Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN LESA MINNA
Verulega hefur dregið úr lestri
barna á bókum á síðustu árum. Í
könnun sem Þorbjörn Broddason
prófessor við HÍ framkvæmdi höfðu
33% barna á aldrinum 10–15 ára
enga bók lesið, að skólabókunum
undanskildum, síðustu þrjátíu daga
fyrir könnunina. Árið 1997 var þetta
hlutfall 27% og 18% árið 1991.
Suu Kyi verður látin laus
Herstjórnin í Búrma hyggst láta
helsta stjórnarandstöðuleiðtogann í
landinu, Nóbelsverðlaunahafann
Aung San Suu Kyi, lausa um miðjan
næsta mánuð, en hún hefur setið í
stofufangelsi síðan í maí í fyrra.
Verður flokki hennar boðið að taka
þátt í ráðstefnu um drög að stjórn-
arskrá fyrir landið.
Berjast gegn lömunarveiki
Andstaða trúarleiðtoga í Norður-
Nígeríu við bólusetningu gegn löm-
unarveiki hefur valdið því að sjúk-
dómurinn hefur borist til áður löm-
unarveikisfrírra svæða innanlands
og nágrannalanda í Afríku upp á síð-
kastið. Barátta Rótarý-hreyfing-
arinnar, ýmissa annarra fé-
lagasamtaka og stofnana, hefur
skilað því að sjúkdómurinn var að-
eins landlægur í 6 löndum í heim-
inum í fyrra.
Kortleggja glæpastarfsemi
Lögregla og tollgæsla eru í sam-
einingu að vinna að skilgreiningu og
tillögum til úrbóta varðandi skipu-
lagða glæpastarfsemi hér á landi.
Ríkislögreglustjóri skipaði fyrr á
þessu ári stýrihóp til að starfa að
málinu og stýrir hann þeirri vinnu.
Kumaratunga hrósar sigri
Allt útlit er fyrir að Chandrika
Kumaratunga, forseti Sri Lanka, og
flokkabandalag hennar, hafi hlotið
111 þingsæti í kosningunum er fram
fóru á föstudag, og vanti aðeins tvö
sæti til að hafa hreinan meirihluta.
Ekkert samráð
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
fékk frumvarp um stækkun hins
friðhelga lands Þingvalla ekki til
umfjöllunar eða umsagnar. Oddviti
Bláskógabyggðar segir það óeðlilegt
í ljósi þeirra samskipta sem þurfa að
vera milli sveitarstjórnar, sem er
skipulagsaðili á svæðinu og Þing-
vallanefndar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 56
Skissa 6 Myndasögur 58
Rispur 14 Bréf 58
Listir 31/39 Dagbók 60/61
Af listum 32 Kirkjustarf 61
Forystugrein 36 Auðlesið efni 62
Reykjavíkurbréf 36 Fólk 63/69
Hugvekja 40 Bíó 66/69
Minningar 40/45 Sjónvarp 70
Skoðun 46/51 Veður 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
OPINBER birting og framlagning álagningar- og
skattskráa landsmanna verður lögð af ef frumvarp
sem lagt verður fram af þingmönnum Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks á Alþingi eftir
helgina nær fram að ganga.
Birting álagningar- og skattskráa brýtur gegn
friðhelgi einkalífs einstaklinganna, felur í sér hættu
á að einstaklingar verði fyrir óverðskuldaðri áreitni
vegna tekna sinna og grefur undan því trúnaðar-
sambandi sem viðgengist hefur á vinnumarkaði, að
því er segir í athugasemdum með frumvarpinu.
Í dag er það skylda skattstjóra að leggja fram
álagningarskrá og tilgreina þá skatta sem á hvern
gjaldanda hafa verið lagðir, og verður sú skylda
felld niður verði frumvarpið að lögum. Í athuga-
semdum með frumvarpinu segir að tilgangur lag-
anna virðist m.a. vera sá að tryggja að allir greiði þá
skatta sem þeim beri með því að gefa samborgurum
þeirra kost á að kynna sér álagningu þeirra.
Kemur í veg fyrir undanskot
Í áliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis frá 1984 segir að birting þessara upplýs-
inga skapi bæði gjaldendum og skattayfirvöldum
virkt aðhald, og komi þannig í veg fyrir undanskot á
skatti.
Í athugasemdum með frumvarpinu er rakin
staða mála á Norðurlöndunum. Í Danmörku er al-
ger leynd um skattgreiðslur einstaklinga, í Noregi
er málum háttað eins og hér á landi, og í Svíþjóð
hafa skattayfirvöld víðtæka heimild til að birta upp-
lýsingar um skattgreiðslur einstaklinga.
Flutningsmenn frumvarpsins eru Sigurður Kári
Kristjánsson, Birgir Ármannsson, Bjarni Bene-
diktsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar I.
