Morgunblaðið - 04.04.2004, Qupperneq 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 35
HIN árlega tónlistarhátíð Músík í
Mývatnssveit verður haldin í sjöunda
sinn nú um páskana. Á dagskrá eru
tvennir tónleikar og verða fyrri tón-
leikarnir haldnir í Skjólbrekku á
skírdagskvöld kl. 21 en þeir seinni í
Reykjahlíðarkirkju föstudaginn
langa kl. 21. Tónlistarfólkið sem
kemur fram á hátíðinni að þessu
sinni eru Arndís Halla Ásgeirsdóttir
sópran, Anna Áslaug Ragnarsdóttir
píanóleikari, Laufey Sigurðardóttir
og Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleik-
arar, Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari og Sigurður Bjarki
Gunnarsson sellóleikari.
Að sögn Laufeyjar Sigurð-
ardóttur, sem komið hefur að skipu-
lagningu tónlistarhátíðarinnar frá
upphafi, koma þær Arndís Halla og
Anna Áslaug sérstaklega til landsins
til að taka þátt í hátíðinni. „Okkur
finnst mikill fengur í því að fá þær
hingað heim í tilefni tónleikanna, en
báðar búa þær og starfa í Þýska-
landi. Arndís Halla er hrífandi söng-
kona sem syngur víðs vegar um Evr-
ópu og nú í haust er hún t.d. að fara
að syngja hlutverk Næturdrottning-
arinnar í Prag. Þess má geta að Anna
Áslaug er á síðari árum aftur farin að
koma fram bæði á einleiks- og
kammertónleikum eftir nokkurt hlé
og því einstakt tækifæri að heyra í
henni hér.“
Á tónleikunum í Skjólbrekku er,
að sögn Laufeyjar, ávallt venjan að
flytja m.a. eitt stórt kammerverk.
„Að þessu sinni munum við flytja
píanókvintett eftir Robert Schu-
mann, en það verk er eitt af eftirlæt-
iskammerverkum bæði flytjenda og
áheyrenda. Síðan munu Arndís Halla
og Anna Áslaug flytja íslensk söng-
lög eftir Pál Ís-
ólfsson, Jórunni
Viðar og Karl
Runólfsson, auk
þess sem þær
munu flytja aríur
m.a. úr Brott-
náminu úr
kvennabúrinu eft-
ir W.A. Mozart og
Don Pasquale eft-
ir Gaetano Don-
izetti.
Efnisskrá seinni tónleikanna tekur
eðlilega mið af tónleikadeginum og
því völdum við efni sem okkur fannst
passa að flytja á föstudeginum langa.
Þannig mun Arndís Halla flytja Mus-
ic for a while eftir Henry Purcell og
sönglög eftir Áskel Jónsson, Pál Ís-
ólfsson og Jón Leifs, auk þess sem
hún mun syngja eitt fallegasta söng-
lag tónbókmenntanna, Bist du bei
mir eftir J.S. Bach. Inn á milli spilum
við síðan sónötu fyrir tvær fiðlur eftir
Leclair, kafla úr sellósvítu eftir Bach,
Telemann fantasíu fyrir víólu og
bagatellu eftir Anton Dvorak fyrir
tvær fiðlur, selló og orgel.“
Aðspurð segir Laufey hátíðina
ávallt vel sótta bæði af heimamönn-
um og ferðafólki. „Enda er þessi há-
tíð ágætt dæmi um menning-
artengda ferðaþjónustu, en
upphaflega hugmyndin með hátíð-
inni var að veita gestum og heima-
fólki Mývatnssveitar færi á að sækja
menningarviðburði um páskana og
vera ákveðið mótvægi við útivist-
armöguleikana sem Mývatnssveit
hefur upp á að bjóða. Tónlistarhá-
tíðin hefur frá upphafi notið ómet-
anlegs stuðnings frá Hótel Reynihlíð,
enda er Pétur Snæbjörnsson hót-
elstjóri einn aðalhugmyndasmiður
hátíðarinnar. Auk þess sem Skútu-
staðahreppur er að sjálfsögðu aðili að
hátíðinni. Í áranna rás hafa síðan ým-
is fyrirtæki styrkt okkur og er stuðn-
ingur þeirra ein meginforsenda þess
að hægt sé að halda hátíð á borð við
þessa. Við eigum einnig ýmsa vel-
unnara sem stutt hafa við bakið á
okkur og fyrir það erum við óend-
anlega þakklát,“ segir Laufey að lok-
um.
Músík í Mývatnssveit
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Anna Áslaug Ragnarsdóttir, Laufey Sigurðar-
dóttir, Sigurður Bjarki Gunnarsson og Þórunn Ósk Marinósdóttir.
Arndís Halla
Ásgeirsdóttir
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa