Morgunblaðið - 04.04.2004, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 9
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga
sem fara nú þangað í þúsunda tali á hverju ári með Heimsferðum. Í
mars byrjar að vora enda er þetta vinsælasti tími ferðamanna til að
heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og
kynna þér sögu hennar og heillandi
menningu. Góð hótel í hjarta Prag,
frábærir veitinga- og
skemmtistaðir.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.950
Flugsæti til Prag, 15. apríl. Netverð.
Verð kr. 39.950
Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 15.
apríl. M.v. 2 í herbergi á Pyramida.
Skattar innifaldir. Netverð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Síðustu sætin í vor
Helgarferð til
Prag
15. apríl
frá kr. 29.950
TÖLUR frá sveitarfélögunum sjálf-
um voru notaðar við gerð saman-
burðarkönnunar á launum karla og
kvenna hjá Kópavogsbæ, að sögn
Ragnheiðar Agnarsdóttur, sem
starfar við mannauðsráðgjöf hjá
ParX Viðskiptaráðgjöf IBM, sem
vann skýrsluna. Í könnunni kom
fram að hlutfallslegur munur á með-
alheildarlaunum karla og kvenna
væri 5% hjá Kópavogsbæ, en 15%
hjá Reykjavíkurborg.
Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráð-
gjafi Reykjavíkurborgar, sagði í
Morgunblaðinu nýlega að talan sem
gefin var upp fyrir Reykjavík í könn-
uninni hafi verið fundin út með öðr-
um forsendum en hjá öðrum sveit-
arfélögum. „Mitt mat er að við séum
að bera saman fullkomlega sambæri-
legar tölur. Nú, ef það er rangt þá
væri mjög gaman að sjá hvað það er
nákvæmlega sem er ólíkt. Ég tel
ekki að við séum að bera saman epli
og appelsínur, heldur að þarna séu
forsendur sambærilegar,“ segir
Ragnheiður.
Hún segir að í skýrslu sem
Reykjavíkurborg gaf út árið 2002
komi mjög skýrt fram að þegar
grunnskólakennarar séu teknir með
séu karlar með 15% hærri laun en
konur, að jafnaði. Í Morgunblaðinu
sagði Hildur að væru sömu forsend-
ur notaðar og beitt var við að finna
muninn í öðrum sveitarfélögum sé
munurinn á launum kynjanna 7% í
Reykjavík.
„Við vinnum Kópavogsskýrsluna
upp úr hrágögnum frá Kópavogsbæ
og vísum til þeirra niðurstaðna sem
hafa verið gefnar út og eru opinber-
ar,“ segir Ragnheiður. Í könnunni
fyrir Kópavogsbæ séu sömu bak-
grunnsbreytur skoðaðar og í könn-
unum sem gerðar hafi verið fyrir
önnur sveitarfélög. „Við erum að
miða við karla og konur í sambæri-
legum störfum, sem hafa sama
starfsaldur, aldur og sambærilegan
vinnutíma.“
Hún segir að í Reykjavíkurskýrsl-
unni sé einnig litið til hlutfalls karla í
stéttarfélögum. „Það er þáttur sem
við skoðuðum ekki. Hildur er eflaust
að vísa til þess að ef tekið sé tillit til
allra þessara þátta standi eftir þessi
7% munur,“ segir Ragnheiður og
bætir við að það geti hugsanlega
minnkað muninn.
Samanburðarkönnun á launum hjá Kópavogsbæ
Sambærilegar forsendur
voru notaðar hjá öllum
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI, fyrir
hönd lögreglu, og tollstjórinn í
Reykjavík, fyrir hönd tollgæslu, hafa
endurnýjað samning frá árinu 1999
um samstarf í fíkniefnamálum með
nokkrum breytingum. Markmið
samningsins er að koma í veg fyrir
ólöglegan innflutning fíkniefna til
landsins, dreifingu og neyslu, með
því m.a. að styrkja samstarf lögreglu
og tollgæslu, tryggja stöðugt nám og
þjálfun starfsmanna, miðla upplýs-
ingum um fíkniefnamál, efla sam-
vinnu um þjálfun og notkun fíkni-
efnaleitarhunda, samhæfa viðbrögð
og aðgerðir og auka möguleika á
samnýtingu tækjabúnaðar. Samn-
ingurinn kemur í stað eldri samn-
ingsins nema sá gildir þó áfram að
því er varðar samkomulag aðila um
fíkniefnaleitarhunda.
