Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 22
AUSTURLAND
22 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Egilsstaðir | Hundrað tuttugu og
átta einstaklingar, fyrirtæki og
stofnanir taka þátt í mannlífs- og
atvinnusýningunni Austurland
2004, sem haldin verður í Íþrótta-
miðstöðinni á Egilsstöðum 10.–13.
júní.
Sýningin er því sú langstærsta
sem haldin hefur verið á Austur-
landi og ein af stærstu sýningum
sem haldnar verða hérlendis á
árinu.
Búist er við um 8 þúsund gest-
um og er sýningarsvæðið rúm-
lega 2000 fermetrar, íþróttasal-
urinn, tvö útitjöld og svæði
utandyra.
Fulltrúar allra
atvinnugreina eystra
Sýnendur á Austurland 2004
eru allir með starfsemi á Austur-
landi og koma alls staðar að úr
fjórðungnum. Á sýningunni verð-
ur því hægt að skoða starfsemi
úr öllum atvinnugreinum sem
stundaðar eru á Austurlandi.
Mikil samstaða er á meðal
Austfirðinga um að gera sýning-
ardagana ógleymanlega. Fjöldi
viðburða verður í fjórðungnum
þá daga sem sýningin stendur yf-
ir; dansleikir, sýningar, stórt
golfmót á Ekkjufellsvelli o.fl. og
ljóst að sýningargestir geta valið
sér margt til afþreyingar á Aust-
urlandi utan við sjálfa sýninguna.
Sérstök aðstaða verður fyrir börn
og leiktæki sett upp á sýning-
arsvæðinu. Flugfélag Íslands býð-
ur sérkjör á flugi austur vegna
sýningarinnar.
Forseti Íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, setur Austur-
land 2004 fimmtudaginn 10. júní
kl. 17.00.
Verð aðgöngumiða á sýninguna
er 500 kr. fyrir 12 ára og eldri en
ókeypis er fyrir börn yngri en 12
ára.
Ein stærsta atvinnulífssýning ársins
hefst á fimmtudag á Austurlandi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Líflegt á Egilsstöðum næstu dagana: Stórsýningin Austurland 2004 verður
opnuð á fimmtudag og vísast hægt að busla þar í miklum upplýsingapolli.
Búist við 8 þúsund
gestum – 128 sýnendur
Egilsstaðir | Á laugardag voru
hundrað ár liðin frá fæðingu Þór-
arins Þórarinssonar, fyrrum skóla-
meistara á Eiðum. Af því tilefni var
í Minjasafni Austurlands opnuð
sýning þar sem gefur að líta ýmsa
muni frá lífi og starfi Þórarins, ekki
síst í Eiðaskóla.
Rannveig Þórhallsdóttir, for-
stöðumaður Minjasafnsins, segir að
sýningin sé helguð Þórarni og konu
hans, Sigríði Sigurþórsdóttur.
„Þetta eru gripir úr eigu ættingja
og frá Alþýðuskólanum á Eiðum
sem Minjasafnið sótti þegar Sig-
urjón Sighvatsson keypti Eiða, ljós-
myndir, skjöl og allt mögulegt sem
tengist lífi og starfi hjónanna.“
Margir góðir gripir
á sýningunni
Af merkum gripum tiltekur
Rannveig stórt veggteppi, sem Þór-
arinn teiknaði og Sigrún saumaði,
en það hefur að geyma bæjar- og
sýslumerki og landvættina, auk ein-
kunnarorða Eiðaskóla; Manntak,
mannvit og manngöfgi. Þá hefur
standklukka eftir Ríkarð Jónsson
staðið um tíma í safninu, sú var gef-
in Eiðaskóla 1933 og er góður grip-
ur. Á sýningunni eru jafnframt mál-
verk frá ættingjum, máluð af
Þórarni og mörg hver merkileg, að
sögn Rannveigar.
Arndís Þorvaldsdóttir, sem sett
hefur sýninguna upp ásamt Önnu
Valgerði Hjaltadóttur, segir að sýn-
ingin spanni langan tíma, allt frá
fæðingarvottorði Þórarins frá árinu
1904. „Það brann á Eiðum 1960 og
þá brunnu flest málverkin hans, en
hér eru verk frá sjötta áratugnum,
ljósmyndir úr skólalífi á Eiðum og
persónulegir hlutir svo sem frá
skólaferli Þórarins.“
Sýningin verður opin fram eftir
sumri og er opin á aðgangstímum
safnanna í húsinu.
Í tilefni aldarminningar um Þór-
arinn efndu fjölskylda og aðstand-
endur hans til samkomu og kaffi-
samsætis í Valaskjálf á
Egilsstöðum. Þar stigu m.a. á stokk
Sigurður Blöndal, Heimir Þór
Gíslason, Birna Stefánsdóttir og
Sveinn Þórarinsson, auk fyrrum
nemenda og samstarfsmanna Þór-
arins.
