Morgunblaðið - 13.06.2004, Blaðsíða 34
MINNINGAR
34 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HAFDÍS RÍKARÐSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 1. júní.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ríkarður Óskarsson, Júlíanna Ólafsdóttir,
Guðrún Óskarsdóttir, Þórarinn Víkingur,
Helgi Þór Óskarsson, Arnheiður Magnúsdóttir,
Hafþór Óskarsson, Elísabet Magnúsdóttir,
Óskar Halldór Óskarsson, Nicole Óskarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
TORFI GUÐBJÖRNSSON
hárskerameistari,
Neðstutröð 8,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðju-
daginn 15. júní kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans,
er bent á Einstök börn (sími 699 2661).
Anna Marín Kristjánsdóttir,
Katrín Guðbjörg Torfadóttir, Bragi Jónsson,
Kristján Guðmundur Torfason, Bára Benediktsdóttir,
Kristbjörn Geir Torfason, Soffía Guðjónsdóttir,
Karl Gunnar Torfason, Ingveldur Teitsdóttir,
Kristleifur Gauti Torfason, Kristín Birna Angantýsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og bróðir,
BJARNI HERJÓLFSSON
flugumferðarstjóri
frá Vestmannaeyjum,
Kleppsvegi 120,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 15. júní kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Minningarsjóð líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, sími 543 1151.
Unnur Ketilsdóttir,
Auður Bjarnadóttir,
Guðbjartur Herjólfsson og fjölskylda,
Guðjón Herjólfsson og fjölskylda.
Elskulegur faðir okkar, sonur og bróðir,
SNORRI LÁRUS ÖLVERSSON,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði þriðjudaginn 15. júní kl. 15.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem
vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfé-
lag Íslands.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á deild 11G
á Landspítalanum við Hringbraut
Edda og Andrea Caroline Snorradætur,
Edda Snorradóttir, Ölver Guðnason,
Guðni, Vilborg, Unnur og María Ölversbörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓHANNES KRISTBERG ÁRNASON,
Gullsmára 11,
Kópavogi,
lést fimmtudaginn 10. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Áróra Helgadóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Sigurður Hall-mannsson fædd-
ist í Vörum í Garði
2. júlí 1910. Hann
lést í Sjúkrahúsi
Suðurnesja 30. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Hallmann
Sigurðsson, f. á
Svarfhóli í Miðfirði
10. ágúst 1885, d.
30. september 1968
og Ráðhildur
Ágústa Sumarliða-
dóttir, f. á Breiða-
gerði á Vatnsleysu-
strönd 11. ágúst 1886, d. 3.
október 1965. Þau eignuðust sjö
börn, tvö dóu í bernsku en upp
komust, auk Sigurðar: Matthías,
f. 9. desember 1908, d. 9. febr-
úar 1987, bjó í Keflavík, Óskar,
f. 12. febrúar 1920, d. 1. apríl
1968, bjó í Keflavík, kona hans
er Laufey Finnsdóttir frá Ólafs-
firði, Sigurlaug f. 17. október
1925, d. 20. febrúar 2003, bjó í
Keflavík, gift Sigurði Gíslasyni,
f. 16. júní 1911, og Þorbjörg, f.
17. janúar 1916, d.
14. september 2003,
bjó í Króki í Ölfusi.
Sigurður kvænt-
ist Jóneu Helgu Ís-
leifsdóttur, f. á
Neðra-Hofi í Garði
9. júní 1911, d. 7.
maí 1988. Foreldr-
ar hennar voru Ís-
leifur Jónsson sjó-
maður, f. í mars
1880, d. 26. júlí
1932 og Júlíana
Bjarney Bjarna-
dóttir húsmóðir, f.
12. júlí 1882, d. 27.
janúar 1937. Börn Sigurður og
Jóneu Helgu eru: Ágústa, f.
17.6. 1933, Ísleifur Júlíus, f.
13.1. 1935, d. 19. júlí 1998, Guð-
rún Ágústa, f. 18.1. 1938, Hall-
mann Bjarni, f. 24.9. 1943, d.
6.2. 1944 og Hjörtur Sigurjón, f.
