Morgunblaðið - 16.05.2004, Side 55

Morgunblaðið - 16.05.2004, Side 55
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 55 Hlutfallið milli litanna í íslenska fánanum er sýnt á þessari mynd. Hve stór ætti fáninn að vera ef hvítu línurnar eru 15 cm breiðar? Skrifaðu svarið á svar-línuna í fermetrum (m²) með tveimur aukastöfum. Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er á hádegi föstu- daginn 21. maí. Ný þraut birtist sama dag kl. 16:00 ásamt lausn þessarar og nöfnum vinningshafanna. Svör þarf að senda á Netinu. Slóðin er: www.digranesskoli.kopavogur.is. Þrenn verðlaun eru veitt og eru þau tilgreind þar. Svar síðustu þrautar (7.–14. maí) er: 2000 kr. Stærðfræðiþraut Digranes- skóla og Morgunblaðsins Pera vikunnar                        !    "                                 !     " #            " $ "  %          ! "# $ % &' ($$ & )%*+%( +))'              Op ið Söluturn í eigin húsnæði Höfum í einkasölu mjög góðan söluturn í eigin húsnæði. Staðsetning misvæðis í Reykjavík. Grill, lottó, eigin sam- lokugerð. Opunartími 8.00-19.00. Góð velta. Upplýsingar einungis á skrifstofunni. ÚTBORGUN AÐEINS 300 ÞÚS OPIÐ HÚS Í DAG Á LAUGARNESVEGI 106 Vorum að fá í einkasölu fallega og vel skipulagða ca 40 fm ósamþykkta 2ja herbergja íbúð í kjallara á þessum eftirsótta stað. Nýlegt parket. Nýtt eldhús. Allt innbú fylgir. Verð kr. 6,8 millj. Áhvílandi lán kr. 6,5 millj. Afborg- un ca 50 þús. per mán. Íbúðin er laus til afhendingar. VERIÐ VELKOMIN Opið hús Fiskislóð 18 Viðskiptahúsið Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík Sími 566 8800 Fax 566 8802 Gsm 863 6323 Til sölu eða leigu glæsilegt hús- næði við Fiskilóð 18. Þetta er snyrtileg eign við höfnina með verðlaunalóð sem getur hentað undir margskonar starfsemi s.s. skrifstofur, verslun og þjónustu eða léttan iðnað. Húsnæðið er laust nú þegar og tilbúið til notkunar. Skipti á ódýrari eða dýrari eign koma til greina. Jóhann Ólafsson verður með opið hús þriðjudag og miðvikudag frá kl.17.30-18.30 www.vidskiptahusid.is DILBERT mbl.is Í VIKUNNI var haldin í Reykja- vík árleg ráðstefna Evrópudeildar myndavélaframleiðandans Sam- sung. Hana sóttu rúmlega 60 um- boðsmenn Samsung-myndavéla í Evrópu og að auki um 30 blaða- menn, ritstjórar og ljósmyndarar margra helstu ljósmyndatímarita álfunnar. Fram kom að markaðs- hlutur stafrænna myndavéla í Evr- ópu og Bandaríkjunum sé nú um helmingur myndavélamarkaðarins, en búist er við um 50% aukningu í sölu stafrænna véla árið 2004, og ætlar Samsung sér drjúgan hlut- deild í þeirri söluaukningu. Sér- staka viðurkenningu hlaut Peter Winkler frá Ungverjalandi fyrir mestu söluaukningu á síðasta ári þar í landi. Kynnt var ný lína Samsung- myndavéla, eða V-línan svokallaða. Flaggskipið verður V-50, lítil, en fullkomin 5 megapixla myndavél með hreyfanlegum skjá, sem einn- ig er hægt að taka á vídeómyndir. Í haust koma síðan 6 og 7 mega- pixla vélar á markað. Áætlar Sam- sung að markaðssetja 16 nýjar myndavélar á árinu. Eftir ráðstefnuna hélt allur hóp- urinn í tíu fjallabílum upp að Langjökli, með stuttri viðkomu við Gullfoss . Þeystu síðan ráðstefnu- gestir á vélsleðum upp á jökulinn og fengu sér hressingu í Skálpa- nesi. Í bakaleiðinni var komið við á Geysi og Þingvöllum og lýsti Jonghum Park, varaforseti Sam- sung, mikilli aðdáun sinni á Íslandi og að þessi ráðstefnuferð væri ein- stök og eftirminnileg. Í svipaðan streng tóku aðrir ráðstefnugestir. Þorsteinn Garðarsson, sölustjóri Samsung hjá Hans Petersen, sem sá um alla skipulagningu, sagði að ráðstefnuferð þessi hefði heppnast sérlega vel og greinilegt væri að Samsung væri í mikilli sókn á myndavélamarkaði Evrópu. Samsung heldur ráðstefnu í Reykjavík Morgunblaðið/Ómar Varaforseti Samsung, Jonghum Park, situr á vélsleðanum á Langjökli, en ráðstefnugestum þótti jöklaferðin hin besta tilbreyting. Við hlið hans er Boo Cheol Lee. Standandi eru Jake Kim, sölustjóri í Bretlandi, Sang Mok Lee, sölustjóri í Þýskalandi, og Brian Lee. Fremstur er Þorsteinn Garð- arsson, sölustjóri Samsung á Íslandi, sem skipulagði ráðstefnuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.