Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 1
METALLICA-AÐDÁENDUR lögðu talsvert á sig í bið eftir miðum á tónleika hinnar goðsagnakenndu þungarokkshljómsveitar fyrir utan Verslun Og- Vodafone í Síðumúlanum í fyrrinótt. Mætti fólk með kúlutjöld og svefnpoka, stóla og annan úti- legubúnað svo helst minnti ástandið á útihátíð. Meðal þeirra sem biðu mættu tímanlega og tryggðu sér öruggt sæti framarlega í biðröðinni var Tinna Heimisdóttir, 15 ára, ásamt félögum sínum. Engin spurning var að henni þótti biðin fyrirhafn- arinnar virði og skipti engu þótt að henni sækti kuldi og hungur. „Nóttin var rosalega erfið en þetta var samt rosagaman,“ sagði hún. „Kuldinn og hungrið var það versta, en það var samt rosafjör. Við vorum með tjald og stóla en bjuggumst ekki við því að það yrði svona kalt. Það var alveg þokka- legur friður hérna fyrir utan smáslagsmál en það var ekkert stórt.“ Hún átti erfitt með að gera upp á milli þeirra fjölmörgu laga sem Metallica hefur sent frá sér á liðnum árum en nefndi þó Unforgiven og Wiskhey in the Jar og undir það tóku félagar henn- ar. Aðeins framar í röðinni var Ragnar Hansen, 15 ára, sem átti kalda nótt en bar sig vel. „Ég mætti á staðinn klukkan 1 eftir miðnætti og þá var fjör hérna. Ég tók bara með mér teppi og var frekar kalt. Ég svaf um nóttina og talaði við fólkið í kring- um mig. Ég sá ein slagsmál en vissi um þrenn.“ Köld nótt hjá aðdáendum „Nóttin var erfið en samt rosagaman“ Metallica-biðröð í Síðumúla 28 fyrir utan OgVodafone. Mætti fólk með kúlutjöld og svefnpoka. Morgunblaðið/Árni Torfason STOFNAÐ 1913 133. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Menntun fagfólks Rætt við Ólaf Proppé rektor Kennaraháskóla Íslands 18 Tímaritið og Atvinna Tímaritið | Flugan  Helgi Snær Lofar góðu  Ódeig  Förðun  Í Cannes Hönnun Föt  Matur og vín Krossgáta Atvinna | Atvinnu- leysi í apríl Fréttir | Atvinna | Rað- og smáauglýsingar  Draumastarfið 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 GLIÐNUN jarðskorpunnar á Íslandi er að mati Árna Hjartarsonar, jarðfræðings hjá Íslenskum orkurannsóknun, meiri en al- mennt hefur verið talið til þessa, eða um 3,4 cm á ári í stað 1,8 cm. Telur Árni að hug- myndir manna um gliðnun berggrunns á Ís- landi, eðli hennar og hraði, þarfnist endur- skoðunar. Árni setur þessar tilgátur fram í dokt- orsritgerð sinni, sem hann varði nýlega við Kaupmannahafnarháskóla, og fjallar um Skagafjarðarmislægið svonefnda og jarð- sögu þess. Hann segir að það kunni að þykja ótrúlegt að gliðnun á Íslandi geti ver- ið meiri en gliðnun á jarðskorpuflekunum sem það tilheyrir. „En þá hlýtur eitthvað að vera bogið við aldursgreiningar á landinu, jarðsögulegt tímatal og segulkvarða. Bergið austanlands og vestan ætti að vera miklu eldra, 25 millj- ón ára eða svo,“ segir Árni. Gliðnunin meiri en áður talið?  Gliðnun landsins/4 GEORGE W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, sagði í gær, að banda- rískur her yrði áfram í Írak eftir fyrirhuguð valdaskipti í Írak 30. júní næstkomandi. Áður hafði komið fram hjá Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, og öðrum fulltrúum helstu banda- manna Bandaríkjanna í landinu, að allt herlið yrði kallað heim, færi ný stjórn fram á það. John Kerry, for- setaframbjóðandi demókrata, sagði í fyrradag, að Bandaríkin ættu aldrei framar að heyja „hent- ugleikastríð“, aðeins ef brýnir þjóðarhagsmunir krefðust þess. Powell sagði á fundi utanríkis- ráðherra G8-ríkjanna, helstu iðn- ríkja heims, í Washington í fyrra- dag, að bandarískur her yrði kallaður heim frá Írak ef væntan- leg stjórn í landinu færi fram á það og undir það tóku utanríkisráð- herrar Bretlands, Ítalíu og Japans. Talsmenn Ástralíustjórnar lýstu yfir því sama í gær en allir tóku fram, að þeir byggjust ekki við slíkri ósk í bráð. Bush tók aftur á móti af allan vafa um það í vikulegu útvarps- ávarpi, að Bandaríkjaher yrði áfram í Írak hvað sem liði tilkomu íraskrar ríkisstjórnar. Sagði hann, að herinn yrði í landinu þar til öruggt yrði, að Írakar væru færir um að tryggja sitt eigið öryggi. Kerry, sem hefur verið heldur tvístígandi í afstöðu sinni til Íraks- stríðsins, sem hann studdi á sínum tíma, lýsti því yfir í fyrradag, að Bandaríkjamenn ættu aldrei fram- ar að heyja það, sem hann kallaði „hentugleikastríð“, heldur aðeins að grípa til vopna þegar öryggi þjóðarinnar krefðist þess. Með því er hann augljóslega að reyna að hasla sér nýjan völl í umræðunni um Íraksstríðið. Ný könnun CNN-Time sýnir, að Kerry myndi fá 51% atkvæða en Bush 46% yrði kosið nú. Þá kemur fram, að nú treysta aðeins 39% kjósenda Bush til að leiða þjóðina. Herinn áfram í Írak Washington. AP, AFP. Kerry segir að aldrei framar megi heyja „hentugleikastríð“  Glæpsamlegar/10  Al-Jazeera/14 JÓN Stefánsson, leigubílstjóri í Reykjavík, lenti í þeirri óvenjulegu reynslu á föstudag, að kjölturakki setti bíl eiganda síns í bakkgír og ók á leigubíl Jóns. Atvikið varð á bensínstöð í Smár- anum í Kópavogi þegar eigandi hundsins hafði brugðið sér inn á bensínstöðina og skilið hundinn eftir í bílnum með vélina í gangi. Jón var að dæla á sinn bíl aftan við hinn bíl- inn og vissi ekki fyrr til en bakkljósin á bílnum fyrir framan hann kvikn- uðu svo í árekstur stefndi. „Ég ætlaði þá að ýta við bílnum en tókst það ekki þar sem hann var í bakkgír,“ sagði Jón. Þegar bílarnir skullu sam- an, þó ekki af miklu afli, hlutust af lítilsháttar skemmdir. „Þegar ég að- gætti hver var undir stýri kom í ljós að þetta var þá hundur á sjálf- skiptum bíl sem hafði bakkað á mig. Eigandanum þótti þetta afar leið- inlegt en við lukum málinu með því að gera tjónaskýrslu á staðnum.“ Hundurinn virðist hafa getað sett sjálfskiptan bíl eiganda síns í bakk- gír með fyrrgreindum afleiðingun. Jón telur ástæðu til að hvetja hunda- eigendur til að drepa á bílum sínum á meðan þeir geyma hunda sína í þeim. Kjölturakki bakkaði á bíl ÍSRAELSKIR hermenn hafa eyði- lagt meira en 100 hús í flóttamanna- búðunum í Rafah á Gaza og skilið meira en 1.000 manns eftir heimilis- laus. Hyggjast þeir koma þar upp einskismannslandi til að koma í veg fyrir vopnasmygl frá Egyptalandi. Frá því uppreisn Palestínumanna gegn hersetu Ísraela hófst fyrir tæp- um fjórum árum hafa Ísraelar brotið niður þúsundir húsa og heimila Pal- estínumanna og hafa hert þær að- gerðir mjög á síðustu dögum eða eftir að 11 ísraelskir hermenn féllu í átök- um við Palestínumenn. Í Rafah-búðunum einum hafa Ísr- aelar eyðilagt heimili 11.000 manna frá því í september 2000. Lýstu þeir því yfir fyrir nokkrum dögum, að þeir hygðust eyðileggja „hundruð“ heim- ila í Rafah. Qorei vill vopnahlé Ísraelar reyndu í gær að ráða af dögum Mohammed al-Hindi, einn helsta leiðtoga Jihad-samtakanna, en sagt er, að hann hafi sloppið lifandi. Ahmed Qorei, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, sagði í gær, að hann hygðist leggja til, að Ísraelar og Palestínumenn gerðu með sér vopnahlé. Ætlar hann að koma því á framfæri við Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en þeir munu ræðast við í Amman í Jórd- aníu. Heimilin eyðilögð í Rafah Gaza. AP, AFP. MIKILL fögnuður braust út í Suður-Afríku í gær er Sepp Blatter, for- seti FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, tilkynnti, að heimsmeist- arakeppnin í knattspyrnu árið 2010 færi fram þar í landi. Verður það í fyrsta sinn, sem hún er haldin í Afríkuríki. Var þetta ákveðið á fundi FIFA í Zürich í Sviss og er það lá fyrir hrópaði s-afríska sendinefndin upp yfir sig af fögnuði auk þess sem þúsundir manna stigu gleðidans í Jóhannesarborg og víðar í S-Afríku. Í s-afrísku sendinefndinni var m.a. Nelson Mandela, fyrrverandi forseti, sem sagði er hann hóf á loft verðlaunagripinn, að honum fynd- ist hann vera orðinn ungur í annað sinn. Þakkaði hann öllum, sem hefðu stutt S-Afríku, og sagði, að þetta væri sigur fyrir alla Afríku. Reuters Mandela fagnar. Heimsmeistarakeppnin haldin í Suður-Afríku Zürich. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.