Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 59

Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 59
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 59 Jens Ingólfsson, rekstrarhagfræðingur, sölustjóri fyrirtækja, Salómon Jónsson, löggiltur fasteignasali. Fyrirtæki til sölu Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is . Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:  Stór trésmiðja með sérhæfða framleiðslu. Mjög tæknivædd. Mikil verk- efni og góð afkoma.  Flottur sportbar í góðu hverfi með nýjum innréttingum og tækjum, m.a. þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 m. kr. á mánuði. Tilvalið fyrir samhent hjón.  Rótgróið fyrirtæki í álsmíði og viðgerðum. Traust föst viðskipti. Tilvalið sem viðbót við vélsmiðju eða skyldan rekstur.  Stórt iðnfyrirtæki í byggingariðnaði. Góð afkoma.  Söluturninn Hagamel. Auðveld kaup.  Þekkt sportvöruverslun í miðbænum. Gott merki.  Vélaverkstæði á Akranesi með fjölbreytta þjónustu.  Lítil líkamsræktarstöð. Búin fullkomnustu tækjum. Auðveld kaup.  Útflutningsfyrirtæki með íslenskar afurðir. Rekstrarhagnaður 30 m. kr. á ári. Hentugt til sameiningar við svipað fyrirtæki.  Stór og mjög vinsæll pub í úthverfi. Vinsæll sport- og helgarstaður.  Dagsöluturn í verslunarmiðstöð.  Íþróttavöruverslun með þekkt merki og góð viðskiptasambönd. Sami eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.  Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyr- ir „saumakonur“ með góðar hugmyndir.  Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu. Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.  Þekkt barnavöruverslun. Góð umboð.  Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum búið, í eigin húsnæði á góðum stað.  Fasteignasala í fullum rekstri. Gott húsnæði og allur búnaður. Þrír sölu- menn og stækkunarmöguleikar.  Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.  Tvær litlar tískuverslanir í Kringlunni.  Þekkt lítið framleiðslufyrirtæki í matvælageiranum. Hentugt til samein- ingar.  Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús- næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur. Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.  Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar. Meðeign kemur til greina.  Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu. Ársvelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd bygg- ingariðnaði. Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu fyrirtækjadeildar: www.husid.is . Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen), sími 533 4300, GSM 820 8658. G Ú ST A Fjarnám Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK65 námsáfangar í boði og fer fjölgandi: • Upplýsinga- og fjölmiðlasvið • Tölvusvið • Rafiðnasvið • Meistaraskóli með áherslu á starfstengt nám Innritun stendur yfir Skoðaðu möguleikana! http://fjarnam.ir.is • Taka loft utan frá - enginn súrefnisskortur. • Afgasið fer út - engin mengun. • Fáanlegar með og án blásturs. • Sérlega hljóðlátar. • Með bestu nýtingu á eldsneyti. • Truma-verksmiðjan er 50 ára. • Mikil reynsla. • Öryggi samþykkt af þýskum yfirvöldum og CE-merkt. • Margar gerðir. • Með eða án blásturs. • Sjálfvirkar með thermostati. Gasmiðstöðvar Fyrir báta • fellihýsi • hjólhýsi húsbíla • sumarbústaði o.fl. frá Fáið sendan bækling Þilofnar án blásturs. Fyrir sumarbústaði með blæstri. Hægt að leiða hitann í mörg herbergi með börkum og á veröndina á kvöldin. Með blæstri. Hægt að staðsetja fyrir utan sumarhús og taka hitann inn með börkum. BÍLARAF Auðbrekku 20S. 564 0400 - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 Súpersól til Salou 27. maí frá kr. 29.995 Salou er einn fallegasti strandbærinn í Suður-Katalóníu héraði á Spáni, einungisum 100 km frá Barcelona. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur og fólk á öllumaldri. Í Salou er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður Spánar, gott úrval veit-ingastaða, fjölbreytt næturlíf og rúmlega kílómeterslöng aðgrunn, gullin strönd.Bókaðu núna og festu þér Súpersólartilboð. Þremur dögum fyrir brottför færðusvo að vita hvar þú gistir í fríinu þínu í Salou. Val um viku eða tveggja vikna dvöl. Verð frá kr. 29.995 á mann M.v. 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000 á mann. Verð frá kr. 39.990 á mann M.v. 2 fullorðna í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000 á mann. ÞEGAR gengið var til forsetakosn- inganna í Rússlandi nýverið, þótti fyrirfram ljóst hver yrði yfirburða- sigurvegari kosninganna, og stórsig- ur Putin Rússlandsforseta kom því fáum á óvart. Í kosningunum hlaut hann meira en 70 % atkvæðanna. En jafnvel þó menn séu sáttir við endur- kjör hans, þá draga margir í efa að kosningarnar hafi verið mjög lýðræð- islegar, enda er talið að næstum allir fjölmiðlanir hafí stutt hann. Lýðræð- ið í Rússlandi á sér mjög stutta hefð, en lýðræðishefðin er mun lengri á Ís- landi, þess vegna held ég að Íslend- ingar vilji ekki rússneskt form á ís- lensku forsetakosningunum í vor. Og það er eins með Ólaf Ragnar Gríms- son að líklega eru flestir Íslendingar sáttir við endurkjör hans í forseta- embættið, og nýleg skoðanakönnun bendir reyndar til þess að hann sigr- aði, með eins miklum yfirburðum og Putin gerði í Rússlandi. En ábyrgð íslensku fjölmiðlanna í kosningabar- áttunni er mikil. Íslensku lýðræði er ekki gerður neinn greiði með því að ýta hinum frambjóðendunum út í kuldann og láta sem þeirra framboð skipti engu máli. Ég vona að allir frambjóðendurnir í íslensku forseta- kosningunum fái góða kynningu á jafnréttisgrundvelli í íslensku fjöl- miðlunum og ekki síst í Morgun- blaðinu. Frjáls skoðanaskipti eru nauðsyn- leg í lýðræðisþjóðfélagi og fer sú um- ræða mikið fram á síðum dagblað- anna, og á vafalaust eftir aukast, eftir því sem nær dregur forsetakosning- um. Og sem áskrifandi Morgunblaðs- ins fagna ég því að ólíkar pólitískar skoðanir hafa fengið rými á síðum blaðsins, og vona ég að blaðið haldi áfram sínu striki í þeim efnum. BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON, myndlistarkennari, Finnlandi. Ábyrgð fjölmiðlanna Frá Björgvini Björgvinssyni: HINN 11. maí 1955 eða fyrir 49 árum fékk Kópavogur kaupstað- arréttindi. Frá þeim degi hefur Kópavogur haldið þennan dag há- tíðlegan sem afmælisdag bæjarins. Lista- og menningarráð Kópavogs ákvað í fyrra að bæta um betur og halda árlega hátíð, Kópavogsdaga, í tengslum við afmæli bæjarins. Með því móti mætti efla vitund bæjarbúa um hið öfluga menning- ar-, fræðslu- og félagslíf bæjarins. Kópavogsdagar voru nú haldnir í annað sinn með metnaðarfullri dagskrá sem hófst sunnudaginn 2. maí og lauk á afmælisdegi Kópa- vogs, 11. maí. Er óhætt að segja að Kópavogs- dagar hafi verið vel heppnaðir og íbúar bæjarins kunnað vel að meta framtakið. Fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í dagskránni, bæði beint og með því að sækja hina ýmsu viðburði. Þannig lögðu fjöl- margir Kópavogsbúar sitt af mörkum til að skapa hátíðar- stemmningu í bænum. Þá rúmu viku sem dagarnir stóðu var boðið upp á fjölmarga lista- og menningarviðburði, s.s. listsýningar og gjörninga í tengslum við þær, fjölmarga tón- leika og fræðsluerindi. Kynnt var starfsemi stofnana bæjarins í menningu og listum. Leikskólar, skólar, íþróttafélög og félagsmið- stöðvar. Þeir fjölmörgu listamenn sem búa og starfa í bænum opn- uðu vinnustofur sínar fyrir gestum þannig að fólk gat fylgst með list- sköpuninni og tekið listamennina tali. Skipulagssýning var í Héraðs- skjalasafninu þar sem sýndar voru loftmyndir, skipulagsuppdrættir og mannlífsmyndir. Lögð var áhersla á hinn hraða vöxt bæjarins og breytta ásýnd. Tónleikar voru haldnir í Salnum, í kirkjum og í Félagsheimilinu. Er þá aðeins fátt eitt nefnt. Eitt það ánægjulegasta við Kópavogsdaga er að allir ald- urshópar tóku beinan þátt í dag- skránni. Þakkir Þrátt fyrir að Lista- og menn- ingarráð hafi umsjón með Kópa- vogsdögum hefði aldrei tekist að setja upp jafn metnaðarfulla dag- skrá nema með víðtækri samvinnu og góðri verkstjórn. Nær allar nefndir og stofnanir bæjarins komu að dagskránni þar sem for- stöðumenn og fjöldi starfsmanna lögðu sig alla fram um að gera hana sem glæsilegasta. Þá er ónefnd þátttaka fjölda einkaaðila, bæði einyrkja og fyrirtækja. Fyrir hönd Lista- og menning- arráðs þakka ég öllum þeim sem tóku þátt í Kópavogsdögunum fyr- ir þeirra mikla og góða framlag. Jafnframt þakka ég þeim frábæru listamönnum sem fram komu, fræðimönnum og fleirum fyrir þeirra þátt í að gera Kópavogs- daga að sannkölluðum hátíðardög- um. Það er von okkar að Kópa- vogsdagar hafi veitt íbúum bæjarins tækifæri til að kynnast bænum sínum betur og því fjöl- breytta menningarstarfi sem þar fer fram. Fjölmargir hlakka þegar til Kópavogsdaga að ári en þá fagnar bærinn 50 ára afmæli. SIGURRÓS ÞORGRÍMSDÓTTIR, bæjarfulltrúi í Kópavogi og for- maður Lista- og menningarráðs. Vel heppnaðir Kópavogsdagar Frá Sigurrós Þorgrímsdóttur: Úrslitin úr enska boltanum beint í símann þinn Moggabúðin Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.