Pressan - 19.12.1991, Side 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
STYRMIR
Gunnarsson er líklega
þrætukóngur ársins en hon-
um hefur, ásamt hinum rit-
stjóra Morgunblaðsins,
Malthíasi Johannessen, tek-
ist að æsa upp alla sægreifa
landsins. Hefur orðið úr
þessu harkalegasta ritdeila
sem blað allra landsmanna
hefur staðið í. Frísklegasti
angi þessarar deilu er uppi
í Háskóla þar sem allskyns
ofvitar eigast við. Öðrum
megin er Hannes H. Gissur-
arson en hinum megin þeir
Þorvaldur Gylfason, Þórólf-
ur Matthíasson og seðla-
bankamaðurinn og hlaupa-
gikkurinn Markús Möller.
En við erum bókaþjóð og
fyrir jólin þrætum við um
bækur. f>að veit hann
lllugi Jökulsson, sem gerði
athugasemd við ritdóm um
Fógetavald sitt í Morgun-
blaðinu og fékk bara annan
verri yfir sig úr Þjóðviljan-
um. Já, svona getur lifið
verið miskunnarlaust en
enginn hefur fengið aö
kenna eins á þvi eins og
Þorsteinn Thorarensen en
Fjölvaútgáfa hans fékk
vondan dóm, bara eins og
hún leggur sig. Vondi mað-
urinn þar er Fridrik Rafns-
son, bókmenntaráðunautur
RUV (bókanaut eins og þeir
eru stundum kallaðir), en
Þorsteinn segir að hann
hafi hent bókum Fjölva út í
horn. Útvarpsráð hefur
auðvitað lýst yfir stuðningi
við sinn mann. — Og tal-
andi um RÚV þá má vekja
athygli á orðum
Guönýjar Halldórsdóttur
fyrir skömmu um leikara-
stéttina. Guðný fékk að tjá
sig hjá Arthúri Björguini
Bollasyni (ekki margir sem
fá að tjá sig þar) og greip
tækifærið og sendi leikur-
um tóninn fyrir fégræðgi.
Það varð til þess að Gud-
rún Alfreösdóttir svaraði og
sakar Guðnýju um að vera
liðhlaupi. Og talandi um fé-
græðgi þá er
Höskuldur Jónsson ösku-
reiður þessa dagana út í
Herbert Guömundsson,
fræðslufulltrúa Verslunar-
ráðs, sem sakaði Höskuld
og sjoppuna hans um
mútuþægni. En það eru
ekki bara vökvar sem
vekja deilur því nú þræta
þeir Jón Sigurösson og
Halldór Blöndal ákaft út af
mjólkurdufti. Og Alþýðu-
flokkurinn er tvímælalaust
flokkur mánaðarins því
hann er eini flokkurinn
sem haldið hefur lífi í eilífri
deilu kynjanna. Fyrst á
milli Jóns Baldvins Hanni-
balssonar og Jóhönnu Sig-
uröardótlur og ekki síður á
milli Guömundar Oddsson-
ar annars vegar og Ólínu
Þorvaröardóttur og Ragn-
heiöar Davíösdóttur hins
vegar. — Og deiluefnið; jú,
auðvitað vændi.
VILJA LÁTA HENDA HJÍNUN-
UM UT AF HDTEL STEFANÍU
Nú verður reynt að koma hjónunurirlngunni Árnadóttur og Stefáni Sigurðssyni út
úr Hótel Stefaníu með aðstoð dómara. Ingunn hefur leigusamninga um hótelið og
fasteignirnar. Þessum samningum hefur verið mótmælt og nú hefur verið lögð
fram útburðarbeiðni.
Hróbjartur Jónatansson
hæstaréttarlögmaöur lagdi í
gær fram kröfu um að Ing-
unni Árnadóttur, eiginkonu
Stefáns Sigurðssonar, yrði
gert að fara út úr húsnæði
Hótels Stefaníu á Akureyri.
Ástæðan er sú að leigusamn-
ingi, sem Stefán gerði við eig-
inkonu sína á sama tíma og
fyrirtæki þeirra varð gjald-
þrota, hefur verið mótmælt.
Ferðamálasjóður og
Byggðasjóður leystu allar
fasteignir hótelsins til sín á
nauðungaruppboði í október
og ætla að greiða 54 milljónir
fyrir. Lögmaður sjóðanna
segir samninginn mála-
myndagerð og að hann bindi
ekki hina nýju eigendur eign-
anna.
Þess má og geta að leigu-
greiðslur eru í vanskilum, en
þær eru 500 þúsund krónur á
mánuði.
FURÐULEGUR
LEIGUSAMNINGUR
Þegar Hótel Stefanía var
tekið til gjaldþrotaskipta
lagði Stefán Sigurðsson fram
óþinglýstan leigusamning
um fasteignirnar. Samkvæmt
honum var Ingunn leigutaki.