Boðleiðir einfaldaðar
Í nýja samningnum er skerpt á
ýmsum atriðum, samstarfið gert
markvissara, og samningurinn ein-
faldaður í ljósi reynslunnar, segir
Guðmundur Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra.
Hann segir að sú breyting hafi orðið
frá því fyrri samningurinn var und-
irritaður að búið er að leggja niður
embætti ríkistollstjóra og tollstjór-
inn í Reykjavík fari nú með sam-
ræmingu tollamála fyrir landið allt.
„Nú er búið að gera samninginn
beittari og skerpt er á ýmsum atrið-
um. Með honum er ennfremur verið
að stytta boðleiðir,“ segir Guðmund-
ur.
Skipst á upplýsingum
um fíkniefnamál
Guðmundur nefnir sem dæmi að í
samningnum sé nánar skilgreint
hvernig samstarfi lögreglu og toll-
gæslu ber að hátta þegar lögregla
þarf að vinna á starfssvæði toll-
gæslu. Þá kemur fram í samningnum
að Lögreglustjórinn í Reykjavík,
Tollstjórinn í Reykjavík og Sýslu-
maðurinn á Keflavíkurflugvelli skuli
tilnefna fulltrúa sem hafa reglulegt
samráð og gagnkvæm upplýsinga-
skipti um fíkniefnamál og skal sá
hópur vinna að áhættugreiningu
vegna ólöglegs innflutnings fíkni-
efna og um aðgerðir brotamanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Samningur um samstarf undirritaður. Sigurður Skúli Bergsson, for-
stöðumaður hjá tollstjóranum í Reykjavík, Snorri Olsen, tollstjóri í Reykja-
vík, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Guðmundur Guðjónsson,
yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra.
Samið um
samstarf í
fíkniefnamálum
FJÖLMENNINGARRÁÐ og Sam-
tök kvenna af erlendum uppruna
hafa sent allsherjarnefnd Alþingis
athugasemdir vegna frumvarps til
breytinga á lögum um útlendinga.
Gerðar eru athugasemdir við
nokkra þætti frumvarpsins en
Toshiki Toma, prestur innflytjenda
sem er í Fjölmenningarráði, segir
að ýmislegt jákvætt komi einnig
fram í frumvarpinu. „Við erum ekki
að segja að nauðungar- og mála-
myndahjónabönd séu í lagi, við
hljótum öll að vera á móti þeim, en
við hefðum viljað sjá betri skýr-
ingar á þeim þætti í frumvarpinu.
Við skiljum ekki hvað þetta ná-
kvæmlega þýðir í frumvarpinu og
okkur finnst það vanhugsað,“ segir
Toshiki en samtökin funduðu í gær
í Alþjóðahúsi og ræddu frumvarpið.
Þá segir hann ekki þörf á því fyrir
Íslendinga að feta í fótspor Dana
hvað varðar aldurstakmörk á dval-
arleyfi útlendinga hér á landi en í
frumvarpinu er lagt til að útlend-
ingur skuli vera eldri en 24 til að fá
hér dvalarleyfi vegna hjúskapar.
„Það er engin ástæða fyrir Íslend-
inga að gera eins og Danir gera í
þessum efnum,“ segir Toshiki.
Þá er gerð athugasemd við heim-
ild til lífsýnatöku úr útlendingum
sem sækja um dvalarleyfi hér á
landi. Toshiki segir að ræða þurfi
þessi mál betur, þau snerti ekki síð-
ur réttindi Íslendinga en útlendinga
og því þurfi að fara fram mál-
efnaleg umræða um þessi atriði
sem og önnur atriði frumvarpsins
„Þetta er ekki hægt að gera við Ís-
lendinga. Af hverju kemur þetta allt
í einu, án þess að málin séu rædd,
inn í útlendingalög?“ spyr Toshiki.
