Morgunblaðið - 13.06.2004, Page 23
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 23
1
BUR‹ARÁS
Fjárfestingarfélagi› Bur›arás hefur
flutt starfsemi sína úr Pósthússtræti
í Sigtún 42 vi› hli› Ásmundarsafns.
Símanúmer fyrirtækisins er
sem fyrr 578 7800.
Bur›arás
flytur
í Sigtúni›
Sigtúni 42 105 Reykjavík
Sími 578 7800 Fax 578 7819 www.burdaras.is
LANDSÞING Bindindissamtak-
anna IOGT, sem haldið var helgina 5.
og 6. júní, furðar sig á og leggst ein-
dregið gegn frumvörpun nokkurra
alþingismanna um lækkun áfengis-
kaupaaldurs og rýmkun aðgengis að
áfengi og segir í ályktun samtakanna
að slík frumvörp séu í algerri and-
stöðu við samþykktir Alþjóða heil-
brigðissamtakanna (WHO) og heil-
brigðisáætlun Alþingis, sem
samþykkt var 2001.
Á landsþinginu, sem haldið var í
Galtalækjarskógi, var Gunnar Þor-
láksson endurkjörinn formaður sam-
takanna. Þá voru allir stjórnarmenn
endurkjörnir, utan Ingu G. Aradótt-
ur, sem ekki gaf kost á sér til endur-
kjörs, en í hennar stað kom Anna
Sigríður Karlsdóttir.
Meðal gesta á þinginu komu frá
Svíþjóð þau Torsten Friberg, fram-
kvæmdastjóri IOGT-NTO og Cath-
arina Sandberg og Susanne Wiesel-
gren sem báðar eru í stjórn
barnahreyfingar IOGT-NTO þar í
landi. Þá voru, við hlið Landsþings-
ins, haldin þing Barnahreyfingar
IOGT og Ungmennahreyfingar
IOGT.
Árni Einarsson, framkvæmda-
stjóri Fræðslumiðstöðvar í fíkni-
vörnum flutti á þinginu erindi um
stöðu bindindishreyfingarinnar í nú-
tíð og framtíðarmöguleika hennar.
Fjallaði hann í því samhengi einkum
um Samstarfsráð í forvörnum, mót-
un stefnu þess og væntanlegan
samning við stjórnvöld, en sex bind-
indisfélög eiga aðild að ráðinu. Þá
reifaði Gunnar Þorláksson ýtarlega
skýrslu stjórnar IOGT um marg-
þætt starf á ýmsum sviðum.
Meðal annarra ályktana Lands-
þingsins má telja þakkir til toll- og
löggæslumanna fyrir árvekni í bar-
áttu gegn innflutningi og sölu ólög-
legra fíkniefna, þakkir til ríkisstjórn-
arinnar fyrir framlag til Sam-
starfsráðs í forvörnum, auk
áminningar um að áfengi sé það
fíkniefni sem mestum skaða valdi.
Ályktun IOGT um áfengiskaupaaldur
Andstætt samþykkt-
um WHO og Alþingis
SKÓFLUSTUNGA að starfs-
mannaþorpi Fjarðaáls á Reyðarfirði
verður tekin 8. júlí nk. Þá tekur
Bechtel við lóðinni og hefur form-
lega undirbúning byggingafram-
kvæmda. Að sögn Hrannar Péturs-
dóttur, starfsmanna- og kynningar-
stjóra hjá Fjarðaáli, er nú verið að
koma á fót tveimur samráðshópum
með fulltrúum fjölbreytts hóps
hagsmunaaðila.
„Annað er samstarfsverkefni
Landsvirkjunar og Alcoa og er hlut-
verk hópsins að skilgreina mæli-
kvarða til að hægt sé að mæla þau
áhrif sem virkjunin, flutningslínurn-
ar og Fjarðaál munu hafa á sam-
félagið, efnahaginn og náttúrulega
umhverfið á svæðinu,“ segir Hrönn.
„Stefnt er á að þessi hópur skili af
sér í október. Hinn hópurinn er
settur af stað að fengnu samráði við
Fjarðabyggð og samanstendur af
fulltrúum ýmissa hagsmunaaðila úr
sveitarfélaginu. Sá hópur hefur það
hlutverk að meta þau áhrif sem til-
vist Fjarðaáls mun hafa á sveitarfé-
lagið, finna hvar málin og tækifærin
eru og vinna hugmyndir að því
hvernig við getum tekið á þessum
málum saman á sem bestan hátt. Sá
hópur mun væntanlega starfa til
frambúðar, þó að við endurskoðum
mögulega hlutverk, verklag og sam-
setningu hópsins þegar starfsemi
Fjarðaáls hefst,“ segir Hrönn.
Áhrif álvers í Fjarða-
byggð krufin til mergjar
Reyðarfirði. Morgunblaðið.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn