Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 52
FRÉTTIR
52 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁNING stendur yfir hjá
Sumarbúðunum Ævintýralandi
sem eru að hefja sjöunda starfsár
sitt. Þær eru fjölmenningarlegar
og hlutlausar í trúmálum. Starf-
semin fer fram í átta vikur í ald-
ursskiptum tímabilum frá 9. júní –
3. ágúst fyrir börn á aldrinum 7–
14 ára. Sumarbúðirnar eru komn-
ar á nýjan stað í aðstöðu í heima-
vistarhúsi Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri í Borgarfirði.
Starfsemin verður með
óbreyttu sniði, ásamt nýjungum
eins og hellisskoðun, fjósaferð,
búvélasafni, umhverfisvernd í sér-
stökum umhverfishópi o.fl. Boðið
verður upp á námskeið í kvik-
myndagerð, leiklist, listaverka-
gerð, grímugerð, tónlist/dansi, og
íþróttum. Sundlaug og íþróttahús
eru á staðnum.
Um verslunarmannahelgina er
aukalega boðið upp á námskeið
fyrir 12–14 ára, í umhirðu húðar
og í forvörnum. Öll námskeið eru
innifalin í dvalargjaldi nema reið-
námskeið.
Sumarbúðirnar Ævin-
týraland á Hvanneyri
FJARKENNSLA ehf. hefur gefið út
nýtt kennsluefni í margmiðlunar-
formi sem er tölvukennsla fyrir fag-
fólk. Þetta er beint framhald af
Word-, Excel- og Outlook-kennslu-
diskum sem fjarkennsla hefur áður
gefið út. Kennsluefnið er sérstaklega
hannað til að auka þekkingu þeirra
sem eru langt komnir í tölvum en
vilja læra meira. Kosturinn við þetta
efni er sá að nemandinn getur notað
kennsludiskinn hvenær sem er og
farið í gegnum þetta á sínum hraða.
Kennari á Word og Excel er Jó-
hann Áki Björnsson sem hefur starf-
að í tölvugeiranum síðan 1986. Fyrst
hjá IBM-samstarfsaðilum s.s. Skrif-
stofuvélum, Gísla J. Johnsen og
Sameind. Á þessum tíma hefur hann
fengist við margt s.s. kennslu, upp-
setningu og þjónustu ásamt sölu-
störfum. Jóhann Áki er búinn að
vera „Microsoft Certified Profess-
ional“ síðan 1995 með 11 próf. Und-
anfarin 10 ár hefur hann sérstaklega
unnið að Microsoft-málum hér heima
og erlendis eins og ráðgjöf, kynning-
um og kennslu, meðal annars hjá
EJS hf., Rafiðnaðarskólanum og
Tölvudreifingu hf.
Nýtt kennsluefni í
margmiðlunarformi
VALNEFND Hofsóss- og
Hólaprestakalls hefur valið
Gunnar Jóhannesson guð-
fræðing í sóknarprestsemb-
ætti í Hofsóss- og Hóla-
prestakalli.
Frestur til að sækja um
embættið rann út 22. mars sl.
og voru umsækjendur níu
talsins. Starfið er veitt frá 1.
júní n.k.
Prestur val-
inn í Hofs-
óss- og Hóla-
prestakall