Pressan - 19.12.1991, Side 8

Pressan - 19.12.1991, Side 8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991 Dæmi eru um að nokkrar ríkis- stofnanir og fyrirtæki hafi ár eftir ár farið allt frá nokkrum tugum pró- senta upp í nokkur hundruð prósent fram úr fjárlögum síðustu ára. Þá virðast nokkrar stærri stofnanir rík- isins markvisst fara fram úr fjárlög- um umfram aðrar stofnanir og ákveðin ríkisfyrirtæki virðast á eng- an hátt geta haldið áætlunum og þurfa æ ofan í æ að sækja í ríkissjóð það sem upp á vantar. Meðal lítt áberandi stofnana sem á síðustu sjö árum hafa farið allt í allt meira en tvöfalt fram úr fjárlögum eru Unglingaheimili ríkisins, Holda- nautastöðin í Hrísey, Laxeldisstöðin í Kollafirði og embætti Veiðistjóra. Af stærri embættum má nefna að Lögreglustjóraembættið á Keflavík- urflugvelli, Lögreglustjórinn í Reykjavík og Flugmálastjórn fara ár hvert fram úr fjárlögum svo tugum og hundruðum milljóna króna að núvirði skiptir. Nokkur fyrirtæki sem tilheyra svokölluðum B-hluta fjárlaga eru mikið vandamál fyrir ríkissjóð. Þeirra á meðal er Skipaútgerð ríkis- ins, sem nú er verið að falast eftir gegn árvissum ríkisstyrk. Miðað við reynsluna á árunum 1986 til 1989 er dæmigerð útkoma hjá Skipaútgerð ríkisins að tekjur reynast hvert ár 40 milljónum króna lægri en áætlað er og útgjöld 30 milljónum hærri. Með fjármagnsliðum hefur tap ársins verið að meðaltali 120 milljónum meira en áætlað var og framlag úr ríkissjóði að meðaltali 45 milljónum umfram það sem samþykkt hafði verið. PRESSAN hefur áður greint frá því að ríkisframlög til Ríkisskips 1981 til 1990 námu samtals 2.430 milljónum króna að núvirði. Fram- lagið í ár átti að vera 134 milljónir, en í fjáraukalögum er gert ráð fyrir 100 milljónum til viðbótar. Heildar- framlög frá 1981 fara þá upp í tæpa 2,7 milljarða. A sama tímabili var rekstraraf- koma með ríkisframlagi neikvæð um 1.060 milljónir króna. Raun- verulegur halli fyrirtækisins á þessu tímabili var því samtals um 3,5 millj- arðar króna. í apríl sl. voru síðan felldar niður vanskilaskuldir og dráttarvextir Ríkisskips við ríkissjóð og ríkis- ábyrgðasjóð frá umliðnum árum. Þessi niðurfelling nam að núvirði 670 milljónum króna. Fram- kvæmdastjóri Rikisskips er Gud- mundur Einarsson. Áburðarverksmiðja ríkisins er annað ríkisfyrirtæki sem hefur ár eftir ár komið mun lakar út en for- sendur fjárlaga gerðu ráð fyrir. Á dæmigerðu ári hjá Áburðarverk- smiðjunni hefur með fjármagnslið- um verið gert ráð fyrir 60 til 80 millj- óna króna halla, en útkoman 1986 til 1989 reyndist að meðaltali 225 milljóna króna halli. Munar þar mest um fjármagnskostnað. Á um- ræddu tímabili áttu fjárfestingar að vera að meðaltali 76 milljónir, en reyndust um 100 milljónir króna á ári. Framkvæmdastjóri Áburðar- verksmiðjunnar er Hákon Björns- son. ÞREFALDUR HALLl VEGNA OFFJÁRFESTINGAR Svipaða sögu má segja af Síldar- verksmiðjum ríkisins. Forsendur fjárlaga hafa gert ráð fyrir að tekjur umfram gjöld næmu að meðaltali 72 milljónum á ári, en útkoman reyndist hallarekstur upp á 63 millj- ónir að meðaltali. Og raunar meiri vegna vaxtagjalda umfram vaxta- tekjur, enda fjárfest meira en áætlað var. Framkvæmdastjóri Síldarverk- smiðja ríkisins (var) Jón Reynir Magnússon. Rafmagnsveitur ríkisins hafa einnig fjárfest langt umfram það sem áætlanir hafa gert ráð fyrir. Að fjármagnsliðum slepptum var á ár- unum 1986 til 1989 gert ráð fyrir að hallinn yrði að meðaltali um 110 milljónir á ári, en hann reyndist þre- falt meiri eða 318 milljónir. Með fjár- magnsliðum