Morgunblaðið - 16.05.2004, Page 61

Morgunblaðið - 16.05.2004, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 61 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert óvenjuleg og litrík persóna sem leggur mikla áherslu á útlit þitt. Níu ára tímabili er að ljúka í lífi þínu. Þú verður þó hugsanlega ekki vör/var við breyting- arnar fyrr en í október. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur hugann við fjármálin og eigur þínar í dag. Þú ættir þó að gefa þér tíma til að íhuga hvað skiptir þig mestu máli í lífinu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það eru tvær plánetur í merk- inu þínu og því er þetta góður tími til að huga að líðan þinni og útliti. Láttu þínar eigin þarfir hafa forgang. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú ert fjölhæf/ur í eðli þínu og vilt helst alltaf hafa mörg járn í eldinum. Þú þarft engu að síður að gefa þér tíma til hvíldar. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Hikaðu ekki við að sýna vini þínum trúnað í dag. Þú munt sjá hlutina í skýrara ljósi eftir að hafa heyra álit annarra á fyrirætlunum þínum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú nýtur meiri athygli en þú átt að venjast og ættir því að leggja aukna rækt við útlit þitt. Fólk er að fylgjast með þér. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Reyndu að skapa þér nýja möguleika í dag. Þú þarft að víkka út sjóndeildarhring þinn. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Gerðu eitthvað fyrir sjálfa/n þig í dag. Farðu í líkamsrækt eða gefðu þér tíma til að elda hollan og góðan mat. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Flestir sporðdrekar eiga það til að vera svolítið yfirþyrm- andi þótt margir þeirra geri sér enga grein fyrir því. Gefðu þér tíma til að skoða sam- skipti þín við þína nánustu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefur þörf fyrir að ganga frá lausum endum í lífi þínu og ættir endilega að láta verða af því. Þú getur komið ótrúlega miklu í verk. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur mikla möguleika á að lenda í spennandi ástaræv- intýri þessa dagana. Ekki láta ótta þinn við höfnun halda aft- ur af þér. Það er ekkert gull- tryggt í þessu lífi. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gerðu eitthvað til að fegra heimili þitt eða bæta sam- skiptin innan fjölskyldunnar í dag. Láttu nánasta umhverfi þitt hafa forgang. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er mikið að gera hjá þér þessa dagana og það er til- gangslaust fyrir þig að reyna að breyta því. Þú munt hugs- anlega fara í stutt ferðalag eða verja óvenjumiklum tíma með systkinum þínum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LITLA KVÆÐIÐ UM GIMBIL Lambið mitt litla lúrir úti í túni, – gimbillinn minn góði, gullhornum búni. Kringum okkur greri gras, grænt og frítt að líta. – Ég tók með honum í tjóðurbandið til þess að slíta. – – – Jón Magnússon LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 16. maí, verður sextugur Þórir Svansson, prentari hjá Morgunblaðinu. Hann dvelst um þessar mundir ásamt eiginkonu sinni, Matt- hildi Þórarinsdóttur, og nánustu fjölskyldu í orlofs- heimili bókagerðarmanna í Miðdal. 50 ÁRA afmæli.Fimmtudaginn 20. maí verður fimmtug Jó- hanna E. Sveinsdóttir, Borgartúni 30a. Hún mun ásamt eiginmanni sínum, Bruno Hjaltested, gleðjast með vinum og vandamönn- um að kvöldi 19. maí. TROMPIÐ er gisið og það er spurning hvaða prjóni eigi að beita til að stoppa í götin. Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ÁD5 ♥Á43 ♦D965 ♣ÁKG Suður ♠97653 ♥8 ♦ÁKG ♣D1042 Vestur Norður Austur Suður – – 3 hjörtu Pass Pass Dobl Pass 4 spaðar Pass 6 spaðar Allir pass Vestur kemur út með hjartaníu. Hvernig er best að spila? Slemman vinnst auðvitað ef vestur á kóng annan eða þriðja í trompi, en kannski má taka aðra möguleika inn í myndina. En það er lítill tilgangur í því að leggja niður spaðaás, því sagnhafi þolir hvort eð er ekki stak- an kóng í austur. Spurn- ingin er fyrst og fremst sú hvort spila eigi litlum spaða á drottninguna, eða fara af stað með níuna. Tromp- hundar suðurs eru ekki al- veg verðlausir. Ef vestur á G10-tvíspil verður að spara níuna og spila smáu á drottningu, en nían út strax dekkar áttuna staka í bak- hönd: Norður ♠ÁD2 ♥Á43 ♦D965 ♣ÁKG Vestur Austur ♠KG104 ♠8 ♥92 ♥KDG10765 ♦932 ♦1074 ♣8653 ♣97 Suður ♠97653 ♥8 ♦ÁKG ♣D1042 Vestur leggur á níuna og áttan fellur undir drottn- inguna. Síðar getur sagn- hafi spilað millihundi að heiman og tryggt að vestur fái aðeins einn trompslag. Ef ekkert er vitað um spil andstöðunnar er heldur betra að spila upp á G10- tvíspil í vestur, en hér hef- ur austur sýnt sjölit í hjarta og þá snýst dæmið við. Nían gæti líka dugað í stöðu þar sem vestur á G104 og austur K8. Vestur býst við að suður eigi 987 og gæti kosið að leggja ekki á. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. Rf3 c5 2. c4 Rf6 3. Rc3 e6 4. g3 b6 5. Bg2 Bb7 6. O-O Be7 7. d4 cxd4 8. Dxd4 Rc6 9. Dd3 O-O 10. e4 d6 11. Hd1 Db8 12. b3 Hd8 13. Bb2 a6 14. Hd2 Re5 15. De3 Dc7 16. Had1 Red7 17. Rd4 Bf8 18. f4 He8 19. Kh1 Hac8 20. h3 Db8 21. g4 h6 22. g5 hxg5 23. fxg5 Rh7 24. h4 g6 25. Rf3 Ba8 26. Dd4 e5 27. De3 Rc5 28. Rd5 Hcd8 29. Rh2 b5 30. Rg4 Rd7 31. Bf1 He6 32. Hh2 Bg7 33. Hdd2 Hf8 34. h5 Dd8 35. cxb5 Dxg5 36. Dh3 Rc5 37. hxg6 Dxg6 38. Hdg2 Rg5 Staðan kom upp á pólska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Varsjá. Mikhail Krasenkov (2609) hafði hvítt gegn Tomazs Markowski (2605). 39. Rgf6+! Bxf6 hvítur hefði mátað eftir 39... Hxf6 40. Re7#. 40. Hxg5! og svartur gafst upp enda mát óumflýjanlegt. Mikil skákhátíð sem Skákfélagið Hrókurinn og UMFÍ standa fyrir hefst í dag á Vestfjörðum. Nánari upp- lýsingar um hana er að finna á skak.is. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Vorsprengja 40% afsláttur 17., 18. og 19. maí af kjólum, dressum og blússum Meyjarnar, Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 553 3305. FRÉTTIR Háteigskirkja Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æskulýðs- félag Árbæjarsafnaðar, með fund í safn- aðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek- ið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Seljakirkja. Mánudaginn 17. maí er að- alsafnaðarfundur Seljasafnaðar kl. 20. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnu- dagskvöld, kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í dag er vitnisburðarsamkoma kl. 14. Vitn- isburðir, lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára börn á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir velkomnir. Nánari upplýs- ingar á www.kefas.is. Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu- maður Richard Dunn frá Bandaríkjunum. Almenn samkoma kl. 16:30. Ræðumaður Greg Mundiz frá Bandar. Gospelkór Fíla- delfíu leiðir söng. Fyrirbæn í lok samkomu. Barnakirkja á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir. Bænastundir alla virka morgna kl. 06:00. filadelfia@gospel.is www.- gospel.is VEGURINN: Fjölskyldusamkoma fellur nið- ur vegna „Lækningadaga“. Bænastund kl. 19.30. Almenn samkoma kl. 20. Högni Valsson prédikar, lofgjörð, vitnisburðir, fyr- irbænir. Allir velkomnir. www.vegurinn.is. Safnaðarstarf LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA- HÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKTIN miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek- ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif- stofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar- hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús. KVENNAATHVARF: Athvarf og viðtalsþjónusta fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Opið allan sólarhringinn, 561 1205. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 ÁRIÐ 1990 var einn pistill hér í Mbl. helgaður þessu danskættaða orðasam- bandi, sem vissulega er þekkt talmál í íslenzku og hefur lengi verið. Þar sem ég heyri, að fréttastofa Ríkisútvarpsins og aðrir fjölmiðlar virðast hafa dá- læti á notkun þess í frétt- um sínum um þessar mundir, ætla ég að rifja ýmislegt upp um þetta orðalag. Þegar verið var að kenna mér íslenzku á fyrri hluta síðustu aldar, var uppi sú stefna, að vara við dönskuskotnu máli, sem borizt hafði til okkar með dönskum embættis- og verzlunarmönnum, enda var margt annað og betra orðaval til í máli okk- ar. Nú er aftur á móti svo komið, að enskan flæðir inn í mál okkar, en jafn- framt hefur kunnáttu í dönsku (og öðrum Norður- landamálum) hrakað að sama skapi – því miður. Er svo komið, að danskan hef- ur af erlendum málum, sem kennd eru ungum nemendum okkar, þokað fyrir enskunni úr fyrsta sæti í annað sæti. En hvað kemur í stað orðtaksins: í því augnamiði? Á það var bent í fyrrgreindum pistli og þau orð eiga ekki síður við í dag. Þetta er sem sé bein tökuþýðing úr dönsku, en þar heitir það i det øjemed og merkir ná- kvæmlega hið sama og hjá okkur. Hér höfum við hins vegar annað orðalag, svo sem í því skyni eða í þeim tilgangi eða blátt áfram til þess. Ef einhver kæmist svo að orði, að hann hafi farið einhverja ferð í því augnamiði að kynna sér land og þjóð sem bezt, yrði mál hans enn íslenzku- legra, ef hann segði eða skrifaði sem svo, að ferðin hefði verið farin í þeim til- gangi eða í því skyni að kynna sér land og þjóð sem bezt. Ég held menn hljóti að finna hér á nokk- urn mun – eða er ekki svo? Sími 557-4977 og tölvu- fang jaj@simnet.is – J.A.J. ORÐABÓKIN Í því augnamiði SAMSTARFSRÁÐHERRAR Norð- urlanda funduðu nýverið með tveimur forustumönnum Evrópusambands- ins, þar sem meðal annars var farið yfir framtíðaruppbyggingu á Eystra- saltssvæðinu, en eftir að Eystrasalts- ríkin og Pólland eru orðin aðilar að Evrópusambandinu fellur svæðið að stórum hluta undir þróunaráætlanir sambandsins. Siv Friðleifsdóttir, samstarfsráð- herra Norðurlanda, sem stjórnaði fundunum þar sem Ísland fer með formennskuna nú, sagði að fundirnir hefðu gengið mjög vel og verið gagn- legir. Fyrst hefði verið um hefðbund- inn fund samstarfsráðherranna að ræða, en síðan hefðu þau fundað með Michael Leigh, aðstoðarfram- kvæmdastjóra Evrópusambandsins, sem hefði með samstarf ESB út á við að gera og rætt hefði verið við hann um Eystrasaltssvæðið sem svæði í Evrópu. Farið hefði verið yfir hags- muni Norðurlandanna á Eystrasalts- svæðinu og samstarf við Eystrasalts- ríkin. Siv sagði að þau hefðu síðan einnig hitt Gunther Verheugen, einn fram- kvæmdastjóra ESB, sem hefði haft með stækkunarferli ESB að gera, en hann færi einnig með samskipti ESB við næstu nágranna sína. Sérstaklega hefði verið rætt við hann um sam- starfið við Rússland, en þar væri um mikla sameiginlega hagsmuni Norð- urlandanna og ESB að ræða þar sem Rússland væri eina ríkið við Eystra- salt sem ætti ekki aðild að Evrópu- sambandinu. Mikilvægt væri að ESB og Norðurlöndin ynnu saman að því að efla tengslin við Rússland og styrkja það á vettvangi umhverfis- mála og félagsmála, og að ný efna- hagsleg landamæri yrðu ekki til við stækkun ESB milli Eystrasaltsríkj- anna og Rússlands. Við Íslendingar ættum auðvitað hagsmuna að gæta í þessum efnum eins og gagnvart um- hverfismálum á Kólaskaga, svo dæmi væri tekið. Hagvöxtur fyrirsjáanlegur Fram kemur í frétt af þessu tilefni að norrænt grannsvæðasamstarf tek- ur miklum breytingum eftir stækkun ESB. Aðild Eystrasaltsríkjanna að ESB leiðir til þess að þau fá fjármagn úr evrópskum þróunarsjóðum og að ýmsar viðskiptahindranir hverfa. Einnig kemur fram að Norðurlönd- in líta á málefni Eystrasaltssvæðisins sem sitt hagsmunamál og að þau stefni að því að treysta samstarf við grannsvæðin á vettvangi ESB. Sam- ráð við Eystrasaltsríkin verður eflt og á vettvangi Norrænu ráðherranefnd- arinnar er jafnframt verið að endur- skoða samstarf við grannsvæðin og verður ný stefna í málefnum þeirra borin undir atkvæði á Norðurlanda- ráðsþingi í haust. Samstarfsráðherrar Norðurlandanna funduðu með forustumönnum ESB Uppbygging á Eystrasaltssvæðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.