Morgunblaðið - 04.04.2004, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 53
Miklar eru nú tilfær-ingarnar og menn-ingarhátíðirnar, sem„boðið er uppá“, einsog sagt er. Og svo
er„boltinn hjá þér“ því allir eru í
boltaleik. Svo „hafa menn „sönginn
með höndum“ og svo mætti lengi
telja sé vitnað í ambögur. Þá má geta
þess að orðið „sé“ er alveg hætt að
heyrast. Allir nota „er“ þó hitt eigi
við. En nóg um það. Annað er um-
ræðuefnið.
Allmörg ár eru liðin síðan mig
dreymdi gamlan vin minn og ferða-
félaga og fararstjóra í ótal fjallaferð-
um, Eyjólf Halldórsson verkstjóra
hjá Vatnsveitu Reykjavíkur. Við
hjónin, Birna kona mín og ég, höfðum
m.a. farið tíu sinnum um páska og
dvalist í Þórsmörk, en Eyjólfur
stjórnað gönguferðum ásamt vöskum
flokki ferðagarpa, Jóhannesi Kol-
beinssyni, Grétari Eiríkssyni, Einari
Guðjohnsen. Og svo voru ferðafélag-
arnir einvalalið, Páll Pálsson, Zop-
honías Jónsson, Sigursteinn Þórðar-
son, Margrét Þorleifsdóttir, Sig-
munda Hansdóttir, Haraldur Sig-
urðsson bókavörður, Gísli Eiríksson
bifreiðastjóri, Ásmundur Sigurðsson,
bræðurnir Sverrir og Ragnar Sæ-
mundssynir, Tómas Einarsson. Svo
mætti lengi telja. Haukur Bjarnason
og kona hans Þórunn Lárusdóttir eru
einnig minnisstæð.
Afmælisveisla Eyjólfs: „Maður er
kendur“
Eitt kvöldið var efnt til veglegrar
samkomu þar sem Eyjólfur var sér-
staklega heiðraður á afmælisdegi.
Grétar Eiríksson stóð fyrir samkom-
unni af kunnri smekkvísi. Hann fékk
mig til liðs við sig, svo ég komi sjálf-
um mér að. Hvað sem upptalningu
líður þá varð þetta hin besta skemmt-
an, lengi minnisstæð. Eyjólfur og
Grétar kepptust um að taka ljós-
myndir í ferðum félagsins. Þá er líka
komið að tilganginum með grein
þessari. Hann er sá að minnast á ljós-
myndasafn Eyjólfs Halldórssonar. Á
ferðum sínum um landið tók Eyjólfur
ljósmyndir svo þúsundum skipti. Auk
þess gekk hann um götur Reykjavík-
ur og ljósmyndaði atburði í bæjarlíf-
inu. Síðast en ekki síst tók hann
fjölda mynda af húsum. Einkum
beindi hann athygli sinni að húsum
sem hann vissi að ættu að hverfa og
rýma fyrir nýbyggingum eða vegna
gatnagerðar. Þær myndir skipta
vafalaust hundruðum. Nú kemur að
því að ég tengist safni Eyjólfs. Þegar
Eyjólfur féll frá var rætt um það hjá
fjölskyldu hans hvernig ráðstafa
skyldi myndum hans.
Dreymt fyrir daglátum
Hér segir nú frá því að dreymt er
fyrir daglátum. Það kemur fyrir öðru
hverju að mig dreymir menn eða at-
burði og man efni draumsins þegar
ég vakna að morgni. Eitt sinn,
skömmu eftir andlát Eyjólfs, dreym-
ir mig að ég er á gangi í Suðurgötu. Í
draumnum þykist ég bera Eyjólf
Halldórsson í fanginu. Mér finnst
sem ég horfi í andlit Eyjólfs og hugsi:
Ég verð að koma honum Eyjólfi ein-
hversstaðar fyrir. Ég get ekki borið
hann svona í fanginu lengi enn. Ég
verð að finna honum stað. Svo vakna
ég og man drauminn. Nokkrum dög-
um síðar hringir frændi Eyjólfs, ung-
ur vaskur maður sem oft fylgdi hon-
um í ferðalögum. Hann kvað Eyjólf
hafa mælt svo fyrir að ég ætti að ráð-
stafa 1jósmyndunum. Þarna rættist
draumurinn.
Ljósmyndasafn Eyjólfs
Eyjólfur Halldórsson, nafni Eyj-
ólfs og áhugamaður um ljósmyndir,
veitti þá forstöðu 1jósmyndasafni
sem var til húsa á Flókagötu. Það
varð vísir að Ljósmyndasafni
Reykjavíkurborgar. Ég harmaði það
og fannst það lýsa vanþakklæti
borgaryfirvalda, embættismanna og
starfsmanna að engin fjárveiting var
ætluð til flokkunar og skrásetningar
á myndum Eyjólfs. Daglega var ljóst
að ljósmyndir sem Eyjólfur hafði
tekið væri að finna í safni hans af
húsum sem um var fjallað í umræðu
dagsins. Árum og áratugum saman
hefir safn Eyjólfs legið án þess að
hirt væri um afnot þess. Það var því
fagnaðarefni er mér bárust allmörg
ljósrit af myndum Eyjólfs nú fyrir
skömmu. Elskuleg starfsstúlka
Ljósmyndasafns Reykjavíkur sendi
mér tvívegis allmargar af myndum
Eyjólfs. Sit ég nú við að skoða þær
mér til skemmtunar. Ég kom fljót-
lega auga á nafnkunnan ferðagarp
og grallara, Þorstein Kjarval, bróð-
ur listmálarans fræga Jóhannesar
Kjarvals. Þorsteinn bjó við Ísafjarð-
ardjúp. Þekkti hafstrauma og vissi
allt um það hvernig nota mætti þá og
taka í þjónustu sína með hyggjuviti.
