Morgunblaðið - 04.04.2004, Side 63
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 63
Í hiphopi eru menn jafnan aðleika hlutverk og stundumfinnst manni eins og flestir séufastir í því að vera harðsvíraðir
bófar, töffarar með gullkeðjur og
gellur upp á arminn. Hiphop varð til
á götum úti og skítabúllum í svert-
ingjahverfum stórborga vestan hafs.
Tónlistin varð einskonar sameining-
artákn hópsins, menningarkimans,
þar sem mestu skipti að vera sem
mestur töffari, svalasti gæinn, sem
spannst svo út í algera dellu. Með
tímanum varð hiphop að söluvarningi
utan hverfisins, utan klíkunnar, og
helstu viðskiptavinirnir hvítir mið-
stéttarstrákar.
Á síðustu árum hafa komið fram
nýir hiphoplistamenn sem falla illa að
þessari lýsingu, yfirleitt vel menntað-
ir og upplýstir, nefni til sögunnar
hæfileikafólk eins og Melissa „Missy“
Elliot og Timbaland. Þau kunna fag
sitt betur en flestir aðrir, eru ekki að
leika nein hlutverk, bara að gera
góða tónlist og skiptir þá engu hvort
unnið er með lituðum listamönnum
eða bleikum eða hvort hráefnið er
James Brown eða Jackson Browne.
Annað ágætt dæmi um slíkan hiphop-
listamann, svertingja sem segist ekki
haldinn kynþáttahyggju, hann hlusti
á hvað sem er, er Pharrell Williams,
en ekki er bara að hann sé með vin-
sælustu tónlistarmönnum með sveit
sinni N.E.R.D., heldur er hann helm-
ingur Neptunes teymisins sem hefur
komið fleiri lögum á vinsældalista en
tölu verður á komið.
Sagt hefur verið að allt sem þeir fé-
lagar Pharrell Williams og Chad
Hugo snerti verði að gulli og má til
sanns vegar færa. Ekki er til að
mynda langt síðan blöð í Bretlandi
vöktu máls á því að fimmtungur allr-
ar tónlistar sem var í aðalspilun í
bresku útvarpi væri ýmist úr smiðju
þeirra félaga eða þeir hefðu um vélað.
Til viðbótar við það er svo að Pharrell
Williams sjálfur er gríðarlega vinsæll
sem rappari.
Þeir Williams og Hugo kynntust í
sumarbúðum fyrir bráðger börn tólf
ára gamlir og hafa unnið saman
meira og minna upp frá því. Fyrsta
stórvirki þeirra í tónlistinni var breið-
skífan A Tear Falls in Brooklyn með
Keystone sem kom út 1997, en ári
síðar komu út plötur með MC Lyte
og Noreaga. Allar seldust þessar
plötur þokkalega og vöktu næga at-
hygli til að þeir fengu veigameiri
verkefni. 1999 má svo segja að þeir
hafi slegið í gegn því þá komu þeir að
nokkrum metsölulögum: Got My
Money með Ol’ Dirty Bastard, Shake
Ya Ass með Mystikal og I Wanna
Love U með Jay-Z. Þeir sömdu líka
flestöll lögin á fyrstu skífu Kelis,
Kaleidoscope, sem kom út það ár og
sló rækilega í gegn.
Á næstu árum hrúguðust síðan
upp verkefnin og segja má að þeir
hafi unnið með öllum helstu stjörn-
um vestan hafs síðustu ár, til að
mynda Britney Spears, *NSYNC /
Justin Timberlake, Busta Rhymes,
Usher, Nelly, Janet Jackson, Mary
J. Blige, L.L. Cool J, No Doubt og
Beyoncé Knowles.
Allt var þetta gert undir lista-
mannsheitinu Neptunes, en þeir áttu
sér líka annan félagsskap, N.E.R.D.,
sem var hiphop-þríeyki þeirra Will-
iams, Hugos og rapparans Sheldons
Haleys, sem kallast Shay.
Pharrell Williams er andlit
N.E.R.D., aðalrappari og sá sem
veitir viðtölin og spókar sig á sam-
komum þotuliðsins. Það er jafnan
fróðlegt að lesa viðtöl við hann því
ekki fer á milli mála að Williams er
bráðgáfaður og víðsýnn í meira lagi
þar sem tónlist er annars vegar.
Hann hefur ekki farið leynt með dá-
læti sitt á hvítum tónlistarmönnum
ekki síður en svörtum, nefnir sem
áhrifavalda Stevie Wonder, Steely
Dan, America, Queen, Kool & The
Gang, Earth, Wind & Fire, Lynyrd
Skynyrd, AC/DC og Tears For
Fears, en hann hefur einnig látið í
ljós mikinn áhuga á að vinna með
Radiohead eða Coldplay.
Ný N.E.R.D. plata kom út um
daginn, Fly or Die, og hefur fengið
misjafna dóma. Margir hafa haft á
orði að þeir félagar séu að ganga
fram af sér í hugmyndastreyminu;
skífan væri betri ef þeir hefðu haldið
aðeins aftur af sér, ekki hrært saman
öllum þeim óteljandi stefnum og
straumum sem þeir hafa gaman af.