Sýning á munum tengdum lífsstarfi Þórarins Þórarinssonar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þórarinn teiknaði og Sigrún saum-
aði: Hluti geysistórs veggteppis
saumað með góbelínsaumi í Ála-
fossáklæði með íslensku bandi
jurtalituðu. Það tók Sigrúnu um
hálft ár að sauma það.
Manntak, mann-
vit, manngöfgi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Unnið að uppsetningu sýningar: Anna V. Hjaltadóttir og Arndís Þorvalds-
dóttir við líkan af Alþýðuskólanum á Eiðum.
LANDIÐ
Ólafsfjörður | Sjóminjasafnið í
Ólafsfirði var opnað með form-
legum hætti föstudaginn 4. júní sl.
Halldór Blöndal, alþingismaður og
forseti Alþingis, opnaði það og
flutti ávarp af því tilefni. Færði
hann m.a. safninu gamlan hákarla-
krók.
Mikil vinna er nú að baki hjá
þremur einstaklingum sem hafa átt
veg og vanda að safninu, sem er sett
upp í nafni Sjómannadagsráðs
Ólafsfjarðar. Hlynur Guðmundsson,
sjómaður á Mánabergi ÓF, hefur
verið aðalfrumkvöðullinn en honum
til aðstoðar hafa verið þær Greta
Ólafsdóttir og Nína Ingimarsdóttir.
Fjölmarga hluti og muni er að
finna á safninu, myndir, líkön af
skipum, fatnað sjómanna, verkfæri
smá og stór, net og línu, tæki í
gegnum áratugina og má sjá
tækniþróunina. Þarna er meira að
segja rúmlega hundrað ára gömul
trilla, Krían ÓF, sem Sigurjón Jón-
asson, sjómaður í Ólafsfirði, átti, en
sonur hans, Bjarni sem búsettur er
á Akureyri, gerði upp fyrir mörg-
um árum. Krían er norskur bátur
sem skilinn var eftir aldamótaárið
1900 en nýttist í næstum því heila
öld. Ýmislegt fleira úr sögu útgerð-
ar í Ólafsfirði hefur verið sett upp,
t.d. fréttir og greinar af ein-
staklingum, skipum, stórum við-
burðum eins og skipsskaða eða
frækilegri björgun, sbr. Stíganda
árið 1967.
Sjóminjasafnið er til húsa í Að-
algötu 16, verður opið í allt sumar.
Aðgangseyrir er 300 kr. fyrir full-
orðna en 100 kr. fyrir börn.
Halldór Blöndal opnaði Sjóminjasafnið á Ólafsfirði
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Halldór Blöndal afhendir Hlyn Guðmundssyni, sjómanni og frumkvöðli safnsins, gamlan hákarlakrók til varðveislu.
Færði safninu gamlan
hákarlakrók að gjöf
Raufarhöfn | Sjómannadagurinn
var haldinn hátíðlegur á Raufar-
höfn í gær, laugardag, skv. venju.
Hátíðahöldin hófust á helgistund á
kirkjukantinum, þar sem Sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir predikaði. Að
lokinni helgistund var boðið upp á
siglingu. Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar kom eftir hádegið og var sýnd
bæjarbúum. Að því loknu sýndi
áhöfn þyrlunnar björgun úr sjáv-
arháska. Fimmþrautakeppni á milli
sjómanna og landkrabba var haldin
síðdegis, með sigri sjómanna, sem
sóttu sér liðstyrk í raðir land-
krabba. Að því loknu var boðið til
grillveislu. Hátíðarkvöldverður var
haldinn á hótelinu og að því loknu
lék hljómsveitin Kokteill í Félags-
heimilinu Hnitbjörgum fram á nótt.
Gott veður var á Raufarhöfn, hæg-
ur vindur og skýjað.
Sjómannadagurinn
haldinn hátíðlegur
á Raufarhöfn
Hvolsvöllur | Ungur Sunnlendingur
Þórður Freyr Sigurðsson, frá Há-
túni í Vestur-Landeyjum, hefur fest
kaup á tímaritinu Gróandanum.
Þórður hefur nú þegar gefið út
fyrsta tölublaðið af þessu vel þekkta
tímariti sem brátt verður tvítugt að
aldri. Þórður hefur þegar umbylt út-
liti blaðsins en segir að efni þess
verði með svipuðu sniði en í bland
við faggreinar ætlar hann að leggja
áherslu m.a. á garðaskoðun og
skemmtilegar lausnir við hönnun
garða. Hann ætlar að þróa blaðið í
takt við tíðarandann. Tímaritið kem-
ur út á tveggja mánaða fresti og er
ætlað að höfða til áhugafólks um
garða og matjurtarækt og skógrækt
auk þess sem áhersla verður lögð á
lífræna ræktun, uppskriftir og fleira.
Gefur út Gróandann