Morgunblaðið - 13.06.2004, Page 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigur›ur
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Guðrún móðir Júlíönu var fædd á
Hömrum í Þverárhlíð í Borgarfirði
árið 1876. Hún fór til Vesturheims
aldamótaárið 1900 og sá Ísland aldrei
aftur. Gísli maður hennar var fæddur
vestanhafs og kynntust þau Guðrún í
Gimli í Kanada. Heimili þeirra Guð-
rúnar og Gísla var þar sem heitir Up-
ham í Norður-Dakóda. Þar fæddust
og ólust upp þeirra börn. Í Upham
var fjölmenn íslensk nýlenda og lærði
Júlíana fyrst að tala ensku 12 ára
gömul og kenndi svo yngri systkinum
sínum það tungumál. Ekki er mér
kunnugt um skólagöngu Júlíönu en
snemma fór hún að vinna utan heim-
ilis. Lengst stóð heimili Júlíönu í
Portland í Oregon-fylki. Eftir að hún
varð einstæð móðir vann hún við
verslunarstörf, aðallega hjá einu fyr-
irtæki eða í samfellt 27 ár. Segir það
sína sögu um hvern mann hún hafði
að geyma.
JÚLÍANA INGIBJÖRG
GÍSLADÓTTIR
✝ Júlíana Ingi-björg Gísladóttir
fæddist 29. ágúst
1909. Hún lést 9. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Guðrún Jónsdóttir
og Gísli Benedikts-
son. Júlíana var elst
sex barna þeirra
hjóna. Ólöf systir
hennar, f. 1914, er
enn á lífi.
Árið 1933 gekk
Júlíana í hjónaband
með Lester Ostby,
norskættuðum
manni. Þau eignuðust tvö börn,
Silvíu og Lioyd. Lester og Júlíana
skildu eftir 15 ára sambúð.
Til Íslands kom Júl-
íana fyrst árið 1973 með
systur sinni Ólöfu. Þær
áttu að sjálfsögðu fjölda
frændfólks hér á höfuð-
borgarsvæðinu og einn-
ig á Akureyri. Kom sér
vel að kunna íslensku og
geta hindrunarlítið rætt
við hvern sem var.
Ferðuðust þær töluvert
um landið. Þeim var
boðið upp í Borgarfjörð
á bernskustöðvar móð-
ur þeirra. Þótti þeim
mikið til þeirrar ferðar
koma. Nokkrum árum
seinna kom Júlíana aftur hingað og þá
ásamt Sólrúnu (Rúnu) systur sinni og
Leifi bróður sínum. Það ferðalag var
og vel heppnað.
Við Júlíana vorum að skyldleika
systrabörn. Eftir okkar fyrstu kynni
1973 hófum við að skrifast á. Hún
skrifaði á mjög skemmtilegri íslensku
og hafði fallega rithönd. Hennar síð-
asta bréf er dagsett í mars á þessu
ári. Þá hafði hún orðið að yfirgefa
heimili sitt og flytjast á elliheimili
vegna þverrandi heilsu. Var auðfund-
ið á orðum hennar að þessari breyt-
ingu undi hún illa. En dvöl hennar á
elliheimilinu varð ekki löng, aðeins
nokkrir mánuðir.
Júlíana var skarpgreind kona og
létt í lund, hafði af mörgu gaman svo
sem garðrækt og bóklestri en í mestu
uppáhaldi var „baseball“. Fylgdist
Júlíana af miklum áhuga með þeirri
íþrótt.
Júlíana vann hvers manns hylli
sem henni kynntist og slíkra er gott
að minnast.
Björn Helgason.
Elsku afi, mikið á ég
eftir að sakna þess að
geta ekki hitt þig aftur.
Þú varst alltaf svo góð-
ur við alla og dæmdir
aldrei neinn ranglega.
Já afi, það eru til ótal mörg falleg orð
sem lýsa þér því þú varst svo einstak-
ur maður og eitt er víst að ég mun búa
að því alla ævi að hafa átt þig fyrir afa.
Þú fylgdist vel með fjölskyldu þinni
og sást svo sannarlega til þess að við
héldum sambandi og hittumst. Já, afi,
margar eru minningarnar og eitt er
víst að jóladagur verður ekki sá sami
aftur, en við sem eftir erum höldum
vonandi áfram að hittast því það var
þér svo mikilvægt. Minningarnar
streyma fram í hugann þegar ég
hugsa til þín og þær er gott að eiga
þegar erfitt reynist að sjá björtu hlið-
arnar á lífinu. Ég veit það afi minn að
þú hefur nú fengið að hitta syni þína,
Þóri og Smára, aftur og ykkur mun
líða vel saman. Ég veit að amma sakn-
ar þín líka mikið og munum við hugsa
vel um hana fyrir þig. Elsku afi minn,
ég kveð þig með miklum söknuði og
skal sjá til þess að stelpurnar mínar
geymi minningu um góðan afa ávallt í
brjósti sér.
Elsku amma, mamma, Þórir, Sig-
urjón og fjölskyldur, Guð veri með
ykkur öllum.
Rannveig Arnarsdóttir.
Ungum er það allra best
að óttast Guð sinn herra.
Þeim mun viskan veitast mest
og virðing ekki þverra.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku afi.
Þú lokaðir augunum og sofnaðir
hinum eilífa svefni og nú þurfum við
að kveðja þig. En það er erfitt að
koma kveðjunni á blað, tárin streyma
niður kinnar og hugurinn fer af stað.
Þegar við hugsum til baka sjáum
við að við grátum af því að við söknum
góðu stundanna með þér. En það vit-
um við, að fjölskyldan þín var þér allt.
Að viðhalda sambandi í stóra hópnum
þínum, það gastu sannarlegaog glatt
okkur öll. Kímnin þín, afi, ræðurnar,
kjarkurinn, framkvæmdasemin,
skylduræknin og svo varst þú hvers
manns hugljúfi. Okkur öllum fannst
þú alltaf frábær þegar þú hélst snilld-
arræður, en það gerðir þú oft og tal-
aðir stoltur um fjölskyldu þína. Þá
gladdir þú hjörtu okkar og sálir.
Víst ávallt þeim vana halt:
vinna, lesa iðja.
Umfram allt þú ætíð skalt
elska Guð og biðja.
Elsku afi, við sendum þér þúsund
kossa. Kærar kveðjur,
Guðmundur, Steinar, Elísa,
Þórður og Sigurjón Ingi.
Þó svo að hann elskulegi langafi
okkar hafi verið kominn á níræðisald-
urinn og orðinn kannski svolítið lúinn
og þreyttur stundum, þá kom það
okkur samt á óvart þegar okkur bár-
ust þær fregnir að hann væri dáinn.
Amma Inga sagði einu sinni að betra
væri að vera þakklátur fyrir þær góðu
minningar sem maður á um þann
látna heldur en að gráta mikið og vera
sorgmæddur, og það munum við gera
enda átt margar yndislegar stundir
saman.
Við munum auðvitað vel eftir afa-
namminu eða saltabjörnunum sem afi
var alltaf með í vasanum og við biðum
spenntar eftir því að þú byðir okkur
einn eða kannski tvo, en oft var erfitt
GUÐMUNDUR
SIGURÐUR
SIGURJÓNSSON
✝ Guðmundur Sig-urður Sigurjóns-
son fæddist í Reykja-
vík 19. nóvember
1920. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Grund 23. maí síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Árbæj-
arkirkju 1. júní.
að bíða eftir boðinu og
látið í ljós með kurteis-
legu betli hverju litlir
munnar biðu eftir. Þeg-
ar komið var inn til ykk-
ar tók síðan ævintýra-
legur heimur við því
ótalmargt gátu augun
skoðað eins og steina,
dúkkur, dýrin o.fl.
Ekki er hægt að
gleyma því heldur hvað
það var yndislegt að sjá
þig og ömmu haldast í
hendur og horfa hvort á
annað eins og þið væruð
að upplifa ást við fyrstu
sýn í hvert skipti. Þetta fær mann til
að trúa því að hægt sé að vera ham-
ingjusamur og yfir sig ástfanginn alla
ævi.
Okkur langar að lokum að þakka
þér, elsku afi-lang, fyrir allar þær
góðu stundir sem við höfum átt sam-
an og þá sérstaklega á jóladag sem
hefur skipt okkur krakkana miklu
máli. Þar höfum við fengið að spreyta
okkur í öllu mögulegu, t.d. dansi og
leiklist.
Elsku afi-lang, við vitum að þú
verður alltaf hjá okkur og við hjá þér.
Við biðjum góðan guð að vera hjá
henni ömmu okkar á þessum erfiða
tíma.
Hvíl í friði, elsku afi.
Jóna María, Eva Björg
og Sigríður Þórey.
Okkur systkinin langar að minnast
frænda okkar, Guðmundar Sigur-
jónssonar, hans Mumma, með nokkr-
um línum. Mummi hefur nú kvatt og
er mikill söknuður í hjörtum okkar
allra, enda hefur stórt skarð verið
höggvið í fjölskylduna við fráfall hans.
Mummi var einstaklega ríkur af ást
og umhyggju og alltaf var gott að
koma í Fagrabæ og heimsækja þau
hjónin, Mumma og Ingu. Viðmót
þeirra var alltaf ljúft og einstaklega
gott, og vorum við ávallt boðin vel-
komin með útbreiddum faðmi. Það
var allt svo innilega jákvætt í kring-
um Mumma, og var hann mikill gleði-
gjafi eins og systkini hans, og engu
líkara en að hann væri ávallt töluvert
yngri en tölurnar sögðu til um. Þrátt
fyrir veikindi sín og konu sinnar var
viðmót hans ávallt hlýtt og indælt.
Það er gott að finna góðar og hlýjar
minningar streyma þegar hugsað er
til Mumma. Hann hefur kvatt okkur,
en minning hans lifir ávallt með okk-
ur.
Megi Guð gefa Ingu og fjölskyldu
þeirra hjóna styrk á þessum erfiðu
tímum.
Hennýjar og Jónsbörn.
„Þetta var gott hjá þér,“ og á eftir
fylgdi hlýlegt bros og klapp vinnulú-
inna handa á bakið. „Þú stendur þig
vel.“ Ég var að stíga mín fyrstu skref í
prestsskap í maí 1991, allt sem ég
gerði var mitt fyrsta. Hvort heldur í
almennri guðsþjónustu, skírn, eða
giftingu var gott að hafa Guðmund
meðhjálpara hjá sér fyrir athöfn. Ein-
hvern sem gaf sér tíma til að hlusta og
gefa góð ráð eins og; sr. Guðmundur
gerir þetta, eða þar á undan, sr.
Bjarni í Mosfelli gerði þetta svona, og
ég fann til þess að vera ekki einn. Það
var sama hvernig ég hitti á Guðmund.
Ungum hug mínum fannst eins og
veröldin væri að hrynja á mig rétt fyr-
ir athöfn, hvað ef ég stæði ekki undir
væntingum þeirra sem sækja guðs-
þjónustuna, hvað ef? Alltaf var hann
rólegur í fasi þannig að ég sjálfur fann
til rósemdar mitt í „hvirfilvindi“ hugs-
ana um að verða ekki á í messunni.
Þegar ég hafði orð á því við Guðmund
meðhjálpara sagði hann alltaf:
„Hafðu ekki áhyggjur af því. Okkur
verður öllum á í messunni. Láttu mig
vita það, orðinn þetta gamall.“ Og svo
fylgdi léttur hláturinn á eftir. Já, ég
var lánsamur að fá að byrja minn
prestsferill undir handleiðslu Guð-
mundar meðhjálpara sem hafði verið
slíkur svo lengi sem elstu menn
mundu. Hann hafði sjálfur stundum
orð á því, aðspurður hversu lengi
hann hefði verið meðhjálpari, að hann
hefði ekki hugmynd um það. „Hver
telur árin þegar ánægjan er annars
vegar?“ sagði hann einhverju sinni.