„Okkur finnst þetta alvarlegt mann-
réttindabrot.“
Fjölmenningarráð og Samtök kvenna af erlendum uppruna
Lífsýnataka úr útlendingum
alvarlegt mannréttindabrot
Morgunblaðið/Golli
Fulltrúar Fjölmenningarráðs og Samtök kvenna af erlendum uppruna
ræddu frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga í Alþjóðahúsi.
SAMKEPPNISRÁÐ telur að
breytingar á gjaldskrá Kredit-
korts hf., sem fólust í því að
hækka gjöld vegna debetkorta-
færslna og lækka gjöld vegna
kreditkortafærslna fari ekki sem
slíkar gegn ákvæðum samkeppn-
islaga.
Þetta kemur fram í ákvörðun
samkeppnisráðs vegna erindis
Samtaka verslunar og þjónustu og
Samtaka verslunarinnar vegna
breytinga Kreditkorts hf. á gjald-
skrá fyrirtækisins.
Fram kemur að gjöld vegna
kredikortafærslna greiddu niður
gjöld vegna debetkortanna.
Skekkjan hafi ekki komið að sök
þar sem þessi þjónusta hafi al-
mennt verið seld í einu lagi. Það
hafi ekki verið fyrr en samkeppni
hófst á þessum markaði
með tilkomu Kortaþjónustunn-
ar, að skekkjan hafi orðið fyrir-
tækjunum samkeppnislegt vanda-
mál. Kortaþjónustan bjóði
söluaðilum einungis hirðingu á
MasterCard og Visa kreditkorta-
færslum. Hafi fyrirtækið m.a. not-
ið þess að gjöld Greiðslumiðlunar
og Kreditkorts vegna þessara
færslna hafa verið nokkru hærri
en nauðsyn beri til þar sem tekjur
vegna kreditkortafærslna hafa
niðurgreitt kostnað vegna debet-
kortafærslna.
Heimilt að bregðast
við aðstæðum
„Breyting á gjaldskrá Kredit-
korts felur því í sér að gjöld vegna
debetkortafærslna hafa hækkað
en kreditkortagjöld hafa lækkað.
Að mati samkeppnisráðs verður
að skoða háttsemi Kreditkorts
með hliðsjón af því að fyrirtækjum
er almennt séð heimilt að bregðast
við aðstæðum á markaði, hvort
sem þau eru markaðsráðandi eða
ekki, svo fremi sem þær aðgerðir
séu málefnalegar og ekki til þess
fallnar að raska samkeppni,“ segir
síðan í ákvörðun samkepnnisráðs.
SVÞ og SV gerðu einnig athuga-
semdir við það að breytingar á
gjaldskrá Kreditkorts virtust mið-
ast eingöngu við þá söluaðila sem
flutt höfðu færsluhirðingu kredit-
kortaviðskipta til annars fyrirtæk-
is. „Í gögnum málsins hefur komið
fram af hálfu Kreditkorts að fyr-
irtækið hafi fyrst hækkað debet-
kortagjöld þeirra viðskiptavina
sem flutt hafa kreditkortaviðskipti
sín annað. Á fundi með Samkeppn-
isstofnun þann 9. mars 2004 hafa
fulltrúar fyrirtækisins lýst því yfir
að gjaldskrá Kreditkorts gangi
jafnt yfir viðskiptavini fyrirtækis-
ins. Samkeppnisráð leggur þannig
áherslu á að aðgerðir Kreditkorts
fela í sér almenna leiðréttingu á
kjörum viðskiptavina fyrirtækis-
ins, hvort sem um er að ræða sölu-
aðila sem eru einungis í viðskipt-
um varðandi debetkortafærslur
eða bæði kreditkortafærslur og
debetkortafærslur,“ segir einnig.
Ákvörðun Samkeppnisráðs um gjaldskrá Kreditkorts
Breytingarnar ekki
gegn samkeppnislögum