Morgunblaðið - 04.04.2004, Síða 62
AUÐLESIÐ EFNI
62 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DRÁP á fjórum óbreyttum
borgurum, starfsmönnum
bandarískra verktaka, í
írösku borginni Fallujah á
miðvikudag, hefur vakið
óhug víða. Voru mennirnir
skotnir í tveimur bílum,
síðan kveikt í þeim og
brunnin líkin svo dregin eftir
götunum.
Paul Bremer, fulltrúi
Bandaríkjastjórnar í Írak,
fordæmdi morðin sem
„fyrirlitleg“ og hét því að
morðingjunum yrði refsað.
Hefur þetta verið fordæmt
víða um heim og
trúarleiðtogar í Fallujah hafa
einnig gert það og segja, að
það stríði gegn íslam að
svívirða lík.
Stærstu sjónvarpsstöðvar
í Bandaríkjunum sýndu
myndir frá atburðinum en þó
ekki þær hroðalegustu. CNN
sýndi þó líkin eftir að þau
höfðu verið hengd upp í brú.
Ýmis stór dagblöð ákváðu
að sýna ekki myndirnar og
hefur það sætt nokkurri
gagnrýni. Urðu nokkrir
fjölmiðlafræðingar til að
saka þau um að vilja ekki
sýna raunverulegar
afleiðingar Íraksstríðsins.
Morðin og myndirnar þykja
minna nokkuð á Sómalíu
1993 þegar lík bandarísks
hermanns var dregið eftir
götum Mogadishus en það
varð til þess, að Bill Clinton,
þáverandi forseti, ákvað að
kalla bandaríska herliðið í
Sómalíu heim. Þessir
atburðir eru að vísu ekki
sambærilegir en sagt er, að
myndirnar frá Írak hafi þó
haft svipuð áhrif á marga
Bandaríkjamenn. Höfðu
sumir haft á orði, að rétt
væri að kalla bandaríska
herliðið heim en stjórnvöld
segja, að ekki verði hvikað
frá því að koma á
stöðugleika í landinu.
Morðin í Fallujah vekja óhug víða
Líkin svívirt og dregin
um götur borgarinnar
TVEIR frægir söngleikir verða
settir upp í sumar hér á landi.
Í Austurbæ verður Hárið
sett upp en sá söngleikur
hefur áður verið sýndur á
Íslandi við miklar vinsældir,
síðast árið 1994.
Rúnar Freyr Gíslason
leikari mun leikstýra
uppfærslunni og Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson verður
tónlistarstjóri en hann sá
meðal annars um
tónlistarstjórn á vinsælasta
söngleik síðasta árs, Grease.
Ekki hefur enn verið ráðið í öll
hlutverk en þó hefur verið
staðfest að Hilmir Snær
Guðnason mun fara með eitt
aðalhlutverka. Söngleikurinn
Hárið verður frumsýndur 2.
júlí.
Söngleikurinn Fame verður
settur upp í sumar í
Vetrargarðinum í Smáralind
en þar verða sæti fyrir
750-800 manns.
Söngleikurinn Fame er
byggður á samnefndri
Óskarsverðlaunamynd og
sjónvarpsþáttum sem fylgdu í
kjölfarið, en þar er fjallað um
líf nemenda við listaskóla.
Leikstjóri Fame er Bjarni
Haukur Þórsson.
Tónlistarstjórn er í höndum
Barða Jóhannssonar og
Karls Olgeirssonar en verkið
er þýtt og staðfært af Úlfi
Eldjárn.
Morgunblaðið/Þorkell
Hilmir Snær mun horfa glað-
ur um öxl, en hann tók þátt í
uppfærslunni vinsælu á
Hárinu 1994.
Hár og
Frami
Atkvæðagreiðslu er að ljúka
innan
Starfsgreinasambandsins
um verkfall á sjúkrahúsum
landsins, en það mun hefjast
16. apríl næstkomandi hafi
ekki tekist samkomulag um
nýja kjarasamninga fyrir þann
tíma.
Verkfallið kemur til með að
ná til um þúsund
félagsmanna, þar af tæplega
600 í Reykjavík. Verkfallið
mun hafa víðtæk áhrif á
starfsemi spítalanna ef það
kemur til framkvæmda.
Meginkröfur
Starfsgreinasambandsins
eru að félagsmenn þeirra
sem starfa hjá ríkinu fái
sömu lífeyrisréttindi og
opinberir starfsmenn.
Samninganefnd ríkisins hefur
enn sem komið er ekki viljað
fallast á þessa kröfu.
„Mér heyrist að það sé
mikil samstaða um það að
við verðum að knýja á um
samning með aðgerðum,“
sagði Þórunn
Sveinbjörnsdóttir,
varaformaður Eflingar, eftir
að hún kom af fundi með
félagsmönnum Eflingar sem
starfa á Landspítala, en á
fundinum voru greidd
atkvæði um verkfallsboðun.
Verkfall
boðað á
spítölunum
16. apríl
ÍSLENSKA karlalandsliðið í knattspyrnu
tapaði, 2:1, gegn Albaníu í
vináttulandsleik sem fram fór í Tirana á
miðvikudaginn. Albanía skoraði fyrsta
mark leiksins á 42. mínútu en Þórður
Guðjónsson fyrirliði íslenska liðsins
jafnaði leikinn á 66. mínútu.
Heimamenn skoruðu sigurmark leiksins
á 78. mínútu en Albanía hefur ekki
tapað á heimavelli í þrjú ár.
Bræðurnir Þórður, Bjarni og
Jóhannes Karl Guðjónssynir voru allir í
byrjunarliði Íslands en slíkt hefur ekki
gerst frá árinu 1963 er Bjarni, Hörður
og Gunnar Felixsynir léku gegn
áhugamannalandsliði Englands í
Wimbledon.
Ljósmynd/ALNA photo
Bræðurnir Bjarni, Jóhannes Karl og
Þórður Guðjónssynir.
Þrír bræður í byrjunarliði
Íslands í Albaníu
ELDRI hjón drukknuðu
þegar bifreið, sem þau voru
í, fór út af
Sementsbryggjunni á
Akranesi og í sjóinn á
þriðjudag. Allt tiltækt
neyðarlið var kallað út og
flutti þyrla
Landhelgisgæslunnar fjóra
kafara á slysstað. Þeir voru
búnir að ná hjónunum úr
bifreiðinni um tíu mínútum
síðar.
Skipverjar af
frystitogaranum Helgu
Maríu AK-16, sem var í
höfninni, urðu varir við
þegar bifreiðin fór í sjóinn
og settu strax út slöngubát
skipsins en gátu ekki hafst
að.
Tvennt var í bifreiðinni,
roskin hjón á áttræðisaldri,
og reyndust þau bæði vera
látin þegar þau náðust úr
bifreiðinni.
Tildrög slyssins eru í
rannsókn en fyrstu
vísbendingar bentu til þess
að bifreiðin hefði farið aftur
á bak fram af bryggjunni og
yfir um 20 sentimetra háan
trékant sem þar er. Dýpið
þar sem bílinn fór í höfnina
er á annan tug metra.
Lögreglan á Akranesi fer
með rannsókn slyssins í
samvinnu við
rannsóknarnefnd
umferðarslysa.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Eldri hjón létust