Það má til sanns vegar færa að Guð-
mundur meðhjálpari hafi tekið emb-
ætti sitt alvarlega og af virðingu. Var
unun af því að sjá og fylgjast með
honum við undirbúning fyrir guðs-
þjónustu. Athuga hvort allt væri ekki
á sínum stað og gæta að kertunum.
Tálga þau til eftir því sem á þurfti að
halda. Gæta að messuskrúðanum,
sálmanúmerin á sínum stað og að
réttu númerin væru uppi. Allt þetta
gerði hann af slíkum virðuleika og
eljusemi að unun var að fylgjast með.
Ekki aðeins unun heldur og líka
styrkur fyrir ungan prest að vita að
það væri allavega einhver sem vissi
með vissu hvað hann væri að gera.
Það gerði Guðmundur meðhjálpari og
færði yfir á þá sem voru ekki eins
vissir. Hlýlegt, vingjarnlegt bros og
klapp á öxl kann að þykja léttvægt
fyrir einhvern. Fyrir mig þýddi það
allt og meira til. Ég hef og mun alla
mína preststíð geyma og sækja þau
augnablik á stundum efans um að ég
sé að gera rétt og eða til ábata fyrir
einhvern eða einhverja. Minning Guð-
mundar meðhjálpara við Árbæjar-
kirkju mun ætíð lifa með þeim sem
kynntust honum á þeim vettvangi.
Missir Ingu, konu Guðmundar, er
mikill. Megi góður Guð blessa þig,
Inga, og börn ykkar.
Sr. Þór Hauksson og Magn-
hildur Sigurbjörnsdóttir.
Nú kveðjum við hinstu kveðju kær-
an vin, Guðmund Sigurjónsson, en
vinátta mín og hans nær alla leið aftur
til æskuáranna og stóð sleitulaust í
rúm 70 ár.
Við ólumst upp samhliða í miðbæn-
um frá því við vorum smáguttar, árin
liðu og var ýmislegt brallað sem gam-
an var að rifja upp á efri árum, höfð-
um við mikið yndi af því og hlógum oft
dátt að hinum ýmsu uppákomum og
prakkarastrikum.
Svo sérstaklega vildi til að við
æskuvinirnir giftumst inn í sömu fjöl-
skylduna, Guðmundur kynntist fyrst
eftirlifandi eiginkonu sinni Ingu Sig-
ríði, ættaðri af Snæfellsnesi. Þegar
kom að því að heimsækja skyldi
tengdafólkið í fyrsta sinn var besti
vinurinn tekinn með og þar með voru
örlög mín ráðin.
Á milli fjölskyldna okkar var alla
tíð mikill kunningsskapur, enda báðir
búsettir í Reykjavík.
Guðmundur var alltaf hress og kát-
ur og bar með sér léttleika hvar sem
hann kom. Ungviðið heillaði hann líka
upp úr skónum því alltaf dró hann
eitthvað sætt í munninn upp úr vös-
unum.
Hann og kona hans voru sérstak-
lega dugleg við að rækta frændgarð-
inn og á hverju sumri, eins lengi og
heilsan leyfði, var farið á flakk út á
land og í leiðinni var frændfólkið
heimsótt, ég og fjölskylda mín nutum
líka góðs af heimsóknum þessara
heiðurshjóna og teljum við okkur rík-
ari fyrir bragðið, við þökkum góða
samfylgd.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég og fjölskylda mín sendum inni-
legar samúðarkveðjur til þín, Inga
okkar, Þóris, Sigga, Sveinu og ann-
arra aðstandenda og biðjum Guð að
styrkja ykkur á erfiðri stund.
Ágúst Sessilíusson og fjölskylda.