Morgunblaðið - 16.05.2004, Page 32
LISTIR
32 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STAÐUR: LAGT AF STAÐ FRÁ: HVAÐA DAGA KLUKKAN: ATH!
Reykjavík Laugardalslaug þrið. og m. 17:30 Stafganga
Hamraskóla mán. og mið. 17:30
Fylkishöll, Árbæjarþrek mán. og mið. / lau. 17:30 / 09:30
Garðabær Íþróttamiðstöðin Ásgarði þrið. og m. 17:30 Stafganga – byrjar 1. júní
Akranes Íþróttam. Jaðarsbökkum mán. og mið. 18:30
Blönduós Íþróttamiðstöð þri. og m. 18:00
Syðra -Laugaland Hrafnagilsskóla þri. og m. 20:30
Hvolsvölllur Leikskólanum mán., mið. og fös. 08:00
Þykkvibær Íþróttahús mán. 21:00
Flúðir Sundlaug m. 20:00
Selfoss Selinu Engjavegi mán. og mið. / lau. 17:30 / 10:00
Hveragerði Sundlaugin Laugaskarði þri. og m. 19:00 Byrjar 20. maí
Vestmannaeyjar Íþróttamiðstöð þri. / lau. 19:30 / 11:00
Vantar þig stuðning til að komast af stað?
F
A
B
R
IK
A
N
20
04
Fimmtánda Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið þann 19. júní 2004 og eru eftirtaldir
göngu- og skokkhópar starfandi fram að hlaupinu. Hóparnir eru opnir hressum
konum og körlum á öllum aldri og er þátttaka án endurgjalds.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa ÍSÍ í síma 514 4000.
Skyndipróf í
draumráðningum
Dagskrá með Sjón - skáldi
mánaðarins og Úlfhildi Dagsdóttur
sunnudaginn 16. maí kl. 14:00 í
Þjóðmenningarhúsinu.
Ókeypis aðgangur.
www.thjodmenning.is
Sunnudagur 16. maí
Stóra garðabókin
er komin út á ný.
Hún hefur að
geyma upplýsingar
um skipulagningu
garða, trjáklipp-
ingu og ræktun
garðplantna. Rit-
stjóri er Ágúst H.
Bjarnason líffræð-
ingur en auk þess lagði stór hópur sér-
fræðinga til efni á sínu sérsviði.
Í fréttatilkynningu segir m.a.: „Bókin
sameinar fræðilega nákvæmni og ein-
falda framsetningu efnisins og hentar
því vel fólki sem langar að spreyta sig á
garðrækt í fyrsta sinn, en jafnframt er
hún mikil fróðleiksnáma fyrir alla þá
sem búa að langri reynslu í garðyrkju.
Gefin eru góð ráð um tilhögun gróð-
ursetningar og leitast við að lýsa ólík-
um tegundum garða. Einnig er leiðbeint
um ræktun í gróðurskálum og sól-
stofum.“
Útgefandi er Forlagið. Bókin er 542
bls., prentuð í Odda hf. Verð: 4.990 kr.
Ræktun
Skessur, skrímsli
og furðudýr við
þjóðveginn er eftir
Jón R. Hjálm-
arsson. Katanes-
dýrið, Lagarfljóts-
ormurinn og
skessan Loppa
eru meðal þeirra
kynjaskepna sem
hafa fylgt þjóðinni
um ár og aldir og verið kveikja margra
og magnaðra sagna. Rifjuð eru upp
margvísleg kynni manna og trölla eða
furðudýra og greint frá kátlegum atvik-
um á fyrri tíð og grimmilegum örlög-
um. Við söguna koma m.a. tröll og
sæskrímsli, ókindur, vatnsskrattar og
urðarbolar.
Þetta er fimmta bók Jóns í þessum
bókaflokki. Öllum sögunum er valinn
búningur og fléttað við þær leiðarlýs-
ingum og náttúrustemmingum.
Útgefandi er Almenna bókafélagið.
Bókin er 214 bls., prentuð í Odda hf.
Björg Vilhjálmsdóttir hannaði bók-
arkápu. Verð: 2.990 kr.
Þjóðsögur
Ritið – Tímarit
Hugvísindastofn-
unar er komið út.
Ritstjórar eru
Guðni Elísson og
Jón Ólafsson.
Meðal efnis eru
frumsamdar fræði-
greinar, þýddar rit-
gerðir, og umfjöll-
un um bækur og listir. Meginþema
heftisins að þessu sinni er dauðinn.
Álfrún Gunnlaugsdóttir fjallar um frá-
sagnir þeirra sem lifðu af vist í fanga-
búðum nasista, Úlfhildur Dagsdóttir
skrifar um uppvakninga sem minni í
nútímamenningu og tengsl þess við
önnur menningarfyrirbæri, Guðni Elís-
son tekur til umfjöllunar ljóðlist Stein-
unnar Sigurðardóttur í tvöföldu ljósi
langrar hefðar tregaljóða í vestrænum
bókmenntum og þess uppbrots á hefð-
inni sem felst í nýrri stöðu konunnar
sem skálds en ekki lengur þess tákns
sem skáldið af karlkyni yrkir um. Birtar
eru myndir af innsetningu Magnúsar
Pálssonar og Helgu Hansdóttur „Viðtöl
um dauðann“ í Listasafni Reykjavíkur
á sl. hausti og ritgerð Gunnars J. Árna-
sonar um innsetninguna. Einnig fjallar
Jón Ólafsson um fimm bækur sem
komið hafa út í Svörtu línunni, nýrri rit-
röð bókaútgáfunnar Bjarts.
Laxdæla saga er til umfjöllunar í
grein Péturs Knútssonar sem túlkar
ástarþríhyrning Guðrúnar Ósvífurs-
dóttur, Kjartans Ólafssonar og Bolla
Þorleikssonar í ljósi írsks fornkvæðis.
Þá er í Ritinu þýðingar á fræðilegum
ritgerðum, m.a. grein heimspekingsins
Michael Theunissens um „nærveru
dauðans í lífnu“ og kafli úr riti bók-
menntafræðingsins Elisabeth Bronfen
Over her dead body sem fjallar um
tengsl dauða, listar og kvenleika.
Útgefandi er Hugvísindastofnun Há-
skóla Íslands. Ritið er 207 síður, prent-
að hjá Oss hf. Ritið fæst í flestum
bókaverslunum. Nánari upplýsingar
má sjá á vefsvæði Hugvísindastofn-
unar www.hugvis.hi.is.
Tímarit
AFTAN á kápunni á Opnun
kryppunnar eftir Oddnýju Eiri
Ævarsdóttur er bókinni lýst sem
kostulegu samblandi af heimspeki-
ritgerð, sjálfsævisögu og fimm
strengja tilraunaleikhúsi og er sú
lýsing í ágætu samræmi við inni-
hald bókarinnar, sem er fyrsta
prósaverk höfundar. Verkið tekur
þó kannski fyrst og fremst mið af
formi sjálfsævisögunnar, enda þótt
Oddný Eir leitist við að þenja
mörk formsins og sprengja að vild.
Um miðbik bókar finnum við þessi
orð:
„Hafði ekki ætlað að byrja að
skrifa sjálfsævisögu mína fyrr en
eftir fimmtugt. Sá mig í anda byrja
þá að reykja, setjast rólega niður
við skrifborð, rifja upp og skipa
niður, búin að koma upp börnum
og orðin ekkja. En vinsamlegur
miðill benti mér á að byrja strax
því annars myndi ég öllu
gleyma.“ (67)
Upphafsmálsgrein bókarinnar
lýsir því hvernig sögukona raðar
saman litlum miðum sem „hafa
enga þýðingu hver um sig en þegar
ég raða þeim saman verður til
mynd [...]“ (7) Aðeins neðar á síð-
unni segir: „Ég gref mig inn í eigin
sögu, inn í þann haug af pappír
sem hefur safnast í kringum mig í
gegnum tíðina, án þess að gruna
hvar ég komist út úr honum.“
Þetta eru kunnuglegar
myndhverfingar fyrir
sjálfsævisagnaritun og
úrvinnslu minninga,
en framhaldið (og bók-
in á enda) kemur
skemmtilega á óvart,
bæði hvað varðar
skemmtileg efnistök
höfundar og stílfimi
sem sjaldséð er í
„byrjandaverki“. Síð-
asta orð hér á undan
hef ég innan gæsa-
lappa því Oddný Eir
er fráleitt byrjandi á
sviði skrifta, hefur
meðal annars skrifað
magistersritgerð í heimspeki og er
að leggja lokahönd á doktorsrit-
gerð í heimspeki og mannfræði,
eins og fram kemur á bókarkápu.
Þessi bakgrunnur er greinilegur í
texta Oddnýjar Eirar. Hann birtist
í margvíslegum hugleiðingum og
tilvísunum sem rekja má til heim-
spekinnar; í ástríðufullum áhuga
sögukonu á fræðagrúski og „mann-
fræðilegu“ sjónarhorni hennar; og
að sjálfsögðu einnig í þeirri stað-
reynd að einn meginþráður verks-
ins er lýsing á hlutskipti sögukonu
sem námsmanns í evrópskum stór-
borgum.
