Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 41 þegar mér verður hugsað til allra þeirra gleðistunda sem ég hef átt þar í tæp 50 ár. Þar var oft margt um manninn, þangað var gott að koma og þar var gott að vera. Þær voru oft líflegar umræðurnar við eldhúsborðið um lífið og tilveruna. Auðvitað komu stundir sem voru erfiðar en þau hjónin kunnu manna best að standa vörðinn þegar á reyndi, þau breyttu kvíða í gleði. Oft leitaði ég til þín þegar ég var í erfileikum og alltaf var höndin út- rétt og naut ég góðs af þinni kunn- áttu og þekkingu og þeim mikla drengskap sem þú hafðir að geyma. Þrátt fyrir þau veikindi sem herj- uðu á þig misstir þú aldrei þann andlega styrkleika sem einkenndi allt þitt líf. Þakka þér fyrir árin sem ég átti með þér. Ég veit þú fórst sem biblían þér vísar og gerðir það sem stendur skrifað er. Því færð þú sæti í sölum paradísar og sjálfan Guð við hliðina á þér. Vertu sæll, vinur. Stína, Guðrún, Helgi, Hafsteinn, Margrét, tengdabörn, barnabörn og langafabarn, innilegar samúðar- kveðjur, Guð blessi ykkur. Hörður Bjarnason. Elsku afi. Það er svo skrýtið að vita til þess að við eigum aldrei eftir að sjá þig aftur né njóta fleiri stunda með þér. En við getum huggað okkur við það að þú átt allt- af eftir að fylgjast með okkur. Þú varst besti afi sem hægt var að hugsa sér af því þú varst alltaf svo góður og jákvæður, aldrei fúll né reiður. Það fór aldrei milli mála hvað var það mikilvægasta í lífi þínu. Það var fjölskyldan. Við eigum endalaust af minning- um og hver einasta er góð, t.d. þeg- ar við vorum lítil komum við alltaf beint úr skólanum heim til þín og ömmu og þið tókuð alltaf jafn vel á móti okkur. Við fengum alltaf rist- að normalbrauð og kakó og þó að það sé skrýtið þá var það hvergi jafn gott og hjá ykkur. Svo hjálp- uðuð þið okkur með lærdóminn og þegar það var búið fórum við alltaf að spila, kubba eða perla. Þú varst alltaf til í að lesa fyrir okkur bækur og fara í göngutúra. Við eigum eftir að sakna þess að spila við þig en við vitum að þú ert núna á góðum stað. Við erum svo stolt af því að vera af- komendur þínir og ekkert í heim- inum gæti komið í staðinn fyrir að hafa fengið að njóta góðra stunda með þér. Þú hefur náð að gera heiminn að betri stað og þú ert fyr- irmyndin okkar í lífinu. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá, en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða. Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, En aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. ( Tómas Guðm.) Þú átt alltaf stórt pláss í hjarta okkar. Herdís, Sonja og Sigurður. Afi minn, Siggi afi, dó aðfaranótt miðvikudags hins 24. mars vegna veikinda sinna. Þrátt fyrir að ég vissi að hann ætti ekki langt eftir fannst mér eins og þetta væri allt saman bara stór og vondur draum- ur sem ég myndi vakna upp frá og þá yrði allt eins og áður. En svo var ekki, ég vaknaði aldrei frá vondu martröðinni og nú er hann afi minn búinn að kveðja hér á jörð. Mér þótti alveg óskaplega vænt um hann, hann var svona ekta afi, draumaafi allra barna, gráhærður með afabumbu og auk þess besti vinur. Hann var alltaf í góðu skapi og alltaf brosandi og grínið fór aldrei langt frá honum. Hann var alger spilakall, mætti halda að spil- in væru gróin í hendi hans. Hann kenndi mér flest öll þau spil og kapla sem ég kann og hann spilaði alltaf við mig þegar ég var lítil. Mér fannst ég vera svo klár að spila því ég vann alltaf! En þegar ég eltist þá fór hann að hætta að láta mig vinna. Ég man svo vel þegar ég var lítil þegar við öll fjölskyldan fórum í sumarbústað upp í Munaðarnes. Ég og afi fórum daglega í göngutúr og alltaf á heimleiðinni kom hann við í búðinni og keypti handa mér nokkra af uppáhaldsbrjóstsykrin- um mínum. Ég skýrði brjóstsykur- inn afagöngubrjóstsykur. Það vakna svo margar góðar minningar þegar ég hugsa um þig. Þegar við krakkarnir vorum að kubba eða lita þá komst þú og lékst með okkur, last fyrir okkur uppá- haldsbækurnar okkar aftur og aft- ur og mér þótti svo ótrúlega vænt um það. Ég er svo heppin að hafa haft þig í lífi mínu og ef þú bara vissir hve mér þykir vænt um þig. Ég mun aldrei gleyma þér, þú ert gersemi gróin í hjarta mitt að eilífu. Síðasta spilið lagðir þú, elsku afi minn. Hvíli þú hjá englum nú, sem strjúka blítt um kinn. Aldrei mun ég gleyma þér, elsku afi minn. Bestasti vinur, ljúfasta sál, ég kveð þig nú um sinn. Elsku afi minn. Minningarnar eru svo dýrmætar. Hvíl þú í friði, elsku afi minn. Þín Selma. Minn áskæri afi lést aðfaranótt miðvikudagsins 24. mars og er hans sárt saknað og erfitt verður að gleyma hversu góð sál hann var. Ég vil byrja á að þakka þér fyrir allar þær yndislegu stundir sem við átt- um saman og þá einna helst þegar ég var barn. Minningarnar sem ég á um þig eru svo margar að það þyrfti að gefa út sér-tölublað af Mogganum ef ég ætlaði að telja þær allar upp hér, þannig að ég ætla að hafa þetta stutt. Þegar ég var barn þótti mér allt- af spennandi að fara í heimsókn til afa, og ekki að ástæðulausu því hann var alltaf til í að gera allt það sem börnin vildu og má með sanni segja að hann hafi verið perla hvers barns, t.d. í fjölskylduboðum vildi hann frekar vera inni í herbergi með krökkunum að kubba, lita, spila eða lesa fyrir okkur þær sögur sem við vildum, þvílík þolinmæði. Ég minnist þess best þegar ég kom í pössun til þín eftir skóla á daginn þá sast þú við borðstofuborðið og lagðir kapal eða varst að leysa krossgátur, og þegar ég kom þá tókstu alltaf vel á móti mér með ristuðu normalbrauði með miklu smjöri og osti og ef það var kalt úti fékk ég heitt kakó. Síðan hjálpaðir þú mér með heimanámið og að því loknu gátum við farið að spila og ekki leiddist manni að spila við afa því hann sá til þess að maður ynni svona yfirleitt. Og á góðviðrisdög- um þegar ég var í heimsókn fórst þú með mér í göngutúr og sagðir mér frá hinu og þessu sem varð á vegi okkar. Þetta var æðislegur tími sem gleymist aldrei. Alltaf var jafn gott að koma í heimsókn á Álfhólsveginn og var ávallt tekið vel á móti mér. Þú varst alltaf hress og kátur og gafst þér tíma til að spjalla við mig eins og sannur vinur. Börnum var hann góður, allt þau fyrir gerði, af bókalestri fróður, og fylgjandi laganna verði. Ég mun því aldrei gleyma, hversu góður afi þú varst, og ég ávallt mun þig dreyma, hversu vel þig barst. Nú hefur þú mig kvatt, sé þig aldrei aftur. Ég er að segja alveg satt, að í mér er þinn kraftur. Elsku afi minn, takk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman. Þinn Kristján Már. Það er með sorg í hjarta sem við kveðjum þig, elsku afi, við eigum eftir að sakna þín svo mikið. Við eigum eftir að sakna hlýlega faðm- lagsins þíns og þeirrar innilegu væntumþykju sem ávallt streymdi frá þér. Þú lést okkur líða eins og við værum gull í augum þínum. Þú ert gull í augum