Morgunblaðið - 04.04.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 94. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Áfram Borgó
Viva Versló
Tvö lið í úrslitum sem aldrei hafa
unnið áður Skissa
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Flugan Styttur Stöðug sveifla Golf
Páskamatur Hönnun Krossgáta Atvinna | Tilboð | Útboð |
Fundir Til sölu Til leigu Tilkynningar Húsnæði
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
BREYTING verður á starfsemi heilans í fólki
sem eignast barn, og er heilastarfsemi nýbak-
aðra foreldra sláandi lík heilastarfsemi í fólki
sem haldið er áráttuhegðun. Er þetta nið-
urstaða rannsóknar sem gerð var í Barna-
rannsóknamiðstöð Yale-háskóla í Bandaríkj-
unum, og greint er frá í kanadíska dagblaðinu
Globe and Mail.
Dr. James Swain, sem stjórnaði rannsókn-
inni, segir að þetta kunni að útskýra hvers
vegna nýbakaðir foreldrar séu t.d. gjarnir á
að fylgjast grannt með barninu þegar það sef-
ur, athuga í tíma og ótíma hvort hjarta barns-
ins slái eða hvort andardráttur þess sé eðli-
legur. Og margir foreldrar virðast missa allan
áhuga á öðrum umræðuefnum en nýja
barninu. Það útskýrist þá af breyttri heila-
starfsemi.
Greinilegra hjá mæðrum
Dr. Swain segir, að þótt þessi breyting á
starfsemi heilans hafi mælst hjá báðum for-
eldrum sé hún mun greinilegri hjá mæðrum.
Rannsóknin var gerð á 25 pörum tveim til
fjórum vikum eftir að þau eignuðust barn.
Heilasneiðmyndir leiddu í ljós, að grátur
barnsins eða mynd af því jók starfsemi í þeim
heilastöðvum sem tengjast hreyfingu, umbun,
kvíða, og myndun og mótun vanahegðunar.
Talið er, að þessar sömu heilastöðvar séu of-
virkar í fólki sem haldið er áráttuhegðun og
hefur sífelldar áhyggjur, hefur Globe and Ma-
il eftir dr. Swain.
Heilastarfsemi foreldra breytist
ÞENNAN höfrung rak á land á Kirkjufjöru við Dyrhólaey. Sennilegt er að
hann hafi verið að elta loðnutorfu og lent í brimskafli og skolað á land, en
töluvert var af loðnu í fjörunni þegar að var komið. Hér eru Þorsteinn Ein-
arsson frá Vík og Axel Sölvason að baglast við að snúa skepnunni til að
virða hana betur fyrir sér.
Morgunblaðið/RAX
Höfrungur í Kirkjufjöru
LÖGREGLA og tollgæsla eru í
sameiningu að vinna að skilgrein-
ingu og tillögum til úrbóta varð-
andi skipulagða glæpastarfsemi
hér á landi. Ríkislögreglustjóri
skipaði fyrr á þessu ári stýrihóp til
að starfa að þessu máli og stýrir
hann þeirri vinnu. Í hópnum eru
fulltrúar frá Ríkislögreglustjóra,
nokkrum lögregluembættum, Toll-
stjóranum í Reykjavík og Sýslu-
manninum á Keflavíkurflugvelli.
Að sögn Guðmundar Guðjóns-
sonar, yfirlögregluþjóns hjá Rík-
islögreglustjóra, er um að ræða
umfangsmikið starf sem hefur
gengið prýðilega. Hópurinn kemur
annars vegar til með að skila til-
lögum og hins vegar mun hann
vinna að sífelldri skoðun á stöðu
þessara mála hér á landi. „Nú vinn-
ur hópurinn að því að safna gögn-
um um skipulagða glæpastarfsemi
í öðrum löndum og unnið er að því
að skilgreina og gera stöðumat á
skipulagðri glæpastarfsemi hér á
landi.“ Guðmundur segir að hóp-
urinn hafi einnig einbeitt sér að því
að fara yfir lagaleg úrræði sem
þetta snerta, samstarf við erlenda
sem innlenda aðila sem að þessum
málum koma og að samræma
vinnubrögð lögreglu í málum sem
tengjast skipulagðri glæpastarf-
semi. Aðgerða sé þörf í fleiri en
einu umdæmi.
Glæpastarf-
semi á Íslandi
kortlögð
Forsetinn
með tögl
og hagldir
ÞÓTT ekki hafi verið útlit fyrir að
neinn flokkur myndi ná hreinum
þingmeirihluta var í gær ljóst, að
flokkur Chandriku Kumaratungu,
forseta Sri
Lanka, hefði unn-
ið sigur í kosning-
unum sem fram
fóru í landinu á
föstudaginn.
Þegar búið var
að telja tvo þriðju
atkvæða hafði
flokkabandalagið
sem Kumarat-
unga fer fyrir
fengið 111 þingsæti af 225, og vant-
aði því aðeins tvö til að hafa hreinan
meirihluta. „Það eru því allar líkur á,
að Kumaratunga muni hafa tögl og
hagldir á þingi, og sem forseti með
framkvæmdavald,“ sagði Agnes
Bragadóttir, talsmaður norrænu eft-
irlitssveitanna á Sri Lanka.
Ekki lá fyrir hve mörg sæti
bandalag tamíla, TNA, fengi, en þó
lá ljóst fyrir að það hefði hlotið yfir
90% atkvæða í norður- og austur-
héruðunum, þar sem fylgi þeirra er
mest, og haft mikinn sigur, að sögn
Agnesar.
Kumaratunga
mætir á kjörstað.
Tveim sætum frá
hreinum meirihluta
AÐ MATI spákonu, sem rætt er við
í Tímariti Morgunblaðsins í dag,
eru um hundrað manns sem fást við
spádóma af einhverju tagi í at-
vinnuskyni hér á landi. Flestir nota
atvinnuheitið spákonur eða -menn,
en aðrir talnaspekingar eða miðlar.
Af öðrum starfsheitum má nefna
árulesari, stjörnuspekingur,
draumaráðningarmaður, völva,
tarotlesari o.fl.
Við lausleg eftirgrennslan í smá-
auglýsingum og símaskrá fundust
tuttugu nöfn spámiðla eða spá-
kvenna, auk ýmissa 900-númera,
sem bjóða upp á spádóma í gegnum
síma.
Eftirspurn eftir spádómum er
töluverð. Til dæmis segist önnur
spákona, Sirrý, sem spáir í bolla,
lófa og spil fyrir 3.500 krónur, fá
fjóra viðskiptavini að meðaltali á
dag. Hún segir að undanfarin sex-
tán ár hafi orðið mikil aukning á
því að karlar heimsæki spákonur
og nú sé skipting viðskiptavina eft-
ir kynjum jöfn. Sumar spákonur
taka allt að 6.000 krónur fyrir þjón-
ustuna. Eins og flestar spákonur og
spámiðlar gefur Sirrý upp svokall-
að 900-númer og spáir fyrir fólki að
nóttu sem degi, eða hvenær sem
þörfin fyrir að vita hvað framtíðin
ber í skauti sér hellist yfir.
Síminn heldur ekki utan um
skrár yfir fyrirtæki sem bjóða þjón-
ustu í gegnum 900-númerin. Eitt
þeirra er Örlagalínan, sem hóf
göngu sína í febrúar árið 2000. Að
sögn Bjarkar Kristjánsdóttur fram-
kvæmdastjóra voru upphaflega
fjórir miðlar starfandi við línuna en
urðu fljótlega átta talsins eins og nú
er. Símaspá kostar yfirleitt 200
krónur á mínútu.
Ásókn í spádóma
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Sirrý spáir í bolla, lófa og spil.
HERSTJÓRNIN í Búrma (Myan-
mar) mun láta Aung San Suu Kyi,
helsta leiðtoga stjórnarandstöðunn-
ar í landinu, lausa fyrir 17. maí nk. og
ætlar að bjóða
flokki hennar
setu á stjórnar-
skrárráðstefnu
sem þá á að hefj-
ast, að því er ut-
anríkisráðherra
landsins sagði í
gær. Suu Kyi hef-
ur verið í varð-
haldi og stofu-
fangelsi síðan í
maí í fyrra.
Herstjórnin tók völdin í Búrma
1988 eftir að hafa brotið á bak aftur
lýðræðishreyfingu, og neitaði að láta
af völdum eftir að lýðræðisfylking
Suu Kyi sigraði í kosningum 1990.
Hneppti herstjórnin meðlimi lýð-
ræðishreyfingarinnar í fangelsi eða
beitti þá ofbeldi.
Stjórnarskrárráðstefnan verður
fyrsta skrefið sem stigið verður sam-
kvæmt „vegvísi“ sem herstjórnin
hefur sagst munu fylgja til að koma á
lýðræði í landinu. Stjórnin hefur
sætt miklum alþjóðlegum þrýstingi
og gagnrýni fyrir skort á lýðræðis-
umbótum.
Suu Kyi
látin laus
Lýðræðissinnum
boðið til stjórnar-
skrárráðstefnu
Bangkok. AP.
Suu Kyi
♦♦♦