Opnun kryppunnar er hins veg-
ar ekki „fræðirit“ þótt einn hamur
höfundar sé hamur fræðimannsins
og skoðandans. Hamskipti af ýmsu
tagi er eitt af leiðarstefjum bók-
arinnar, enda er undirtitill hennar:
brúðuleikhús. Sögukona verksins
kemur fram í ýmsum gervum, hún
birtist lesanda sem gömul kona (ís-
lensk eða evrópsk), sem bónda-
drengur, sem Oddný
Eir námsmaður og
sem Gosi. Brúðu-
drengurinn síðast-
nefndi er það „sjálf“
höfundar sem er
einna merkingarbær-
ast inn þess heims
sem Oddný Eir skap-
ar í verki sínu og tek-
ur mið af tilraunaleik-
húsinu og eru margar
skemmtilegar lýsing-
ar á „samskiptum“
þeirra Gosa að finna í
bókinni.
„Leikur“ er
kannski besta orðið til
að lýsa frásagnaraðferð Oddnýjar
Eirar; hún leikur sér í textanum,
leikur sér að tungumálinu, hendir
hugmyndum á loft, umsnýr þeim
og sýnir okkur ný brögð. Og með í
leiknum er alltaf húmor, textinn er
víða bráðfyndinn og sprúðlandi
fjörugur. En alvaran er einnig í
spilinu, oft framreidd með íróníu
sem hittir í mark. Því Oddný Eir
er ekki „bara að leika sér,“ henni
liggur ýmislegt á hjarta og hún
hefur ástríðufullan áhuga á því
sem fer (og er) á milli manna; á
mannlífinu í öllum sínum fjöl-
breytileika. Til að nefna hvar borið
er niður í þessum fjölradda texta
má nefna samspil fortíðar og nútíð-
ar er höfundi hugleikið, hlutskipti
sveitanna í útþenslustefnu borg-
anna, samskipti ólíkra þjóðarbrota,
samskipti ungra og aldinna, karla
og kvenna, svo fátt eitt sé nefnt. Á
einum stað segir sögukona: „Ég
kom til Parísarborgar til að ganga
á hólm við gáfumennskuna og
kvenleikann“ (89). Um hvort
tveggja er fjallað á svo ísmeygi-
lega írónískan máta í textanum að
unun er af að lesa.
Af ofansögðu ætti að vera ljóst
að Opnun kryppunnar er engin
venjuleg „sjálfsævisaga,“ heldur er
hér um að ræða verk sem í
heillandi óreiðu sinni, afbyggingu,
margræðni og húmor minnir einna
helst á hinar stórmerkilegu skáld-
ævisögur Málfríðar Einars frá
Munaðarnesi. Oddný Eir er nýr,
beittur penni (sjá bls. 93) sem á er-
indi við samtímann og hefur þegar
frábær tök á þeim meðölum sem til
þarf. Ég trúi að hún eigi eftir að
láta verulega að sér kveða á skáld-
skaparsviðinu í framtíðinni. Ekki
er hægt að ljúka umfjöllun um
Opnun kryppunnar án þess að
ræða aðeins bókartitilinn sjálfan,
en ég læt nægja að vitna beint í
verkið:
„[...] ég leyfi mér að segja að
þegar betur er að gáð séum við öll
hálfgerðir krypplingar. Eins og
úlfaldar geymum við forða okkar,
orðaforða og annan arf í herða-
kistlinum. Og ef við skoðum ekki í
hann af og til og hendum jafnvel
einhverju, þá getur hlaupið ofvöxt-
ur í bak okkar og á herðakistilinn
setjast hrúðurkarlar og sníkjudýr
eins og á hnúfa hvala. Svo visna
hnúfarnir og verður að skera þá af,
á sárið settur plástur merktur Rík-
isspítölunum. Ég er alltaf að velta
fyrir mér hvernig megi opna
kryppuna, hvort sé mögulegt að
fara aðra leið en þá að undirsetja
sig henni eða að losa sig alveg við
hana. Mig grunar að í kryppunni
felist öllu heldur efniviður til að
byggja brýr. Á milli tíma og mála,
á milli borga og heima.“ (35-36)
Leikur, ástríða, alvara
BÆKUR
Skáldævisaga
Oddný Eir Ævarsdóttir, Bjartur 2004,
133 bls.
OPNUN KRYPPUNNAR
Oddný Eir Ævarsdóttir
Soffía Auður Birgisdóttir
NÚ stendur yfir ljósmynda-
sýning útskriftarnemenda
ljósmyndadeildar Iðnskólans í
Reykjavík í anddyri Norræna
hússins.
Viðfangsefnið er sótt í
skáldabrunna, en yfirskrift
sýningarinnar er Ljós í ljóð-
um. Með myndum sínum leit-
ast hópurinn við að myndgera
örfáar línur úr margskonar
dægurlögum og ljóðum sem
flestir kannast við.
Sýningin stendur til 31.
maí.
Sýning út-
skriftarnem-
enda í Nor-
ræna húsinu
FRÉTTIR
mbl.is