Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fullorðnir Íslendingar muna örugglegaeftir ábúðarfullri útvarpsrödd brýnafyrir hlustendum að ástunda hrein-læti í því skyni að vinna gegn út-breiðslu lömunarveiki. Þótt hálf öld
sé liðin frá því sjúkdómnum var útrýmt á Ís-
landi lifir ógnin því enn í huga fjölmargra Ís-
lendinga rétt eins og hún er enn hluti af dag-
legum veruleika milljóna manna í nokkrum af
þéttbýlustu löndum heims.
Með öflugu átaki Rótarý-hreyfingarinnar og
fleiri aðila hefur náðst verulegur árangur í bar-
áttunni gegn útbreiðslu veikinnar sl. 20 ár. Nú
búa Rótarý-félagar úti um allan heim sig undir
að fylgja átaki sínu eftir með öflugum enda-
spretti til að útrýma lömunarveiki í heiminum
á næsta ári.
Hreinlæti áhrifavaldur
Eins og fram kemur hjá Haraldi Briem, sótt-
varnarlækni, í Íslenskri þjóðaráætlun til að
halda lömunarveiki í skefjum er talið að fyrsti
stóri lömunarveikifaraldurinn hafi gengið yfir
Ísland árið 1924. Áður er haldið að smáir far-
aldrar hafi gengið í Reykjavík árið 1904 og ut-
an Reykjavíkur árin 1905 og 1914–1915. Eftir
faraldurinn 1924 fylgdu sjö stórir faraldrar og
gekk sá síðasti yfir árið 1955. Sama ár þróaði
bandarískur vísindamaður, dr Jonas Salk,
fyrstur manna bóluefni gegn lömunarveiki. Á
Íslandi hófust bólusetningar gegn lömunar-
veiki árið 1956 og hvarf sjúkdómurinn nánast
eins og dögg fyrir sólu í framhaldi af átakinu.
Síðustu lömunarveikitilfellin á Íslandi greind-
ust árið 1960. Þá veiktust níu manns í sömu
fjölskyldunni og tveir þeirra lömuðust. End-
urspeglaði árangur bólusetninganna á Íslandi
útrýmingu veikinnar í fjölmörgum öðrum Evr-
ópulöndum á svipuðum tíma.
„Lélegt hreinlæti er ástæðan fyrir því að
lömunarveiki kom ekki fyrr upp á yfirborðið á
Íslandi en raun ber vitni sem er mótsagna-
kennt. Hér áður fyrr var hreinlæti af svo
skornum skammti á Íslandi sem annars staðar
að ætla má að börn hafi yfirleitt smitast af löm-
unarveiki fyrir eins árs aldur. Ef börn smitast
svo ung af veirunni veldur hún ekki lömun.
Með skárra hreinlæti jukust líkurnar á því að
eldri börn smituðust af veirunni í byrjun 20.
aldarinnar. Með hverjum faraldrinum smituð-
ust eldri börn og ekki var óalgengt að ungt fólk
smitaðist af veirunni í síðustu faröldrunum,“
segir Haraldur og er spurður að því hvort Ak-
ureyrarveikin svokallaða tengist að einhverju
leyti lömunarveikinni. „Akureyrarveikin gekk
yfir Akureyri og smitaði um 7% bæjarbúa árið
1948. Satt best að segja hefur aldrei verið al-
mennilega skýrt hvers konar veiki þar var á
ferðinni. Hinu er ekki að leyna að ákveðin lík-
indi eru á milli einkenna Akureyrarveikinnar
og heilkenna eftirstöðva lömunarveiki, t.d.
vöðvaslappleiki og ýmis geðræn einkenni.
Hvort um eitt og hið sama er að ræða skal þó
ósagt látið. Engu að síður er staðreynd að með
auknu hreinlæti, umbótum í frárennslismálum
og bólusetningu fyrir lömunarveiki tókst ekki
Stefnt að útrýmingu
Alþjóða Rótarý-hreyfingingunni hefur ásamt fleiri félagasam-
tökum og stofnunum tekist að ná 99,8% árangri í útrýmingu
lömunarveiki á tæpum 20 árum. Nú eru íslenskir Rótarý-
félagar að ýta úr vör sérstöku fjáröflunarátaki meðal íslenskra
fyrirtækja og áhugasamra einstaklinga í því skyni að útrýma
lömunarveiki fyrir fullt og allt á næsta ári – 100 ára afmæli
hreyfingarinnar. Anna G. Ólafsdóttir grófst fyrir um orsakir og
afleiðingar sjúkdómsins. Landlægum lömunarveikislöndum
hefur fækkað úr 125 í 6 á árabilinu 1988 til 2004.