átti hallinn að vera 390 milljónir að meðaltali, en reyndist 570 milljónir að meðaltali eða 2,3 milljarðar á fjórum árum. Árið 1989 gaf ríkið eftir um 3 milljarða í lán- um. Rafmagnsveitustjóri er Kristján Jónsson, en formaður stjórnar þessi ár Púlmi Jónsson alþingismaður frá Akri og fyrrum formaður fjárveit- inganefndar. MENNING SEM ER PENINGALEGA ÚT í HÖTT Tvær menningarstofnanir hafa ár eftir ár komið langtum verr út en áætlanir gerðu ráð fyrir, Þjóðleik- húsið og Sinfóníuhljómsveitin. í báðum tilfellum hafa áætlanir gert ráð fyrir hallarekstri, sem mætt yrði með ríkissjóðsframlagi. Hjá Þjóðleikhúsinu var útkoman 1986 til 1989 að meðaltali sú, að í stað áætlaðs 198 milljóna króna halla á ári varð útkoman 330 millj- óna halli. Framlag úr ríkissjóði átti að vera 200 milljónir á ári, en reynd- ist 335 milljónir. Þjóðleikhússtjóri var Gísli Alfredsson. Rekstrardæmi Sinfóníuhljóm- Framúrakstur nokkurra ríkisstofnana 1986-1990 í milljónum króna að núvirði Stofnun Fjárlög Útkoma Umfram Hlutf. Alls 5 ár Lögreglustjórinn í Rvk. 749,0 924,0 175,0 23,4% 875,0 Flugmálastjórn 626,0 732,0 106,0 16,9% 530,0 Lögreglan á Keflavíkurfl. 201,0 264,0 63,0 31,3% 315,0 Tollstjórinn 182,5 215,0 32,5 17,8% 162,5 Skógrækt rík. 92,0 116,0 24,0 26,1% 120,0 Listasafn 83,0 95,0 12,0 14,5% 60,0 Borgarfógeti 82,0 104,0 22,0 26,8% 110,0 Rafm.eftirlit 70,5 90,0 19,5 27,6% 97,5 Borgardómari 60,0 70,5 10,5 17,5% 52,5 Skýringar: Framreiknaðar meðaltalstölur, þarsem reynslan á 5 árum er sýnd sem dæmi- gert eitt ár hjá stofnununum, en framúraksturinn i heild sýndur í aftasta dálki. Kristján Jonsson, framkvæmdastjóri Rarik. Að fjármagnsliðum slepptum var á árunum 1986 til 1989 gert ráð fyrir að hallinn yrði að meðaltali um 110 millj- ónir á ári, en hann reyndist þrefalt meiri eða 318 milljónir. Guömundur Einarsson, framkvæmda- stjóri Ríkisskips. Með fjármagnsliðum hefur tap ársins verið að meðaitali 120 milljónum meira en áætlað var og fram- lag úr ríkissjóði að meðaltali 45 milljón- um umfram það sem samþykkt haföi verið. sveitarinnar er enn átakanlegra, einkum vegna þess að ár hvert hafa tekjuforsendur gjörsamlega brugð- ist og gjöld um leið verið langt um- fram áætlanir. Þar átti hallinn að vera að meðaltali tæplega 100 millj- ónir á ári, en útkoman reyndist hins vegar 187 milljóna halli á ári eða hátt í 800 milljónir á áðeins fjórum árum. Framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar var Sigurdur Björnsson, en stjórnarformaður á umræddu tímabili Ólafur B. Thors, forstjóri hjá Sjóvá-Almennum. Með- al stjórnarmanna annarra var Hörd- ur Sigurgestsson, forstjóri Eimskipa- félagsins. FÁEINUM STOFNUNUM HEFUR TEKIST HIÐ ÓMÖGULEGA Á títtnefndu tímabili er áberandi að nokkrar stofnanir hafa snúið blaðinu við til hins betra. Þannig hefur rekstur og afkoma Pósts og síma og útvarps og sjónvarps breyst úr hallarekstri í hagnað. Tvö önnur ríkisfyrirtæki má tiltaka þar sem reksturinn virðist hafa verið með ágætum á tímabilinu. Hjá Sements- verksmiðju ríkisins voru tekjur um- fram gjöld almennt vel yfir því sem áætlanir gerðu ráð fyrir 1986 til 1989 og góður hagnaður af starf- seminni ef undan er skilið árið 1989 þegar fjármagnskostnaður riðlaði dæminu, enda fjárfest meira en áætlað var. Hjá ríkisprentsmiðjunni Gutenberg hafa tekjur umfram gjöld sömuleiðis reynst hærri en áætlað var, en fjármagnskostnaður þar sömuleiðis dregið úr árangrinum. Þetta eru þau tvö ríkisfyrirtæki sem einkavæðingarsinnar vilja umfram önnur selja.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.