur af landinu en hann var dreifður og ekki í veiðanlegu ástandi. Gera sjómenn sér vonir um góða kolmunnaveiði eftir páska. Íslensk kolmunnaskip hafa einnig verið við veiðar á Rock- all-svæðinu og er afli þeirra nú orðinn um 4.325 tonn á árinu en heildarkvóti Íslands er tæp 492 þúsund tonn. Aftur á móti hafa erlend skip landað hér nærri 14.500 tonnum á árinu. Sigla langt með kol- munnann  Sáu talsvert/17 FJÖLDI skráðra campylobactersýkinga á Íslandi var í fyrra 91 og hefur ekki verið lægri frá árinu 1996 eða frá því sala á ófrystu kjúklingakjöti var fyrst leyfð. Árið á undan voru skráð tilfelli 39 talsins. Þetta kemur fram í ársskýrslu Umhverfisstofn- unar fyrir árið 2003. Tilfellum hélt áfram að fjölga allt fram til ársins 1999 þegar 435 tilfelli voru skráð. Í skýrslunni segir að ástæðan hafi einkum verið stóraukin sala á alifuglakjöti og leyfð sala á ófrystu kjúklingakjöti. Vakið athygli út fyrir landsteinana Frá 1999–2003 fækkaði hins vegar tilfell- um um 80% og segir í skýrslunni að það sé fyrst og fremst því að þakka að dregið var úr smiti í alifuglum með auknum smitvörn- um við framleiðslu og mengaðir kjúklingar voru frystir. Þá hafa fræðsla fyrir neytend- ur, útgáfa fræðsluefnis og varnaðarmerk- ingar á umbúðum átt sinn þátt í góðum ár- angri, að mati skýrsluhöfunda. Hefur árangurinn vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi og aðrar þjóðir farið að dæmi Ís- lendinga og m.a. sett „frystiskyldu“ á meng- aða kjúklinga, segir í skýrslunni. Að sögn Elínar Guðmundsdóttur, for- stöðumanns matvælasviðs Umhverfisstofn- unar, hefur góður árangur náðst fyrir til- stilli öflugs samstarfs yfirvalda, framleiðenda og vísindamanna við að draga úr tíðni matarsýkinga. Markaðseftirlit með matvöru hafi jafnframt staðfest það. 91 tilfelli campylo- bactersýk- inga í fyrra Ekki verið færri frá 1996 þegar sala á ófrystu kjúklingakjöti var leyfð ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.