Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 48
SKOÐUN 48 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ HELGI Magnús Hermannsson skrifaði grein í Morgunblaðið hinn 9. maí um slys sem varð á kvenna- deild Landspítala fyrir einu og hálfu ári, þegar barn hans og konu hans lést í kjölfar nauðsyn- legrar greiningaraðgerðar og keis- araskurðar sem síðan varð að gera. Hér var um að ræða sjaldgæfan fylgikvilla legvatns- ástungu, sem gerð var til að kanna ástand barns vegna Rhesus-næmingar móður og ákvarða hvenær best yrði að það fæddist þegar rúmur mánuður var eftir í fulla með- göngu. Það er ekki viðeigandi af minni hálfu að ræða í fjöl- miðlum kring- umstæður þessa alvarlega atburð- ar þegar rannsókn stendur yfir á vegum lögregluyfirvalda. Ég verð hins vegar að svara ósönnum full- yrðingum hans nú og reyndar á síðastliðnu hausti um að ég hafi ekki sinnt starfsskyldum mínum og að ég hafi í greinargerð til framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala og landlæknis farið með rangt mál og verið að hylma yfir með samstarfsmanni mínum. Ég verð að fara um þetta nokkr- um orðum vegna þess að ósannar ávirðingar af þessu tagi geta skað- að tiltrú almennings á kvennadeild Landspítala og þær snerta einnig starfsheiður minn. Í þessari grein hans og annarri frá 30. október sl. getur ekki leikið vafi á að hann á við mig þar sem hann talar um „yfirlækninn“. Helgi Hermannsson sagði fljót- lega og ítrekað eftir þennan at- burð hvað hann vildi að yrði um þann lækni sem framkvæmdi leg- vatnsástunguna. Hann hefur ásak- að mig fyrir að hafa ekki tilkynnt atburðinn til lögreglu. Þegar svona atburður gerist er málið kynnt framkvæmdastjóra lækn- inga, sem er yfirmaður allra lækna spítalans. Hann tekur ákvörðun um hvort sá atburður hafi gerst sem geti varðað ákvæði um tilkynningaskyldu samkvæmt læknalögum og lögum um dán- arvottorð og sé þar með gerður að lögreglumáli. Það er túlkunar- atriði hvenær þetta er gert og skilningur flestra að slík tilkynn- ing sé viðeigandi ef eitthvað sak- næmt eða voveiflegt athæfi er tal- ið liggja að baki. Það má öllum vera ljóst að læknir ætlar sér alls ekki að ásettu ráði að skaða ófætt barn við svona greining- araðgerð eða í með- ferð fylgikvillans fram að fæðingu barnsins. Málsatvik lágu fyrir og voru tilkynnt framkvæmdastjóra lækninga án nokk- urrar óeðlilegrar taf- ar. Um leið voru fengnar upplýsingar frá þeim starfs- mönnum sem komu að málinu. Fram- kvæmdastjóri lækninga kallar að venju eftir greinargerð um málið frá yfirlækni, sem í þessu tilviki var ég. Greinargerðin er einnig send landlæknisembættinu. Reynt er að standa vandvirknislega að gerð skýrslu sem þessarar með ít- arlegri yfirferð yfir öll gögn og tímaréttri lýsingu á atburðum í því sambandi. Engu er skotið und- an. Í lokin kemur fram faglegt álit yfirmannsins á því sem gerðist með tilvitnunum í innlend og er- lend gögn ef við á. Komið getur fyrir, eins og í þessu tilviki, að foreldrar eða aðstandendur telji málin í einstökum atriðum hafa gerst með öðrum hætti en sjúkra- skýrslur og framburður starfs- manna deildarinnar gefa til kynna og er þess þá getið eins og við á. Helgi Hermannsson og kona hans voru ekki sátt við niðurstöðu greinargerðarinnar þar sem í henni fólst ekki sá afdráttarlausi dómur yfir lækninum sem þau vildu sjá. Hann telur augsýnilega að í henni sé flest rangt og segir greinargerðina „stuðningsyfirlýs- ingu“ við lækninn. Hann leyfir sér að ýja að því að slíkt sé vani minn. Ég hafna þessum málflutningi með öllu. Alls ekki var dregin fjöður yfir það hversu alvarlegt slysið var og hver þáttur lækn- isins var. Öll gögn málsins fóru til skoðunar hjá yfirmanni lækninga á spítalanum og til landlæknis. Að sjálfsögðu var ég að skrifa skýrslu sem yfirmaður þess starfsmanns sem í hlut átti; ég ekki kemst hjá því. En það er skylda mín gagn- vart framvæmdastjóra lækninga og landlækni að skýra eins vel og unnt er frá málsatvikum og gefa faglegt álit mitt óháð hagsmunum þess eða þeirra sem í hlut eiga. Í skýrslunni er ekki verið að fella dóm, það er verk landlæknis, nefndar um ágreiningsmál skv. lögum nr. 97/1990 eða dómstóla. Skoðun foreldra barnsins á máls- atvikum var einnig ljós í umfjöllun málsins hér á spítalanum. Landlæknir leitaði einnig álits íslensks yfirlæknis og háskóla- kennara sem starfar erlendis og hefur mikla þekkingu á þessu sviði. Álit hans studdi að um slys hefði verið að