Morgunblaðið - 16.05.2004, Page 12

Morgunblaðið - 16.05.2004, Page 12
Verkfræðingar telja mögulegt aðleggja hljóðfráa lest á milli NewYork-borgar í Bandaríkjunum ogLundúna, höfuðborgar Bretlands.Lestin þyrfti að sjálfsögðu að ferðast um lönd og höf, en verkfræðingarnir reikna með að hún fari yfir á 6.400 kílómetra hraða á klukkustund. Miðað við þessar for- sendur tæki ferðin aðeins eina klukkustund. Hugmyndum þessum er lýst í aprílhefti bandaríska tímaritsins Popular Science. Þar kemur fram að verkfræðingarnir, sem vísað er til, eru engir aukvisar. Þeir Ernst Frankel og Frank Davidson störfuðu báðir við hinn virta bandaríska tækniháskóla MIT og Davidson tók m.a. þátt í starfi vinnuhóps sem skipulagði lestargöngin um Ermarsund. Þeir segja að engin sérstök vandkvæði séu á að hrinda hug- myndinni í framkvæmd, ef frá er talinn kostn- aðurinn. Hann er áætlaður allt að 175 millj- arðar Bandaríkjadala, eða tæpir 13.000 milljarðar íslenskra króna (13 billjónir kr.) Verði hugmynd þeirra Frankels og David- sons að veruleika geta ferðalangar gengið inn í lest í New York og stigið út úr henni í Lund- únum klukkustund síðar, eða þá í Brussel eða París, kjósi menn að láta lestina ganga svo langt. Lestin mun bruna í norður frá New York, um norðausturhluta Kanada, stinga sér svo í hafið, ná aftur föstu landi á Grænlandi, hverfa aftur í sjó, koma upp á Íslandi og halda þaðan sjóleiðina til Bretlands. 6.400 km hraði Til að ná hvorki meira né minna en fjögur þúsund mílna hraða, eða rúmlega 6.400 km hraða á klukkustund, þarf lestin að ferðast um sérstök göng. Í sjó yrðu þessi göng á 45–90 metra dýpi, en fest við hafsbotninn með sér- stökum ankerum. Ankerin þurfa að vera ræki- lega fest á hafsbotninn, til að koma í veg fyrir að hafstraumar nái að hreyfa þau úr stað. Dýptin er valin með það fyrir augun að þrýst- ingur vegna of mikils dýpis verði ekki vanda- mál. Göngin yrðu svo lofttæmd, en lestin knú- in áfram með segulorku. Lofttæming er nauðsynleg, bæði til að draga úr mótstöðu og vegna þess að án hennar gæti sprenging, þeg- ar lestin ryfi hljóðmúrinn, gert gat á göngin. Þá væri lestinni haldið á lofti á teinum með segulsviði til að minnka mótstöðuna enn frek- ar. Popular Science hefur eftir Frankel og Davidson að ekkert sé því til fyrirstöðu að leggja göng af þessu tagi. Alls konar pípur og kaplar séu lagðir í sjó án nokkurra vand- kvæða. Þá vísa þeir til þess að Norðmenn hafi nýlega kannað kosti þess að leggja neðansjáv- argöng yfir dýpstu firði Noregs og það eina sem hafi komið í veg fyrir lagningu þeirra hafi verið kostnaðurinn. Kostnaðurinn við gerð hljóðfráu lestarinnar frá Bandaríkjunum til Bretlands er áætlaður 1,8 til 3,6 milljarðar króna á hverja mílu, eða 1,6 km. Lagning lestarinnar er ódýrari á landi en í sjó og þess vegna eru áætlanir miðaðar við að hún liggi um Kanada, Grænland og Ís- land, í stað þess að fara þvert yfir Atlants- hafið. Frankel og Davidson segja að hægt væri að prófa göng af þessu tagi, til dæmis í Ontario- vatni. Davidson fullyrðir að hugmyndin verði að veruleika, þótt síðar verði. „Lest yfir Atl- antshaf verður lögð. Við verðum bara að sýna þessu verkefni sama áhuga og við höfðum á að komast til tunglsins.“ Hugmyndin ekki út í hött Þorsteinn Vilhjámsson, prófessor í vísinda- sögu og eðlisfræði við Háskóla Íslands, segist ekki sjá að þessi hugmynd sé á neinn hátt út í hött sem framtíðarmúsík. „Aðalvandamálið er þessi gríðarlegi hraði sem menn hugsa sér að lestin hafi,“ segir hann. „En á hinn bóginn er líka hugsað fyrir ýmsum atriðum sem gera slíkt mögulegt. Þannig yrði lestin í tómarúmi svo að loftmótstaða yrði ekki vandamál. Hug- myndin er að hún yrði knúin með seglum og aðrir seglar héldu henni uppi og þetta hvort tveggja skapar möguleika á miklum hraða. Hylkið sem lestin er í þarf að vera bæði vatns- þétt og loftþétt og þola talsverðan þrýsting þótt það verði ekki niðri á hafsbotni. Hraðinn sem lestin hefur krefst þess að brautin sem hún fer eftir sé afar bein og regluleg og það yrði sjálfsagt ekki vandalaust. Þannig þarf að mæta afar ströngum tæknilegum kröfum og þetta er sjálfsagt ekki hægt í dag eða á morg- un, en kannski eftir markvissa tækniþróun í nokkra áratugi – hver veit?