Leigusamningurinn var
óþinglýstur og var ekki þing-
lýst fyrr en um einum mánuði
síðar. Það merkilega við
þennan samning er að Ing-
unn og Stefán rugluðu saman
tveimur hlutafélögum, sem
þau áttu, þ.e.a.s. Hótel Stefan-
íu, sem er félag um rekstur
hótelsins og lausafé, og hins
vegar Hafnarstræti 83, 85 og
88 hf., sem átti fasteignirnar
sem hótelið er í.
í leigusamningnum á milli
Ingunnar og Hafnarstrætis
hf. var ákvæði um að Ingunn
hygðist kaupa allt lausafé.
Þetta þótti furðulegt þar sem
þriðji aðili, Hótel Stefanía,
átti lausaféð og því átti það að
vera hótelinu óviðkomandi.
Þegar fasteignirnar voru
boðnar upp var leigusamn-
ingnum mótmælt. Lögmaður
þeirra hjóna, Ásmundur Jó-
hannsson, áfrýjaði uppboð-
inu til Hæstaréttar. Það voru
Byggðasjóður og Ferðamála-
sjóður sem keyptu eignirnar,
eins og áður sagði.
Sjóðirnir vilja nú allt til
vinna að fá full yfirráð yfir
þessum eignum. Þess vegna
er útburðarbeiðnin lögð
fram. Verði hún tekin til
greina verða Ingunn og Stef-
án að yfirgefa hótelið. Þótt
málinu verði skotið til Hæsta-
réttar þurfa þau eigi að síður
að yfirgefa hótelið. Telji þau
sig skaðast af þessu verða
þau að leita réttar síns í sér-
máli.
ÁFRÝJUNIN ÚR SÖGUNNI
Sama dag og áfrýjunin var
þingfest í Hæstarétti voru fyr-
irtæki þeirra hjóna úrskurð-
uð gjaldþrota. Þar með er for-
ræði búsins komið í hendur
bústjóra. Hann ætlar-ekki að
halda áfrýjuninni til streitu
og þar með kemur uppboðið
ekki til meðferðar í Hæsta-
rétti.
,,Það verður fallið frá áfrýj-
uninni. Það þjónar engum til-
gangi fyrir þrotabúið að
halda þessu áfram," sagði
Hreinn Pálsson, lögmaður og
bústjóri beggja þrotabúanna.
Heimildir PRESSUNNAR
herma að búið sé að leita til
Ingunnar um að gefa eftir
leigusamninginn með góðu,
það er á sem kostnaðar-
minnstan hátt. Hún hefur
ekki viljað semja um' eitt né
neitt og þess vegna þarf að
fara þessa leið, þ.e.a.s. að leita
til dómstóla til að láta skera
úr um réttmæti leigusamn-
ingsins.
,,Þetta hefur verið heimild-
arlaus notkun þeirra á eign-
unum. Það verður að koma
þessu fólki burt," sagði einn
kröfuhafa.
HÖFUM FORMLEGAR
HEIMILDIR
„Leigusamningurinn var til
málamynda og er óskuld-
bindandi fyrir uppboðskaup-
anda," sagði Hróbjartur Jón-
atansson, lögmaður Ferða-
málasjóðs. Hann fer einnig
með málið fyrir Byggðasjóð.
,,Það er til hans stofnað án
samþykkis veðhafa og undir
rekstri uppboðsmálsins,
skömmu fyrir nauðungar-
sölu. Af þessum ástæðum
geta réttindi tengd þessum
leigusamningi aldrei verið
rétthærri en veðréttindi upp-
boðskaupanda," sagði Hró-
bjartur Jónatansson.
Hróbjartur sagðist líta
þannig á að leigusamningur-
inn hefði ekki verið hluti af
uppboðsskilmálum. Búið
væri að samþykkja boð
Ferðamálasjóðs og Byggða-
sjóðs og þeir hirtu því arð af
eignunum frá þeim degi sem
boðið hefði verið samþykkt.
Sjóðirnir hefðu borgað þann
hluta kaupverðsins sem væri
hægt að borga meðan málið
væri á þessu stigi. Af þessum
sökum taldi Hróbjartur að
formlegar heimildir til að
krefjast útburðar væru fyrir
hendi.
SAMA FÓLKIÐ
Ingunn og Stefán hafa verið
aðaleigendur beggja fyrir-
tækjanna, Hótels Stefaníu hf.
og Hafnarstrætis 83,85 og 88
hf. Þau eiga sæti í stjórn
beggja fyrirtækjanna. Aðrir
stjórnarmenn eru Jón Sig-
urdsson og Ásbjörn Jensson.
Stofnendur fyrirtækjanna
voru Einar Árnason, lngunn
Árnadóttir, Stefán Sigurðs-
son, Einar Marinósson og 01-
afur H. Jónsson.
Hótel Stefanía og Hafnar-
stræti 83,85 og 88 voru stofn-
uð árið 1985. Stofnhlutafé í
hótelinu var 500 þúsund
krónur og 14,6 milljónir í fast-
eignafyrirtækinu.
Sigurjón Magnús Egilsson
Hótel Stefanía viö Hafnarstræti á Akureyri. Lögmaður Ferðamálasjóös segir að leigusamntyngurinn hafi verið til málamynda og að
þeir sem keyptu eignirnar á uppboði séu óskuldbundnir af samningnum.