Yngri kynslóð Íslendinga tengir lömunarveiki
væntanlega helst við sagnfræðilega upptalningu
úr Íslandssögunni. Fæstir þekkja lengur eðli og
afleiðingar sjúkdómsins úr sínu nánasta um-
hverfi. Lömunarveiki eða mænuveiki er smit-
sjúkdómur af völdum veiru af ættinni Enterov-
irus. Veiran binst svokölluðum prótein viðtökum
og byrjar á því að sýkja næmar frumur í munn-
koki, hálseitlum og smágirni. Eftir að sýkingin
hefur skotið rótum í líkamanum getur veiran bor-
ist með blóðrásinni, taugaþráðum eða báðum
leiðum til miðtaugakerfisins.
Þegar næmur maður kemst í snertingu við
lömunarveiki getur sýkingin verið án einkenna,
með vægum einkennum, einkennum um heila-
himnubólgu eða lömun. Aðeins hjá 1% sýktra
koma fram augljós einkenni um sýkingu með
lömun. Dánarhlutfall í þeim hópi hefur verið áætl-
að á bilinu 5–10%. Tveir af hverjum þremur lam-
aðra hljóta aldrei fullan bata. Þeim mun alvarlegri
sem lömunin er því minni líkur eru á að sjúklingur
nái sér að fullu. Þó með þeirri undantekningu að
góðar líkur eru á því að sjúklingar með alvarlegar
tímabundnar öndunarfærasýkingar hljóti fullan
bata. Hjá 20–30% þeirra sem lamast koma fram
einkenni heilkenna eftirstöðva lömunarveiki
(Post-polio syndrome (PPS)) 25–30 árum síðar.
Lömunarveiki getur borist hratt á milli manna
með smiti frá öndunarvegi. Þó er algengara að
smit berist milli manna beint eða óbeint með
veiruögnum frá saur smitaðra. Oftast líða á bilinu
7 til 14 dagar þar til fyrstu einkenni koma fram og
geta þau verið hiti, þreyta, höfuðverkur, uppköst,
hægðatregða (eða sjaldnar niðurgangur),
hnakkastífni og verkir í útlimum. Fjölgun veir-
unnar getur valdið því að hreyfitaugaþræðir
eyðileggjast og verða ófærir um að sinna því
mikilvæga hlutverk sínu að virkja ákveðna vöðva
í líkamanum. Heiti veikinnar lömunarveiki er
dregið af þessari lömun.
Hvað er lömunarveiki?
Ásgeir Pétur Ásgeirsson, héraðsdómari við Hér-
aðsdóm Norðurlands eystra, fékk lömunarveiki
aðeins 11 ára gamall og hann hefur frá þeim
tíma, eða í tæp 50 ár, gengið með spelku og við
staf. Ásgeir Pétur, sem var eins og önnur börn,
kraftmikill og fjörugur, sagði að það hefði verið
mikið áfall að verða fyrir barðinu á þessum ill-
víga sjúkdómi. Hann var á milli heims og helju
um tíma en náði sér aftur á strik og það kom
aldrei upp í huga hans að gefast upp. Ásgeir
Pétur er fæddur á Böggvisstöðum í Svarf-
aðardal árið 1944 en alinn upp á Dalvík. „Ég
veiktist í október 1955 en í fyrstu var talið að
ég hefði fengið einhverja flensu. Ég varð allt í
einu fárveikur, leið miklar kvalir í öllum skrokkn-
um og gat mig hvergi hreyft. Ég var því strax
fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri. Ég var það
veikur að ég man eiginlega ekkert eftir mér fyrr
en upp úr næstu áramótum. Ég lamaðist alveg
á þessum tímabili og gat ekki lyft höfði frá
kodda. Einnig lamaðist ég lítillega í lungum.