ræða, en ekki sak- næmt athæfi sem yfirstjórn spít- alans bæri að kæra til lögreglu. Þetta nefnir Helgi ekki nú, en hann lét að því liggja í október sl. að ekki væri að marka þessa álits- gerð þar sem þessi læknir væri annaðhvort nemandi minn, sam- starfs- eða venslamaður. Hann hefur aldrei verið nemandi minn eða samverkamaður og ekki er um nein vensl eða sérstök vin- áttutengsl að ræða. Ég vissi ekki einu sinni að hann hefði verið fenginn til að líta á málið af land- lækni. Helgi Hermannsson hefur kært málsatvik til ríkissaksóknara. Hann nefnir sjálfur að hann hafi sagt yfirmönnum spítalans að hann ætlaði sér að halda áfram umfjöllun í fjölmiðlum um málið ef stjórn spítalans bregðist ekki við Ósannindum svarað Reynir Tómas Geirsson svarar Helga Magnúsi Hermannssyni ’Öllum ætti að veragleðiefni að á einum áratug hefur tekist að fækka dauðsföllum barna í meðgöngu og fæðingu um helming.‘ Reynir Tómas Geirsson BORGAHOLTSBRAUT 31- OPIÐ HÚS Í dag frá kl. 14-17 taka Bjarni og Sóley á móti áhugasömun og og sýna íbúð sína, sem er góð 126 m² efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr. Fjögur svefn-herbergi. Parket og flísar. Áhv.11 millj. og viðbótarlán. Verð 18,9 millj. Lárus, sölumaður Bifrastar, verður á staðnum og heitt verðu á könnunni. HAMRABORG 20 - OPIÐ HÚS Í dag frá kl. 16-18 taka Katrín og Magnús á móti gestum og sýna þeim íbúð sína, sem er mjög rúmgóð og falleg 104 m² 4ra herbergja íbúð á 1. hæð, ásamt stæði í bílageymslu. Parket og flísar. Útsýni. Öll þjónusta í göngufæri. Áhv. 8,2 millj. húsbr. og 3,4 millj. viðbótarlán. Íbúðin er til afhendingar í júlí. Áhugaverð íbúð sem vert er að skoða. Bárður Tryggvason, sölumaður, sími 588 4477 - valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30 Sumarbústaðir - opin hús á sunnudag Skorradalur - Dagverðarnes Til sýnis og sölu fallegur sum- arbústaður á fallegum útsýnis- stað á einkalóðasvæði í landi Dagverðarness. Bústaðurinn er 52 fm auk rúmgóðs bað- stofulofts og 8 fm geymslu. 70 fm verönd. Glæsilegt útsýni yfir Skorradalsvatn og vestur á Snæfellsjökul. Réttur til að vera með bát og stangveiði í vatninu fylgir. Húsið er fullbúið utan ásamt verönd. Að innan er bústaðurinn íbúðarhæfur en ekki fullfrágenginn. Eigendur verða á staðnum á sunnudag milli kl. 14 og 17. Verð 7,8 m. Sími eiganda 861 7349. Öndverðarnes - Grímsnes Til sýnis og sölu fallegur ný- standsettur ca 50 fm sumar- bústaður í Grímsnesinu, stað- settur skammt frá Þrastar- lundi. Bústaðurinn er allur ný- standsettur að innan sem ut- an. Hitaveita og rafmagn. Skemmtileg staðsetning. Stutt í alla þjónustu, sund, verslun og fl. Tveir golfvellir í fimm mínútna fjarlægð. Eigandi verður á staðnum á sunnudag milli kl. 14-17. Verð tilboð. Sími eiganda 897 7550. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Skólavörðustígur 6b, 2. hæð TVÆR NÝJAR ÍBÚÐIR LAUSAR STRAX Nýtt á skrá - Tvær sérlega glæsilegar og algjörlega endurnýjaðar 2ja og 3ja herb. íbúðir á 2. hæð í steinsteyptu húsi, byggðu 1986. Húsið er vel staðsett bakatil, neðarlega á Skólavörðustíg. Önnur íbúðin er tæpir 70 fm og hin tæpir 80 fm. Stærri íbúðin er með rúmgóðu hjónaherbergi, stofu og borðstofu. Minni íbúðin er með svefnherbergi og rúmgóðri stofu og sérþvottahúsi innan íbúðar. Íbúðirnar eru bjartar og vel skipulagðar. Stórar svalir fylgja báðum íbúðum. Staðsetningin er sér- lega góð m.t.t. verslunar og þjónustu. Íbúðunum fylgir sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Verð 15,9 millj. Allar nánari upplýsingar gefur Hákon í síma 898 9396 og Pálmar í síma 896 1163. Tvö glæsileg verslunar- og skrifstofuhús Frjálsi Fjárfestingarbankinn hefur falið okkur að selja þessi tvö glæsilegu verslunar- og skrifstofuhús. Hlíðasmári 3 er fimm hæðir samtals að gólffleti 4.238,6 fm og er til afhendingar nú þegar undir innréttingar. Húsið er frágengið að utan með vandaðri utanhússklæðningu. Hlíðasmári 1 er fimm hæðir samtals að gólffleti 3.203,7 fm og afhendist í fokheldu ástandi. Eignirnar henta vel fyrir hvers kyns skrifstofur, verslanir og þjónustu. Húsin eru sérlega vel hönnuð. Fyrirkomulag er gott og nýting húsanna góð. Hægt er að tengja húsin saman, enda liggja þau samsíða. Aðkoma og staðsetning húsanna er mjög góð í vaxandi viðskiptahverfi með fögru útsýni. Húsunum fylgir fjöldi bílastæða. Allar nánari upplýsingar veita: HLÍÐASMÁRI 1 OG 3 - KÓPAVOGI FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.