okkar. Söknuðurinn er sár en við hugg- um okkur við allar þær dýrmætu minningar sem við eigum um sam- veruna við þig. Við geymum þessar ljúfu minningar í hjörtum okkar og erum eilíflega þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast þér og njóta samvista við þig öll þessi ár. Þú gafst þér alltaf nægan tíma til að dekra við okkur barnabörnin. Litlum höndum var oft lætt í lófa þinn til að fá þig í hina ýmsu leiki og aldrei hikaðirðu við að verða við þeirri bón. Þessar stundir voru okkur svo dýrmætar. Ýmislegt var brallað. Það var alltaf skemmtilegt að spila veiðimann, sérstaklega þar sem við krakkarnir unnum oftast af einhverjum óskiljanlegum ástæð- um. Ekki var síðra þegar þú byggð- ir með okkur hús og bíla úr legó- kubbum og hrósaðir okkur óspart fyrir furðuverkin sem úr þeim mynduðust. Legóhúsin voru þó ekki einu húsin sem við byggðum, þau voru líka flott snjóhúsin sem við byggðum úr snjósköflunum sem mynduðust úti í garði. Það var mik- ið sport að liggja inni í þeim í rökkrinu með kertaljós og horfa á skuggana sem af þeim mynduðust. Þegar komið var aftur inn í hlýjuna var notalegt að sitja í kjöltu þinni og skoða með þér dönsku Andrés- blöðin sem þú þýddir jafnóðum yfir á íslensku. Þú varst svo mikilvægur hluti í lífi okkar, hlýjan sem stafaði frá þér mun ávallt ylja okkur. Við eig- um fallegar minningar um jákvæð- an og skemmtilegan mann sem var elskaður af svo mörgum og vildi öll- um gott gera. Það hefur verið ómet- anlegt að fá að umgangast þig, það er ekki hægt að hugsa sér betri afa. Elsku amma, þið áttuð svo ein- stakt hjónaband. Það hefur gefið okkur svo mikið að fá að upplifa kærleikann á milli ykkar. Missir þinn er mikill, en við vitum að afi mun vaka yfir þér og við biðjum góðan guð að veita þér styrk í sorg- inni. Sigrún og Kristín. Elsku afi. Þú veist ekki hversu sárt og erfitt það er að sætta sig við að þú sért farinn. Við fáum aldrei að eiga stund með þér aftur og get- um aldrei séð þig hlæja aftur. Elsku afi, þú sem varst alltaf svo góður við alla og öllum þótti svo vænt um þig. Þú lifir í hjörtum okk- ar allra þangað til leiðir okkar liggja saman í Himnaríki. Ég veit þú ert fallegasti engillinn á himnum og ég sé þig fyrir mér horfa niður til okkar og brosa eins og þú varst vanur að gera. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir afa og fyrir allar þær góðu stundir sem ég hef átt með þér. Þú gafst þér alltaf tíma fyrir okkur barnabörnin þín og allt það góða sem þú brallaðir með okkur; eins og þegar þú spilaðir við okkur, last fyrir okkur, kubbaðir og perl- aðir með okkur og fórst með okkur í labbitúra. Það mun aldrei gleym- ast. Ég get ekki annað en brosað þeg- ar ég hugsa til þess sem Kristín systir sagði þegar hún var lítil og fólk spurði hana hver væri bestur. „Afi og Guð! hafði hún alltaf svarað og hún hlýtur að hafa verið ótrú- lega vel gefið barn því þetta var al- veg rétt hjá henni. Elsku afi, ég elska þig af öllu mínu hjarta. Takk fyrir allt það góða sem þú hefur skilið eftir þig. Ég vona svo innilega að þegar ég verð stór geti ég verið svona góð og gert alla svona hamingjusama eins og þú hefur alltaf gert. Þú skilur eftir þig spor í hjörtum allra. Þú varst alltaf uppáhaldið mitt. Guð blessi minningu þína. Þín einlæg Lilja Björk. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigur›ur Rúnarsson Elís Rúnarsson ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.