Þetta var faraldur sem gekk um landið en það
datt engum í hug að þarna væri strákur á Dalvík
að veikjast af þessum sjúkdómi. En þetta var
líka síðasti faraldurinn hérlendis, því bóluefnið
kom árið eftir.“
Ásgeir Pétur sagðist hafa verið settur í
sóttkví og í byrjun árs 1956 var hann, ásamt
öðrum sem höfðu smitast víða um land, sendur
á Farsóttarsjúkrahús Reykjavíkur – Farsótt.
„Þetta voru aðallega börn og unglingar, 10–20
talsins.“ Um vorið var Heilsuverndarstöðin í
Ásgeir Pétur Ásgeirsson héraðsdómari fékk lömunar
Það kom aldrei upp í
huga minn að gefast upp
„Íslenskir Rótarý-félagar hafa stutt Polio-
Plus-verkefnið með myndarlegum hætti úr
eigin vasa allt frá árinu 1985. Núna viljum við
gera enn betur og ætlum að biðla til íslenskra
fyrirtækja og allra annarra, sem styðja vilja
þetta verðuga verkefni, um fjárframlög til að
hægt verði að tryggja að markmið hreyfing-
arinnar um útrýmingu lömunarveiki náist á
næsta ári. Baráttan gegn lömunarveiki er
verkefni allra Íslendinga og þjóða í heimin-
um,“ segir Axel Gíslason, formaður Rótarý-
sjóðsnefndar íslensku Rótarý-hreyfingarinn-
ar, í tengslum við fjáröflunarátak hreyfing-
arinnar til styrktar alþjóðaátaki Rótarý-
hreyfingarinnar gegn lömunarveiki.
Hugmyndin kviknaði í flugvél
Örn Smári Arnaldsson, læknir og verðandi
umdæmisstjóri Rótarý-hreyfingarinnar á Ís-
landi árið 2005–2006, segir að PolioPlus-verk-
efnið eigi sér langan aðdraganda. „Rótarý-
sjóðurinn byrjaði að veita menntastyrki árið
1949. Eftir að menntastyrkjakerfinu var
komið á fót bættust mannúðarverkefnin við
árið 1965. Rótarý-sjóðurinn hleypti svo af
stokkunum fimm ára mannúðarverkefni á
Filippseyjum árið 1979,“ segir hann og tekur
fram að einn liður í verkefninu hafi verið að
bólusetja 6 milljónir barna við lömunarveiki á
eyjunum.
Góður árangur í verkefninu á Filippseyjum
varð Rótarý-hreyfingunni hvatning til vinna
að enn viðameira mannúðarverkefni. „Hug-
myndin að PolioPlus-verkefninu kviknaði í
flugvél á leiðinni til Ástralíu. Einn alþjóðafor-
setanna var að velta því fyrir sér hvað gæti
orðið næsta verkefni hreyfingarinnar. Skyndi-
lega laust hugmyndinni niður í huga hans
þarna í háloftunum. Fyrst hægt væri að út-
rýma bólusótt hlyti að vera hægt að útrýma
lömunarveiki með sama hætti. Maðurinn
hugsaði sig ekki tvisvar um og bar hugmynd-
ina undir félaga sinn í hreyfingunni,“ segir
Örn Smári og tekur fram að hugmyndin hafi
fengið afar jákvæðan hljómgrunn meðal Rót-
arý-félaga út um allan heim. „PolioPlus-verk-
efninu var formlega hleypt af stokkunum árið
1985.“
10 lönd undir í einu átaki
Á heimasíðu Rótarý-hreyfingarinnar
(www.rotary.org) kemur fram að í PolioPlus-
verkefninu felist ekki aðeins fjármögnun
bólusetningarherferða út um allan heim. Rót-
arý-félagar taki að sér að koma á tengslum
við yfirvöld í hverju landi, styrkja rannsóknir
á sviði lömunarveiki, efla fræðslu til almenn-
ings, stuðla að vopnahléum á átakasvæðum,
skipuleggja dreifingu bóluefnis og aðstoða við
sjálfa bólusetninguna.