Birgisson, Guðjón Hjörleifsson, Einar Oddur Krist-
jánsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Guðmundur Hall-
varðsson, Sólveig Pétursdóttir, Drífa Hjartardóttir,
Páll Magnússon og Halldór Blöndal.
Vilja banna birtingu upp-
lýsinga úr álagningarskrám
HUGMYNDIR um stofnun stjórnsýsludómstóls eru
ekki nýjar af nálinni en þrátt fyrir umræðu um slíkan
dómstól hefur ekki verið til upplýstur grundvöllur fyrir
henni.
Þetta segir Páll Hreinsson, varaforseti lagadeildar
Háskóla Íslands. Hann bendir á að yfirgnæfandi meiri-
hluti Evrópuþjóða hafi stjórnsýsludómstóla.
„Röksemdirnar eru þær sem forsætisráðherra var að
benda á að þetta eru flóknar reglur og sérhæfingin er
talin réttlæta slíkan dómstól. En svo er auðvitað spurn-
ingin um hagkvæmni hjá okkur. Ég veit ekki hvað það
myndi kosta okkur að halda slíkum dómstóli. Forsætis-
ráðherra kom inn á það atriði en það sem er áhugaverð-
ast er að hann er að segja að það sé ástæða til að skoða
þetta. Það höfum við aldrei gert. Við höfum aldrei farið í
fræðilega greiningu á kostum stjórnlagadómstóls.
Menn hafa varpað þessu fram án ýtarlegrar könnunar á
því hvað menn myndu fá og án kostnaðargreiningar.
Þannig að það hefur ekki verið upplýstur grundvöllur til
svona umræðu. Ef farið verður í þá vinnu er það auðvit-
að merkilegt framlag,“ segir Páll.
Viðbrögð við hugmynd forsætisráð-
herra um stjórnsýsludómstól
Kanna þarf
kostnað við
dómstólinn
ÍSLENDINGAR eru ekki með ein-
hliða áform um reglur um að fingra-
för og ljósmynd verði tekin af ferða-
mönnum sem hingað koma, líkt og
gert verður í Bandaríkjunum, segir
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra.
„Við tökum þátt í umræðum og
ákvörðunum á vettvangi Schengen-
samstarfsins um ný ferðaskilríki en
höldum uppi eftirliti á Keflavíkur-
flugvelli, m.a. með myndavélum,“
segir Björn. Hann segir umræður
um lífkenni í ferðaskilríkjum á borði
ráðherra Schengen-svæðisins, en
segir málið ekki hafa verið rætt á
fundi ráðherraráðsins síðastliðinn
þriðjudag.
Björn segir lengi hafa verið unnið
að þessu máli á evrópskum vettvangi
og nefnt hafi verið að í árslok 2005
verði unnt að stíga skref til fram-
kvæmda við ný ferðaskilríki. Banda-
ríkjamenn hafi nú boðað frestun á
kröfum um ný ferðaskilríki til ársins
2006.
Eins og sagt var frá í blaðinu í gær
munu reglur um að taka verði
fingraför og ljósmyndir af þeim sem
koma til Bandaríkjanna hertar, og
frá og með 30. september gilda þær
einnig um ferðamenn frá helstu
bandalagsríkjum Bandaríkjanna, Ís-
landi þar á meðal.
Björn segir að á Evrópuvettvangi
hafi ekki verið tekin ákvörðun um
hvers konar lífkenni verði í ferðaskil-
ríkjum en líklegast sé að þau verði
tvenns konar andlitsgreining og
mynd af fingraförum. Markmiðið sé
að auka almannaöryggi og sporna
gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi.
Ekki tekin fingra-
för við komuna
Í AÐDRAGANDA páskanna taka margir föndurdótið fram og skreyta hýbýli sín með litfögru
páskaskrauti. Egg, ungar og kanínur eru í hugum flestra nátengd páskunum og því skrauti sem
þeim fylgja. Börn hlakka þó eflaust mest til að fá súkkulaðiegg til að narta í en þar til þau verða á
boðstólum, á sjálfum páskadegi, er ekki úr vegi að fara að dæmi Hugrúnar Eglu Einarsdóttur, sem
undirbýr páskana með því að mála hænuegg sem hún blés fyrst innan úr með því að setja pínulítið
gat á endann á því. Og auðvitað valdi Hugrún að mála eggið gult, í anda komandi hátíðar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Pínulítil páskaegg
♦♦♦
MAÐUR um tvítugt var stöðvaður við Varmahlíð á
föstudagskvöld þar sem hann var á ferð í bíl á leið
til Akureyrar. Hann reyndist vera með rúm 15
grömm af ætluðu kókaíni á sér, í 15 neyslueiningum.
Áætlað söluverðmæti efnisins er allt að 225 þúsund
krónur.
Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem
hann var yfirheyrður. Honum var sleppt að lokinni
yfirheyrslu og telst málið upplýst. Málið var unnið í
samstarfi lögreglunnar á Akureyri og Sauðárkróki.
Með kókaín
í Varmahlíð