9.4. 1950. Barnabörn eru 21,
barnabarnabörnin 44 og barna-
barnabarnabörnin sjö.
Útför Sigurðar var gerð í
kyrrþey frá Útskálakirkju 5.
júní.
Þegar ég rifja upp kynni mín sl.
35 ár af tengdaföður mínum Sigga
Hall þá er margs að minnast.
Hann var litríkur persónuleiki sem
fór ekki alltaf troðnar slóðir. Hann
var baráttumaður og þrátt fyrir
háan aldur þá fylgdist hann vel
með bæði þjóðmálum og heims-
málum. Hann las mikið og þuldi oft
heilu bókarkaflana eða vitnaði í
persónur úr sögunum. Hann sagði
líka sögur af samferðamönnum sín-
um, margar ógleymanlegar. Það
eru mörg gullkornin sem hann
skilur eftir sig. Siggi hafði húmor
og var æringi á góðri stundu, en
tryggur og traustur þegar á
reyndi. Hann mundi tímana
tvenna. Oft sagði hann okkur frá
lífsbaráttunni hér áður fyrr, þegar
það þótti gott að eiga í sig og á.
Hann mundi t.d. frostaveturinn
mikla 1918, þá lítill drengur, en
hann var fæddur 2. júlí 1910. Í frá-
sögnum var hann eiginlega lifandi
„Öldin okkar“.
Siggi hafði mikinn lífsneista, hélt
sér vel, léttur á fæti, beinn í baki,
fínn í tauinu, notaði hatt, tók í nef-
ið og hélt heimili einn, eftir að
tengdamamma dó árið 1988. Hann
var ungur í anda, keyrði bíl og
heimsótti mikið ættingja og vini og
fylgdist vel með öllum, ekki síst
unga fólkinu. Hann var góður
mannþekkjari og sá eitthvað gott
við alla. Hann mótaðist af harðri
lífsbaráttu á fyrri hluta síðustu
aldar og var vinstrisinnaður en
raunsær, hann deildi ekki bara á
andstæðingana, líka á sína menn,
ef honum líkaði ekki. Hann var
elsti maður á framboðslista á land-
inu í síðustu bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum, þá 91 árs.
Fyrri hluta starfsævinnar var hann
við sjómennsku og verkamanna-
störf í landi. Seinni hlutann var
hann vörubílstjóri, en lét af störf-
um rúmlega áttræður. Hann starf-
aði að verkalýðsmálum og var for-
maður Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Gerðahrepps á árunum 1954–
1964 og 1969-1974. Á þeim árum
var verið að semja og nudda um
hluti sem þykja sjálfsagðir í dag.
Ég vil þakka Sigga samfylgdina
og allt það sem hann var mér og
minni fjölskyldu. Við eigum eftir
að rifja upp sögur og góðar sam-
verustundir með honum um ókom-
in ár. Siggi lifði með reisn og dó
með reisn.
Útför hans fór fram í kyrrþey
frá Útskálakirkju 5. júní.
Erna Björnsdóttir.
Elsku afi minn. Þá er þessum
kafla lokið, þú ert farinn í annan
heim, og ég verð að sætta mig við
það. Það er tómahljóð í mér, ég
sakna þín, það vantar svo mikið,
ekki bara í hjartað mitt, líka í um-
hverfið.
Þú varst alltaf þarna, þegar ég
var lítil, þegar börnin mín voru lítil
og líka þegar barnabörnin mín eru
lítil. Það voru forréttindi fyrir okk-
ur afkomendur þína að fá að hafa
þig svona hjá sér, hressan, kátan,
frískan eins og unglamb í dag-
legum samskiptum, og ég þakka
almættinu fyrir það. Það var nú oft
fjör hin seinni ár við matarborðið á
Melbrautinni hjá ykkur mömmu
pabba og Guðrúnu Ágústu. Þar var
mikið rætt og sprellað og hlátra-
sköll heyrðust þegar maður kom
þar inn úr dyrunum. Þar er þín
sárt saknað.
Hann sonarsonur minn sagði
mér það í kvöld að hann afi Siggi
hefði farið til Guðs til að láta laga
hjartað sitt, svo hann gæti hoppað
á einni löpp með honum. Afi, veistu
ég trúi því alveg.