Eru um það margar frásagnir
hvernig Þorsteinn nýtti sér þekk-
ingu sína þá er hann bjó á Naust-
unum, eins og það var kallað. Eru
um það sagnir að Þorsteinn hafi
stundum hnippt með öxlinni í tunnu-
stafla, sem allt í einu varð eins og
gamla konan sem langaði í ferðalag.
Sú ferð endaði oft á fjöru Þorsteins í
Naustunum.
Vilmundur Jónsson landlæknir
Vilmundur skráir bráðskemmti-
lega sögu um þá bræður. Kaflinn um
trúlofun Þorsteins og „bróðurdóttur
Johans Bojers, norska stórskáldsins“
er kostulegur: Lesandinn heyrir
hvernig hláturinn sýður í Vilmundi.
Annars mun Þorsteinn Kjarval hvað
kunnugastur fyrir hlutabréf, mörg og
verðmæt í Eimskipafélagi Íslands.
Mér er sagt að Guðmundur Andri
Thorsson hafi verið í nefnd sem
fjallar um Reykjavíkurljósmyndir.
Getur hann ekki dundað sér við dútl í
safni?
Eyjólfsminni –
Dreymt
fyrir daglátum
Eftir Pétur Pétursson þul
Ljósmynd/Grétar Eríksson
Afmælissamsæti Eyjólfs Halldórssonar í skála Ferðafélagsins Þórsmörk. Böðvar Pétursson fjallagarpur, Eyjólfur Halldórsson
afmælisbarn, Birna Jónsdóttir horfir brosleit í átt til Eyjólfs. Pétur Pétursson vætir kverkarnar fyrir ræðu til heiðurs Eyjólfi.
www.urvalutsyn.is
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í viku, fer›ir
til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
42
58
0
4/
04
Örfáar íbú›ir í bo›i
Portúgal 24. apríl í 24 nætur
43.005 kr.* á mann m.v. 2 í stúdíó á Brisa Sol
54.805 kr.* á mann m.v. 2 í stúdíó á Paraiso de Albufeira
Mallorca 26. apríl í 24 nætur
45.180 kr.* á mann m.v. 2 í stúdíó á Club Royal Beach
Krít 25. apríl í 29 nætur
49.270 kr* á mann m.v. 2 í stúdíó á Helios
2fyrir1
Ekki missa af flessu einstaka tilbo›i.
Fyrstir koma, fyrstir fá.
Netfang: kjoreign@kjoreign.is
Heimasíða: www.kjoreign.is
Sími 533 4040 • Fax 533 4041
Opið í dag frá kl. 14-16
í Hamravík 16, Reykjavík
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Ármúla 21 • Reykjavík
jöreign ehf
Dan V.S. Wiium hdl.,
lögg. fasteignasali
Erlendur Davíðsson,
lögg. fasteignasali
Hákon R. Jónsson,
sölumaður
Ólafur Guðmundsson
sölustjóri,
HAMRAVÍK, ENDAÍBÚÐ Á 1. HÆÐ
Nýleg, góð íbúð á jarðhæð. Birt stærð með geymslu 122,5 fm. Rúmgóð 3 svefnherbergi.
Sérþvottahús. Sérinngangur. Mahóní-innréttingar. Plastparket á gólfum. Gluggar á þrjá
vegu. Stór sérlóð. Húsið viðhaldslítið. Lítil sameign. Húsið byggt af Fróðengi ehf. Góð
bílastæði. FRÁBÆR STAÐSETNING. VERÐ 17,8 MILLJÓNIR. Gylfi og Rósa á bjöllunni.
Höfðavegur 18
217,7 fm einbýlishús á tveimur
hæðum þ.a. innbyggður c.a. 20
fm upphitaðurbílskúr. 4 svefn-
herbergi. Nýlegt gler í mestum
hluta húsins. Tilboð, áhv. 8 m,
greiðslub. c.a. 50 þús pr mán.
Iðnaðarhúsnæði á norðurkantinum við Vestmannaeyjahöfn Mjög gott iðn-
aðarhúsnæði, fasteignamatsnr. 218-3512. Grunnflötur 375 fm, skrifstofur
ofl á efri hæð, samtals er húsið 511,1 fm, gott port. Óskað er eftir tilboðum
Fasteignasala Vestmannaeyja
S: 4881600, fax 4881601, vefsíða: eign.net