Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 66
66 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 10.30. B.i. 16 ára.
Ein umtalaðasta og
aðsóknarmesta mynd allra tíma
kl. 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 8 og 10.30.
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
„Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 5.50 og 8. Með ensku tali
Sýnd kl. 1.30, 3.40 og 5.50. Með íslensku tali
Páskamynd
fjölskyldunnar
Sýnd Í LÚXUSSAL kl. 4.
Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á
toppnum í USA! Upplifðu fyrsta
stefnumótið...endalaust!
Sýnd kl. 1.30 og 3.40.
Fleiri börn...meiri vandræði!
Sýnd kl. 1.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
Ein umtalaðasta og
aðsóknarmesta mynd allra tíma
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
Sýnd kl. 1.30, 3.40 og 5.50. Með ísl. tali
Ævintýrið eins og þú hefur aldrei upplifað það.
Stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Leikin ævintýramynd eins og þær gerast bestar!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Páskamynd
fjölskyldunnar
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.20.
Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á
toppnum í USA! Upplifðu fyrsta
stefnumótið...endalaust!
ÆVINTÝRI ónytjungsins og iðju-
leysingjans Hlyns eru viðfangsefni
Stúdentaleikshússins að þessu sinni
en í gær frumsýndi það leikritið 101
Reykjavík sem byggt er á sam-
nefndri sögu eftir Hallgrím Helga-
son. Verkið er sýnt í glænýju leik-
húsi Stúdentaleikhússins, í gömlu
húsnæði þvottahússins Grýtu og
hefur leikhópurinn unnið dag og
nótt við að breyta því í leikhús.
Leikstjóri er Hjálmar Hjálmars-
son en hann og leikhópurinn unnu í
sameiningu að leikgerðinni. Hlynur
býr enn hjá móður sinni þótt hann
sé kominn yfir þrítugt og hangir á
barnum öll kvöld, týndur í frum-
skógi stórborgarinnar. Inn í líf hans
kemur síðan eins og stormsveipur
vinkona móður hans, áfengisráð-
gjafinn Lolla, sem reynist svo vera
aðeins meira en vinkona.
„Verkið hentar hópnum vel. Svo
er þetta góð saga og mikið af vel
skrifuðum samtölum í henni sem ég
taldi að hentuðu vel til leikflutn-
ings,“ segir Hjálmar Hjálmarsson
þegar hann er spurður hvers vegna
þetta verk hafi orðið fyrir valinu.
Hann bætir við að Hallgrímur
Helgason sé í miklu uppáhaldi hjá
sér og hafi verið síðan hann las
Þetta er allt að koma. Gengið hefur
á ýmsu við undirbúninginn, mikil
orka hefur farið í að gera húsnæðið
upp, en æfingar hafa gengið mjög
vel, að sögn Hjálmars „Ég hef lagt
áherslu á að frumkvæðið og sköp-
unin hvað varðar húsnæðið, búninga
og tónlist hafi komið frá leikurunum
sjálfum. Húsnæðið er mjög spenn-
andi og sýningin verður örugglega
dálítið sérstök í þessu leikhúsi.“
Vigdís Másdóttir leikur áfengis-
ráðgjafann Lollu, vinkonu móður
Hlyns. „Lolla er algjör töffari, fynd-
in, klár og lætur fólk ekkert vaða yf-
ir sig,“ segir hún og bætir við að
henni finnist mjög gaman að hafa
fengið að spreyta sig á hlutverki
Lollu.
Hún segir að leikgerðin fylgi bók-
inni mikið en síður kvikmyndinni.
„Ég lofa því að þeir sem hafa lesið
bókina verða ekki sviknir, við erum
mjög trú henni.“
Vigdís er harðákveðin í að gerast
leikkona og segir ekkert annað
koma til greina. Hún hefur áður
komið fram í skólaleikritum, verið
að vinna í Brúðubílnum með Helgu
Steffenssen, en einnig komið fram í
auglýsingum. „Þetta er framtíðin,
enginn vafi,“ segir hún að lokum.
Stúdentaleikhúsið sýnir 101 Reykjavík
Týndur í frumskógi
stórborgarinnar
Ónytjungurinn Hlynur tekur þátt í glaumi næturlífsins í miðbænum.
Grýtuleikhúsið er til húsa að
Keilugranda 1. Miðapantanir í
síma 881-0155.