Pressan - 19.12.1991, Side 5

Pressan - 19.12.1991, Side 5
Býður nokkur betur? Um leið og við þökkum þúsundum kvenna og karla á öllum aldri, sem þegar hafa stillt á Aðalstöðina, FM 90,9 og 103,2, fyrir hlýjar kveðjur viljum við vekja athygli þeirra, sem ennþá eru ekki rétt stilltir, á nokkra nýja áhugaverða, fróð- lega og skemmtilega þætti í dagskránni. Útvarp Reykjavík Er alltaf kl. 7-9 á morgnana. Þar koma fram helstu ráða- menn þjóðarinnar og fjalla um þjóðarsálina. Nú þegar hafa um 30 þingmenn í öll- um flokkum komið fram og fengið til sln fjölda gesta. Kvikmynda- tónlistin: Ákaflega áhugaverður þátt- ur með gullkornum kvik- myndatónlistar. Tónlist fyrir fólk á öllum aldri enda hefur Kolbrún Bergþórsdóttir sérstakt lag á að finna tón- list sem sjaldan heyrist. Tveir eins Hörkugóðir tónlistarþættir þar sem félagarnir Ólafur Þórðarson og Ólafur Steph- ensen fara á kostum og kynna sveifluna eins og hún gerðist best og fá gesti í heimsókn. Reykjavíkur- rúnturinn: Hinn landsþekkti útvarps- maður Pétur Pétursson hef- ur nú hafið störf á Aðalstöð- inni með ákaflega fróðlegan þátt um menn og málefni eins og honum einum er lagið. Pétur fær í heimsókn til sín gesti sem rifja upp skemmtilegar sögur úr þjóðlífinu o.fl. íslendinga- félagið Feikilega vinsæll þáttur þar sem þáttagerðarmenn eru fengnir úr hinum ýmsu stéttum þjóðfé- lagsins til að ræða framtíð Is- lands og hvort við eigum ein- hverja von i breyttum heimi. Nú þegar hafa á fjórða hundrað gestir komið fram í þáttunum s.s. Ingvi Hrafn, Hannes Hólm- steinn, Vilhjálmur Egilsson, Jón Hnefill Aðalsteinsson, Bergur Guðnason, Almar Grímsson, Jóhannes Gunnarsson, Bjarni í Brauðbæ, Grímur Sæmundsen, Jón Erlendsson ásamt háskóla- fólki, Ellert Schram og fl. o.fl. Óperan Óperuþættirokkar eru i umsjá fólks úr íslensku óperunni og Óperusmiðjunni. Fjöldi söngv- ara og sérfræðinga á sviði óperutónlistar kemur fram og kynnir okkur óperulistina og hvað er á döfinni í íslensku óperullfi. Sunnudagur Kl. 13-15 á sunnudögum hafa þeir Megas og Jón Ólafsson skipt á milli sín þáttum sem höfða til allra. í einlægni með Jónínu Benediktsdóttur. Jónína er löngu þekkt fyrir skoðanir sinar á lífinu, tilverunni og ástinni. Gestir Jónínu hing- að til hafa verið þau Vigdís Grímsdóttir, Stefán Jón Haf- stein og Egill Ólafsson. Er stöðin full af fjölbreyttu efni og fallegri tónlist. Þá eru m.a. matreiðsluþættir, svæðisútvarp, verslun og viðskipti, umferðarþættir, likamsrækt og fjöldi fólks kemur f heimsókn. Bókmenntir: Guðriður Haraldsdóttir fjall- ar á óvenjulegan hátt um bókmenntir og hið ritaða mál. Sjöundi áratugurinn: Þorsteinn Eggertsson, einn helsti dægurlagasérfræð- ingur landsins, rifjar upp sögu tónlistarinnar fyrir unglinga og miðaldra fólk I fjörugum þætti. í dægurlandi Dægurlagasöngvarinn Garðar Guðmundsson hef- ur í samstarfi við hlustendur safnað saman perlum ís- lenskrar dægurtónlistar sem fluttar eru í þessum vinsæla þætti kl. 15-17 á sunnu- dögum. Sveinn Guðjónsson. Það hafa sem sagt komið fram rúmlega 3000 manns á Aðalstöðinni í október og nóvember. Við þökkum þeim fyrir komuna og framlag til íslenskrar menningar og um- ræðu umframtíð þessa lands. Verið stillt á Aðalstöðina - hún er stöðin þín. Hókon Slgurjónsson. Margrét Pálmadóttlr. Lunga unga fólksins Einn allra vinsælasti þáttur ungs fólks, stjórnað af ungu fólki, síðan „lög unga fólks- ins" voru flutt á gömlu guf- unni. Blár mánudagur: Einn allra besti blúsþáttur sem fluttur hefur verið, und- irstjórn PétursTyrfingsson- ar. í lífsins ólgusjó: Inger Anna Aikman fær til sín áhugaverða gesti í heim- sókn. Inger hefur fyrir löngu getið sér gott orð fyrir góða viðtalsþætti. Gullöldin Berti Möller og Sveinn Guðjónsson stjórna þessum mjög svo hressa tónlistar- þætti kl. 15-17 á laugar- dögum. Berti Möller. Megas. Kolbrún Bergþórsdóttir. Jón Ásgelrsson. Ólafur Þórðarson. Hrafnhlldur Halldórsdóttir. Bjarni Arason. Guðriður Haraldsdóttir. Jóhannes Jónasson. Ingvi Hrafn. Pétur Pétursson. Erla Friðgeirsdóttir. Þuriður Sigurðardóttir. Bergþór Pálsson. Jónina Benediktsdóttir. Pétur Tyifingsson. AÐALSTÖÐIN Inger Anna Alkman. Ólafur Stepensen. Garðar Guðmundsson.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.