Pressan - 19.12.1991, Side 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
19
M
Likil leit stendur yfir að mönn-
um til að taka að sér að ritstýra
væntanlegu dagblaði. Að minnsta
kosti er búið að
ræða við einn
mann, Jón Orm
Halldórsson. Hann
var ákveðinn og
sagði; nei takk. Enn
eru nokkur nöfn á
óskalistum þeirra
sem vinna að útgáfunni, en ekki bú-
ið að ræða við fleiri en Jón Orm . . .
N
I ú styttist óðum í að skipaður
verði nýr dómari við Hæstarétt. Þrír
sóttu um; Garðar Gíslason og
Auður Þorbergsdóttir borgar-
dómarar og Páll Sigurðsson pró-
fessor. Garðar þykir líklegastur
þeirra til að hljóta embættið. Það
mun skemma fyrir Páli að hafa verið
stjórnarformaður í Ávöxtun ...
MT að eru skiptar skoðanir um
hvort rétt sé að hafa tólf lið í fyrstu
deild karla í handbolta. Þeir sem eru
á móti þessu fyrir-
komulagi benda á
að mikill munur sé á
bestu liðunum og
þeim slökustu. Þessi
munur á að gera að
verkum að lítill
áhugi er fyrir mörg-
um leikjanna. Nýlegt og áþreifan-
legt dæmi þessu til stuðnings er leik-
ur Breiðabliks og FH, sem háður var
um síðustu helgi. FH-liðið, sem hef-
ur á að skipa stórstjörnum svo sem;
Kristjáni Arasyni, Þorgiis Óttari
Mathiesen og Hans Guðmunds-
syni, er á toppi deildarinnar. Þrátt
fyrir það greiddu aðeins tuttugu
áhorfendur aðgang að leiknum.
Þess ber að geta að sennilega laðar
ekkert handboltalið eins marga
áhorfendur að og FH .. .
a hefur Ásgeir hvítaskáld
sent frá sér sína fyrstu plötu og heit-
ir hún „Rokið kemur". Eitthvað fór
nafnið rangt í þá á DV; þegar DV
kynnti plötuna var sagt að þetta
væri rokkplata eins og nafnið benti
til.. .
NAD
ÞAR SEM GÆÐIN HEYRAST
5420 GEISUSPILARI KR. 23.800,-
6325 KASSETTUTÆKI KR. 28.400
3020Í MAGNARI, 2X40 W. KR. 17.800
NAD er fjölþjóðlegt fyrirtæki stofnað og rekið af Hi-Fi
sérfræðingum.
Vegna eigin orðstírs og meðmæla ánægðra notenda auk
stöðugs lofs gagnrýnenda í helstu fagtímaritum hafa NAD
hljómtækin áunnið sér alheimsviðurkenningu fyrir gæði
og gott verð.
Markmið NAD er að framleiða hágæða hljómtæki sem
þjóna sínum tilgangi. Allar tónstillingar eru einfaldar í
notkun og hafa hagnýtan tilgang. Engin áhersla er lögð á
tilgangslitla stillitakka og ljósbúnað sem hækka verð
tækjanna, heldur gæði sem heyrast.
NAD rekur fullkomna rannsóknarstofu í London og leitar
einnig til heimsþekktra ráðgjafa um þróun hagnýtra
nýjunga. Þetta samstarf ásamt þátttöku viðskiptaaðila frá
meira en 30 löndum hefur gert NAD að brautryðjanda sem
sameinar tæknilega fullkomnun og auðvelda notkun.
Þegar þú velur NAD hljómtæki, fjárfestir þú í heyranlegum
gæðum - ekki sjónhverfingum eða óþörfum stillitökkum
- heldur í leiðandi hönnun, völdum framleiðsluhlutum,
nákvæmu gæðaeftirliti og vandaðri og varanlegri smíð.
Þess vegna eru NAD öðruvísi tæki.
Ármúla 17, Reykjavík
sími 688840, 685149, 83176
Sendum viðskiptamönnum okkar og öllum landsmönnum hugheilar jóla-
og nýjárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu
Grindavíkurbær
Reykjavíkurhöfn
Leturval
Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Prentsmiðjan Oddi hf.
GS varahlutir
Búðahreppur
Kassagerð Reykjavíkur
Kaupfélag Suðurnesja