Bólusetningarherferðirnar kalla á afar
viðamikla undirbúningsvinnu, m.a. í því skyni
að fræða almenning og skipuleggja dreifingu
bóluefnisins á bólusetningarsvæðunum. Víða
hefur þurft báta og þyrlur til að koma bólu-
setningarefninu til einangruðustu byggð-
anna. Bólusetningarnar fara oftast fram á
sérstökum bólusetningardögum ((NID) Nat-
ional immunization days) á ákveðnu afmörk-
uðu svæði. Safnað er saman tugþúsundum
sjálfboðaliða til að hægt sé að bólusetja öll
börn 5 ára og yngri með lifandi bóluefni á 2–3
dögum. Þess má geta að 100.000 starfsmenn
og sjálfboðaliðar tóku þátt í síðustu bólusetn-
ingarherferðinni í Indlandi. Tvær bólusetn-
ingarumferðir með eins mánaðar millibili í
þrjú ár eru farnar til að útrýma lömunarveiki
í landlægum lömunarveikislöndum. Stundum
ná bólusetningarherferðirnar til margra
landa, t.d. voru 63 milljónir barna undir í 10
landa bólusetningarátaki þann 23. febrúar sl.
Alls er stefnt að því að bólusetja
250.000.000 barna gegn lömunarveiki á þessu
ári. Hver bólusetning kostar um 40 ísl. kr. og
nemur heildarkostnaður því um 10 milljörð-
um ísl. kr. á árinu. En margt smátt gerir eitt
stórt og vert að hafa í huga að aðeins 4.000 kr.
framlag nægir til kaupa á bóluefni fyrir um
100 börn.
Útrýming innan seilingar
Axel segir að óneitanlega hafi verið
ánægjulegt að fylgjast með hvað góður ár-
angur hafi náðst í 20 ára baráttu Rótarý-
hreyfingarinnar fyrir útrýmingu lömunar-
veiki, þ.e. um 99,8%. „En við megum ekki
gleyma því að baráttan er ekki búin fyrr en
hún er búin. Andstaða við bólusetninguna á
afmörkuðu svæði í Norður-Nígeríu hefur
valdið því að lömunarveiki hefur aftur greinst
á áður lömunarveikisfríum svæðum og lönd-
um í grennd við Nígeríu. Lömunarveiki var
og gæti aftur orðið eitt af stærstu heilsufars-
vandamálum heimsins. Þess vegna er afar
mikilvægt að útrýma sjúkdóminum og halda
uppi eftirliti með því að hann blossi ekki upp
aftur,“ segir hann og bendir jafnframt á að
talsvert fjármagn vanti enn upp á að hægt sé
að binda endahnútinn á baráttuna. „Enn
vantar alþjóðahreyfinguna mikið fé til að ná
endum saman í baráttunni við sjúkdóminn og
er verið að safna fyrir lokátakinu um allan
heim. Íslenskir Rótarý-félagar vilja ekki láta
sitt eftir liggja og ætla að gera sitt besta til að
markmið Rótarý-hreyfingarinnar náist á
næsta ári – á 100 ára afmæli hreyfingarinn-
ar,“ segir hann. „Þetta er einstakt tækifæri til
að útrýma skæðum sjúkdómi. Útrýming löm-
unarveiki er innan seilingar. Metnaður okkar
stendur til þess að með söfnuninni getum við
komið Íslandi í fremstu röð stuðningsþjóða
þessa heimssögulega verkefnis.“
Þess má geta að Alþjóða Rótarý-hreyfing-
in hefur frá upphafi lagt um 36 milljarða ísl.
kr. til baráttunnar fyrir útrýmingu lömunar-
veiki í heiminum.
Öllum þeim sem vilja leggja söfnuninni lið
er bent á bankareikning söfnunarinnar hjá
Landsbanka Íslands, númer 139-26-1444.
Kennitala Rótarý á Íslandi er 610174-3969.
Rótarý efnir til söfnunar til styrktar baráttunni gegn lömunarveiki
Verkefni allra Íslendinga
og þjóða í heiminum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Axel Gíslason, formaður Rótarýsjóðsnefndar, og Örn Smári Arnaldsson, læknir og verðandi
umdæmisstjóri Rótarý-hreyfingarinnar á Íslandi árið 2005–2006, vinna að undirbúningi fjár-
öflunarátaks til að hægt verði að útrýma lömunarveiki algjörlega úr heiminum á næsta ári.