Í mínum huga ertu bæjarsómi,
labbandi glerfínn og sperrtur með
hatt í sparifötunum, yfir Garð-
brautina niður Gerðaveginn, í búð-
ina eða til Atla og Svövu, eins og
þú ættir þennan bæ skuldlausan og
sennilega hefur þú átt það, alla-
vega fólkið sem þar býr.
Þú kenndir mér svo margt, elsku
afi minn, ég kann að hlaða milli-
vegg úr steini, steypa gólfplötu,
setja niður kartöflur og slíta upp
rabarbara, ganga upprétt og bjóða
heiminum byrginn, þú sagðir mér
að ég væri sérstök, módelsmíð,
bara eitt eintak til og ég hef og ég
ætla að trúa því, ég ætla líka að
trúa því að Garðurinn hafi verið
byggður upp utan um þig og jafn-
vel að Garðskagaviti hafi verið
gerður til að þú mundir alltaf rata
til okkar barnanna þinna og allra
afkomendanna, ég er eins og þú,
afi minn, ég trúi því sem mér hent-
ar.
En af því að ég var mikið hjá
þér síðustu vikuna hér á þessari
hótel Jörð, þá sætti ég mig við það
að þú farir þessa ferð yfir í annan
heim.
Ég elska þig, afi minn, og ég
sakna þín, ég held minningunni um
yndislegan mann á lofti, á eftir að
hlæja með fólkinu okkar oft að
prakkarastrikunum þínum.
Góða ferð. Saknaðarkveðja.
Þín dótturdóttir
Anna Sigrún Karlsdóttir.
Alltaf þegar maður fréttir um
andlát vinar og samstarfsmanns
um árabil setur mann hljóðan.
Það rifjast upp margar góðar
stundir sem við áttum til sjós og
lands. Ég minnist þess þegar ég
óskaði þér til hamingju með 90 ára
afmælið. Hvað ég var þér þakk-
látur að fá þig sem landformann en
það var til þess að við fórum að
fiska vel á línu. Áður en þú komst
um borð höfðu aflabrögðin ekki
verið til að hrópa húrra fyrir.
Þegar ég rifjaði upp þessa tíma
við þig þá vildir þú gera lítið úr
þessu en það er mín hjartans sann-
færing að þú varst bjargvættur
minn á sínum tíma. Þú vannst vel
og samviskusamlega.
Manstu eina vertíðina þegar við
fengum ekki beitusíld nema frá
fyrra ári en þér leist vel á þessa
síld og tókst eins mikið og þú hafð-
ir pláss fyrir í frystiklefanum. Síð-
an kom í ljós að það fiskaðist mun
betur á þessa gömlu síld og þá
vildu menn fá hana til baka en þú
varst nú ekki alveg á því enda
fengum við mörg tonn út á þetta
framtak þitt.
Það var oft glatt á hjalla þegar
hægt var að koma þér í gang til að
segja frá því spaugilega því þú
sagðir svo vel frá og menn hlógu
mikið. Þann tíma sem þú varst
með mér til sjós og lands voru
bestu tímarnir á mínum ferli og þú
áttir sannarlega þátt í því.
Það er margs að minnast frá
þessum góðu árum og ég er þakk-
látur fyrir að hafa fengið að kynn-
ast þér og notið þinna krafta enda
fann ég að í þér átti ég góðan og
traustan vin.
Ég bið þann sem öllu ræður að
taka vel á móti þér og hamingja og
blessun megi fylgja þínum afkom-
endum.
Gísli Jóhannesson.
SIGURÐUR
HALLMANNSSON
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við and-
lát og útför
STYRKÁRS GEIRS SIGURÐSSONAR,
og virðingu sýnda við minningu hans.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11E Landspít-
alanum, Karitas og séra Braga Skúlasyni fyrir
veitta aðstoð.
Laila Andrésson,
Alfred J. Styrkársson, Elísabet J. Þórisdóttir,
Alexandra I. Alfredsdóttir,
Sigurður E. Styrkársson,
Indriði I. Styrkársson.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.