“ Herþota á 3.200 km/klst Hingað til hefur mönnum þótt nóg um hrað- ann á SR-71 Blackbird-herþotunni, sem var reyndar hætt að nota árið 1998. Hámarks- hraði hennar var 2.000 mílur á klukkustund, eða rúmlega 3.200 km. Á vefnum aerospace- web.org kemur fram að árið 1974 setti þotan hraðamet milli New York og London, þegar hún fór þá 5.600 kílómetra leið á tæpum tveimur stundum. Concorde-þotan, sem náði rúmlega 2.000 kílómetra meðalhraða, fór hraðast á milli London og New York á tæpum þremur stund- um. Hljóðfráa lestin myndi fara þrisvar sinn- um hraðar. Vísindamenn velta fyrir sér samgöngum framtíðarinnar Klukkustundar lestarferð frá New York til London Ferðalög milli Bandaríkjanna og Evrópu gætu tekið allverulegum stakkaskiptum ef ráðist yrði í gerð lestarganga milli heimsálfanna, þar sem hljóðfrá lest ferðaðist á milli á 6.400 km hraða á klukkustund. Ragnhildur Sverrisdóttir kynnti sér málið. ’ Lest yfir Atlantshafverður lögð. Við verðum bara að sýna þessu verk- efni sama áhuga og við höfðum á að komast til tunglsins. ‘ ’ Göngin yrðu svo loft-tæmd, en lestin knúin áfram með segulorku. Lofttæming er nauðsynleg, bæði til að draga úr mót- stöðu og vegna þess að án hennar gæti sprenging, þegar lestin ryfi hljóðmúr- inn, gert gat á göngin. ‘ rsv@mbl.is 12 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ’Við þurfum einhvern veginn, ríkis-stjórnin, að útskýra síðan fyrir dönsku ríkisstjórninni og konungsfjölskyldunni hvað hafi gerst, en við vitum ekki hvað við eigum að segja nákvæmlega. Það botnar enginn í þessu.‘Davíð Oddsson forsætisráðherra í viðtali við Sjón- varpið um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar for- seta um að fara ekki í konunglega brúðkaupið í Dan- mörku vegna óvissu um afgreiðslu mikilvægra mála á Alþingi, en fjölmiðlafrumvarpið er nú þar til umræðu. ’Ég hlýt að líta svo á og það skal þástanda að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig.‘Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, krafðist þess í umræðum um fjölmiðlafrumvarpið á þingi að forsætisráðherra kæmi í þingsal og svaraði spurningum. ’ Við gerum okkur grein fyrir þvíhversu mikilvægt það er fyrir kon- ungdæmið að ekki komi til skilnaðar. Í dag vil ég með gleði segja að það mun aldrei henda okkur. Ég finn það í hjarta mínu.‘Mary Donaldson , sem á föstudag gekk að eiga Friðrik ríkisarfa í Danmörku, í viðtali sem danska ríkissjón- varpið sýndi í vikunni. ’ Flokkur minn og kosningabandalagkunna að hafa tapað, en Indland hefur unnið.‘Atal Behari Vajpayee , sem sagði af sér embætti for- sætisráðherra Indlands á fimmtudag, eftir að ljóst varð að kosningabandalagið sem hann leiddi, BJP, tapaði í þingkosningunum í landinu. Sagði Vajpayee úrslitin sýna fram á hve lýðræðishefðin á Indlandi ætti sér djúpar rætur. ’ Þau voðaverk sem lýst hefur verið máá engan hátt verja, né þá sem standa fyrir slíku.‘Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um illa með- ferð á íröskum föngum í ávarpi við útkomu bókarinnar Genfarsamningar. Bókin fjallar um vernd særðra og sjúkra hermanna á vígvellinum, vernd stríðsfanga og vernd almennra borgara á stríðstímum. ’ Ef einhver heldur að ég sé [í Írak] tilað slökkva einhverja elda hefur sá hinn sami rangt fyrir sér.‘Donald Rumsfeld , varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, í óvæntri heimsókn á fimmtudag í Abu Ghraib- fangelsið í Bagdad, þar sem uppvíst varð að misþyrm- ingar á íröskum föngum hefðu átt sér stað. ’ Það er mjög mikil fátækt í Reykja-vík.‘Sigrún Björnsdóttir skólahjúkrunarfræðingur segir mörg börn í Reykjavík líða skort. ’ Ég veit ekki hvernig í fjandanumþetta fólk komst í herinn.‘Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ben Nighthorse , eftir að starfsmenn varnarmálaráðu- neytisins höfðu á miðvikudag sýnt þingmönnum myndir sem sýna misþyrmingar bandarískra her- manna á íröskum föngum og ekki hafa enn komið fyrir almenningssjónir. ’ Það er ekki heppileg staða á markaðisem er drifinn af auglýsingum, að fyr- irtæki á borð við Baug hafi svona mikil völd og áhrif í auglýsingasölu.‘Magnús Ragnarsson , framkvæmdastjóri SkjásEins, um stöðuna á fjölmiðlamarkaðinum. ’ Ég tel réttmætt að ræða, hvernig aðskipun dómara er staðið í ólíkum löndum og jafnvel draga lærdóm af því, sem best hefur reynst, en ítreka að ábyrgðin verð- ur að vera pólitísk að lokum.‘Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á Alþingi um skipan hæstaréttardómara. Ummæli vikunnar Reuters Danski krónprinsinn Friðrik og eiginkona hans Mary krónprinsessa kyssast á svölum Amalíu- borgar eftir að hafa verið gefin saman í Frúar- kirkjunni í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.