Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Innkoman: Nemendur Grunnskólans í Sandgerði ganga í sal íþróttahússins, þar sem dansararnir eru enn að undirbúa dagskrána.
Morgunblaðið/Sverrir
Stökk: Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður í listdansi.
Verkið: Nemendur byggja upp dansverkið, með aðstoð Peter Anderson. Hver lagði til hreyfingu, og svo var samræmt.
Dansað: Dansarar úr Íslenska dansflokknum með tilþrif á græna gólfinu.
Fræðsla: Dansararnir standa fyrir framan yngri nemendurna í Sandgerði og fræða þá um lögmál danslistarinnar. Fengu þeir að sjá dæmi um klassískan dans og nútímadans.
Mixað: Tónlistarmennirnir Helgi S. Helgason og Davíð Þór við tölvurnar.
Gagnrýnandinn: Verkin vöktu mismikla hrifningu.
„Það er mikilvægt að gefa
börnum og unglingum
færi á að kynnast list-
dansi, þannig að þau geti
sjálf, þegar fram líða stundir, ákveðið hvort þau vilji sækja
danssýningar,“ segir Peter Anderson, dansari Íslenska
dansflokksins. Síðustu tvær vikurnar leiddi hann verkefni
undir yfirskriftinni Tónlist fyrir alla, þar sem fimm dans-
arar og tveir tónlistarmenn heimsóttu grunnskólana á
Suðurnesjum. Nemendurnir fengu að kynnast hvað fælist
í danslistinni og hvernig dansverk eru smíðuð. Nemend-
urnir sömdu dansverk með dönsurunum, þar sem dans-
spor og hreyfingar voru sett saman á mismunandi vegu,
og síðan voru dansarnir fluttir af atvinnudönsurunum.
„Yfirleitt voru viðbrögð nemandanna mjög góð,“ segir
Peter. „Við reyndum að sýna þeim hvað við gerum sem
listamenn, og láta þá skilja hvernig við vinnum með líkam-
ann, virkni hans og kraft. Þetta gekk svo vel á Suðurnesj-
unum að við erum strax farin að ræða framhald, við erum
spennt fyrir því að gera meira.“
Sverrir Vilhelmsson ljósmyndari fylgdist með döns-
urunum og tónlistarmönnunum þegar þeir heimsóttu
Grunnskólann í Sandgerði, þar sem dagskráin mæltist vel
fyrir.
Rispur