Það er þó nokkuð ljóst að þeir fé-
lagar þurfa ekki að hafa áhyggjur af
viðtökum og sölu, þeim er sjálfsagt
nokk sama hvað mönnum finnst um
N.E.R.D. á meðan þeir mala gull á
öðrum vígstövum.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Óteljandi stefnur
og straumar
Allt sem þeir Neptunes-félagar
koma að verður að gulli, ekki
síst það sem þeir gera saman
undir nafninu N.E.R.D.
Vinsælasta sýning leikársins kveður í apríl.
Við þökkum kærlega fyrir frábærar móttökur
ALLRA, ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR:
Fim. 8. apríl kl. 15.00 Skírdagur - Uppselt
Lau. 17. apríl kl. 14.00 Uppselt
Lau. 24. apríl kl. 14.00 örfá sæti laus
Sun. 25. apríl kl. 18.00 LOKASÝNING
ATH! Ósóttar pantanir seldar daglega
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Fö 16/4 kl 20 - UPPSELT Lau 17/4 kl 20 - UPPSELT
Su 18/4 kl 20 - UPPSELT Fi 22/4 kl 20, - UPPSELT
Fö 23/4 kl 20 - UPPSELT Lau 24/4 kl 20 - UPPSELT
Fi 29/4 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 30/4 kl 20 - UPPSELT Lau 1/5 kl 15,
Lau 1/5 kl 20 - UPPSELT Fö 7/5 kl 20 - UPPSELT
Lau 8/5 kl 20 - UPPSELT
Su 9/5 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 14/5 kl 20 Lau 15/5 kl 20, - UPPSELT
Su 23/5 kl 20 Fö 28/5 kl 20, Lau 29/5 kl 20
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
Meira (en) leikhús!
SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams
Su 18/4 kl 20, Lau 24/4 kl 20, Fö 30/4 kl 20
SÍÐUSTU AUKASÝNINGAR
Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst
PARIS AT NIGHT - KABARETT eftir ljóðum
Jacques Prévert - Í samvinnu við Á SENUNNI
Í kvöld kl 20:15 - UPPSELT
Mi. 14/4 kl 20:15, Fi 15/4 kl 20:15
Su 18/4 kl 15, Mi 21/4 kl 20:15
Ath. breytilegan sýningartíma
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Í dag kl 14 - UPPSELT
Su 18/4 kl 14, Su 25/4 kl 14,
Su 2/5 kl 14, Su 9/5 kl 14, Su 16/5 kl 14
GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU
****************************************************************
KORTAGESTIR MUNIÐ VALSÝNINGAR
LÚNA - ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
ÆFING Í PARADÍS e. Stijn Celis
LÚNA e. Láru Stefánsdóttur
Í kvöld kl 20
Síðasta sýning
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Í kvöld kl 20, Mi 14/4 kl 20, Su 25/4 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
LEIKHÚSTVENNA:
SEKT ER KENND e Þorvald Þorsteinsson
DRAUGALEST e. Jón Atla Jónsasson
Mi 14/4 kl 20
Aðeins þetta eina sinn. Kr. 1.900
loftkastalinn@simnet.is
miðasalan opin kl. 16-19
Sýningar á Akureyri
Lau. 03. apríl kl. 20 UPPSELT
Mið. 07. apríl hátíðarsýn. UPPSELT
Fim. 08. apríl kl. 16 aukasýning
Fim. 08. apríl kl. 20 UPPSELT
Sýningar í Loftkastalanum
Lau. 17. apríl kl. 20 laus sæti
Fös. 23. apríl kl. 20 laus sæti
Fös. 30. apríl kl. 20
„Frábært-drepfyndin-átakanlegt“
Ekki við hæfi barna -
Páskar á Akureyri
Eldað með Elvis
eftir Lee Hall
Leikstjóri Magnús Geir Þórðarson
sýn. fös. 2/4 kl. 20 uppselt
sýn. lau. 3/4 kl. 20 uppselt
Hátíðarsýning mið. 7/4 kl. 20 uppselt
Aukasýn. fim. 8/4 kl. 16.
sýn. fim. 8/4 kl. 20 örfá sæti
sýn lau. 10/4 kl. 20
Aðeins þessar sýningar
Draumalandið
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
Leikstjóri Þorsteinn Bachmann.
sýn lau. 17/4 kl. 20
sýn lau. 23/4 kl. 20
Aðeins þessar sýningar
Vörðufélagar Landsbanka Íslands
fá 25% afslátt gegn framvísun
gulldebetkorts.
Miðasölusími 462 1400
www.leikfelag.is
Á dagskrá tónleikana eru íslensk
sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns,
Karl Ó. Runólfsson,
Sigurð Þórarinsson,
Sigfús Einarsson,
Markús Kristjánsson,
Þórarinn Guðmundsson
og Eyþór Stefánsson
og óperuaríur eftir G. Donizetti,
W. A. Mozart, C. Gounod
og F. Lehár.
Einsöngstónleikar
í Neskirkju við Hagatorg
mánudaginn 5. apríl kl. 20:00
Hlöðver Sigurðsson, tenór
og Antonía Hevesi, píanó.
Miðasala í síma 555-2222
theater@vortex.is
Sun. 4. apríl. nokkur sæti laus
Fös. 16. apríl
Lau. 24. apríl
Síðustu sýningar
eftir Bulgakov
eftir Jón Atla Jónasson
Þri. 6. apríl
Fantagott stykki...frábær skemmtun
sem snerti margan strenginn
-Ómar Garðarsson Eyjafréttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111